Alþýðublaðið - 08.06.1968, Page 5
íslendingar í Evrópuráðinu
Á ráðgjafarþingi Evrópuráðs-
ins, sem haldið var fyrr í þess-
um mánuði í Strassburg, tóku
þeir Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson og Eysteinn Jónsson
þátt í umrœðum.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, sem kjörinn var einn af
varaforsetum ráðgjafarþingsins,
hélt ræðu 7. maí, þegar fram
fór almenn umræða um sjórn-
málaþróunina í Evrópu. í upp-
hafi ræðu sinnar tók Þorvaldur
Garðar undir ummæli brezka
þingmannsins Edelmans, sem
var framsögumaður sjórnmála-
nefndar ráðgjafarþingsins, þess
efnis, að æskilegt væri, að Ev-
rópuráðið beitti sér fyrir aukn-
um samskiptum ríkjanna í aust
ur- og vesturhluta álfunnar.
Taldi Þorvaldur Garðar, að að-
ild ríkjanna í Austur-Evrópu að
ráðinu væri hugsanleg, þegar
tímar líða. Á næstunni væri þó
líklegast til árangurs að beina
athyglinni að tæknilegri sam-
vinnu, og mætti ekki vænta
tiema takmarkaðs árangurs af
henni. Þessi samvinna við rík
in í Austur-Evrópu gæti ekki
verið aðalverkefni Evrópuráðs-
ins. Það yrði hér eftir sem hing
að til að vera að efla samstarf
þeirra 18 ríkja, sem nú eru f
ráðinu.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
som sagði, að oft væri bent á,
að fremur hægt miðaði í átt
til sameiningar Evrópu. Hann
kvað líklegustu leiðina tll að
flýta gangi mála vera stuðning
almennSngsálitsins í ríkjum álf
unnar. Almenmingsálitið myndi
mjög mótas;t af því, hvaða sýni
legur árangur næðist í Evrópu
i-áðinu, og þess vegna skipti
mestu, að það ynni að verkefn
um, sem líklegt væri, að sam.
komulag tækist um. Þorvaldur
Garðar kvaðst telja, að oft væri
of mikil áherzla lögð á vanda-
mál, sem snerta Efnaliagsbanda
Iag Evrópu, en of lítið rætt um
málin á víðtækari grundvelli,
þar á meðal um hagsmuni smá-
ríkjanna í Evrópu, svo sem
SMURT BRAUÐ
SNITTUR-ÖL - GOS
Opið frá 9 til 23.30. - Pantið
tímanlega í veizlur
BRAUÐSTOFAN
Vesturgötu 25. Sími l-fiO-12
Islands. —• Síðan sagði Þorvald
ur Garðar Kristjánsson:
„Ég mun ekki ræða hin sér-
stöku viðhorf og hagsmuini ætt-
lands míns. Ég vil aðeins mega
koma á framfæri þeirri skoðun
minni, að það gæti átt mest að
vinna eða mest að tapa, ef
það á aðild að stjórnmála- og
efnahagslega sameinaðri Evrópu
Þessu veldur smæð þjóðarinnar.
Ef það siniertir lífshagsmuni
stærstu rikjanna í Evrópuráð-
inu, að þau nái að taka höndum
saman til að nýta í félagi auð
lindir sínar og mannafla, má
augljóst vera, hve miklu það
skiptir fyrir smæstu ríkin Á
sama hátt má segja: Ef stór-
veldin í okkar hópi telja rétt
að afsala sér eða takmarka full
að afsala sér eða akmarka full-
Teldi sitt vegna þess, að hags-
muniir þjóðanna, sem þessi lönd
hyggja, kunni að gleymast eða
vera fyrir borð bornir í nýju
stórríki, er augljóst, að hér er
minnsta ríkið andspænis mikl-<5>
um vanda. Mér virðist, að
þetta sé sá vandi, sem öll aðild
arríki Evrópuráðsins eiga við að
glíma með einhverjum hætti,
og hanai er sérstaklega ljós að
því er mitt land varðar.
Mestu skiptir að skapa trúnað
artraust, ef leysa á þetta mál. Þeg,
ar við höfum lært, að við getum
treyst hvor öðrum, er fengin sú
undirstaða, sem Evrópuráðið get
ur byggt á við að gera hugsjón
stofnskrár sinnar, eins og ég skil
hana, að veruleika með.því að
hjálpa smáþjóðum til að vera
smáþjóðir, en njóta jafnframt
þess, sem stórþjóðir einar hafa
efni á'. Þetta er stefna, sem þjón
ar hagsmunum okkar allra, sem.
í Evrópuráðinu erum. Við skul
um minnast þess, að allt er af-
stætt, þegar mið er tekið af risa
veldunum tveimur, erum við all
ir frá smáríkjum.
í lokakafla ræðu sinnar lýsti
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
þeirri skoðun sinni, að heppileg
ast væri að vinna að sameiningu
Evrópu í áföngum. Hann kvaðst
ekki sammála þeim, sem telja, að
allt þurfi að fást strax og í einu
lagi. Ef svo væri gæti undirstað
an vart verið örugg. En svo væri
vissulega og því væri ekki á'-
stæða til að óttast.
Á ráðgjafaþingiu fór fram um-
ræða um Grikklandsmálið. Holl-
enzki þingmaðurinn van der
Stoel fór seint í apríl til Grikk-
lands á vegum Evrópuráðsins
til að kynna sér ástandið þar af
eigin raun, og lagði hann skýrslu
sína fram á þinginu.
