Alþýðublaðið - 03.05.1968, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 03.05.1968, Blaðsíða 10
íþróttir Framhald af bls. 11 Auk formanns tóku þessir til máls: Gylfi Þ. Gíslason menntamála- ráðherra. Geir Hallgrímsson borgarstjóri, sem á sínum yngri árum var mikill þátttakandi í störfum Víkings, forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson, formaður ÍBR, Úlfar Þórðarson læknir, formað- ur KSÍ, Björgvin Schram, form. KRR, Einar Björnsson. Þá söng ívar Helgason við undirleik Þórarins Guðmunds- sonar fiðlusnillings, og heiðurs- félaga Víkings. ívar söng lag eftir Þórarin við kvæði Jakobs Jóh. Smára, Félagshvöt. Jón Þorláksson, form. Fram, flutti kveðju frá íþróttafélögun- xun í Reykjavík og afhenti nokkra fjárupphæð frá þeim. Einnig afhenti Ingvar Pálsson á- litlega fjárupphæð frá eldri og yngri félögum. Víkings. Síðastur á mælendaskrá var Óskar Norð- mann stórkaupmaður, en hann var á sínum tíma einn í hópi frægustu knattspyrnumanna Víkings. Minntist hann sérstak- lega Alfreðs Andréssonar. Silfurmerki Víkings var veitt 15 félögum, en 12 gullmerki. — Heiðursfélagar voru kjörnir þeir Guðjón Einarsson og Þórður Al- bertsson. Björgvin Schram sæmdi Ól- af Jónsson (Flosa) gullmerki KSÍ fyrir langt og dáðríkt starf í þágu knattspyrnumálanna í borginni, utan og innan Víkings. Ólafur hefur m. a. átt sætt £ KRR lengur en nokkur annar til þessa. Fjöldi skeyta, m. a. frá Spáni, Þórði Albertssyni, bárust auk blóma og annarra gjafa, sem Ingvar Pálsson veizlustjóri þakk- aði ásamt vinsamlegum ræðum og árnaðaróskum, um leið og hann- sle.it þessu vel heppnaða og ánægjulega afmælishófi. Um leið og gestirnir yfirgáfu veizlusalina var. hverjum og ein- um afhent afmælisrit Víkings, sem út kom þennan dag, vandað og veglegt, þar sem saga félags- ins er rekin í máli og myndum og viðtölum við eldri og yngri félaga. Ritstjóri afmælisritsins- er Bjarni Guðnason prófessor. E.B. íþréttsr Framhald 11. síðu 3. Sveinn Kristinsson 7.13.0 — Drengir 14—16 ára: Viðar Halldórsson 5.13.9 — 2. Þórir Jónsson 5.30.7 — 3. Sigurvin Sigurvins. 6.27.0 — Drengir 13 ára og yngri: 1. Daníel Hálfdánsson 4.02.7 — 2. Grétar Pálsson 4.12.7 — 3. Guðmundur Þorðvarðarson 4.13.6 — Stúlkur 12 ára og eldri: 1. Rósa L. Guðlaugsd. 4.42.1 — 2. Ingibjörg Elíasd. 4.46.2 — 3. Lilja Matthíasd. 4.46.2 — Stúlkur 11 ára og yngri: 1. Gyða Úlfarsdóttir 4.46 2 — 2. Sólveig Skúladóttir 4.51.5 — 3. Kristjana Gígja 4.50.5 — Keppendur í hlaupinu voru alls 103 eða sama tala og á síð asta ári. Hlaupnar voru og sömu vegalengdir og þá. í hverjum flokki er keppt um verðlaunagrip, ' sem vinnst til eignar eftir ákveðnum regl- um. Enginn gripurinn vannst til eignar að þessu sinni. Þar sem þetta var 10. hlaupið í röð var einum keppandanum, flokki drengja, Viðari Halldórs en það var siguryegaranum í II. syni, afhent sem gjöf frá FH forláta stytta, sem viðurkenn- ing fyrir þátttöku í öllum þessum 10 hlaupum og fyrir sig ursæla keppni. Viðar var 5 ára þá er hann keppti í fyrsta hlaup inu og hann var sigurvegari 4 sinnum í flokki 12 ára og hann í flokki 14-16 ára, þar sem hann kepþti þar í fyrsta skipti. Til nýlundu má telja að í hlaupi þessu var einn keppand- inn 35 ára og stóð sig með mik illi prýði. Veður var hið fegursta Jraeð an mótið fór fram, en þó frem ur kalt. Áhorfendur voru marg- ir og skemmtu sér hið bezta. 