Alþýðublaðið - 05.01.1968, Qupperneq 10
Liðsauki til nudd-
stofu Jóns Asgeirss.
Jón Ásgeirsson
UNDANFARIN 7 ár hefur Jón
Ásgeirsson rekið nudd- og sjúkra
þjálfunarstofu í Bændahöllinni
við Haffatorg. Jón hlaut mennt-
un sína í Noregi og lýtur hún að
Iaekningum á svokölluðum menn-
ingarsjúkdómum og er har átt
við kvilla, sem fólk faer fyrst og
fremst af hreyfingarleysi og ein-
hæfu starfi. Þessir kvillar hafa
tekiff |aff hrjá íslendinga sem
aðrar menningarþióðir í æ rík-
ari mæli eftir því sem Iífsþægind
in hafa aukizt, og hefur því mynd
ast mikil þörf fyrir slíkar lækn-
ingastofur.
Jón kallaði fréttamenn á sinn
fund í tilefni þess, að honum hef-
ur bæzt við nýr starfskraftur, sem
er norskur maður, Eugen Knud-
sen að nafni. Knudsen hefur 30
ára langa reynslu í sjúkraleikfimi
og nuddstörfum, svo starfseminni
er mikili fengur að komu hans.
Eins og fyrr segir er mjög vax-
andi þörf fyrir slíkar nuddstofur.
Margir þeir sjúkdómar sem fólk
.líður af, eru þess eðlis, að venju-
legir læknar geta lítið gert við
þeim, má þar til dæmis nefna
kvilla sem stafa af hreyfingarleysi,
en þeir gerast æ tíðari nú á tim-
um bíla og lyftna. Gegn þeim dug-
ir ekker.t annað en sjúkraleikfimi
og nudd. Starfsemi Jóns hefur einn
ig beinzt að því, að gefa fólki leið-
beiningar um hvernig forðast má
slíka kvilia. Mun hann í þessu
skyni bjóða fólki upp á fyrirlestra
og kvikmyndir og fleira.
I Jón lagði áherzlu á það, að sam-
starf hans við venjulega lækna
hafi aukizt mjög. Þá hefur hann
haft samband við heilbrigðisyfir-
völd„.og fræðsluyfirvöld, m. a. í
þeim tilgangi að koma inn í leik-
fimikennslu barna í skólum, lið-
um, sem kenni nemendunum að
bera sig rétt að við ýmsar hreyf-
ingar, svo þeir standi sterkari að
vígi gagnvart menningarsjúkdóm-
um síðar meir.
Þess má geta, að Jón Ásgeirs-
son er eini sérmenntaði sjúkra-
þjálfarinn, sem rekur nuddstofu í
Reykjavík.
Í®lii®itl
.
Þessi mynd er frá ensku
knattspyrnunni, úr leik
Manchester City og West
Bromwich Albion. Á mynd-
inni sézt Horne, Manchest-
er City skjóta að marki
West Bromwich, en mark-
vörðurinn Talbut ver á
marklínunni.
/Jb róttafréftir
í stuttu máli
Satnvinnan
Framhald af 3. síðu.
tekinn til athugunar sérstakur
málaflokkur, og hafa sjávarútvegs
mál orðið fyrir valinu að þessu
sinni. Birtast 11 greinar um það
efni og eru höfundar þeirra Oth-
ar Hansson, Helgi G. Þórðarson,
Árni Benediktsson, Gísli Konráðs
son, Baidur Guðmundsson, Tóm-
as Þorvaldsson, Bragi Eiríksson,
Guðmundur Jörundsson, dr.
Magnús Z. Sigurðsson, Þóroddur
Th. Sigurðsson og dr. Jón Jóns-
son. Auk þess er ýmist annað
efni í heftinu.
Álfabr@!i9ia
! Framhald af 3. síffu.
firðingar, ungir og gamlir, munu
fjöimenna á þessa góðu skemmt-
un, og þessi nýbreytni þannig
verða þeim til ánægju. En áríð-
andi er, að þeir búi sig vel, svo
að þeim verði ekki kalt og geti
þess vegna notið til fulls þess,
sem fram for. Þá er að lokum að
geta þess, að margir blysberar
munu verða í fylgdarliði álfa-
kóngs og drottningar.
UM þessar mundir fer fram ís-
íshokký keppni í Winnipeg í Kan
ada. Kanada sigraði Svíþijóð í
fyrsta leiknum me, 3:2 og síffan
sigruffu Sovétríkin Svíþjóð með
3:0, en Sovétmenn eru lieims-
meistarar í íshokki.
* □ *
Frjálsíþróttamót var háð í Sao
Paulo í f.yrradag. Finninn Kuha
sigraði í 3000 m. hindrunarhlaupi
á 9:14,1 mán. Anders Gærderud
Svíþjóð sigraði í 1500 m. hlaupi
á 33:51.5 mín. Annar varð Hert
oghe, Belgíu á 3:51,7 mín.
* □
Tékkar sigruðu í Evrópumót-
inu í íshokki fyrir unglinga, sem
lauk í Tammerfors í Finnlandi í
fyrradag. Þeir sigruðu Svía í úr-
slitaleiknum með 5:2.
01 □ *
Eins og skýrt hefur verið frá
verður háð heimsmeistaramót í
handknattleik karla í Frakklandi
1970. Undankeppni verður háð á
þessu ári og því næsta. Dregiff
verður í riðla keppninnar í lok
þessa mánaðar. HM 1970 verður
einnig einskonar undankeppni fyr
ir Olympiuleikina í Miinchen
1972. ísland er með í þessari
keppni.
Íshokkí
\á Mela-
veliinum I
t
Á laugardag kl. 2 fer J
fram keppni í íshokki milli f
Skautafélags Reykjavíkur og }
Akureyringa á Melavellin- t
um. Þetta er fyrsti kappleik
\ urinn í þessari skemmtilegu
f íþrótt hér í Reykjavík.
t Akui'eyringar hafa iffkað
f íshokki af miklum áliuga
f undanfarin ár og í fyrravet
ur léku þessir aðilar á Aku''
eyri. Þá sigruðu norðan-
mienn með miklum yfirburð
um 13 gegn 4.
i
Ný námskeið eru að hefjast. — Barnadansar — Samkvæmisdansar — Suður
Amerískir dansar — Gömlu dansarnir — Stepp.
Einstakfingar og hjónaflokkar.
Innritun daglega í síma 14081 ki. 10 — 12 og I — 7.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000
10 4 janúar 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