Alþýðublaðið - 03.05.1968, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 03.05.1968, Blaðsíða 9
sendur heim snemma þann dag vegna tannpínu. Var hann stuttu síðar sakaður um svartamarkaðs brask, en sýknaður vegna áhrifa Schramms, höfuðsmanns og fenginn atvinna utan lögreglunn ar. Árið 1948 lézt hann í bílslysi og var jarðaður í óvenju miklum flýti. Kozlik, húsvörður og lög- reglumaður í Þinghöllinni og var á' vakt 9. marz dó skömmu eftir að aðalvitnið í málaferlun um Karel Straka kom að honum fölum og illa til reika. Dr. Jaro- slav Teply, rétíarlæknir og fyrsti læknirinn, sem skoðaði lík Masaryks. í skýrslu, sem smygl að var út úr Tékkóslóvakíu seg ir læknirinn, að hann hafi fund ið merki um barsmíðar og á- verka á líkinu og íbúð hans hafi öll verið umturnuð og hann hafi fundið áverka á líkinu, sem gætu hafa verið eftir 7.65 kali ber skot. Dr. Teply fyrirfór sér fáeinum mánuðum eftir dauða Masaryks „með því að taka inn rangan skammt“ eins og komizt var að orði í dánarvottorðinu; sumir vilja halda því fram að hann hafi verið myrtur með því að sprautað hafi verið benzíni í æð. Prófessor Josef Hajek, vel þekktur meinafræðinaur sem að stoðaði við réttarkrufninsú á líki Masaryks, en fékk ekki að koma nálægt líkinu vegna þess að hann var ekki félagi í kommú nistaflokknum. Hann dó á dul arfullan hátt. Dr. Pavel Kavan, sem var fyrsti sendiráðsritari í sendiráð- inu í London 1948, færði Masa- ryk skýrslu brezku stjórnarinnar um álit hennar á þeirri ákvörð un Masaryks að gerast ráðherra van hitti Masarvk kvöldið áður í ríkisstjórn Gottwalds. Dr. Ka- kavan hitti Mazaryk kvöldið áður en hann lézt. Kavan var tekinn fastur innan áts eftir dauða Masaryks og úrskurðaður i 25 ára fangelsi og dó viku eftir að honum var sleppt úr fangelsi 1956. Gert er ráð fyrir að ýmislegt komi í ljós varðandi sambandið milli dauða Masaryks og Schr- amms, höfuðsmanns, þegar fyrr- verandi félagi í stúdentasamtök- unum, sem kýs að kalla sig Filia í viðtali við tékkneskt dagblað. Filia var úrskurðaður í lífstíðar- fangelsi skömmu eftir dauða Masaryks, en hann var látinn laus fyrir nokkrum árum. Þá er álitið líklegt að hitt höfuðvitnið, Zedenek Borkovec kunni að geta lyft hulunni af sambandinu milli dauða Schramms og Sedm, lögreglumanns sem hafði lykla- völd að íbúð Mazaryks í þinghöll inni aðfaranótt 9. marz og, sem upp frá' því naut „vemdar" vegna áhrifa Schramms unz hann lézt í bílslysi. Ekki er sú skýring ó- sennileg, að Sedm hafi, látið Schramm lyklana í té og hann hafi síðan notað þá til inngöngu í íbúð Masaryks. Karel Straka nafnskírteinavörður í þinghöll- inni 9. marz hefur frá athyglis verðu að segja. Hefur hann lát ið frá sér fara, að er Masaryk hafi komið af ráðuneytisfundin um 9. marz hafi hann heyrt, er allmargar bifreiðir hafi keyrt upp að þinghöllinni; á sama tíma uppgötvaði hann, að síminn hafði farið úr sambandi og hann lokaður inni í herbergi sínu. Um 2 leytið hafi síminn verið settur í samband á ný og hafi hann um leið heyrt bifreiðarnar hverfa á brott og dyrnar að herbergi hans verið aflæstar. Hafi hann farið út og komið þar að hús- verðinum Kozlik, sem hafi verið fölur og illa til reika; ekki langt frá hafi hann svo komið auga á Blómiö bak við eyrað. Huldi það skotsár? Masaryk þar sem hann lá. Hafi honum orðið litið upp að íbúð Masaryks og tekið eftir því að gluggarnir voru lokaðir. Frásögn Straka heíur verið staðfest af örðu vitni, sem ekki vill láta nafn síns getið, er það segir í blaði nokkru, að skömmu eftir að síminn hafi farið úr sambandi hafi ljós slókknað í íbúð Masa- ryks í stuttan tíma, en hafi síð- an kviknað á ný og logað alla nóttina. Sama vitni hefur látið þess getið, að er Masaryk hafi komið frá ráðuneytisfundinum þann 9. marz hafi maður nokkur í leðurfrakka gefið sig á tal við hann og sagzt eiga að bera skila boð frá „Clumsky, höfuðsmanni" sem sagður var helzti leiðtógi tékknesku neðanjarðarhreyfing- hann vikið sér að Masaryk, er arinnar á stríðsórunum. Hafi hann var að fara til Þinghallar innar um kvöldið, væri sér ætl- að að koma honum á öruggan stað og á Masaryk þá að hafa spurt hann, hvar öryggi væri. Hafi maðurinn í leðurjakkan um átt að segja honum að það væri England. Þessu svaraði Masaryk á þessa leið: „Ég hef verið nógu oft í Englandi. Stað úr minn núna er hérna og ég mun annaðhvort vinna eða verða brotinn á bak aftur, viltu bera Clumsky þessi skilaboð.