Alþýðublaðið - 07.06.1968, Page 15

Alþýðublaðið - 07.06.1968, Page 15
111(1111 ■IIIIMIIIIIIIL Framhaldssaga eftlr JOWSDÖTTI/R TeikniBigar eftir RAGNAR LAR. aði. alltaf meira og meira. Ég fann- enga aðra leið. Ja, nema fcá að stinga alveg af og fyrr eða síðar hefðu þeir náð mér, Kerlingarskrukkan liefði kjaftað frá. án þess að segja neitt um það, hvernig hún hafði kúgað af mér fé. Hún hefði gert það bara til að hefna sín á mér. Svo sagði Dísa henni, að við ætluðum til Suður-Aríku og þá hófst fjárkúgunin fyrir alvöru. Ég geri ráð fyrir, að kerling- arskrattinn hafi skil'ið, að ég ætlaði að stinga af frá öllu saman. Éfi'g langaði ekki til að sitja inni í fjöldamörg ár. Við eld- umst öll með tímanum og ég vil ekki koma út gamall og eiga fullt af peningum á banka í Sviss. Disa myndi aldrei bíða eftir | ' ÉERCd BBLTI og BELTAHLUTIR áBBLTAVÉLAR Keðjur Spyrnur Framhjól Botnrúllur Topprúllur Drifhjól Bolfar og Rær jafnan fyrirliggjandi BERCO er úrvals gæðavara á hagsfæðu verði EINKAUMBOÐ AimmA YERZLUNARFÉLAGIÐf SKIPHOLT 15 -SÍMI 10199 mér. Hún er nú einu sinni eins og hún er. Það var ekki fyrr en um dag- inn, sem ég skildi, að það var hún eða ég og þá ákvað ég að iþað væri betra að hún dræpist en ég. Fjárkúgarar eiga skilið að deyja. Ég varð enn æstari við þá tilhugsun, að kerlingarhel- vítið þurfti ekki á þessu að 'halda. Hún fékk ellilaun og hún priónaði peysur. Hún gat lifað góðu lffi á tekium sínum. ef hún hefði ekki alltaf verið að gefa barnabörnum slnum heimskulega dvrar gjafir eins og- hiól og nlötusDÍlara. Ég gat ekki haldið áfram að borga henni svona. Það hefði komizt upn um mig .... Nú var hann að reyna að rétt læta siálfan sig fyrir morðið. En hvernig ætlaði hann að rétt- læta hnð. að hann mvrti mig? Sennilega með sjálfsvöm. Ef ég drcn hana ekki, kemur hún nnn um mig. Það er hún eða év. En ég mátfi ekki hugsa um h-'ttá Ég varð að fá hann til -""i halda áfram að tala, þangað t'l að (Tvondur kæmi heim. — Hva?í gerðíst þegar þú jnvrtfr hana? snurði ég. — Ég ætti víst að segja þér bað. sagði bann. — Þú átt það skilið af mér. — Víltu kaffi? spurði hann svo og ég leit. niður á bollann minn og hann var tómur. Ég varð undrandi Ég mundi alls ekki eftir hví að hafa drukkið Ú" hnllanum. Öfeigur tók við bollanum með annarri höndinni. — Þú skalt ekki hreyfa þig, sagði hann. — Ef þú reynir að flýja. næ ég þér Ef þú ^veinar, heyrir enginn til þín. Það er góð hljóðeinangrun hérna. Hann hellti í bollana og ég lá kyrr. Svo sötraði ég kaffið mitt. — Ég vildi, að þú hefðir reynt að flýja, sagði Ófeigur. — Þá hefði verið auðveldara fyrir mig að drepa þig. Ég hata að drepa fólk. — Þú drapst samt Magda- lenu, sagði ég. — Já, svaraði hann. — En hún fann lítið til. Minna en þó hún hefði dáið úr krabbameini og hún átti það skilið. Þú átt ekkert illt skilið af mér. En segðu mér eitt, hvað heldurðu, að það séu margir sem fá að deyja án þess að finna til nema rétt á dauðastundinni? Hann tók bollann einn og settist andspænis mér, — Hvers vegna opnaði hún fyrir þér? spurði ég til að draga tímann enn frekar á langinn. — Var hún ekki hrædd við þig? Hafðirðu heimsótt hana of,t? — Nei, ég sendi henni pen- ingana í bréfi. Bara venjulegu bréfi. Það var henni í hag, hún þurfti ekki að kvitta fyrir mót- töku þess. Ef bréfið hefði mis- farizt gat hún bara sagt, að einhver hefði stolið því. En það mátti kerlingin eiga, að hún reyndi slíkt aldrei. Bréfin mín komust alltaf til skila. Kerlingaranginn var heiðar- leg á sinn hátt. Samt kúgaði hún af mér fé og hún versnaði um allan mun eftir að hún vissi, að ég væri að fara til Suður-Afríku. Dísa sagði henni það. Nú voru síð- ustu forvöð fyrir frúna. Hann flissaði eins og smá- stelpa. — Eða svo sagði hún mér. Ég var orðinn þreyttur á að borga henni stórar summur. Það jók á hættuna að upp um mig kæm- ist. Það var nóg fyrir mig að stela fyrir mig. Nú svo hringdi ég til kerling- arinnar og sagðist ætla að koma. Ég átti að færa henni