Alþýðublaðið - 23.04.1968, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 23.04.1968, Blaðsíða 2
 EG£Sll£I> Bltstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. - Auglýsingasími: 14906. — Aðsctur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald fcr. 120,00. - I lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf’. MEÐFERÐ UTANRÍKISMÁLA Um langt árabil má segja, að meðferð Alþingis á utanríkismál um og hlutur þingsins í stjórn þeirra hafi verið ófulinægjandi. Fundir voru sjaldan haldnir í ut anríkismálanefnd og umræður ■um gang mála á þessu sviði fá- ar. Orsaka þessa ástands er að leita í kalda stríðinu. Vegna hinna hÖrðu átaka, sem þá urðu, og hinnar taumlausu tortryggni, sem myndaðist, varð meðferð utan- ríkismála eins og raun bar vitni. Vonlaust var að fá málefnaleg- ar umræður á Alþingi, sem að gagni mættu koma. Þar bar mest á ofstæki og áróðri; þegar minnzt var á þessi mál. Nú er ástand mun betra á þessu’ sviði. Emil Jónsson hefur tekið upp náið samstarf við utanríkis- málanefnd og er því treyst, að menn bregðist ekki nauðsynlegri trúnaðarskyldu. Þá hefur Emil flutt þinginu skýrslu um málefni Atlantshafsbandalagsins og vam- arliðsins. Er það að vísu aðeins hluti af utanríkismálum okkar, en skýrslan gæti orðið upphaf af meiri og víðtækari skýrslugerð ráðherra til Alþingis og þarmeð meiri þátttöku þi’ngmanna í mót un utanríkisstefnu. í skýrslu Emils í síðustu viku kom greinilega fram, að ríkis- stjórnin hefur ekki fyrirætlanir um að segja ísland úr Atlantshafs bandalaginu, eins og nú standa sakir, og áformar heldur ekki að segja upp varnarsamningnum. Enda þótt aðstæður hafi mjög breytzt á síðustu misserum og friðsamlegra sé í Evrópu en um langt skeið, telur stjórnin enn ekki tilefni til að breyta þessum grundvallaratriðum utanríkis- stefnunnar. Samt sem áður telur stjórnin sjálfsagt. að staðai íslands sé vand lega athuguð með tilliti til breyttra aðstæðna, og á það ekki síður við um varnarmálin, eins og fram kom í stef’nuyfirlýsingu stjórnarinnar á síðasta hausti. Hins má minnast, sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra benti rækilega á, að ástand heims mála er enn ófriðlegt. í þeirri á- lyktun um Viet Nam, sem Efri deild samþykkti, er fullyrt að ó- friðurinn þar geti.hvenær sem er orðið að heimsstyrjöld. Gefur sú staðreynd ástæðu til nokkurrar gætni, enda þótt nauðsynlegt sé að skilja afleiðingar þeirra breyt inga, sem stöðugt verða í heims- málum. Nú ríkir annar andi í þessum málum á Alþingi en áður var, þótt einstaka maður tali enn eins og í kalda stríðinu. Er því von til, að eðlilegar umræður þingsins um utanríkismál geti komið að raunverulegu gagni og verið meira en hatramur áróður, eins og til skamms tíma hefur verið. Vald Poulsen hf. Suðurlandsbr. 10 SUÐURLANDSBRAUT 10 FENNER-V reimar Reimskífur Flatar reimar BOLTAR, SKRÚFUR, RÆR KRANAR allsk. Fittings sv. og galv. Sendum gegn Póstkröfu. VALD. POULSEN! KLAPPARSTÍG 29 - SÍMAR: 13024 -Í5235 SUÐURLANDSBRAUT 10 - : 38520 - 31142 Karlakérirm ÞRESTIR HafnárflrSi. Sfíinsöngvar Karlakórinn heldur srmsöngva í Bæjarbíói, þessa daga: Þriðjudag, 23. apríl kl. 9, miðvikudag, 24. apríl kl. 9, föstudag, 26. apríl kl. 9 og laugardag, 27. apríl kl. 5. Söngstjórn: Herbert Hriberschek Ágústsson. Undirleikur: Skúli Halldórssan (píanó) Pétur Björnsson (bassi) Karl Fabrí (slagverk) Einsönguf: Ólafur Eyjólfsson. Aðgöngumiðar seldir í bókaverzlun Böðvars Sigurðssonar, Strandgötu, Hafnarfirði, og við innganginn. Karlakdrinn ÞRESTIR Áskrifftasími Alþýðubiaðsins er 14900 Brefa— KASSINN UM þessar mundir er mlkið rætt um umferðarmál og hvar menn eiga að skilja eftir bíla sína. Svo er að sjá sem bilar séu að verða aðalatriði málsins, en mannfóJkið eigi að víkja fyrir þeim - sem það sannarlega gerir. Það er ágætt að finna út ný bílastæði. en mig hefur lengi furðað á því hve lítið er um að teknir séu skemratilegir stað ir og þeir gerðir þannig úr garði að þægilegt sé fyrir fólk að vera þar. Ég'-skal skýra þessar hugmynd ir nánar. Vjð eigum fin veitingahús inni í borginni, en staður eins og Klöppin héma framan við Skúla götuna er 'höfð fyrir tanka og smurningsstöð fyrir bíla. Orfiris- ey var gerð að hafnarsvæði, og ofan á vöruskála sem nú á að reisa við höfnina á að setja bíla stæði. Á öllum þessum stöðum mundi hafa verið hentugt stæði fyrir veitingaskála þar sem fólk gæti setið og virt fyrir sér vítt og fagurt útsýni. Mér er óskiljanlegt hvers vegna sjónarmið mannsins sjálfs, þetta sem honum er til gleði, er svo oft látið víkja fyrjr einhverju hagrænu sjónar miði. Þetta er þó ekki öll sagan. Hvergi í Reykjavík er útiveit ingastaður. Þetta hefur verið reynt, en alls staðar lagzt niður vafataust sakir hinnar ótryggu veðráttu, því að sumur á íslandi geta naumast talizt sumur, þau eru oft bara eins og svalir haustdag ar annars staðar í Evrópu. En á þessu öllu mætti ráða bót. Útivistarstaður af þessu tæi með veitingaaðstöðu þyrfti að vera með skjólveggjum að einhverju leyti og að nokkru leyti undir gleri. Þetta þyrftl að vera einskonar ,,gróðurhús’* eða „vermireitur”. Það stendur ekki á að byggja slík hús fyrir gróður. Hver.s vegna taka ekki okkaf ágætu arkitektar sig tit og skipu leggja slíkan stað? Hann gæti verið inn í Laugardal. Sá sem levfir .sér að horfa til framtíðarvnar hlýtur að sjá að slíkir staðir muni verða al- algengir á ístandi í framtíð- inni. Þeir einir geta bætt okk ur udd svöl sumur og rysjótta tíð. Stundum er sterkt sólskin en eneinn friður fyrir stormi, en á beim yrði alltaf sumar þeg ar bara er sólskin. Á þessum stað þyrfti að vera Framhald á bls. 14. 2 23. apríl 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.