Alþýðublaðið - 23.04.1968, Síða 14
Skeggrætt
Framhald af 7. sí'ðu.
skemmu að nýju þessvegna
væni minn. Meðan allir veggir
eru ióðréttir samkvaemt halla
máli og öll horn hornrétt sam
kvæmt hornamæli og þakið ligg
þétt við brún, stendur skemm
an hér af sér öil veður og lífi
og lieilsu pakkhúsmanna verð
ur ekki hætta búin. Ég hef
lagt sáluheill mína í þessa
skemmu, eins og reyndar öll
hús, sem ég hef haft hönd í
hagga með. Mig hefur dreyiat
hana á nóttinni og iég hef skoð
að báðar hliðar á öllum teikn
ingum. Það skitna er að ég
hef margoft re'kið mig á það,
að oft er hægt að ná mun betri
árangri með hús, ef maður
skoðar einungis bakflötinn á
teikningunum. Þegar arkitekt
er að teikna ósköp venjulegt
og hversdagslegt hús er harfn
oft að gera snilldarverk aftan
frá og hertu þig nú væni minn
með spítuna þá arna og láttu
manninn ekki standa þíg að
einu drolli!
Breytingar
Framhald úr opnu.
á vegum, miðað við þunga
þeirra:
1. 1 bifreið með 12 smálesta
öxulþunga (stór vörubifreið)
slítur veginum jafnmikið og 35
þúsund bifreiðir með 0,5 smá-
lesta öxulþunga (fólksbifreiðir),
miðað við sama akstur.
2. 1 bifreið með 8 smálesta
öxulþunga (meðalstór viírubif-
leið) slítur veginum jafnt og 7
þús. bifreiðir með 0,5 smálesta
öxulþunga (fólksbifreiðir) mið-
að við sama akstur.
3. 1 bifreið með 6 smálesta
öxulþunga (minni vörubifreið)
slítur veginum álíka mikið og
5400 bifreiðir með 0,5 smálesta
öxulþunga (fólksbifreiðir) mið-
að við sama akstur:
Heimildin um ökumæla er
mjög gagnlegt nýmæli, sem
stuðlað getur að réttlátri skatt-
lagningu þungra ökutækja. Við
teljum þó, að í stað hækkunar á
gúmmígjaldi, hefði verið heppi-
legra að taka upp stighækkandi
þungaskatt, bæði með tilliti til
þess að ökumælar geta leið-
beint um réttláta skattlagningu
5 tonna bifreiða og þyngri, og
einnig með hliðsjón af því, að
hjólbarðar eru mikilsverð ör-
yggistæki, og verð má ekki
hindra bifreiðaeigendur í endur-
nýjun þeirra. Þá er rétt að vekja
athyglj á' því, að verð á hjólbörð-
um lækkaði vörulega hér á landi,
þegar innflutningur á þeim var
gefinn frjáls. Það verður einnig
að líta á það sem óheppilega
ráðstöfun að taka til baka, með
nýjum sköttum, þann eðlilega
og sjálfsagða hagnað, sem bif-
reiðaeigendur fengu með frjálsri
verzlun.
KostnaSargrýla.
Þá vill FÍB einnig vekja at-
hygli á því, að sú bráðabirgða-
kostnaðaráætlun fyrir hrað-
brautir hér á landi, sem gerir
ráð fyrir, að 1 km. kosti 5 millj.
,kr„ er of há. Með hagsýni og
fyllstu nýtingu á nútímatækni,
mun víðast hvar hægt að leggja
hraðbrautir á fjölförnustu leið-
um hér á landi fyrir 2/3 eða
jafnvel helming þessa verðs, ef
tekið er fullt tillit til okkar
þarfa, og hentugustu tæki, efni
og aðferðir notað við gerð veg-
anna.
Hrsðbrautarfé —
eyðslufé.
