Alþýðublaðið - 25.05.1968, Blaðsíða 6
H-DAGUR AÐ MORGN
MEÐ ÞÆTTI ÞEIM, sem hér
birtist, er lokið að ræða þau
atriði varðandi akstur í hægri
umferð, sem upplýsingadeild
sænsku ríkislögreglunnar lét
athuga. Hefur hér í tveimur
fyrri þáttum verið fjallað um
þessi atriði, og vonandi hafa
þau verið til fróðleiks fyrir ís-
lenzka ökumenn.
Þau atriði, sem einkum þykja
varhugaverð fyrir ökumenn á
fyrstu dögum hægri umferðar,
og sem hér verður bent á, eru:
1. Beygjur í hægri umferð, 2.
Vandinn að taka krappar vinstrir'
beýgjur á mjóum vegi, og 3.
Nokkur varnarorð vegna trufl-
ana umhverfisins.
★ TAKIÐ VÍÐA VINSTRI
BEYGJU í HÆGRI UM-
FERÐ.
E:t til vill geta skapazt erf-
iðleikar fyrir ökumenn í beygj-
um á fyrstu dögum hægri um-
ferðar. Þó er til ein algild
regla, sem gildir alltaf, þegar
beygt er í hægri umferð. Þú
tekur alltaf víða vinstri beygju,
en krappa hægri beygju. At-
hugaðu vel myndirnar nr. 11 A,
11 B og 13. Þær sýna, hvern-
ig á að fara að, er vinstri og
hægri beygjur eru teknar í
hægri umferð. Dökku örvarnar
sýna aftur á móti, hvernig ekki
á að fara að.
★ UMHVERFIÐ GETUR
RUGLAÐ YKKUR í
RÍMINU.
Vegna óvanans í hægri um-
ferð verður ökumaðurinn fyrstu
dagana að einbeita sér að því
að staðsetja bifreiðina rétt í
hægri umferð. Vegna þeirrar
einbeitingar má' gera ráð fyrir,
að smávegis truflun af völdum
umhverfisins geti orsakað það,
að ökumaðurinn missi vald á
ökutækinu, hann verði gripinn
hræðslu, sem^Jeiði til þess, að
hann bregðist við samkvæmt
vinstri umferðarreglum.
Eina ráðið til að freista þess,
að slíkt sálarástand skapist
ekki, er að aka yfirvegað, reyna
að halda sálarró í akstrinum, og
umfram allt, halda ökuhraðan-
um niðri.
★ GÆTIÐ VEL AÐ í KRÖPP-
UM VINSTRl BEYGJUM.
Eins og sýnt er með dökku
örinnj á mynd nr. 21 hættir
ökumönnum að minnsta kosti
til að byrja með, til að taka
vinstri beygju of þrönga, eins
og gert er í vinstri umferðinni.
Þetta getur leitt til þess, sé
vegurinn mjór, að eftir að
beygjutökunni sé lokið, haldi
ökumaðurinn á'fram akstrinum
á vinstri vegarhelmingi. Munið
því ávallt: Víð vinstri beygja,
kröpp hægri beygja í hægri
umferð.
Og svo að lokum örstutt á-
bending til ökumanna: Flestar
bifreiðar hér á landi hafa
stýrið vinstra megin. Þetta
gerir það að verkum, að þegar
ökumenn ætla að yfirgefa far-
artækið, og opna hurðina og
ætla út, þurfa þeir að sýna um-
ferðinni, sem nú kemur fram
með bifreiðinni, sérstaka at-
hygli. Þetta er unnt að gera,
með því að þjálfa sig í því, að
opna hurðina alltaf með hægri
hendi. Um leið öðlast ökumað-
urinn útsýn aftur á akbrautina.