Eysteinn Jónsson tók þátt í
umræðunni um skýrsluna. Lagði
hann áherzlu á, að ráðgjafarþing
Evrópuráðsins gæti ekki vikizt
undan ábyrgð sinni í þessu máli,
því að þingið hefði fyrst og
fremst Það . hlutverk að treysta
lýðræði og þingræði í sessi. Ey-
steinn Jónsson sagði, að mikið
væri rætt um málefni unga
fólksins. Það væri erfitt og flók
ið vandamál, og kvaðst hann
aðeins vilja víkja að einu atriði
sem það snerti: Unga fólkið
myndi vart rata á braut lýð-
ræðisins og feta hana í framtíð-
inni, ef þeir, sem eldri eru, létu
nú viðgangast, að stofnanir lýð-
ræðis og þingræðis vesluðust
upp.Eysteinn Jónsson sagði að
lokum, að ráðgjafarþingið myndi
mjög fagna því, ef í Grikklandi
kæmist til valda stjórn, sem virti
lýðræði og þingræði.
í dag kl. 4.00 opnar Péur Friðrik, lismálarf, málverkasýningu í
Iðnskóla Hafnarfjarðar. Verður sýningin opin daglega kl. 5-10 e. h.
Pétur Friðrik hefur haldið inargar einkasýningar við mikla aðsókn
og hefur tekið þátt í samsýningum erlendis. Alls verða sýnd 39|
málverk og eru þau öll til sölu. Eru flestar myndirnar landslags-
mynd’ir, blómamyndir og húsamyndir úr Hafnarfirði og Reykjavík.
Myndin sýnir málverkið, Húsagarður í Reykjavík
Sýningin verður til 16. júní.
Sjálfvirk símstöb á Patreksfirði
Nýlega var tekin í notkun sjálf
virk símstöð á Patreksfirði.
Ásberg Sigurðsson sýslumaður
vígði stöðina, með því að tala
við póst- og símamálaráðherra,
Ingólf Jónsson kl. 4,30. Við.
það tækifæri bauð póstur og
sími mönnum til kaffisamsæt-
is, og fluttu þar ræður yfir.
verkfræðingur landsímans Þor
varður Jónson, er lýsti stöð-
inni, Ásberg Sjgurðsson sýslu
maður, er þakkaði þetta fram
tak fyrir hönd sýslubúa, Jó-
hannes Árnason sveitarstjóri,
er fagnaði þeasum merku tíma
mótum í sögu Patrekshrepps,
og Snæbjörn J. Thoroddsen
oddviti í Rauðasandslireppi, er
færði símanum ámaðaróskir
sinna sveitunga. stjórn
aði símstöðvarsíjórinn á Pat-
reksfirði Eggert Haraldsson.
Sjálfvirka símstöðin er í raun
og veru tvær stöðvar lands-
símastöð og innanbæjarstöð,
framleiddar af fyrirtækinu
L. M Ericson í Svíþjóð. Innan.
bæjarstöðin er 300 númera
stöð með númeraröðina 1100—
1399. Auðveldlega má stækka
stöðina í 1000 númer.
Nú þegar eru í notkun um
230 sjálfvirkir símar en nokkr
ir bíða eftir að fá símsvæðis-
númer stöðvarinnar er 94 og
hún hefur 12 vallínur beint til
R'eykjavíkur. Áfram verða 31
símnotandi í sveitum með
handvirka afgreiðslu.
Þetta er 38. sjálfvirka stöð-
in á íslandi.
Byrjað var á uppsetningu
stöðvarinnar í nóvember 1967
og hefur verkið gengið eftir
áætlun undir stjórn Þorvarðs
Jónssonar yfirverkfræðings
Landsímans. Stöðin var upp-
sett af tæknimönnum Landsím
ans innlendum og erlendum.
Póstur- og sími hefur nýreist
póst- og símahús á Bíldudal og
er þar unnið að uppsetningu
sjálfvirkrar stöðvar. Einnig
eru nýbyggð Póst- og símahús
á Flateyri og Súgandafirði og
bygging fyrir sjálfvirka sím-
stöð er í byggingu á ísafirði.
Fyrsta landssímastöðin á Pat-
reksfirði var opnuð 8. október
1908 og eru því rétt 60 ár frá
komu símans til Patreksfjarð-
ar. En frá árinu 1903 hafði
Pétur A. Ólafsson rekið sitt
eigið símakerfi hér á staðnum.
Jón Snæbjörnsson var fyrsti
stöðvarstjóri Landssímans á
Patreksfirði og gegndi hann
því embætti til dauðadags
1941, en kona hans tók þá við
í eitt ár og síðar sonur hans
Hallgrímur til 1950 er frú Þór
unn Sigurðardóttir varð sím.
stjóri og var hún það þar til
hún flutti til Reykjavíkur 1963.
Tvö barna Jóns Snæbjörnsen
Ruth og Sigurður voru við-
stödd opnunina, en þau störf-
uðu bæði lengi við símann.
FORSETAKYNNING -
Stuðrtingsblað kjósenda
II tbl. er komið út. — Hvað segir „MÍMIR um Kristján
Eldjárn og Alþýðuflokksmenn?
Drætti verður ekki frestað
★ Vinningur: Mercedes Benz 220, ný gerð. Dregið: 16 júní 1968.
★ Styrkið starf Rauða kross-reildarinnar í Reykjavík.
Happdrætti Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands
8. júní 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5