Alþýðublaðið - 07.04.1968, Blaðsíða 3
FBjúga RR-400
til Norðurlanda
Með samningum milli ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar ann-
ars vegar og- dönsku, norsku og
sænsku ríkisstjórnanna hins veg
ar hefur náðst samkomulag um
skilmála fyr'ir flug Loftleiða til
Skandinavíu á flugleiðinni
Skandinavía - Reykjavík - New
York með flugvélum af gerðinni
RR-400. Var samkomulag hér
að lútandi undirritað í Reykja-
vík í dag.
Gildir hið nýja samkomulag í
3 ár frá 1. apríl 1968 að telja.
Ingólfur Jónsson, samgöngu-
málaráðherra, undirritaði sam-
komulagið af hálfu íslands, en
ambassador Danmerkur og Sví-
þjóðar þeir Blrger O. Kron-
mann og Gunnar K. L. Granberg
ásamt sendifulltrúa Noregs,
Kjell 0stram, af hálfu ríkis-
stjórna sinna.
U tanrikisráðuney tið,
Reykjavík, 5. apríl 1968.
Þrír samsöngvar
hjá Fóstbræðrum
í byrjun næstu viku efnir
Karlakórinn Fóstbræður til
þriggja söngskemmtana i
Austurbæjarbíói í Reykjavík
fyrir styrktarfélaga kórsins-
Verða sámsöngvar þessir á
mánudag þann 8., þriðjudag
9- og miðvikudag 10. apríl og
he'fjast kl. 7.15 alla dagana.
Raunar höfðu samsöngvarn
ir upphaflega verið áformað
ir hálfri annarri viku fyrr og
aðgönguskírteini dagsett sam
kvæmt því. Skal þess vegna
vakin sérstök athy-gli á því,
að aðgöngumiðar með dagsetn
--------------------------<
Erindi um
upprisu
Krists
Séra Jakob Jónsson dr. theol.
mun flytja erindi í útvarpið,
dagana 7. og 15. apríl. Erind-
ið nefnist „Skilningur frum-
kristninnar á upprisunni“.
Dr. Jakob mun þar gera grein
fyrir því hvernig hinir fyrstu
kristnu litu á' upprisu Krists, og
leitast m. a. við að svara þessum
spurningum: Hvernig á að líta
á heimildirnar? Hvernig eru frá
sagnirnar samtvinnaðar boð-
skapnum? Er boðskapurinn túlk
aður eins af öllum höfundum,
og hafa allir lagt sömu áherzl-
una á sömu atriðin? Hefur boð-
skapurinn tekið breytingum frá
því atburðirnir gerðust og þar
til frá'sögnin um þá var skráð?
Hvaða straumar og stefnur sam
tímans hafa ráðið mestu um mót
un frásagnanna?
Dr. Jakob Jónsson er sérfræð
ingur í nýja-testamenntisfræð-
um, og auk þess gæddur þeim
eiginleika að geta rætt um vís-
indaleg efni á þann hátt að allir
hafa gagn og ánægju af.
Fyrri hluti erindisins verður
fluttur á Pálmasunnudag, 7.
apríl, og hefst kl. 13.15. Síðari
hlutanum verður útvarpað á ann
an í páskum og hefst kl. 13.15.
(Fréttatilkynning frá ríkisútvarp
inu) .
ingunni 27. marz gilda nú 8.
apríl, 28. marz breytist í 9-
apríl og 30. marz verður 10.
apríl-
hjólög frá ýmsum löndum
setja mjög svip sinn á söng-
skrá Fóstbræðra að þessu
sinni, m.a. er Þar syrpa af
íslenzkum rímnalögum, er
söngstjórinn, Ragnar Björns-
son, hefur fært í búning fyrir
karlakór, og nú verður flutt
í fyrsta sinn. Þá eru sýnis-
horn af norrænum kórlögum,
sungin verða ungversk þjóð-
lög í kórbúningi eftir Béla
Bartók, svo og fjögur brezk
lög. Efnisskránni lýkur með
fjórum ástarljóðum úr flokkn
um ,,Liebeslieder“ op. 52 eft
ir J. Brahms-
Sjórnandi Karlakórsins
Fóstbræðra er Ragnar Björns
son. Einsöngvari með kórn-.
um að þessu sinni er frú Mar
grét Eggertsdóttir, en nokkrir
kórfélaga koma einnig fram
í einsöngshlutverkum. Píanó-
léíkarar með kórnum eru Guð
rún Kristinsdóttir og Ölafur
Vignir Albertsson.
Nýr Lions
klúbbur
Hinn 29. febrúar s.l. var stofn
aður í Rey.kjavík Lionsklúbbur-
inn Freyr. Stofnendur klúbbsins
voru 29 og er þetta áttundi Li-
onsklúbburinn sem stofnaður er
í Reykjavík. Formaður klúbbs
ins er Hinrik Thorarensen, fram
kvæmdasíjóri, varaformaður
Ingimundur Sigfússon, ritari
Sigurður Örn Einarsson og
gjaldkeri Rafn Johnson. Á stofn
fundinum voru m. a. mættir
Gunnar Helgason, umdæmis-
stjóri Lionshreyfingarinnar á ís-
landi og fyrrverandi umdæmis-
stjórar Þorvaldur Þorsteinsson
og Benedikt Antonsson og vernd
ari klúbbsins Hjalíi Þórarins-
son. Á fundinum rikti mikill ein
hugur og áhugi í sambandi við
framtíðarverkefni klúbbsins.
i
Tahð frá vinstri: Guðí'inna Dóra Ólafsdóttir, Fr sðbjörn Jónsson og Halldór Vilhelmsson,
Höfum hlakkað til
hverrar æfingar"
Við Iitum inn á æfingu hjá
hljómsveit og einsöngvurum á
föstudagskvöld, en eins og
'lestum mun nú vera kunnugt
5i' það Polyfonkórinn, félagar
lir Sinfóníuhljómsve'it íslands
»g einsöngvarar alls nær 100
manns sem flytja munu verk-
ið undir stjórn Ingólfs Guð-
brandssonar. Konseirtmeistari
verður Éinar G. Sveinbjörns-
son. Verða tónleikarnir endur
teknir í Þjóðleikhúsinu á skír
dag og föstudaginn langa.