Á MORGUN, H-dag, hefst
víðtæk dreifing, á vegum Fram-
kvæmdanefndar H-umferðar, til
allra bifreiðaeigenda á' landinu
á áminningarmerkjum um
hægri umferð. Verða merkin
til staðar á benzínafgreiðslu-
stöðvum um land allt, hjá um-
ferðaröryggisnefndum, svo og
á lögreglustöðvum. Þá liggja
merkin og frammi á fræðslu-
miðstöð um umferðarmál, sem
er í Góðtemplarahúsinu í
Reykjavík á vegum Fræðslu-
og upplýsingaskrifstofu Um-
ferðarnefndar Reykjavíkur og
lögreglunnar. Þar verður og
Umferðarkortabókin af Reykja-
vík. Fræðslumiðstöðin er opin
í dag kl. 09.00—22.00. Er mjög
nauðsynlegt, að ökumenn afli
sér, á einhverjum fyrrgreindra
staða, tveggja slíkra merkja,
og komi þeim fyrir í bifreið
sinni, helzt strax á H-dag. —
Merkin eru sexhyrnd, með
dökkbláum fleti, en utan um
flötinn er gul rönd, og á miðj-
um fletinum gult H.
Öryggislegt gildi áminning-
armerkjanna er mikið og því
mjög nauðsynlegt, að ökumenn
dragi ekki úr hömlu að afla sér
þeirra. Merkin á að setja upp
á tveimur stöðum í bifreiðinni.
Annað á að vera á þeim stað,
þar sem bifreiðarstjórinn sér
það, um leið og hann stígur
inn í bifreiðina, á hliðarrúðu
framhurðar bifreiðarstjóra
megin. Hitt merkið á að vera á
þeim stað, þar sem merkið er
bifreiðarstjóranum stöðug á-
minning meðan á akstri stend-
ur. Kemur þá mælaborð bif-
reiðarinnar helzt til greina og
er æskilegasti staðurinn. Nauð-
synlegt er, að merkin séu færð
til öðru hvoru.
Þau merki, sem nú fara til
dreifingar, eru yfir 300 þús.
talsins. Síðar í sumar verður
síðan dreift áminningarmerkj-
um af sömu gerð, en litasam-
setning í því vcrður á annan
veg en í þessu merki.
Á um 1500 stöðum við þjóð-
vegi landsins verður komið fyr-
ir áminningarmerkjum af sömu
gerð og lögun og sett verða í
bifreiðar, nema mun stærri. Eru
merkin aðallega við beygjur, á
hæðarbrúnum og á þeim stöð-
um. sem þeirra er mest nauð-
syn.
UMFERÐARNEFND
REYKJAViKUR
LDGREGLAN i
REYKJAViK
LANDSPRÓF 'I NÁTTÚRUFRÆÐI ÁRIÐ 1968
Náttmufræöi I.
í spurningum 1.. 20. eru tiltekin
svör, ýinist 8 eða 5 við hverri. A3-
eins eitt þeirra er rétt. Auðkennið
rétta svarið með krossi í viðeig
andi reit. Svar er ógilt, ef krossað
er £ fleiri en einn reit.
1..6. Svarið þessum spumingum um
eftirtalda fiska: >Er fiskurinn a) harð
uggaður, b) eyruggalaus, c)
kviðuggalaus, d) tannlaus, e) sund
magalaus; hefur hann f) skásporð,
g) fleiri en fjóra staka ugga, h) veiði
ugga.'
Flyðra, Síld, Karfi, Steinbítur,
Loðna, Þorskur.
7.-10. Hvað er rétt í eftirfarandi
staðh æfingum?
Svartsnígill a) ber kuðimg á bakl
sér, b) hefur tvö augu, c) andar með
lofteðum, d) er einkynja, e) lifra
hans lifir í vatni.
Frtimdýr eru a) smæst allra líf.
vera, b) frumbjarga, c) geta ekki
hreyft sig úr stað; d) sum frumdýr
hafa um sig kalkskel, e) sum hafa
sogfætur.
Túnfíll a) ber mörg og smá blóm, b)
fá og stór blóm; c) frævist af vindi;
d) hefur græn bikarblöð, e) digran
láréttan jarðstöngul.
