Alþýðublaðið - 07.04.1968, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 07.04.1968, Blaðsíða 14
Náttúrufræðingar óánægðir með: Launakjör og aðbúnað sinnar fræðigreinar Aðalfundur Félags íslenzkra náttúrufræðinga 1968 var hald inn 22. febrúar síðastliðinn, og f var fundurinn vel sóttur. Helztu ályktanir fundarins voru þessar: Fundurinn harmar drát1 þann, sem enn hefur orðið á, að hafin verði kennsla í nátl- úrufræðum yið Háskóla ís- lands, og er þess vænzt, að ekki dragist lengur á langinn að sú kennsla hefjist. Fundurinn fagnar byggingu hafrannsóknaskipanna „Bjarna Sæmundssonar“ og Árna Frið rikssonar", og nýbyggingar Rannsónkarstofnunar Landbú- naðarins á Keldnaholti. Fundurinn vekur athygli. á aðkallandi húsnæðisvandamáli Veðurstofu íslands og skorar á Álþingi og ríkisstjórn að gera nú þegar ráðstafanir til fyrirhugaðra byggingarfram- kváemda. Bendir fundurinn á, að skammt er nú til 50 ára starfsafmælis Veðurstofu ís- lands, sem er í ársbyrjun 1970. Fundurinn mælis4 til þess við stjórnvöld, að hafinn verði undirbúningur að bygg- ingu húsnæðis fyrir Náttúru- fræðistofnun íslands með hús rými fyrir rannsóknaraðstöðu háskólakennslu og sýningar- sali. Fundurinn ítrekar ályktun aðalfundar 1967 og lýsir yfir óánægju sinni með launakjör háskólamenntaðra sérfræðinga, sem laun taka samkvæmt hinu almenna launakerfi ríkisins. — Jafnframt er vakin athygii á ó samræmi því, sem nú er á launakjörum sambæriJegra hópa háskólamenntaðra manna í opinberri iþjónustu. Fundur- inn lýsir yfir fullum stuðningi við Bandalag háskólamanna og telur eðlilegt, að bandalagið og aðildarfélög þess fái fullan samningsrétt. Fundurinn telur að Bandalag starfsmanna rík is og bæja hafi ekki sýnt kjara málum og sérstöðu náttúru- fræðinga og annarra háskóla- manna nægilegan skilning. í stjórn félags ísl. náttúru- fræðinga eru: dr. Sturla Frið- riksson, formaður, Bergþór Jó hannsson, varaformaður, Svend-Aage Malmberg,' ritari, Gunnar Ólafsson, gjaldkeri og Flosi H. Sigurðsson, meðstjórn- andi. í fulltrúaráð Bandalags há- skólamanna var fyrir Félag ísl. náttúrufræðinga kosinn FIosi H. Sigurðsson og til vara Frið- rik Pálmason. 15 létu lífiö Framhald af bls. 1. vegna morðsins á King og bendi allt til að hér sé um verk eins manns að ræða. í óstaðfestum frétt er þess getið að líklegt sé að morðing inn sé á leið suður á bóginn og að FIB leiti hans'í Missisippi og sé hann ungur maður á aldrin um 26 til 30 ára, dökkhærður og um 2m. á hæð klæddur dökk- um fötum. Heitið hefur verið 100,00 doll urum handa hvepjum þeim sem getur veitt upplýsingar, sem leitt gætu til handtöku morð- ingja Kings. Eftirmaður dr. Kings, Ralph Abernathy hefur látið uppi að mótmælagangan, sem King hafði undirbúið á næsta mánudag verði farin, en verði nú farinn til minningar um dr. Martin Lutfier Kng. Búizt er við miklu fjölmenni við jarðarför Kings á föstudag- inn langa og verða meðal við- staddra Johnson forseti og Ralph Bunch varaforseti S. Þ., en hann hefur hlotið friðarverð laun Nóbels. Þrírtfrægir blökkumenn Louis Armstrong, Sammy Davies jr. og Sidney Poitier hafa ókveðið að taka ekki þátt í hátiðahöíd- unum vegna veitingu Oskars- verðlaunanna í virðingarskyni við minningu dr. Martin Luthers king. 1008 éskast Framhald af 1. síffu. ið, verður gefin út handbók, þar sem upplýsingar verður að finna um verkefni þeirra. Um- ferðarverðirnir verða einkennd ir með hvítum ermahlífum. Þeim stöðum, þar sem um- ferðarverðir verða að störfúm, sem stöðug umferðarvarzla verð er í fyrsta lagi skipt í staði þar ur frá kl. 08,30 að morgni og fram til kl. 18,30 að kvöldi. í öðru lagi eru staðir, þar sem aðeins er þörf tímabundinnar umferðarvörzlu. Er umferðar- varzla þar á þeim tímum, sem iimferð gangandi vegfarenda er mest, svo sem er fólk fer til og frá vinnu, í sambandi við kvik- myndasýningar, heimsóknartíma sjúkrahúsa o.s.frv. Leitað verð- ur til eitt hundrað fyrirtækja um að starfsfólk þeirra annist umferðarvörzlu á þeim gang- brautum, sem við fyrirtækin eru. Framkvæmdanefnd H-umferð- ar efnir til happdrættis meðal umferðarvarða um allt land og munu þeir fá afhentan einn happdrættismiða fyrir hverja tveggja stunda varðstöðu. Vinn- ingar í happdrættinu eru alls 