Alþýðublaðið - 18.02.1968, Blaðsíða 3
KARÐ FYRIR SKILDI
Svipurinn yí'ir Reykjavíkurhöfn
er nii ekki lengur samur og áður,
því aö nú cr kolakraninn fall-
inn. Illutverk hans hefur verið
oröið lítið síðustu árin, og hann
hefur nú orðið að víkja fyrir mik
illi vöruskemmu, sem á aö rísa
þar sein hann hefur áður stað-
ið. En óneitanlega er sjóndeildar
hringurinn annar nú en áður, eins
og sést á þessum tveimur mynd-
um. Önnur mynd'in er tekin af
krananum meöan hann stóö enn
uppi í allri sinni tign, en sú neðri
er af honum föllnum. Hér eftir
veröa skáld sem yrkja um höfn
ina að nefna annað en kranann
sem tákn hennar, enda er það
kannski hvort eð er löngu komið
úr tízku aö yrkja um kolakran-
ann.
Aöstoð til flótta-
fólks í Víetna m
Nýlega var skýrt frá því að Rauði Kross íslands hefðí liafiö f jár-
söfnun til styrktar nauðstöddu fólki í Vietnam, en Rauöi Krossinn
í öllum löndum hefur nú hafiö slíkt hjálparstarf. Hefur undanfarna
daga verið lögð á þaö megináherzla að aðstoða flóttafólk, segir ^
fréttatilk.vnn'ingu, sem blaöinu barst í gær frá Rauða Krossi íslands.
Fer sú tilkynning hér á eftir:
„í gær barst RKÍ skeyti fró Al-
þjóða Rauða Krossinum í Genf
með fregnum um hjálparstarfið í
Vietnam. í skeytinu segir rh. a.
að undanfarna daga liafi verið
lögð á það megin áherzla að auka
sem mest hjálpina við hinn stóra
hóp flóttafólks. Aðalstöðvum
Rauða Krossins í Saigon hefur
t d. verið breytt í miðstöð fyrir
bágstadda, þar sem nauðsí.ödd-
um og heimilislausum er gefinn
matur og séð fyrir bráðabirgða
húsnæði. Rauði Krossinn hefur
íengið aukið húsnæði til þess-
ara starfa víðs vegar um borg-
ina, m. a. í Cholon, þar scm erf-
iðleikarnir eru éinna mestir. —
Svipuð aukning hjálparstarfs við
almenning er í undirbúningi
víðs vegar um landið.
Sjúkrastöðvum Rauða Kross-
ins hefur verið fjölgað, og eru
sjúkralið Alþjóða Rauða Kross-
ins nú starfandi í flestum héruð-
um landsins, og veita læknar og
hjúkrunarliðar almennum borg-
urum Kðstoð eftir megni. Talið
var í gær, að mesta hættan á
sjúkdómsfaraldri, svo sem tauga-
veiki, sé liðin hjá. Nægilegt bólu-
efni er fyrir hendi.
Eins og kunnugt er af fréttum
hafa stjórnarvöld hinna ýmsu
yfirráðasvæða Vietnam á hendi
fyrirgreiðslu fyrir fióttafólk, en
tekið er fram, að öll aðstoð, sem
Rauði Krossinn veitir bágstöddu
fólki, sé óháð stjórnarvöldunum,
og algjörlega sjálfstæð í sam-
ræmi við starfsreglur Aibióða-
Rauða Krossinn og hlutleysis-
stefnu hans.
í viðbótarstarfi því, sem Rauði
Biblludagur í da$
I dag cr bjbliudagrur og verður Réykjavík, GUÐBRANDS-
hans minnzt í öllum kirkjum STOFU í nyrðri turnálmu
landsins. Biskup íslands skrif Haligrímskirkju. Þar hefur fé-
að'i sóknarprestum nýlega bréf ]agig nú skrifstofu, sem er op-
þar sem hann minnti þá á in daglega kl. 15 — 17, og bóka-
þennan dag og bað þá að veita afgreiðslu. Fyrir sérstaka veb
viötöku nöfnum nýrra félaga vild sóknarnefndar Hallgríms-
í Biblíufélagið og gjöfum, sem kirkju hefur félagið að vísu
berast kunna. Bréf biskups var notið þeirra sérstöku kjara að
á þessa leið: þurfa ekki enn að greiða neina
,,Ég vil hér með, kæri sókn- leigu fyrir þetta húsnæði. —
arprestur, flytja yður þakkir Hins vegar hefur félagið orð-
frá stjórn Hins íslenzka ið að kosta nokkru til nauðsyn-
Biblíufélags fyrir allan stuðn- legrar innréttingar og tii hús-
ing við félagið á undanförnum
árum. Jafnframt leyfi ég mér
að minna á BIBLÍUDAGINN
2. sunnudag í níuviknaföstu,
sem að þessu sinni er 18. febr.
og mælast til þess, að þér notið
það tilefni, sem guðspjöll dags-
ins gefa, til þess að minna á
þýðingarmikið hlutverk Bibliu-
félagsins, sem gegnir því verk-
efni fyrir kirkjunnar hönd að
annast útgáfu og útbreiðslu
Biblíunnar.