Hjartarfi er af a) hjartagrasaætt,
b) arfaætt; c) hefur hjartalaga blöð;
í blómi hans eru d) fjögur krónu
blöð, e) fjórir frævlar.
\
11-12.
Hvað er (undantekningalítið) sam
eiginlegt með sóleyjaætt og rósa-
ætt?^
a) stólparót, b) handstrengjótt blöð,
e) fleiri blöð í bikar en krónu, d)
margir frævlar, e) aldinið hýðisald
in.
Hvað greinir á miili sóleyjaættar
og rósaættar?
a) sætni blómanna, b) , blómskipun
in, c) gerð stöngulsins, d) blaðlögun
in, e) fjórdeild blóm í annarri, fimm-
deild í hinni.
13..16. Trjáplanta nokkur ber ein-
kynja blóm, sem sitja í þéttum blóm
skipunum og frævast af skordýrum.
í hverju aldini eru mörg loðin fræ.
Nokkrar tegundir sömu ættar vaxa
hér á landi, en þessi er þeirra smá
vöxnust.
Er aldin þessarar tegundar a)
steinaldin, b) ber, c) hneta, d)
hýðisaldin, e) köngull?
Er hún a) rósaættar, b) víðiætt-
ar, c) birkiættar, d) lyngættar, e)
berfrævingur?
Heitir hún a) sortulyng, b) einir,
c) fjalldrapi, d) smjörlauf, e) kræki
lyng?
Vex hún £ a) skógum, b) móum,
e) flóum, d) blómlendi, e) görðum.
17. Hvaðan eða hvernig fær grasið
kolefni? a) við öndun, b) úr jarð_
vegi, c) úr áburði, d) úr vatni, e)
úr lofti.
18. Hvert er hlutverk hvitu háranna
á kolli fífunnar? - Að a) dreifa fræj.
um, b) annast vindfrævun, c) taka
á móti frjókornum, d) vekja athygli
skordýra, e) hindra útgufun.
(
19. A hvaða plöntum myndast gróin
í leggjuðum hlrzlum á stöngulendan
um? _ a) burknum, b) elftmgum,
c) mosum, d) hattsveppum, e) myglu
sveppum.
20. Hvernig má forðast eða lækna
skyrbjúg? - Með því að a) taka lýsi,
b) borða grænmeU, c) borða egg,
d) neyta kalkauðaugrar fæðu„ e)
stunda sólböð.
Náttúrufræði II.
21.. 25. Lýsið gerð mannseyra, gjama
með teikningu og skýringum við.
Skrifið ekki um hljóð og heyrn.
26.-30. Gerið grein fyrir sogæðum og
eitlum.
31.. 38. Nefnið fjögur af steinefnum
mannslíkamanss, og tilgreinið um
hvert þeirra einhverja fæðutegund,
er sé auðug af því.
39.-42. Hvaðan og hvaða leið fá fóst
ur flestra spendýra annars vegar og
fugla hins vegar næringu?
43..50. Nefnið sjö tegundir hryggleys
ingja, sem menn veiða úr sjó og
hagnýta. Takið fram um hvei-ja teg
und, af hvaða dýraflokki hún er,
og getið um, til hvers aflinn er
notaður ef hann er ekki fyrst og
fremst hafður lil manneldis.
51.-55 Skýrið sem nánast, hvernig jurt
ir af ertublómaætt bæta jarðveginn,
sem þær vaxa i. _ Nefnið til dæmis
tvær innlendar tegundir þeinar ætt
ar.
56.-60. Lýsið í fáum orðum ofanjarð
arstöngli og blaðum grasa. Að hvaða
leyti er stöngull staranna frábrugð
lnn?
SMURT BRAUÐ
SNITTUR-ÖL - GOS
Opið frá 9 til 23.30. - Pantíð
tímanlega í veizlur.
BRAUÐSTOFAN
Vesttircötu 25. Sími 1-00-12-
5 25- maí 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