Alþýðublaðið - 02.04.1968, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 02.04.1968, Blaðsíða 8
 mmm. fiÍJl SllilliS ■ ■ A ''7-- •/- SIF, flugvél landhelgisgæzl- unnar, fór í gærdag í ískönn unarflug umhverfis landið með fréttamenn og fleiri gesti; var lagt upp á ellefta tímanum um morguninn, en lent á Keykjavíkurflugvelli um klukkan sextán. Ekki verður annað sagt en að á- hyggjusamlega líti út á fjörð um og vogum vestan og norð anlands, ef svo heldur áfram sem horfir um kulda. Munu J)á sjóleiðir lokast með öllu fyrir framangreindum lands- hlutum, er ís verður sam- frosta, en jökulkulda leggja langt á land upp með ófyrir sjáanlegum afleiðingum fyrir jörð, skepnur og menn. AÐAL ísmagnið *byrjar við Kóp og heldur áfram norður og austur með öllu íslandi suður fyrir Glettinganes. Hér er aðallega um að ræða strjál an rekís, er hrannazt hefur á siglingaleiðir sums staðar alveg upp í landsteina. Er ís- hraflið nokkuð mismunandi, en víða alh að því samfellt og teygir sig snjór svo langt á land upp, sem auga eygir; er þetta á köflum allt að því óhugnanlega kuldaleg sjón, og minnir á gamlar sagnir um frostavetur og fanndrif. En tímarnir hafa breytzt og þó að illa kunni að fara, er vart að óttast, að búandmenn flosni af jörðum eða fé falli í svo stórum stíl, að vá sé fyrir dyrum! MEST er hættan á að ísinn verði samfrosta á milli Horns annars vegar og Sléttu hins vegar, en þá yrðu hinir fjöl mörgu bæir og kaupstaðir þar á milli — og mikill hluti íbúa íslands — illa á vegi staddir. Má benda á það, að mikill ís er í mynni Eyjafjarð ar og lagnaðarís inn allan Siglufjörð, þar sem síldar- kaupstaðurinn kúrir illgrein anlegur frá fjöllum og sæ und ir snæhulunni. Þá er injög þéttur ís við Rauðunúpa á Melrakkasléttu og eins út af Rifstanga. Frá Langanesi og suður undir Gletting teygir sig löng ísrönd. ÞYKKT íssins er samkvæmt mælingum landhelgisgæzl- unnar fjórir til sex tíundu á flestum stöðum, nema sjö til níu tíundu við Horn og Sléttu. Eru þetta uggvænlegar tölur, ekki sízt þegar við þær bæt- ast mælingar veðurstofunnar á köldustu aprílnóttum um áratugi. aflað sér standinu þær að i hér í blai linnir þ tíma, eða vor í árat inn 1918 fimmtíu ;

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.