Alþýðublaðið - 18.02.1968, Page 11
Sú er skoðun Mc Luhans, pró
fessors við Torontoháskóla í
Kanada. Mc. Luhan hefur tek-
izt á hendur hvorki meira né
minna en að skýra alla menn
• inguna í fortíð, nútíð og fram
tíð. Hann á það sameiginlegt
öllum mönnum, sem komið hafa
með nýjar kenningar um al-
heiminn og hugarstarfsémi og
atferði mannsins að gerbylta
ríkjandi skoðunum.
Hann heldur því fram, að
þegar menn horfi á s.iónvarp
sé það frekar vani heldur en
raunveruleg sjónreynsla, að
maðurinn lifi lífinu horfandi
gegnum bakspegilinn og hann
geri sér ekki grein fyrir um-
hverfi sínu fyrr en eftir á; og
það sem verið sé að boða sé
ekki eins mikilvægt og hvernig
það sé boðað eða eins og kenni
mark hans hljóðar: „The med
ium is the message", sem
myndi útleggjast á þann veg,
að leiðin sé hið áunna. — Mc
Luchan er fæddur 1911. Hann
lagði í upphafi stund á verk-
fræði en sneri fljótlega við
henni baki og sneri sér að
enskum bókmenntum. Seinna
stundaði hann nám í Cam-
bridge og kynntist þar verkum
ýmissa höfunda. sem síðar áttu
eftir að hafa mikil áhrif á lífs
skoðanir hans eins og Edgav
Allan Poe („Upphafsmaður
leynilögreglusagnanna. Hann
fékk lesendurna sjálfa til að
leysa gátu sögunnar", segir Mc
Luhan), James Joyce (,,Hann
notar málið einungis sem tján
ingartæki? Finnegans Wake er
grandskoðun tækninnar á allar
hliðar mannlífsins") og Rim-
baud, Baudclaire og Mallermé
(Ég lærði tjáningaraðferðir mín
Ættbálka þjóðfélag'ið endurspgel-
ast í „topplausu" bardömunni.
ar af symbólistum, þeir gefa til
kynna en staðhæfa ekki“).
— Mc-Luhan segist hafa
fengið áhuga á dægurmenn-
ingu, þegar hann átti að kenna
ungum Bandaríkjamönnum við
háskólann í Wisconsin. Sagðist
hann þá hafa mætt ungu fólki,
sem hann hafi ekki skilið, cn
haft knýjandi áhuga á að grand
skoða menningargrundvöll
þess til þess að skiija mál þess.
Til þess að komast að raun
um, hvað fjölframleiðslan hef
ur gert bandarísku þjóðfélagi
kynnti Mc Lulian sér bílaauglýs
ingar, lögun og útlit lykteyð-
andi efna o. s. frv. Hann hef-
ur einmitt nýlokið við að senda
útgáfufyrirtæki nokkru bók sína
um 140 auglýsingar, sem hann
lætur athugasemdir fylgja
með. í bókum, sem hann gaf
út 1962 og 1964 gerir hann
grein fyrir dægurmenningunni
og hvernig hún varð til, og
skýrir jafnframt samsvörunina
í bókmenntum og vísindum. í
annarri þessara bóka segir hann
t.d. frá hagfræðingi, sem held-
ur því fram að unnt sé að
rekja upphaf viðskipta til vana
apans að sveifla sér frá einu
tré til annars. Svo að öllum apa
kenningum sé sleppt eru kenn
ingar Mc Luhans þessar: Þró-
unarstig mannsins hafa frá upp
hafi verið þrjú — ólæsa stigið
eða ættbálkastigið, Gutenberg
'ritlistar-) stigið eða einstak-
lingsstigið og nútíma raf- eða
nýja ættbalkastigið. Sérhvert
stig er háð þeim leiðum, sem
eru til upplýsingaöflunar. Með
uppiýsingum á Mac Lulian
ekki aðeins við t.d. það, sem
unnt er að tjá á prenti og í
sjónvarpi, heldur einnig föt,
klukkur, peninga og hvers kyns
hluti, sem hafa að geyma mein
ingu.