FÍB vill vekja athygli á því,
sem fram kemur í athugasemd-
um við frumvarpið, að fyrirhug-
að er að gera áætlanir um lagn-
ingu hraðbrauta að lengd um 300
km. næstu 5 — 6 árin, og verði
þá varið í það fé, sem kemur í
vegasjóð vegna þessara nýju
skatta, ásamt nokkru af þeim
tækjum, sem vegasjóður hefur
samkvæmt eldri ákvæðum, og
lánsfé. FÍB telur, að hér sé far-
ið inn á rétta braut og beri að
fagna því framtaki, sem liggur
að bakj slíkra fyrirætlana. Þessi
fyrirheit eru glæsileg og geta
staðizt, ef rétt er á haldið, en
upphaf þessa ágæta máls er því
miður æði bágborið og lofar ekki
góðu, því að samkvæmt bráða-
birgða-ákvæðum við lagabreyt-
inguna, sem fjallar um ráðstöf-
un fjárins, er gert ráð fyrir,' að
rúmum 80% af þessum nýja
skatti á rekstrarvörur bifreiða
verði á þessu ári varið til
greiðslu á gömlum skuldum og
til almennrar eyðslu við vega-
gerð, sem kemur þjóðinni í heild
að harla litlu gagni. Það virðist
miklu eðlilegra að afla fjár til
slíkra framkvæmda á erfiðleika-
tímum með aukinni hagsýni og
' betri nýtingu vegafjárins í heild,
ella fresta framkvæmdum, sem
eru síður aðkallandi en hrað-
brautir.
Niðurstöður.
a) FÍB mótmælir eindregið,
að sá nýi skattur, sem lagður
verður á bifreiðaeigendur, skv.
frumvarpi til laga um breytingu
á vegalögum nr. 71, 30. des.
1963 og lagt var fram á Alþingi
2. apríl 1968, verði notaður til
nokkurra annarra þarfa en und-
irbúnings að byggingu . hrað-
brauta og gerð þeirra.
FÍB telur, að leggja beri í sjóð
þann hluta fjárins, sem eigi þarf
að nota til undirbúnings á þessu
ári, og nota hann til fram-
kvæmdá á næsta ári.
b) Þá bendir FÍB á, að afla
beri fjár til þeirra framkvæmda,
sem nefndar eru í bráðabirgða-
áKcvæðum við fagafrumvarpið,
og ekkj koma hraðbrautum við,
með hagsýni og betri nýtingu á
núverandi vegafé, ella verði
framkvæmdum í þessum liðum
frestað, þar sem þær þola frem-
ur bið en gerð hraðbrauta á
fjölförnustu leiðum landsins.
c) Þá væntir FÍB, að hið háa
Alþingi sjái sér fært að gera þá
þjóðhagslega heppilegu ráðstöf-
un að lækka innflutningsgjöld á
nýjum bifreiðum meira en gert
hefur verið, og einnig að afnema
sérstök afnoíagjöld á viðtækjum
í bifreiðum, enda afnám slíks
gjalds veigamikið umferðarör-
yggisatriði, svo sem „Fram-
kvæmdanefnd hægri umferðar”
hefur nú þegar bent á.
d) FÍB fagnar því, að hafinn
er raunhæfur undirbúningur að
lagningu lu-aðbrauta, en bendir
jafnframt ó, að vantraust mun
skapast á fyrirætlunum um lagn-
ingu þeirra, ef fyrsta hraðbrauta
féð er notað sem eyðslueyrir til
framkvæmda, sem koma fáum að
notum.
Reykjavík, 6. apríl 1968.
Félag ísl. bifreiðaeigenda.
Bréfakassinn
Framhald af bls. 2
þægileg sólbaðsskýli, afdrep
fyrir börn að leika sér, staðir
til að sitja lesa og hafa það
gott, yfrleitt staður fyrir fólk
en ekki maskínur.
Þarna mætti líka hafa fagran
gróður, gróður sem þyrfti skjól
og hlýju eins og mannfólkið, um
fram það sem fæst á bersvæði
á voru svala landi.
