Alþýðublaðið - 01.05.1968, Page 16
IIIIIIIIMIIttl'lllllllltlllllllllllllllllllllllltlllllUnilllllllllHUtllllIflllllllltllllK
SliþfíH
Þegar kallinn heyrði um nýja
smyglmálð fyrir austan, sagðí
hann: — Mér finnst nú að tekj
Urnar af þessu smygli ættu að
renna í vegasjóð, en ekki menn
ingarsjóð eins og venjulega.
Mér skilst að það sé mannfræði
leg staðreynd að Asíubúum vaxi
lítið sem ekkert skegg. Enda
eru Japanir farnir að koma hing
að eftir loðnu. .,
viiiiiiiiiiiiiviiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiitiitttiiiiiiiiiitiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiititiiii
1. maí kaffi
í 1. maí kaffinu í lðnó í dag verða á boðstólum fjölbreyttar veit- i
ingar.- smurt brauð, pönnukökur, rjómatertur, flatkökur og alls kon [
ar kökur aðrar. í
— Fögnum 1. maí og drekkum hátíðarkaffið í Iðnó. Húsið opn- I
að kl. 2,30. I
Það er ekki ofsögum sagt af
því, hve vegirnir eru slæmir
hér á þessu landi. Það er ekki
einu sinni hægt að flytja smygl
varning eftir þeim . ..
Mín skoðun er nú sú, að veg-
irnir séu góðir eins og þeir eru
og það eigi ekk'i að vera að laga
þá. Ef það er gert, þá yrði
bara smyglað meira ...
goKING
IDWARD
America's Largest Sel/ing Cigar
vor
dag egi BAlLstur
Nú erum við loksins búnir að finna ráðið.
Hér eftir skipta markaðsvandræði og aflabrestur engu máli,
Og ráðið er dásamlega einfalt: Bara að vera þjóðlegur.
Þetta er að vísu ekki nýtt ráð, en það er nýfundið aftur
og ber að fagna Því.
Þjóðlegheitin koma fram á ýmsum sviðum, eru ýmist komin
fram eða hvatt er sterklega til áð láta svo verða. Þau snerta
einkum kvenfólk og klæðnað þess, kaup á því sem íslenzkt er
og hártízku karlmanna, svo að dæmi séu nefnd.
Konur eiga að fara að ganga eins til fara og langömmur
várar og langalangömmur, því þá var fólkið þjóðlegt. Gengu
þær með prjónafaymur á herðum, í skósíðum pilsum og í svell-‘
þæfðum prónabuxum, að manni er sagt, enda skal öll holling-
in miðast við þá tíma.
Karlmenn skulu ganga fúlskeggjaðir og með illa greiddan
hárlubba niður í augu að framan, en að aftan skal hann sitja
á jakkakraganum og vera óhrjálegur, nákvæmlega eins og
bítlar ganga nú til dags, því bitlahreyfingin er í rauninni þjóð
leg íslenzk hreyfing þótt hún býrjaði úti hjá engelskum, og
sýnir það bara hve þeir þar í landi eru óþjóðlegir og apa slíkt
eftir dúðadurtum íslenzkra sveita á fyrri öldum og kalla nýjung
Hefði átt að setja bann við slíku þegar í upphafi, því íslands-
menn einir ættu að hafa einkarétt á slíkum lubbaskap.
En mest er um vert að kaupa bara það sem íslenzkt er,
enda þá allir þjóðlegir. Og verður að leggja mikið kapp á að
menn forðist að kaupa íslenzkt brennivín. Brennivín verður
að brugga hér á landi, helzt í gjótum eða fjósum eins og
tíkaðist á kreppuárunum, en þá voru menn með þjóðlegra
móti hér. enda alveg á hvínandi hausnum. Menn eru nefni-
lega alltaf á hausnum þegar þeir eru þjóðlegir. Að vera þjóð
legur er fyrst og fremst það að vera á hausnum, öllu til skiia
haldið að við getum verið þjóðlegri en við vorum á þeim
tíma þegar við átum skóna okkar og létumst samt úr ófeiti.
Útvarp og sjónvarp má líða því eins að útvarpsefnið sé að
mestu lestur fornrita, gamalla guðsorðabóka með gotnesku
letri og rímnakveðskapur eldforn, eins og til dæmis það að
kveða Andrarímur og Pontusrímur eldri og aðrar rímur,
kjarngóðar sem hetjur og stórmenni fyrri alda kváðu við raust
í mannraunum. í veizlum skal bera fram magála hvers konar,
heilastöppu, súrsuð gamalærlungu og hrútspunga, og yfirleitt
skal éta mat upp úr súru fremur en öðru vísi tilreiddan, því
það er þjóðlegt, en í þessa átt er líka nokkur hreyfing á þorr
anum.
Ritmennska og ræðulist skal aftur færast í það horf að sví-
virða menn persónulega eins og hugsazt getur, en slíkt höfðu
menn sér til dundurs í fásinninu í gamla daga. Og taka skal
aftur upp þann sið að yrkja níð og flím og kalla góðan
skáldskap. Skal orðbragðið ekki vandað, því það er óþjóð-
legt, enda nú stórum minni tepruskapur í notkun kjarnmik-
illa orða tungunnar en verið hefur um skeið, sbr. nýjustu
stefnu í skáldsagnagerð.
Allt stefnir þetta að því að við verðum þjóðlegir á ný, og
ber því að fagna.
GÖTU-GVENÐUR.