Síðan sá háttur var upp tek-
inn hér á landi — í samræmi
við starfsháttu systurfélaga um
allan heim — að hafa sér-
stakan „biblíudag” á hverju
ári, hefur starfsemi Hins ísl.
Biblíuféiags aukizt verulega og
ýmis mikilvæg þáttaskil orðið í
sögu þess. Hefur bibliudagur-
inn átt góðan þátt í því að
styrkja félagið og vekja athygli
á starfsemi þess. Þó þyrfti þátt-
taka almennings að verða mun
meiri og vissulega væri þess
full þörf, að gjafir til félagsins
væru meiri en orðið hefur hing-
að til.
Nú hefur Biblíufélagið eign-
azt sérstaka bækistöð hér í
muna.
Verið er nú að prenta nýtt
upplag af Nýja testamentiiiu
í litlu og handhægu broti ög
mun það væntanlega koma á
markaðinn áður en langt líð-
ur. Þessi prentun verður vöntí-
uð og talsvert kostnaðarsöm,
en mun bæta úr tilfinnanlegri
þörf.
Um verkefni og þarfir félags-
ins að öðru leyti fjölyrði ég
ekki frekar í þessu bréfi, en ég
vona, að síðar á þessu ári verði
hægt að senda yður og öðrum
félagsmönnum nokkru fyllri
greinargerð fyrir fjárreiðum og
áætlunum þess.
Ég bið yður, kæri sóknar-
presfur, f. h. félagsstjórnar, að
tala máli Bíblíufélagsins við
guðsþjónustur ó biblíudaginn
og gjöra svo vel að veita við-
töku nöfnum nýrra félaga, fé-
iagsgjöldum og gjöfum, sem
berast kunna. Áritun félagsins
er: Hið íslenzka Biblíufélag,
Guðbrandsstofu, Hallgríms-
kirkju, Reykjavík. Sími 17805.”
Sigv.rbjörn Einarsson
biskup íslands.
Krossinn hóf til hjálpar flótta-
fólki nú fyrir skömmu, hefur
starfslið Alþjóða Rauða Krossins
þegar veitt tíu þúsund fjölskyld-
um, þ.e.a.s. um það bil sjötíu
þúsund heimilislausum, ýmis kon-
ar aðstoð. Fulltrúar frá Genf
hafa unnið að því undanfarna
daga, að kynna sér ástandið í hér-
uðum utan stærstu borganna, svo
að hægt verði að auka hjálpar-
starfið á sem breiðustum grund-
velli.
Alþjóða Rauði Krossinn hefur
endurtekið tilmæli sín td allra
Rauða Kross félaga um aðstoð
við hjálparstarfið í Vietnam. —
Sænski Rauði Krossinn hefur haf-
ið söfnun í samvinnu við sænska
útvarpið, Finnski Rauði Krossinn
hefur tilkynnt söfnun innan
skamms, og í Danmörku er hafin
landssöínun til hjálpar Vietnam-
starfin-i.
Rauði Kross íslands mælist til
þess, að sem flestir bregðist vel
við hjálparbeiðni Alþjóða Rauða
Krossins. Tekið er á móti fram-
lögum hjá RK-deildum um allt
land og hjá dagblöðunum.”
Leikmenn annast
guðsþjónustuna
í DAG 18. febrúar annast fé-
lagar úr Bræðrafélagi Bústaða-
sóknar guBsþjónustu safnaðar-
ins og bjóða síðan konum sínum
og vinum á skemmtun um kvötdið.
Það hefur nokkrum sinnum
gerzt við guðsþjónustur í Bú-
staðasókn, að presturinn hefur
fengið sér sæti, þegar kom að
prédikuninni, en eitthvert sókn-
arbarnanna steig í stólinn. Nú á
sunnudaginn kemur annast með-
limir Bræðrafélags sóknar guðs-
þjónustuna að öllu öðru leyti en
þvi, :ip sóknwlHresíurinn lýsir
blessun í lokin. Einu sinni áður
hafa bræðurnir þannig skipt með
sér verkum og þótti sú ti’.raun,
gefa góða raun og sjálfsagt að
cndurtaka hana.
Á sunnudaginn er það Aðal-
steinn Maack, byggingaeftirlits-
maður, sem stígur í stólinn og
prédikar, en flutningur ýmissa
annarra liða er falinn bessum
meðlimum Bræðrafélagsins: Dav-
íð Kr. Jenssyni, bygginganieist-
ara, Gísla H. Jóhannssyni, verzl-
únarmanni, Jóhannesi Bj. Magn-
ússyni, kaupmanni, Jóni Jónssyni,
fiskifræðingi og Úlfari Eysteins-
feyni matreiðslumanni.
Frá stofnun Bræðrafélagsins
haustið 1964 hefur það verið
venja að bjóða konum íélags-
Mnanna til hátíðar einu sinni á
ári, er slíkt kallað konukvöld
bræðranna. Verður þetta nú í
dag í húsakynnum Dansskóla Her-
manns Ragnars og hefst kl. 8,30
um kvöldið. Fer þar ýmislegt
Framhald á bls. 15
18 febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