5 manna framkvæmdanefnd á vegum F.H. sá um undirbúning og framkvæmd mótsins. Svíta Framhald af 6. síðu. ir Grieg. Þá var svíta Hallgríms á klassísku prógrammi í október sl„ með verkum eftir Gluck, Mozart oa konsert Bachs fyrir tvær fiðlur, þar sem einleikar ar voru feðgarnir Oistrach David og Igor. Nokkru fyrr hafði þetta ís- lenzka verk verið flutt á kamm hljómsveitarkonsert ásamt serenötu eftir Edward Elgar fyrir strokhljómsveit oá flautu konsert eftir Johann Joachim Quantz. FisHvegir Framhald ?.f bls. 1. reiðum nema jeppum á Krísu- víkurleið, Ingólfsskálavegi, Grafningsvegi og á Þingvalla- braut milli Gljábakka og Ljósa foss., Þá er ófært bifreiðum frá Biskupstungnabraut að Gull- fossi. Að öðru leyti eru vegir á Suðurlandi í sæmilegu á- standi Þá hefur þungaflutninga bann, sem sett var um daginn á vegi á Suðurlandi nú verið af létt nema á Biskupstungnavegi. Vesturlandsvegur er víða að verða ófær og k.vngdi í gær niður snjó í Bröttubrekku. Fróð árheiði og Kerlingaskarði og Svínadal í Dölum. Þá hefur und anfarið verið unnið að því að ryðja snjó frá Kinnastað í Þorskafirði og að Kleppshálsi. Ekki vepður hafizt handa að ryðja snjó á Vestfjarðaheiðum fyrr en í júní, jafnvel ekki fyrr en um miðjan mánuð, ef tíð heldur áfram sem nú horfir. Þá kyngdi niður miklum snjó á Holtavörðuheiði, Vatnsskarði og Oxnadalsheiði og voru vegir að verða þar ófærir í gær. Ekki er fært öðrum bílum frá Akur eyri til Kópaskers en jeppum og ófært er með öllu frá Kópa skeri til Raufarhafnar. Ekki hafa borizt nákvæmar fréttir frá Austfjörðum, en þar munu vegir vera sæmilegir þó eru flestir fjallvegir bar ófærir. Sveitavegir eru yfirleitt í sæmulegu ástandi um land allt- Vilja bæta Framhald af bls. 1 listamannalauna hafi ekki talið Kristján þess verðug an að hljóta heiðurslaun af almannafé, en nú hafi nokkrir unnendur Ijóða hans ákveðið ,,að bæta fyr ir skömm nefndarinnar með því að afhenda skáld inu heiðurslaun, er næmu eigi minni f járhæð en þeii' listamenn fengu, er hlutu þá náð hjá nefndinni að komast í annan flokk“. Er ráðgert að afhenda Krist- jáni heiðurslaun þessi 15. maí n.k. Bretar Framhald af 1- síðu tali inn frosinn og verkaðan fisk, sem þeir geta ekki selt heima hiá sér. Vegna þess hve miklar niðurgreiðslur eru verð- ur varan m.iög ódýr og eyði- leegur markaðinn". Tovaraeigendurnir fara ekk- erf, dult mrj> bað að þeir vilja láta set.iá, aJgjört löndunarbann áerlend skin. Og jafnframt krefjast .beir þess að ríkið auki stuðning sinn við togaraútgerð ina brezku. Hins vegar segir talsmaður brezka fiskvoiðamála ráðunevtiAns,' sem blaðið hafði tal af, að það væri andstætt almennri sfefnu ríkisstjórnarinn ar að banna alveg fiskinnflutn ing ng h->« Wí ; h-ácr!) við við rkintackwldr r 1-dcÍTn; gf, á hinn bóginn væru þessi mál öll í atbngnn hiá ráðuneytinu. Drengjareiðhjól fyrir.7-9 ára og tvenn dökk jakka föt fyrir 17-19 ára, notað og selst ódýrt. SÍMI: 32026. Alþýðublaðið — Tímann - ÞjóSviljann vantar blaðburðarbörn í ÞINGHOLTIN. Upplýsingar hjás Sigurði Brynjóífssyni, Tímanum. Sími: 12504. FORSKÓLI FYRIR PRENTNAM. Verklegt forskól'anám í prentiðn hefst í Iðn- skólanum í Reykjavík, að öllu forfallalausu, 27. maí. Forskóli þessi er ætlaður fyrir nem- endur er komnir eru að í prentsmiðjum en hafa ekki hafið skólanám, svo og þeim er hafa hugsað sér að hefja prentnám á næstu'nni. — Umsóknir eiga að berast skrifstofu skól- ans fyrir 15. maí. Eyðublöð og aðrar upplýsingar verða látnar í té á sama stað. Iðnskólinn í Reykjavík. Félag íslenzkra prentsmiðjueigenda. Múrarar - múrarar Viljum ráða múrara nú þegar. . BREIÐHOLT H.F., sími 81550. Frá Tónlistarskólanum í REYKJAVÍK. Inntökupróf fyrir skólaárið 1968-1969, verða laugardaginn 4. maí kl. 5 síðdegis í Tónlistar- skólanum að Skipholti 33. Skólastjórinn. Tilkynning TIL VIÐSKIPTAMANNA. Þann tíma sem afgreiðslur bankanna verða lok aðar á laugardögum, frá byrjun maí til loka september 1968, munu undirritaðir bankar annast kaup á erlendum gjaldeyri (ferðatékk- um og bankaseðium) og móttöku útflutnings- skjala á laugardögum frá kl. 9.30 árdegis til kl. 12.00 á hádegi á eftirgreindum stöðum: LANDSBANKINN í aðalbankanum, Hafn- arstræti 14. ÚTVEGSBANKINN í aðalbankanum við Lækjartorg. Reykjavík, 27. apríl 1968. LANDSBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS. 3. m&í* 196á Líí iJÁLÞÝÐUBLAÍ)lb •*

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.