„Verkið er svo skemmtilegt
að við höfum hlakkað til
hverrar æfingar", sögðu ungu
söngvararnir þrír ‘ sem sýngja
munu einsöng er H-molI messa
Bachs verður flutt hér á Iandi
í Kristkirkju á þriðjudags-
kvöld.
Einsöngvararnir, sem allir
-eru ungt fólk eru Guðfinna
Dóra Ólafsdóttir, Halldór
Vilhelmsson, Fi’iðbjörn G.
Jónsson og Ann Collins frá
Bretlandi, en Ann var enn
ókomin á föstudagskvöld,
þar sem flugvél sú sem flytja
átti hana og trompetleikar-
ann Bernard Brown frá Bret-
landi bilaði þar og tafðist.
Tónlistaráhugafólk mun
vafalaust bíða þess með hvað
mestri eftirvæntingu að
heyra til Guðfinnp Dóru Öl-
afsdóftur, en hún fer með
sópranhlutverkið og er þetta
frumraun hennar sem ein-
söngvara.
— Þetta er í fyrsta skipti,
sem ég syng einsöng með
kórnum sagði Guðfinna Dóra
ef undanskilin er ein og ein
lína sem ég hef sungið í
nokkrum verkum- En ég hef
sungið með kórnum í 10 ár,
eða frá því skömmu eftir að
hann va_r stofnaður-
— Hvar hefurðu stundað
söngnám?
— Ég var hjá Engel Lund
í Tónlistarskólanum í 5 vet
ur, en nú í vetur hef ég ver
ið hjá Ruth LiHle. Söngur-
inn er mitt tómstundagaman,
og ég hef haft ómetanlega á-
nægju af að æfa H-moll mess
una — hún er svo skemmti-
legt verk að hún beinlínis
kallar á áhuga söngfólksins
Halldór Vilhelmsson sem
syngur bassahlutverkið hef-
ur látið til sín heyra áður,
söng m.a. einsöng með Poly-
fonkórnum í Jólaoratoriu
Bachs og Jóhannespassíunni
þannig að hann er orðinn
kunnugur þessum gamla
meistara.
— Ég hef sungið í Poly-
fónkórnum í 10 ár, eða á-
líka lengi og Guðfinna Dóra.
Kristinn Hallsson var minn
fyrsti söngkennari en sl. 6 ár
hef ég verið undir hand-
leiðslu Engel Lund.
— Aftur á móti get ég ekki
státað af að hafa sungið hér
í heilan áratug, sagði Frið-
björn Jónsson. Ég hef verið
með annan fótinn í Polyfón-
kórnum síðan 1962, en ekki
í einsöng svo að teljandi sé-
— Aftur á móti söng ég
með Karlakó1- Reykjavíkur
sem sólisti sí- 3 ár. Engei
Lund var lengst af minn
kennari, en nú Síðast hef ég
verið hjá Stefáni íslandi. Ég
er bara að þessu að gamni
mínu — og það hefur verið
stórkostlegt að æfa H-moll
messuna og held ég að allir
séu sammála mér, bæði söng
fólk og hljóðfæraleikarar.
„GAMAN AÐ GETA VERIÐ MEÐ"
„Það er gaman að liafa
fengið tækifæri lil að koma
til íslands og vera með í
frumflutningi H-moll mess-
unnar hér á landi“, sagði Ein
ar G- Sveinbjörnsson konser*
meistari er við hittum hann
í stuttu hléi á æfingunni,
„H-moll messan var færð upp
af Sinfóníuhljómsveitinni í
Malmö og kór og einsöngvur
um Óperunnar þar í fyrra,
þannig að þetta er í annað
skipti sem ég er með í flutn
ingi þessa verks“.
Einar hefur undanfarin
fjögur ár verið konsertmeist
ari í Sinfóníuhljómsveit
Malmö-borgar og jafnframt
kennari við Tónlistarskólann
Einar G- Sveinbjörnsson,
konsertmeistari.
þar í borg, en fimrn ár þar á
undan lék hann með Sinfóníu
hljómsveit íslands.
— Hvað er Sinfóníuhljóm-
sveítin í Malmö stór?
— Það eru um 70 manns í
hljómsveitinni. Hún heldur
vikulega konsert — svona
svipað og Sinfóníuhljómsveit
in hér gerir hálfsmánaðar-
lega — og svo ferðumst við
dálítið um Svíþjóð. Við leik
um, mikið í borgarleikhús-
inu í Malmö en þar eru 3 sen
ur, sem við verðum að sjá
fyrir tónlist, svo að hljóm-
sveitin er allmikið skipt- Það
er mikið leikhúslíf í Malmö,
og alltaf 1—2 óperur eða ó-
Framhald á 5. síðu.
iiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiiiiiiiihiiiiiiiiiihiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiniiiiiimiiiiiiiiiuimiiiiiimiiimiiiiiiiiiiimiiMiiminiiiiimimim
— ALÞÝBUBLAÐIÐ 3
7. apríl 1968