“ Er Masaryk kom af ráðuneytis fundinum var maðurinn í leður- jakkanum þar e in fyrir og reyndi árangurslí ust að telja Masaryk á að fara með sér úr landi þá þegar. Sagði Masaryk að hann gegndi ennþá ráðherra- störfum ,og bað hann að hitta sig í þirighöllinni daginn eftir. Svaraði iriaðúrinn í leðurfrakk- anum þessu svo til, að þá væri það um seinan. Það sem ef til vill vekur mesta furðu í málinu er skýrsla sem skrifstofumaður á skrif- stofu saksóknarans hefur gefið. Var honum fyrirskipað þann 10. marz að vera viðstaddur réttar- krufningú á líki Masaryks. Segir skrifstofumaðurinn, Pan ek, að 3 öryggislögreglumenn hafi komið með líkið af Maga- ryk, sem þá hafði verið nýlega þvegið og sveipað líni. Þeir sem viðstaddir voru krufninguna, en einungis sem áhorfendur voru, prófessor Hajek, mikilsvirtur, meinafræðingur, sem venjulega framkvæmdi réttarkrufningar, dr. Spacek, heimilislæknir Masaryks, og dr. Sum einkarit- ari hans. Leynilögreglumennirnir 3, sem komið höfðu með lík Masa ryks tilkynntu síðan, hverjum bæri að vera viðstaddir réttar- krufninguna og hverjir skyldu framkvæma hana. Að því loknu mynduðu þeir hring í kringum líkið á meðan á krufningunni stóð. Var Hajek prófessor mein að að koma nærri líkinu, vegna þess að hann var ekki félagi í kommúnistaflokknum. Var síðan dr. Tesar, sem var félagi í kommúnistaflokknum skipað að framkvæma krufninguna með aðstoð Parieks. Dr. Spacek fór fram á . að magi hins látna yrði rannsakað ur, þar eð hann hefði fært hon um tebolla kl. 11 kvöldið áður en hann lézt, og væri því enn unnt að greina innihald hans. Var beiðni dr. Spaceks neitað. Var síðan orðalag dánarskýrsl- unnar lesið upp fyrir Panek, sem síðan skipaði Hajek, prófessor' að undirrita hana. Maður nokkur, sem gefið hafði vitnisburð vegna málsins renndi stoðum undir þá kenn- ingu að vel kunni að vera, að far ið hafi verið með Masarvk frá þinghöllinni og til Ruzvne fang elsisins þar sem leynilögreglu- mennirnir hafi pyndað hann. Hafa margir bent á, að það hafi verið algeng pyndingaraðferð hjá lögreglunni að fótbrjóta fórnardýr sín og sé þar skvring in á beina flísunum við lík Masa ryks. Sú skoðun, að Masarvk kunni að hafa verið að undirbúa flótta tilraun, þrátt fyrir hin dular- fullu ummæli mannsins, sem vék sér að Masaryk, er hann kom frá þinghöllinni þann 9. marz, hefur fengið byr undír báða vængi vegna framburðnr dr. Osk ars Klingers, heimilislæknis Masaryks í mörg ár. Hann hafði verið persónulegur vinur Henry Brandons, eins af ritstjórum Sunday Times. Hefur Brandon Framhald á 14. síðu. erulegi dauðdagi Jan Mashryk, fyrrver ra Tekkósiévakíu, sem fannst látinn lúÓar sinnar í Þinghöllinni í Prag, tveim töku kom múnista 1948 eða fyrir réttum ÚTBOÐ Hraðbraut um Kópavog Tilboð óskast í byggingu 1. hluta Hafnarfjarðarvegar um Kópavog. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings í Kópavogi, gegn 5.000.00 skilatryggingu. Byggingarnefnd Hafnarfjarðarvegar í Kópavogi. AUGLÝSING Frá 1. maí verður afgreiðsla Sparisjóðs alþýðu opin kl. 9 til 12 og kl. 1 til 4 og á föstudögum kl. 5 til 7. Sparisjóðurinn verður lokaður á laugardögum á tímabilinu 1. maí til 1. október. Sparisjóður alþýðu, Skólavörðustíg 16, TILKYNNING Afgreiðslutími sparisjóðsins verður svohljóð- ' andi frá 1. maí til 30. sept n.k.: Opinn daglega frá kl. 13.30 til 17.30, nema föstudaga frá kl. 13,30 til 19,00. Lokað verð- ur á laug’ardögum. SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA. ■ - • I_______________ LÖGTAK Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að und 'angengnum úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað gjald enda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðn um frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Söluskatti 1. ársfjórðungs 1968 og nýálögðum viðbótum v:ð söluskatt eldri tímabila, almenn um og sérstökum útflutningsgjöldum, afla- tryggingasjóðsgjöldum, svo og tryggingaið- gjöldum af skipshöfnum og skráningargjöld- um. Borgarfógetaembættið í Reykjavík, 2. maí 1968. Skemmdir nýir bílar Til sölu eru tveir Fiat 125 og einn Fiat 1000 station er skemmdust á leið til landsins. Verða seldir með góðum afslætti. Uppl. gefur FIAT-UMBOÐIÐ, Laugavegi 178. 3. maí 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.