10, fimm eru ferðir til Banda ríkjanna ásamt vikudvöl þar í landi, en þá vinninga hafa Loft- leiðir gefið. Fimm vinningar eru dvöl í vikutima í skíðaskólan- um í Kerlingarfjöllum. Þá fá um.ferðarverðír sérstök Viðuú- kenningarskjöl fyrir þátttöku slna í umferðarbreytingunni. Allar nánari upplýsingar veit- ir Fræðslu- og upplýsingaskrif- stofa Umferðarnefndar Reykja- vikur, íþróttamiðstöðinni, Laug- ardal, sími 83-320. Pélyfónkórinn Framhald 3. síðu. perettur gangandi. Áhuginn á leiklist hefur verið mikill allt frá því Ingmar Bergman byrjaði þarna þegar leikhús - ið var stofnað fyrir 20 árum. — Eru tónleikar hljómsveit arinnar vel sóttir? — Áhuginn er mikill á tón list og yfirleitt er fullt hús á tónleikum hljómsveitarinnar, en húsið tekur um 1700 manns — þannig að ég held að við megum vel við una. — Eru fleiri íslenzkir tón listarmenn í Malmö? — Nei, ég er sá eini, en aft ur á móti eru tveir íslenzkir ballettdansarar við leikhús- ið, þau Anna Brandsdóttir og Halldór Helgason. — Hefurðu í hyggju að , vera áfram í Malmö? — Upphaflega ætlaði ég nú ekki að vera nema tvö ár, en mér og fjölskyldunni hef ur líkað svo vel að við lét- um eftir okkur að verða leng ur en við höfum ráðgert. Ég hef miklu fleiri tækifæri þarna en hér heima — fæ oft tsekifæri til að leika ein- leik og það er stutt í aðrar hljómsveitir. Hef ég leikið einleik með ýmsum htjóm- sveitum í Svíþjóð og Dan- mörku, en slíkt er bæði skemmtilegt og lærdómsríkt- Svo hef ég minn eigin strengjakvartett, sem auk mín er skipaður þremur Sví um. Við ferðumst um þegar tími gefst frá önnum í sam- bandi við hljómsveitina. Ég er því hæst ánægður og hef enn sem komið er ekki tekið neiná ákvörðun um að breyta til. wmmmmmmammmmmmmaataaa MESSUR Dómkirkjan. Fermingarmessa kl. 2. Séra Óskar J. Þorláksson. Hafnarfjarðarkirkja; Messa kl. 2. Ferming. Garðar Þor steinsson. Grensásprestakall. Btairnasami’íoma í Breiðagerðisskóla kl. 10.30. Messa kl. 2. Felix Ólafs- son. Háteigskirkja. Fermingarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Þorvarðsson. Messa kl. 2. Ferming séra Arngrím ur Jónsson. I Langholtsprestakall. Fundur Bræðrafélagsins er þriðju daginn 9. apríl kl. 20.30. Fjölmenmð. Stjórnin. Fundur kvenfélagsins er mánudag* inn 8. apríl kl. 20.30. Stjómin Fríkirkjan. Bamasamkoma kl. 10.30. Guðni Gunnarsson. Messa kl. 11 f.h. séra Þorsteinn Bjömsson. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Femiingarguðsþjónusta kl. 2. Sr. Bragi Benediktsson. Kirkja Óháða safnaðarins. Ferming og altarisganga kl. 10.30 árdegis. Aðeins rúm í kirkjunni fyrir vanda- menn barnanna. Séra Emil Björns* son. Hallgrímskirkja. Barnaguðsþjónusta kl. 10. Systir Unnur Halldórsdóttir. Messa kl. 11. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Ásprestakall. Bamasamkoma í Laugarásbíói kl. 11. Ferming kl. 2 í Laugarneskirkju. Séra Grímur Grímsson. Laugárneskirkja. Messa ki. 10.30. Ferming altaris ganga.. Séra Garðar Svavarsson. Neskirkja. Ferming kl. 11. og kl. 2. Séra Jón Thorarensen. Mýrarhúsaskóii. Barnasamkoma kl. 10. Séra Frank M. Halldórsson. Bú^taðaprestakall. Barnasamkoma í Réttarholtsskóla kl. 10.30. Sigurþór Runólfsson. Ferming í Dómkirkjunni kl. 10.30. Sr. Ólafur Skúlason. Tilboð óskast í eftirfarandi fyrir nýbyggingu Rannsókna- stofnunar byggingariðnaðarins: 1. Smíði á 128 útveggjagrindum úr timbri, stærð 5.85 x 1.20 m«. 2. Lamineraðir tréásar, 660 m. 3. Tvöfalt gler, 122 stk. Útboðsgagna skal vitja á skrifstofu vora. Útboð 1. afhendist gegn 1.000.— kr. skilatryggingu. Húseigendur! Verktakar! Það er yðar hagur að leita verðtil- boða frá okkur, í smíði: INNIHURÐA Afgr. hurðaverk á ýmsu fram- leiðslu - stigi, að óskum kaupenda. Sendum um land allt. TRÉIÐJAN H.F. Ytri-Njarðvík, sími 92-I68U. TEKNISKUR TEIKNARI Vita- og hafnamálaskrifstofan vill ráða til sín tekniskan teiknara frá 15. maí. Skrifleg umsókn þar sem greint er frá aldri, menntun og starfsreynslu sendist Vita- og hafnamálaskrifstofunni Seljavegi 32 fyrir 15. apríl. SKOLPHREINSUN úti og inni Sótthreinsum að verki loknu. Vakt allan sólarhringinn. Niðursetning á brunnum og smáviðgerðir. Góð tæki og þjónusta. R ÖR VERK sími 81617. 14 7. apríl 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.