Alþýðublaðið - 07.06.1968, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 07.06.1968, Blaðsíða 5
Njörður P. NjarSvíks Þegar ég hitti Kennedy í fréttaauka í Kíkísútvarpinu í gær flutti Njörður P. Njarðvík lekt- or stutt ávarp, þar sem skýrði frá viðtalj er hann átti við Róbert F. Kennedy öldungadeildarþingmann fyrir þremur árum. Frásögn Njarðar var á þessa leið: Ég hitti Robert Kennedy á skrifstofu hans í New York 17. marz 1965 eða réttum þremur árum áður en hann lýsti yfir framboði sínu í vetur. Ég átti við hann 45 mínútna einkaviðtal er síðar birtist í vikublaðinu Fálkanum. Það vakti undrun mína að enginn skyldi vera við- staddur meðan ég ræddi við Kennedy, heldur sátum við tveir einir allan tímann, og virtist hann ekkj tortrygginn eða ótt- ast um öryggi sitt. Ég man að ég spurði hann af þessu lilefni hvort hann hefði engan lífvörð, og svaraði hann því neitandi. Þá spurði ég hann hvort hann ótt- aðist ekki að honum yrði gert mein af ofstækisfullum andstæð- ingum. Hann brosti við og svar- aði að það væri sannfæring sín að atburður á' borð við morðið á bróður hans kæmi aldrei fyrir aftur. Annars snerist samtal okkar. fyrst og fremst um stjórnmál. Dró hann þá enga dul á að sér væri það mikið hjartans mál að vinna áfram að baráttumálum þeirra bræðra, og gat hann þá' sérstaklega um fátækt, kyn- þáttamisrétti, afbrot og friðar- viðleitni, enda hafa þetta ein- mitt verið þau mál sem hann hefur lagt mesta áherzlu á í kosningabaráttu sinni að undan- förnu. Rétt er að geta þess, að Kennedy hafi þá þegar þungar á'hyggjur af áliti Bandaríkjanna erlendis og virtist hann gramur yfir því að hið góða álit Banda- ríkjanna á valdatímum Kenn- edys forseta hefði beðið hnekki, þótt hann segði það ekki berum orðum. Ég minnist þess sérstaklega sakir þess hve það kom mér á óvart að Robert Kennedy var í upphafi feimnislegur í fram- komu og brosti afsakandi við fyrstu spurningum mínum. Hann hafði vatnsblá augu og var mjög opinskár og hreinskilnislegur á' svip. Virtist mér í fyrstu sem allt tal um hörku hans og misk- unnarlausan baráttuvilja hlýti að vera þvaður eitt, en þetta breytt- ist er á leið viðíalið og ég fór að leggja fyrir hann nokkrar óþægilegar spurningar. Og þeg- ar hann ræddi helztu áhugamál sín, einkum fátæktina og kyn- þáttamisréttið, þá skutu augu hans gneistum. Að viðtalinu loknu gengum við saman út úr skrifstofunni og upp á Fifth Avenue. Fyrir Verð 136.800,- krónur Vib höfum aldrei fyrr getað bobib jafn góban Volkswagen fyrir jafn hagsfætf verð VOLKSWAGEN árgerð 1968 Hann er ódýrastur allra gerða af Volks- wagen — en jafnframt einhver só bezti, sem hefur verið framleiddur. Hnnn er búinn hinni viðurkenndu, marg- reyndu og næstum „ódrepandi" 1,2 litra, 41.5 h.a. vél. i VW 1200 er: EndurbætfUr afturós, seoi er með meiri sporvídd — Al- samhraðastilltur fjögurra hraða girkassi — Vökva-bremsur. Hartn er búinn stillanlegum framsætum og bökum — Sætin eru klædd þvottekta leð- urlíki — Plastklæðning í lofti — Gúmmí- motíur ó gólfum — Klæðning ó hliðum fót- rýmis að framap — Rúðusprauta — Hita- blóstur ó framrúðu ó þrem stöðum — Tvær hitalokur í fótarými að framan og tvær aftur í — Festingar fyrir öryggisbelti. Hann er með krómlista ó hliðum — Króm- aða hjólkoppa, stuðara og dyrahandföng. Með öllum þessum búnaði kostar hann að- eins kr. 136.800,—. Eins og við tókum fram í upphafi, þó höfum við aldrei fyrr getað boðið jafn góðan Volkswagen, fyrir jafn hagstætt verð. KOM0Ð, SKOÐIÐ OG RiYNSLUAKIÐ Sími 2)240 utan húsið beið okkar blaða- fulltrúi hans, Mancevie og urð- um við þrír samferða spölkorn eftir hinni miklu breiðgötu New York borgar, unz við skildum á götuhorni og hann hvarf mér í mannþröngina. Mér kom þá' í hug að ef til vill færi þar næsti forseti Bandaríkjanna. Nú hefur hins vegar sá hörmulegi atburð- ur gerzt að Robert Kennedy héf- ur verið myrtur og þar með hefur enn einn helzti leiðtogi frjálslyndra afla í Bandaríkjun- um orðið kúlu morðingja að bráð. Njörður P Njarðvík. Ú VERDUR (AVID Edward Kennedy öldunga- deildarþingmaður er nú einn el'tir l'^indi af þeim fjórum Kennedy-bræðrum, sonum Jos- eps Kcnnedy fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í London. Öll- um er kunnugt um það, að hinn aldni faðir hefur ætlað sonum sínum stórt hlutskipi í banda- rískum sjórnmálum, og hefur honum orðið að ósk sinni. Þó hafa hryllilegir atburðir orðið þess valdandi, að bandariska þjóðin hefur ekki lengi fengið notið hæfile'ika þeirra. Nú hefur þegar borið 'á góma, að Edward Kennedy muni lík legur sem frambjóðandi til em- bættis varaforseta í kosningun um í októbermánuði næstkom- andi. Þegar Robert Kennedy hefur fallið af sjónarsviðinu fyrir morðvopni ódæðismanns, kemur það í hlut Edwards, sem einnig er þekktur undir nafninu Ted, að halda uppi merki Kennedy- ættarinnar. Fyrir fjórum árum síðan komst Edward naumlega af úr flugslysi, hryggbrotnaði hann og virtist um tírtia, að hann myndi ekki ná sér eftir slysið og verða örkumla til dauða- dags. Þetta fór hins vegar á aðra leið og komst hann hjá örkumlun. Öldungardeildarþingmaðurinn var í Massaehusetts, kjördæmi sínu, er bróðir hans var skotinn í höfuðið af tilræðismanni í Los Angeles aðfaranótt fimmtu dagsins. Flaug hann í skyndi til Los Angeles til að fylgjast með líðan bróður síns, er liann frétti um hinn hryllilega atburð. ,Fólk í Bandaríkjunum minntist nú orða Johns F. Kennedys forseta í ræðu, sem hann hélt skömmu áður en hann féll fvr ir byssukúlum ódæðismannrms, Sem myrti liann í borginni D >1 as í Texas 22. nóvember I9f'3. í ræðu þessari rakti Kemedy forseti slysasögu ættar sinnar í Framhald á 14. siðu. 7- júní 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.