Alþýðublaðið - 07.04.1968, Page 5

Alþýðublaðið - 07.04.1968, Page 5
I mjölið er ekki nema ef til vill 2—8% af fóðurblöndunni í heild. Allt hitt yrðum við að flytja inn. Það er rétt ó tak- mörkunum að það borgi sig að framleiða eigin fóðurblöndu hér í landinu. —Þið hafið hér eigin til- raunaverksmiðju. Hvað getið þér sagt okkur um starfið í henni? — í tilraunaverksmiðjunni höfum við t. d. litla niðursuðu- verksmiðju, þar sem stöðugt eru í gangi tilraunir á margvíslegum niðursuðuvörum Er það ýmist, að þæ rtilraunir eru gerðar að frumkvæði okkar sjálfra, eða þeirra er óskað af iðnaðinum. Stundum eru þær íramkvæmdar í samvinnu við menn úr iðnað- inum. Þá kemur einnig fyrir að við hleypum mönnum úr iðnaðinum hingað inn og leyfum þeirn að gera tilraunir á eigin spýtur. Viö erum með stórar frystigeyrnslur með mis- munandi hifastigi, allt frá 40 upp í 0 gráðu. Þar getum við gert allar þær geymslutilraun- ir með frystan fisk sem við kærum okkur um. Við höfum frystitæki til að frysta með fisk og getum yfirleitt framkvæmt tilraunir á sviði fiskiðnaðar á flestum sviðum sem til greina koma. Við gerum einnig nokkuð af því að reyna vélar fyrir fisk- iðnaðinn, og sem stendur erum við að reyna vél sem framleiðir sjávarís. —■ Hvað getið þér sagt okkur um rannsóknir ykkar á geymslu- þoli fisks? — Eitt af grundvallaratrið- unum í fiskiðnaði okkar er nátt- úrlega þetta, að fiskurinn hef- ur lítið geymsluþol og skemm- ist ákaflega fljótt, ef ekki eru gerðar einhverjar ráðstafanir til að koma í veg fyrir það. Stór liður í okkar rannsóknum hefur alltaf verið að kanna leið- ir til að geyma fisk og verja hann skemmdum. Höfum við unnið á mörgum sviðum. Gott dæmi eru þær tilraunir sem við höfum gert til að varðveita sölt- unarsíld svo hægt sé að flytja hana langan veg, eins og t. d. austan úr hafi og salta hana síðan hér í landi. Tilraunirnar náðu hámarki í sumar sem leið, en þá leigði síldarútvegs- nefnd vélskipið Héðin til flutn- inga á síld austan úr hafi, í til- raunaskyni, og fyrir þeim til- raunum stóð einn af starfs- mönnum okkar, Jóhann Guð- mundsson efnafræðingur. í leiðangrinum voru prófaðar flestar þær geymsluaðferðir fyrir söltunarsíld sem til greina koma, eins og t. d. geymsla í ís, kældum sjó og í saltpækli. Síðan var þessi síld verkuð, þegar hún kom til landsins. — Niðurstöðurnar frá þessum at- hugunum liggja nú fyrir, en það er ekki mitt verk að skýra nán- ar frá þeim, en þetta er einn þáttur í tilraunum okkar til að nýta síldina sem liefur fjar- lægzt landið svo mikið á síð- ustu árum, að til vandræða horfir. , Við vinnum náttúrlega á mörgum fleiri sviðum en þess- um, en ef við höldum áfram með saltsíldina þá hafa breytt- ar göngur síldarinnar haft í för með sér að síld er verkuð leng- ur fram eftir hausti en áður var. Það hefur sýnt sig að í köldu veðri verkast síldin ákaflega illa og ekki eðliiega. Við höf- um gert ítarlegar rannsóknir á því, hvernig síld verkast í ýms- um hitastigum. Þetta er mér sagt að hafi komið að verulegu gagni fyrir síldarsaltendur og gefið þeim vissu fyrir því hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til að síld verkist sæmi- lega. — Svo við snúum okkur að öðru. Hafið þið fengizt eitt- hvað við tilraunaframleiðslu á manneldismjöli? — Hér eru ákaflega margir sem hafa trú. á framleiðslu manneldismjöls og álíta að hún verði hér arðvænlegur atvinnu- og að við ættum að sinna þessu vegur áður en langt um líður, meira en við gerum. Ég hef persónulega alltaf lagzt á móti því að við legðum í mikla vinnu eða fjárútlát í sambandi við rannsóknir á manneldismjöli og ástæðurnar fyrir því af minni hálfu eru ein- faldlega þær, að það eru þeg- ar íyrir hendi margar aðferðir til að framleiða manneldismjöl. Þær aðferðir eru góðar og gildar og ég tel að langflest vandamál í sambandf við þessa framleiðslu séu þegar leyst, og ef við tækjum upp þessa fram- leiðslu gætum við tekið upp þráðinn þar sem aðrir hafa lagt hann frá sér. — Er mikil ■ framleiðsla á manneldismjöli í heiminum núna? — Hún er sáralítil. Sannleik- ur málsins er sá að þetta fólk sem hefur í rauninni þörf fyrir eggjahvítu og líður af eggja- hvítuskorti, hefur enga kaup- getu. Það er blásnautt. Nú, ef kaupgetan verður einhvern tíma fyrir hendi, þá er ég sann- færður um, að þetta manneldis- mjöl verður hægt að framleiða fyrir minni pening í þeim lönd- um, þar sem þetta fólk á sjálft heima. Þess vegna álít ég að þetta mál sé ekki aðkallandi fyrir okkur. Engu að síður höf- um við unnið nokkuð að þess- um málum upp á síðkastið og er það vegna þess, að við höfum átt erfitt með að standa algjör- lega utan við þetta og það hef- ur verið á okkur viss þrýsting- ur að fara að gera eitthvað. Tilraunir okkar hafa fyrst og fremst miðast við það, að fram- leiða manneldismjöl úr síldar- pressuköku og loðnu, sem við teljum að séu þau tvö hráefni sem helzt koma til greina hérna. Það hefur að sínu leyti gengið ágætlega og við sjáum engin vandkvæði á því að framleiða manneldismjöl sem uppfyllir þau skilyrði sem til er ætlazt. ■— Fylgizt þið gjörla með því sem gerist erlendis á ykkar sviði? Framhald á 10. síðu. Jön Ögmmidsson og HaÚdór Þorsteinsson við rann óknir í efnafræðideild stofnunarinnar, Hluti af tækjakosti Rannsóknarstofnunar fiskiðnað ins, Geir Arnesen efnaverkfræðingur við tæki sem notað er við rannsóknir á amínósýrum. ts* 7. apríl 1968 ALÞÝ0UBLAÐ1Ð $

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.