fimmtíu þúsund krónur og ég sagðist ekki þora að senda alla þá oen- iriga í bréfi eins og venjulega. Kerlingarálftin skildi það. Ég laumaðist upp stigana, það not- ar þá hvort eð er aldrei neinn og Magdalena beið eftir mér. Hún gaf mér kaffi. Hún var alltaf lepjandi kaffi. Ég skil ekki, hvað fólk getur látið mikið magn af þeim drykk ofan í sig. Meðan hún var að fela pen- ingana — hún taldi þá vand- lega fyrst rétt eins og ég mvndi hætta á að hafa betta ekki ná- kvæmlega fimmtíu þúsund — laumaði ég fáeinum svefnpillum í bollann hennar. Það var auð- velt, ég hafði búið mig undir þetta og leyst þær upp áður. — Fann hún ekki bragð að þeim? spurði ég. — Nei. hún var vön að drekka kaffið dísætt, sagði Ófeigur. — Sykurinn leyndi beiskjubragð- inu að pillunum. Ég varð að vfsu að sitja smá stund og tala við kerlinguna, en loks sofnaði hún. Sitjandi og beint fram á borðið. Ég flutti hana til og lagði hana á sófann í stofunni. Svo fór ég að leita. — Að hverju? spurði ég og leit á klukkuna sem tikkaði á veggnum. Næstum hálf átta. Ætlaði Gvendur aldrei að koma? — Hún fékk hjá mér vfir- lýsingu þess efnis, að ég skyldi greiða henni tíu þúsund krónur mánaðarlega gegn því að hún ljóstraði ekki upp um mig. Það var eiginlega þess virði. Ég ætlaði mér aldrei að halda því áfram til eilífðar og þá hugsaði ég bara: „Því ekki það? Það er þess virði, ef ég bara kemst burtu með peningana". — Hvað varstu búinn að taka mikið? spurði ég. — Ætli það sé ekki nálægt milljón núna með commision- unum, sagði Ófeigur og kveikti sér í sígarettu. Hann reykti Camel eins og ég. — Ég varð að finna yfirlýs- inguna og hirða peningana. Ég ætla ekki til Suður-Afríku fyrr en ég er með klára milljón í Sviss og nóga ferðapeninga. Ég leitaði um allt og yfirlýs- ingin var hvergi. Ég var þama í meira en þrjá klukkutíma. Ég leitaði alls staðar. Ég fann peningana og hirti þá, en vfir- lýsinguna fann ég hvergi. Ég lagaði til eftir mig og fór inn í ■■lllllllll■llll■lll■l•■llllll■■■■l■l■■l■lllll 23 ItNIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIItllMIIIIIIIIIIIIIIIMtllllll stofu. Þar kvrkti ég kerlinguna. Ég gat ekki lengur haft hana yfir höfði mér alla daga. Ég háttaði hana eftir að ég hafði kyrkt hana og braut saman fötin hennar eins og ég bjóst við að hún myndi gera. Svo dró ég hana fram að dyrunum, lagði hana þannig fyrir að ég rétt gat laumast út, teygði svo hand- legginn inn, færði hana nær hurðinni og skellti. Það var víst þá, sem hún fékk marblett- inn, því hún rumskaði naumast meðan ég var að .... kyrkja hana. Hann leit á hendur sínar, sterklegar og sinaberar með löngum svörtum hárum á hand- arbakinu. Sveimér, ef ég held ekki að lófarnir á honum séu loðnir líka, og bessar loðnu hendur myndu lykiast um háls- inn á mér eftir augnablik, ef hann Gvendur kæmi ekki. Nú þagnaði hann og starði á mig. — Þetta er allt og sumt, sagði hann. — Þegiðu nú. Eg þarf að hugsa. — Ég skal þegia, Ófeigur, sagði ég. — Mig langar bara til að segja eitt. Það er ekki til neins fyrir mig að reyna að sannfæra þig um. að ég þegi yfir þessu ég geri bað ekki. Ea ég get fullvissað big um að þú sleppur ekki, ef hú drepur mig. Auk bess blatidarðu ekki svefn- lyfjum í kaffið mitt. Eg full- vissa þig um að ég berst, ég er ung og hraust og hann Gvendur . . . — Þegiðu! sagði Ófeígur, og ég sá að hann meinfi bað. — Ef þú segir eitt orð enn, drep ég þig núna á stundínni. Þá get ég hugsað um hvað ég á að gera næst. Ef bú segir eitt orð er úti um þig og bú skalt ekki fmynda þér að þú hafir við mér. Ég er æfður iúdómeistari. Svo ekki sé minnzt á' það að ég er karlmaður og þú bara kona. Skilurðu það? Þegiðu nú! Ég kinkaði þegjandi kolli og svitnaði. ítalskar sumartöskur margar tegundir, ódýrar skinntöskur, margar tegundir, slæður, hanzkar, regnhlífar. Sendum í póstkröfu. Sími 15814. Tösku og hanzkabúðin, Skólavörðustíg. Áskriftarsími ALÞÝÐUBLAÐSINS er 14900 7- júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.