Alþýðublaðið - 17.04.1968, Side 2
EGSetO)
Bitstjórar: Krlstján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Simar: 14900 —
14903. - Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu,
Beykjavik. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sfmi 14905. — Áskriftargjald kr.
120,00. — 1 lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf.
60 einmenningskjördæmi?
UNDANFARNAR VIKUR hafa
sprottið upp nokkrar umræður
um kjördæmaskipan, og hefur
bólað á gömlum hugmyndum um
að hætta við hlutfallskosningar
en skipta öllu landinu í einmenn
ingskjördæmi. Hafa þessar um-
ræðiir borizt inn á Alþingi, þar
sem fjallað hefur verið um stjórn
arskrármálið í heild.
Svb virðist, sem þröngsýni
framsóknarmanna hafi bjargað
þjóðínni frá slíkri kjördæma-
skipan. Sjáljfstæðismenn vildu
gera Reykjavík að 20-30 einmenn
ingskjördæmum, eins og íbúa-
fjöldi gaf tilefni til, en því hafn-
'aði Framsókn. Þar með var sam
komulag þessara flokka um mál
ið úr sögunni, en Sjálfstæðismenn
sneru sér að vinstriflokkunum
og sömdu um hlutfallskosningar
í stórum kjördæmum.
Meginröksemd fyrir einmenn-
ingskjördæmum er, að þau veiti
einum flokki hreinan meirihluta
og tryggi festu í stjórnarfari.
Bjarni Benediktsson hefur í þing
ræðu afsannað þessa kenningu
með dæmum um upplausn, er var
í íslenzkum stjómmálum, með-
an enn voru einmenningskjör-
dæmi, og festu, sem skapazt hef-
ur eftir að hlutfallskosningar
urðu algerar 1959. Þarmeð er
veigamesta röksemd fyrir ein-
menningskjördæmum hrakin.
Sagt er, að einmenningskjör-
dæmi mundu draga úr flokka
valdi og gera stjórnmálin persónu
legri. Þetta er misskilningur. Hér
á landi mundu þrír minni flokk-
ar taka saman höndum gegn þeim
stærsta í hverju kjördæmi. Þar
með væri val frambjóðenda kom
ið í hendur flokkanna og vald
þeirra meira en nú er. Val á milli
manna yrði mun þrengra en nú.
Hvert einmeriningskjördæmi á
íslandi mundi hafa innan við
2.000 kjósendur. Svo smá geta
kjördæmi ekki verið, enda alltof
létt að hafa á þau áhrif með efna
hags- eða fjármálavaldi eða á
annan óeðlilegan hátt.
Menn ræða um jafnrétti allra
borgara, hvar sem þeir búa á land
inu. í þeim efnum hefur pottur
verið brotinn hér á landi og er
enn. Ekki má þó gleyma, að ann-
ars konar misrétti getur skapazt.
Einmenningskjördæmi mundu
skapa herfilegt misrétti gagn-
vart minnihlutaflokkum og draga
óeðlilega úr aðstöðu þeirra. Kem
ur jafnvel fyrir (sbr. England og
Bandaríkin), að minnihlutaflokk
ur fær meirihluta þingmanna, en
meirihlutaflokkur verður að
stjórnarandstöðu. Tilviljanir ráða
of miklu um, hvernig fylgi flokka
raðast í hin smáu og mörgu kjör
dæmi. Þessi áhætta jafnast hjá
stórþjóðum, en yrði óþolandi hjá
smáþjóð með aðeins 60 eða færri
kjördæmi.
Það er hægt að gera ýmsar end
urbætur á núverandi kjördæma
skipan, bæði til aukins jafnréttis
kjósenda og til að gera kosningu
persónulegri. En í grundvallar-
atriðum hefur þessi skipan gefizt
vel og fært þjóðinni meiri festu
í stjóm landsins en áður hefur
þekkzt.
Einmenningskjördæmi eru stór
'gölluð og má hiklaust fullyrða
að íslenzka þjóðin mundi aldrei
sætta sig við þau í raun.
KJÖRBÖRN OG FÓSIURBÖRN
GERA ber skarpan greinar-
mun á 1) ættleiðingu og 2) fóst
ursambandi, sem er tvennt ó-
líkt. Um ættleidd börn, eða kjör
böm eins og þau eru venjulega
nefnd manna á milli, gilda hér á
landi sérstök lög, en um fóstur
börn er við fá lagafyrirmæli að
styðjast og alls engin heildarlög.
Lög um meðferð einkamáia í hér
aði og lög um meðferð opin-
berra mála drepa þó lítillega á
fóstursamband. Sjá og alm.hegn
ingarlög og lög um almannatrygg
ingar.
Mikill munur er á því hvort
barn er kjörbarn eða fósturbarn.
Einn veigamesti munurinn á
ættleiðingu og fóstri er þessi:
1) Þegar barn er ættleitt,
hverfa foreldraráð til ætt-
leiðenda.
2) Þegar barni er komið í
1 fóstur, haldast foreldraráð
í in eftir sem áður hjá for-
eldrunum.