Sólarvinur,
Forsefi íslands
Framhald af 3. síðu
að leggja orð í belg. En það
tel ég harla ólíklegt, svo ekki
sé kveðið fastar að orði, að
forsetaembættið verði lagt nið
ur um fyrirsjáanlega framtíð-
Það liggur í eðli þingræðis-
ins, að flokkar skipi sér til
stjórnarfylgis og stjórnarand-
stöðu. Utanflokksmenn eru
oftast undantekning á þjóð-
þingum. Forseti þarf jafnan
að vera viðbúinn, ekki sízt þar
sem samstarfsstjórnir tíðkast-
,,Samsteypustjórn“ er ekki
réttnefni, því flokkum er ekki
steypt saman, þó þeir starfi
saman. Ég er ekki viss um að
samstarfsstjórnir gefist ver en
þar sem tveir flokkar skiptast
einir á um stjórnarstuðning og
stjórnarandstöðu. Því innan
stórra flokka er jafnt um
málamiðlun að ræða og í
samvinnu minni flokka. Þing-
ræði byggist á málamiðl-
un milli ólíkra hagsmuna og
hugmynda.
Flokkar skyldu því fara var
lega í það að telja hvern ann
an óalandi og óferjandi. A
tuttugu og fjórum árum vors
unga lýðveldis hafa allir þing
flokkar starfað með öllum öðr
um, og það oftar en einu sinni
hver flokkur, enda þarf sund
ið á milli þeirra, sem taldir
eru standa vinstra megin í ein
um flokki og hinna, sem telj
ast vera hægra megin 1 öðrum,
ekki að vera svo breitt, að þeir
séu ekki í kallfæri hver við
annan. Og öllum flokkum á
að vera það sameiginlegt, að
íslendingsheitið sé hverju
flokksnafni stærra þegar í
harðbakka slær, og einnig á
mestu hátíðarstundum þjóðax’-
innar-
Hins vegar verður jafnan á-
greiningur og hagsmunaátök
með mönnum Og flokkum, en
lýðræði og þingræði byggisl
á þeirri trú og reynslu, vil ég
bæta við, að frjálsar umræð-
ur gefi að lokum bezta raun.
Þegar vér lítum til baka í
sögu Alþingis, þá er Það eftir
tektar- og aðdáunarvert, hvað
málalok hafa oft gefizt vel og
staðizt tímans tönn, þó að á-
tök líðandi stundar hafi verið
hörð og jafnvel illvíg. Það er
lygnt að horfa aftur um stafn,
þó öldur hins ókomna tíma
rísi hátt framundan.
Lýðræðisþjóðir gera sér ljóst
að enginn er óskeikull, og
þá ekki heldur neitt kenninga
kerfi, jafnvel ekki heldur lýð
ræðið sjálft og þingræði, þó
það gefist betur en nokkuð
annað, þegar það hefir náð
festu og þroska. Hinn kostur-
inn er einræði, sem jafnan
byggist á vopnuðu valdi í ein
hverri mynd. Hjá oss er enginn
ágreiningur um það, að vér
kjósum .heldur að telja höfuð
in en að kljúfa hausana.
Vér Islendingar byggjum á
langri sögulegri þróun, þó ekki
hafi hún verið ótrufluð af er-
lendum yfirráðum- Landnárn
íslands var stórfellt fyrirtæki.
Þúsundir manna, sem leita sér
á nokkrum áratugum farborða
og frjálsræðis í óbyggðu landi
og laga sig eftir landkosrum.
Stofnun Alþingis var og mik-
ið stjórnmálaafrek, sem vér
njótum fram á þennan dag.
Þjóðin kynnist sjálfri sér bezt
af sögunni, bókmenntunum
og menningu þeirra, sem á und
an eru gengnir. í þeirri fylk-
ing er margur þiijgskörungur
inn. Þessi stofnun, háttvirt
Alþingi, sem er nær jafngöm
ul sjálfri þjóðinni, hefir kom
ið mörgum, sem hér hafa átt
eða eiga enn sæti, til nokkurs
og öðrum til mikils þroska.
