Alþýðublaðið - 23.04.1968, Page 4
HEYRT&
SÉÐ
BGE$Bf E!TT M^ög margir kannast við söguna af Mombí
Bitt, hinum dæmalausa praklcara. Helgi
Hjörvar las söguna í eigin þýðingu í útvarpið fyrir mörgum ár-
um og bókin kom út i endurútgófu fyrir jólin. Svíar hafa nú
gert sjónvarpskvikmynd um þennan vinsæla strák og er nú verið
að sýna myndina í Noregi. Ekki vitum við hvort myndin verður
sýnd hér, en ekki er það ólíklegt, hvenær sem af því verður. Þess
má geta að Fritiof Nilsson, höfundur, samdi aðra bók um Bombí
Bitt en hún hefur enn ekki verið þýdd á íslenzku. Myndin er
af drengnum sem leikur Bombí Bitt í sjónvarpsmyndinni.
Leynisagna- og hryllingshöfundurinn Edgar Wallace hefur undan-
fárið notið vaxandi vinsælda og bækur hans seljast enn í milljóna-
upplagi. — Þjóðverjar eru einkum iðnir við að framleiða myndir
bvggðar á sögum Wallace . .. Hér á myndinni sjáum við nýjasta
,,íund“ þýzka kvikmyndaframleiðandans, Alfreds Vohrers, sem hef-
ui- gert margar kvikmyndir eftir sögum Wallace. Heitir hún Sophie
Hardy og er frönsk að ætt.
B Sl IDGESTON E
Frá Byggingarsamvinnufétagi
Kcpavogs
Lausar eru til umsóknar nokkrar- íbúðir í 8. byggingar-
flokki.
Félagsmenn sem vilja sinna þessu tali við Salomon Eínars.
son, síma 41034, fyrir 1. maí.
STJÓRNIN.
4 23. apríl 1968 —
>■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Kvikmyndagagnrýnendur í New
York kusu „Nóttin var heit“,
beztu myndina árið 1967. Hinn
kunni leikari Rod Steiger (lék aSal
hlutverkið í Veðlánaranum sem
var sýnd í Laugarásbíói) leikur í
myndinni lögregluforingja og Sid-
ney Poitier leynilögreglumann hjá
FBI.
Klukkan er 2.30 heita septem-
bernótt í smábænum Sparta í
Bandaríkjunum. Einn af lög-
reglumönnum borgarinnar er
á venjulegu næturróli. Hann
ekur hægt eftir mannauðum
götunum og að venju ekur
hann um fátækrahverfin. Hann
tekur eftir því að það er Ijós
í eldhúsglugga og fyrir innan
stendur Delores Purdy, ljóm-
andi vel vaxinn — og nakin,
Sam Woods lögreglumaður
þurrkar svitann af enninu og
ekur áfram. Skyndilega hemlar
hann snöggt. Á götunni fyrir
framan lögreglubílinn liggur
maður í hnipri. Það tekur lög
reglumanninn ekki langa
stund að átta sig á að maður-
inn er dauður —• myrtur.
.Og nú taka hjólin að snú-
ast hratt. Sá myrti er þekkt-
ur iðjuhöldur sem ætlaði að
byggja stóra verksmiðju í
Sparta, svo hér hlaut morðing
inn að vera. Hinn nýi lögreglu
stjóri (Rod Steiger) setur allt
í gang á sinn harðneskjulega
hátt og skipar svo fyrir að
koma með alla grunsamlega
menn á lögregluvarðstofuna,
eins fljótt og auðið er.
Rétt fyrir klukkán fjögur
kemur Woods með Virgil Tibbs
(Sidney Poitier) á varðstofuna.
Hann er negri, og sérstaklega
vel klæddur — þessvegna er
hann óvenjuleg sjón í Sparta.
Woods fann hann á járnbraut-
arstöðinni þar sem hann beið
eftir morgunlestinni.
Tibbs svarar öUum spurning
um kurteislega, en þó með
gætni, því lögreglustjórinn er
óvæginn og ókurteis. Þeir
rannsaka veski hans og finnst
hann hafa grunsamlega mikla
peninga á sér — alltof mikla
peninga fyrir heiðarlegan
negra.
Tibbs segir þeim að hann
vinni sér inn 162 dollara á
viku sem lögreglumaður í
Philadelfíu, en lögreglustjór-
inn trúir ekki einu orði og með
mestu fyrirlitningu skipar
hann að láta negrann balc við
lás og slá.
En Tibbs er sá sem hann seg
ist vera, og það sem meira er,
hann hefur verið sendur út af
örkinni til að hjálpa lögregl
unni í þessum bæ.
Gillespie og Tibbs hata
hvor annan afl lífi og sál og
leikur þeirra er svo sannfær-
andi að áhorfendur draga and
ann djúpt í hvert skpti sem
þeir lenda í sennu. . .
Á meðan ver'ið var að leika
í myndinni sagði Rod Steiger:
— Sidney og ég höfum verið
persónulegir vinir í næstum
20 ór. Við kynntumst í leikhús
um New York borgar. Við höf
'um alltaf óskað eftir að leika
saman og við vorum ákvkeðn
ir í að láta það verða þegar
við fyndum eilthvað sem
hæfði okkur. Ég held fastlega
að við höfum fundið það sem
við leituðum eftir.
Hann hefur víst rétt fyrir
sér. Þetta er sögð mjög góð
mynd.
Lím inn
í EeÉS&nni.
★—
V eitingarskálinn
GEIT&SÁLSB.
VEL WEGINN MU.
^\w \u
í«
Rod Steigcr og Sidney Poitier í myndinni „Nóttfn var heit“.
Frá matsveina- og veitingaþjóna-
skóianum.
SÝNING
á sveinsprófs verkefnum matreiðslu og framleiðslunema,
veröur haldin í húsakynnum skólans í Sjómannaskólanum
kl, 2-3 í dag.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