Annar veigamikill munur er
2 17. apríl 1968 -
líka sá, að erfðasamband er á
milli kjörforoldra og kjörbarna
og gagnkvæmt, en ekkert erfða
samband (lögerfðasamband) á
milli fósturforeldra og fóstur-
barna þeirra. Hins vegar er að
sjálfsögðu áframhaldandi erfða-
samband milli fósturbarns og
kynforeldris, þó að barninu sé
komið í fóstur. Við ættleiðingu
rofna aftur lögerfðatengsl kyn-
foreldris og kjörbarns.
Fóstur er að sjáifsögðu .stofn
inn bæði í venjulegu fóstursam
bandi og ættleiðingu, — er ætt
le'ðing sprottin úr venjulegu
fóstursambandi, sem því er
eldra. T.d. rekumst við víða í ís
lencgngasögum á' fóstursamband,
en að sjálfsögðu ekki á ættleið
ingu, eins og við þekkjum hana
nú. Að fornu tóku menn oft ann
arra börn til fósturs og uppeldis
í heiðursskyni við foreldra —
eða þeim tii stuðnings, sem í
kröggum voru.
Ættleiðing í íslenzkum lög-
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
um er þangað komin úr dönsk
um rétti, sem aftur hefur þáð
hana úr öðrum evrópskum rétti.
Talið er, að ættleiðing sé upp-
haflega komin úr Rómarrétti
(adoptio-doptio: Kjörval). í Róm
arrétti var um tvenns konar ætt
leiðingar að ræða — germanskur
réttur er aftur kunnur að ýmiss
konar fóstursamböndum. Ætt-
leiðing er nú orðin töluvert rót
gróin og ekkert reifabarn í norr
ænum rétti, - en þó að undar-
ItÖ©
. Sb
RETTUR
legt megi virðast eru til þjóðir,
sem jafnvei þekkja hana ekki,
t.d. Portúgalar, en í Portúgal,
einu Evrópulanda, þekkist ætt-
leiðing alls ekki. Og sum önnur
Evrópulönd hafa verið sein til í
þessum efnum, - t.d. fengu Holl
endingar sína fyrstu ættleiðing-
arlöggjöf ekki fyrr en 1956.
Ættleiðing er rnjög viðamik-
ið lögfræðilegt viðfangsefni, sem
ekki verða gerð skil að ráði að
þessu sinni; verður það að bíða
sérstakrar greinar, ef tækifæri
gefst. En þeim sem áhuga hafa
á' að kynna sér efnið til ein-
hverrar hlítar, hafa til dæmis á
huga á að taka kjörbarn, skal
bent á tvö undirstöðurit íslenzkra
bókmennta um þessi efni: langa
og ítarlega ritgerð próf. Ármanns
Snævarrs um hina lögfræðilegu
hlið málsins, en sú ritgerð birt
ist á sínum tíma í Tímariti lög
fræðinga og var gefin út sér-
prentuð; og bók dr. Símonar
Framhald á bls. 14.
Bréfa—
KASSINN
Aðliðnum páskum
NÚ eru blessaðir páskarnir
liðnir með fylltu lambslæri,
sviðum og rófustöppu — og
steiktum svínakótelettum.
Mikið lifandis skelfing er mað
ur nú saddur og ánægður —
1 og svo sá maður Djeims Bond
á annan — svona til að kór-
óna lífsfyllinguna og sælutil-
finninguna. Já, það er sem ég
segi: það ættu alltaf að vera
jól eða páskar.
★
EN kæri Bréfakassi. Hver er
annars skýringin á því að
maður er alliaf svona skolli
latur og syfjaður eftir stór-
hátíðir? Það er fjanda korn-
ið að maður nenni að fara að
vinna aftur. Er þetta ef til
vill einhvers konar ofmettun
— sem lýsir sér í andlegum og
líkamlegum sljóleika?
★
SVO kemur að því, að maður
fer að hlakka til sumardagsins
fyrsta- Þá fara blessuð börn-
in á kreik með feðrum og
mæðrum — veifandi þrílitum
fánum — íslenzka fánanum
vænti ég? Ég vona bara mað
ur fái ekki að sjá mikið af
káboj-höttum og þvilíku, —
það hefur alltaf komið svo
illa við þjóðræknina í mér.
★
OG þá er nú víst ekki annað
- eftir en að kveðja. Vertu bless
aður, Bréfakassi minn, og fyr
irgefðu tilskrifið, sem var nú
reyndar í fátækara lagi. Ég
vona að þú takir viljann fyrir
verkið- -Mér er alltaf svo
skolii létt, um að skrifa begar
vorar. Vorið virkar eitlhvað
öðruvísi á mig en aðra. Þá
langar mig bara að setjast nið
ur að lesa eða skrifa gullald
arbókmenntir).
BLESSAÐUR
þinn K.S.
EIRRÖR
Kranair,
fittings,
einangrun o. fl. til
hita- og vatnslagna.
Burstafell
byggringavöruverzlun
Réttarholfsvegj 3,
Sími 38840.