Mc Luhan heldur því fram,
að þessar upplýsingar eða leið
ir breyti skynjun okkar — þ.
e. a. s. maðurinn heyri, finni
til, bragði og finni lykt og þess
vegna viti hann. Segir hann t.
d. að hlutir eins og áhöld og
tungumál hjá hinum frumstæða
manni hafi leitt til þroska
mannsins og hinnar öru þróun
ar heila hans og þróunar frá
öðrum dýrum, en ekki öfugt.
Mc Luhan lítur á sérhverja
nýbreytni sem mótara mannsins
á sama hátt og öxin hafi komið
til vegna handarinnar, sé bók
in afleiðing augans og á sama
hátt séu rafmagnsleiðslur, sími
og sjónvarp útvíkkun á æðakerf
inu. Sérhver slík útvíkkun
breyti jafnvægi hinna fimm
skynjana — geri það eina
skynjun ráðandi og breyti til-
finningum, hugsunum og svör-
unum gagnvart upplýsingum.
Afleiðing þessa sé, að nýtt um
hverfi skapist, rúmskynjanir og
afstaða breytist. Segir Mc Lu
han að þetta sé þríþrepað: nýj
ar leiðir hafi í för með sér
nýtt skynjafnvægi og nýtt
skynjafnvægi leiði af sér
nýtt umhverfi. Af þessum ástæð
um, segir Mc Luhan, er leiðin
hið áunna, vegna þess sé sú
staðreynd, að doppurnar á sjón
varpsskerminum, sem mynda
myndina sé mikilvægari heldur
neldur en hvort doþpurnar
mynda Pétur eða Pál.
— Þannig hafi eyrað verið
hinn ríkjandi þáttur á ólæsistig
ginu, „að heyra var að trúa“.
Maðurinn lifði í hljóðheimi —
í heimi — þar sem til-
finningar, dulúð og samhjálp
var ríkjandi. Með Grikkjum
hafi heimur sjónarinnar hafizt.
Prentlistin, sem Gutenberg inn
leiddi hafi orkað sem atóm-
sprengja; í fyrsta sinni í sög.
unni hafi maðurinn getað les
ið og hugsað í einangrun, ein-
staklingsliyggjan hafi fæðzt,
Prentlistin hafi gert iðnaðar
þjóðfélagið mögulegt, eðlisfræð
in hafj myndazt, í listum hafi
hún haft í för með sér fjarvídd,
og í bókmenntum rökræna tíma
skvnjun. Á 18. öld hafi svo raf
stigið hafist með tilkomu rit-
sírnans. Gutenberg tímabilið
hafði bundið enda á ættbálka
tímabilið; rafstigið hafi síðan
innleitt á ný, — hægt að
gcrina hugsun frá athöfn —
þar sem hinir stöðugu upplýs-
ingamöguleikar þess hafi gert
manninn vitandi um umhverfi
sitt og þannig hafi allar skynj
anir mannsins, sem hann hafi
notað á ólæsa stiginu að vissu
leyti verið samtvinnaðir á ný.
Með fjölmiðlunartækjum nút
tím^ns séu fjarlægðir brúaðar
og allir menn séu háðir hvor
öðrum á sama hátt og menv*
voru á ættbálkastiginu. Mc Lu
han heldur því fram, að menn
séu háðir hvor öðrum á sama
hátt og þeir voru á ættbálkast®
inu. Mc Luhan heldur því frafh,
að bókin sé einskorðuð við eina
skynjun, þ. e. augnskynjunina
og sé það undir framsetningu
hennar komið, hver áhrif hún
hafi. Sjónvarp á hinn bóginn
nái til allra skynjana mannsins,
maðurinn sé „í“ sjónvarpinu,
jafnvel þótt hann sé hættur að
fylgjast með því, sem fram fer
á skerminum. Þess vegna sé»
mótmælin gegn Vietnam styrj-
öldinni svo almenn, sem raun
ber vitni; það sé ekki vegna
þess, að menn almennt séu sv»
miklir friðarsinnar, heldur
vegna þess að menn séu ósjátf
rátt þátttakendur í striðinu fy»
ir tilstilli sjónvarpsins. *
Menn deila að sjálfsögðu um
kenningar Mc Luhans, en það
skiptir máli, hvort þær eru rétt.
ar eða rangar og það gerir reg
inmuninn.
HEIMUR NÚTfMANS
18. febrúar 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ^