Alþýðublaðið - 21.01.1968, Qupperneq 7
Öðruvísi getur hún ekki slcýrt
ringulreiðina, sem hún kemur
auga á’.
ENGIN ÁSTÆÐA TIL AD
ÖRVÆNTA.
Þegar við athugum öll þessi
neikvæðu ellimörk sem talizt
geta þó eðlileg sjáum við hvers
vegna svo margir segja, að gam-
alt fólk sé kröfuhart, eigingjarnt,
óhreinlátt, latt og ómögulegt í
umgengni. Það er líka skiijan-
legt, að margir veigri sér við að
taka foreldra sína inn á heim-
ilið til sín — jafnvel foreldra
sem þeim þykir afar vænt um.
Það er ekki gaman að fylgjast
með manneskju sem maður hef-
ur elskað og meira að segja dáð
og virt alla ævi missa smátt og
smátt alla þá eiginleíka er áður
gerðu hana yndislega og ástar-
verða. Þá er freistandi að senda
hana heldur á' elliheimili og
gleyma þessari leiðinlegu þróun
sem sorglegt er að þurfa að
horfa upp á.
En það er engin ástæða til að
3 nærgætni
örvænta. Öll lítil börn eru kröfu-
hörð, eigingjörn, óhreinlát og
löt inn á milli, og samt eiga þau
ást okkar óskipta. Við elskum
þau eins og þau eru núna og
eins og þau eiga eftir að verða
þegar þau vaxa upp. Á sama hátt
getum við elskað gamla fólkið
bæði eins og það er núna og
vegna þess sem það var áður
fyrr.
Æskan er stundum erfið við-
ureignar, og ellin er stundum,
erfið viðureignar. Það er eðli-
leg rás mála þegar við Iítum á
þersónuleikann sem heild frá því
að ungbarnið fæðist í þennan
heim og þangað til gamli mað-
urinn eða konan skilur aftur við
hann. Þegar miðaldra fólk getur
orðið litið á gamla foreldra sína
í þessu ljósi á það hægara með
að taka þá inn á heimili sitt og
veita þeim þá blíðu og umönn-
un sem þeir þurfa vissulega á
að halda.
Og sama gildir um líkamlega
veikleika gamla fólksins og sál-
rænu veilurnar. Ástrík móðir
sjnnir þörfum barna sinna með
gleði, annast þau og heldur þeim
hreinum, af því að þau eru ekki
fær um að sjá um sig app á
eigin spýtur. Hún getur annazt
gamalt fólk alveg á sama hátt
og af sömu ástæðu — og notið
þess að verða því að liði.
AMMAN EINS OG EITT AF
BÖRNUNUM.
Ung þriggja barna móðir sem
einnig lítur eftir áttatíu og íimm
ára gamall ömmu sinni sagði
þetta:
„Mér fannst amma þung byrði
í fyrstu. Það var hreint og beint
ómögulegt að eiga við hana á
köflum, og oft varð ég að stilla
skap mitt þegar hún ergði mig
sem mest með duttlungum sín-
um og þrákelkni. En svo þarfti
hún að leggjast á spítala um
tíma, og með henni lágu margar
aðrar gamlar konur.
„Ég sá fljótt, að amma var
ekkert öðruvísi en hinar. Ég
hafði haldið, að hún gerði sér
leik að því að vera eríið, en
það var alger misskilningur af
minni hálfu. Læknirinn útskýrði
fyrir mér hvers vegna hún
hagaði sér stundum svona óþægi-
lega, og ég fór að líta á málið
öðrum augum. Núna tek ég hana
bara eins og eitt af börnunum.
„Þegar hún er góð og indæl
og elskuleg eins og áður fyrr og
ekkert rugluð í kollinum, tala ég
við hana eins og jafnöldru mína
alveg eins og ég tala við krakk-
ana þegar þeir haga sér full-
orðinslega. Og þegar hún verð-
ur þreytandi — ja, það geta
krakkarnir nú líka orðið stund-
um — þá’ tek ég það ekki há-
tíðlega og geri mér enga rcllu
út af því.”
Eitt af því indælasta í þeirri
fjölskyldu er einmitt hvað börn-
in umgangast langömmu sína
frjálslega og umbera duttlunga
hennar þegar sá gállinn er á
henni. Þau elska hana eins og
hún er, af því að hún er lang-
amma þeirra sem býr hjá beim á
heimilinu, en þau láta sér ekk-
ert bregða þegar hún verður
skritin í framkomu og ruglar
dálítið.
FJÖLSKYLDAN RÍKARI
ÞEGAR GAMLA FÓLKIÐ ER
MEÐ.
Að sjálfsögðu eiga þessar
breytingar sér alls ekki stað hjá
nærri öllu gömlu fólki. Margir
verða í rauninni aldrei gamlir,
hvaða aldri sem þeir kunna að
ná, heldur lifa til dauðadags
með andlega og líkamlega eigin-
leika sína óskerta.
Ennfremur má gera margt til
að draga úr breytingunum og
koma í veg fyrir þær.. Þegar
afj eða amma er hluti af fjöl-
skyldunni og deilir sorg og gleði,
skemmtunum og rökræðum með
Framhald á bls. 11.
Alþýöuflokksfélag Hafnarfjaöar
heldur fund í Alþýðuhúsinu við Strandgötu,
mánudaginn 22. janúar n.k. kl. 20,30.
FUNDAREFNI: Fjárhagsáætlun Hafnar-
fjarðar fyrir árið 1968, framsögumaður:
Hörður Zóphaníasson, bæjarfulltrúi.
Allt Alþýðuflokksfólk er velkomið, meðan hús
rúm leyfir.
STJÓRNIN.
GLUGGA-EFNI
fyrirliggjandi.
Öndvegi h.f.
Garðahreppi Sími 52374 - 51C90
ÞORRABLOT
EYFIRÐINGAFÉLAGIÐ 1 REYKJAVÍK
heldur sitt árlega ÞORRABLÓT i samkomuhúsinu LÍDÓ
laugardaginn 27. janúar n.k. og hefst kl. 7 síðdegis.
Góð skemmtiskrá.
Aðgöngumiðar verða afhentir, og borðpantanir teknar, í
Lídó fimmtudaginn 25. janúar — kl. 5-7 og föstudaginn
26. janúar kl. 2-4.
STJÓRNIN.
HAFNARFJÖRÐUR.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
heldur fund, þriðjudaginn 23. janúar kl. 8,30
s.d. í Alþýðuhúsinu.
FUNDAREFNI:
1. Félagsmál. 2. Upplestur. 3. Hárkollu-
sýning. 4. Sýndar myndir frá afmæli fé-
lagsins. 5. Kaffidrykkja.
STJÓRNIN.
OWENS-CORNING
Hljóðeinangrunarplötur
Hinir miklu eldsvoðar að undanfömu
gefa tilefni til varúðar í notkun eldfimra
efna í loftkælingu.
hljóðeinangrunarplötur
eru ekki eldfimar
J. Þorláksson & Norðmann hf.
Bankastræti 11 — Skúlagötu 30.
21. j^ijúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ J