Alþýðublaðið - 07.06.1968, Blaðsíða 1
Lýst eftir
ungri konu
Lögreglan í Bandaríkjunum
lýsir nú eftir ungri konu um
öll Bandaríkin, en grunur leik-
ur á-áð konan sé viðriðin morð
ið á Robert Kennedy. Konan,
sem klædd var í doppóttan
kjól, sást með Sírhan Sirhan,
morð'ingjanum, skömmu áður
en morðið var framið.
Konunni er lýst 23-27 ára,
um 1.67 cm. á hæð. Mexíkönsk
kona segist hafa séð konuna
hlaupa út úr hótelinu þár sem
morðið var framið, skömmu
eftir ódæðið, og hrópa: Við
skutum hann, við skutum
lrann. Hún var spurð hvern
hún ætti við, og lirópaði hún
þá: Við skutum Kennedy öld-
ungardeildarþingmann.
Njörður P. Njarð-
vík ritar um fund
sinn með Robert
|Cí»nmprlv,
Sjá bls. 5
Hinn harmræni dauði Roberts Kennedys hefur
!komið miklu róti á hugi manna um heim allan. Þjóð
arleiðtogar hafa látið í ljós samúð sína með Kenn-
edy fjölskyldunni og bandarísku þjóðinni. Johnson,
B'andaríkjaforseti, hefur fyrirskipað, að fánar á op-
inberum byggihgum skuli dregnir í hálfa stöng unz
Kennedy hefur verið jarðaður og að þjóðarsorg skuli
ríkja á sunnudaginn.
ROBERT KENNEDY lézt í gær
morgun kl. 8.44 að íslenzkum
tíma eftir að hafa legið með
vitundarlaus í sólarhring, en
hann fékk taanaskot í heilann
nálægt 'hægra eyra. Voru þá
liðnar 22 klst. frá því að 6
læknar gerðu árangurslausa
skurðaðgerð til þess að bjarga
lífi Kennedys.
Nánustu skyldmenni Kenne-
dys voru við banabeðið að hin
KVEÐJA FRA UTANRiKIS
RAÐHERRA
Senator Robert Kennedy hefir veri’ð myrtur. —
Þegar svo váleg tíðindi berast eru menn furðu og
harmi lostnir um allan heim, og menn spyrja,
hvernig má þetta vera? Ungur maður úr forustu-
sveit bandarískra ráðamanna, frjálslyndur og
dáður af miklum hluta þjóðarinnar er skotinn
til bana af erlendum ofstopama'nni, án þess að
nokkrum vörnum verði við komið. Robert Kenn
edy stóð í miðjum kosningabardaga og þótti lík-
legur til að verða kosinn forustumaður þjóðar
sinnar. Á þessum verknaði er engin skýring til.
Allur heimurinn er harmi lostinn. Bandaríkin
hafa misst einn af sínum beztu sonum, og fjöl-
skylda hans hefir nú í annað sinn'á rúmum 4 ár-
um misst góðan dreng á þennan hátt.
íslenzka þjóðin samhryggist bandarísku þjóð-
inni og sendir konu hans og börnum innilegar
samúðark veð j ur.
Emil ónsson.
um öldruðu foreldrum hans
þó undanskildum, er hann
lézt. Hafði skurðlæknum tek-
izt að fjarlægja skotin tvö,
sem hæfðu Kennedy í heila og
háls, en ekki hafði tekizt að
fjarlægja málmflís úr heila
Kennedys.
Frank Mankiewicz, blaðafull
trúi Kennedys var þreytulegur
að sjá, þegar hann kom í
blaðamannáherbergi Sjúkra-
húss hins miskusama Sam-
verja til þess að tilkynna lát
Roberts Kennedys.
Var blaðafulltrúinn sem
lamaður í eina mínútu og kom
ekki upp nokkru orði, en
sagði síðan: „Ég hef tilkynn-
ingu til birtingar. Robert
Kennedy, öldungadeildarþing-
maður er látinn.“
Hópur manna hafði safnazt
saman fyrir utan Sjúkrahús
hins miskunnsama Samverja,
er fréttin pi lát Kennedys
barst og grétu margir við-
staddra, er þeim barst fréttin.
Þeir, sem voru viðstaddir
banasæng Kennedys voru auk
Ethel Kennedy, eiginkonu
Kennedys, systir hans, frú
Lawford, yngsti og eini
bræðranna 4, sem nú er á lífi
öldungadeildarþingmaðurinn
Edward Kennedy, Jaquline
Kennedy, 16 ára sonur Roberts
Kennedys og blaðafulltrúi
Roberts heitins Kennedys,
Frank Mankiewicz.
Þjóðarsorg hefur verið fyrir
skipuð í Bandaríkjunum og
verður Kennedy jarðaður £ Ar
lington, þar sem helztu leið-
togar og fyrirmenn banda-
rísku þjóðarinnar eru grafnir,
þeirra á meðal John heitinn
Kennedy.
Kisan með líki Kennedys
var í gær flutt með þotu
bandarísku ríkisstjónarinnar
frá Los Angeles lil New York.
Auk Ethel Kennedy voru
ekkjur tveggja annarra banda
rískra framámanna um borð í
þotunni, Jaquline Kennedy og
Loretta King, ekkja Martin
Luther Kings, sem lézt ná-
kvæmlega 2 mánuðum á und
Framhald á 10. síðu.
Bjóst
ræði
Sá, sem ætlar sér að verða
forseti Bandaríkjanna, verð
ur að hafa Iánið með sér.
Annað hvort hefur maður
lánið með sér eða ekki. Ég
veit, að mér verður sýnt
banatilræði fyrr eða síðar.
A
Þetta sagði Robert Kenn-
edy í viðtali við franskan
rithöfund fyrir nokkru.
&
Rithöfundurinn, Romain
Cary, skrifaði £ gær í franska
blaðið Le Figaro, að hann
hefði átt langt viðtal við Ro-
bert Kennedy á heimili kvik
myndastjórans John Franken
heimers í Los Angeles fyrir
nokkrum vikum. Auk þing-
mannsins hafi ráðgjafar hans,
þeir Dick Goodwin og Pierre
Salinger verið viðstaddir, er
viðtalið fór fram.
Gary spurði Kennedy,
hvernig hann tryggði öryggi
sitt og hvemig hann tryggði
!það, að óvinveittir aðilar
svndu honum ekki tilræði.
Öldungardeildarþingmaður-
inn svaraði því til, að ekki
væri hægt að vernda fram
bjóðanda í kosningabaráttu.
Frambjóðandi yrði að vera
með fjöldanum og þar gæti
allt átt sér stað.
ÞJóðarsorg í Bandaríkjunum - Ötför hans
verður gerð á laugardagínn