»Þjóðin á nú við mikla erf-
iðleika að stríða. Hún hefir
séð framan í landsins 'forna
fjanda, hafísiijn, sem vonandi
hverfur á braut fyrir páska-
blíðunni og sunnanblænum-
En hann hefir minnt á sig.
Mikið verðfall og minnkandi
þjóðartekiur fá þingi og stjórn
erfitt viðfangsefni í hendur.
Vér skulum vona að vel ráðist
fram úr með viturra manna
ráði og skilningi almennings.
Það eítt er víst, að þjóðin verð
ur aldrei aftur sú sama og var
í óáran eldri tíma. Bættur
húsakostur, samgöngur, raf-
væðing og tækni atvinnuveg-
anna, samtök og samhugur
Verðlaunapeysurnar ásamt
flíkum verða í sýningar-
glugga okkar í Þingliolls-
stræti 2 næstu vikurnar.
AUGLYSIÐ
í AfþýSublaðinu
fólksins og forsjá Alþingis sér
um það.
Ég slít nú innan stundar
fundum þessa þings eftir nær
fjörutíu og fimm ára samveru
við fjölda ágætra forustu-
manna þjóðarinnar, og á vænt
anlega ekki hingað aftur-
kvæmt á fund með háttvirtum
þingmönnum. Með lirærðum
huga þakka ég innilega hverj-
um og einum, sem nú skipa
hér sæti, samveru og samstarf,
minnugur fjölda annarra þing
manna, sem einnig hafa reynzt
mér góðir félagar og vinir.
Ég óska alþjóð árs og friðar
og Guðs blessunar.
Ræða Birgis
Framhald af 3. síðu
metanlegan þátl í því starfi.
Störfum forseta vors, hr.
Ásgeirs Ásgeirssonar, hefir
jafnan fylgt gifla og gengi. Ég
þakka honum sérstaklega við
þetta tækifæri þingstörf á
þingmannsárum hans, og eink
um störf hans sem forseta sam
einaðs Alþingis á Alþingishá-
tíðinni 1930. Ég þakka honum
samstarf við Alþingi og marg
ar ánægjulegar samverustund
ir með þingmönnum nú á
seinni árum.
Ég þakka forseta íslands hr.
Ásgeiri Ásgeirssyni, öll hans
ágætu störf fyrr og síðar, og
góðan skilning hans á hlut-
verki Alþingis í þjóðlífinu.
Ég vona að honum megi end
ast aldur í mörg ár enn til
þess að fylgjast með gróandi
þjóðljfi, auknum manndómi
og menningu þjóðarinnar.
Veit ég, að íslenzka þjóðin
öll tekur undir þakkarorð mín
til forsetans og óskir honum
til handa.
Leikhús
Framhald af 5. síðu.
maður, „poseur", alla tíð að leika
hlutverk sem er vísu runnið hon
um í merg og blóð, orðið hans
annar maður. Þetta verður að
vera ljóst til að píslarvætti hans
skiljist í leiknum. Að svo búnu
má leikarinn gjarnan leggja sig
fram eftir megni að vinna hlut
verki sínu samúð, þegar orðið er
Ijóst að hér er um tvennskonar
ást að ræða, tilfinningar sem
hvor um sig er jafnrétthá, jafn-
góð og gild, tvö svið mannlegs
sálarlífs sem hljóta að stafa af
sér dauða og og tortíming þegar
þau mætast. — ÓJ.
Ung hjón, sem vinna bæði úti,
óska eftir að taka á leigu góða
3.4 herbergja íbúð sem fyrst
helzt í Vesturbæ sunnan Hring
brautar. Eiga tvö börn, sem eru
í gæzlu á daginn.
Góðri umgengni og skilvísi
heitið.
Vinsamlegast hringið í síma
23-0.33 eftir klukkan 8 á kvöldin,
eða í síma 18-4.09 klukkan 10-12
fynr hádegi.
o o
\} SMÁAUGLÝSINGAR iiiiiiin
ALAFOSS.
Góð íbúð óskast
14 23. apríl 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