Alþýðublaðið - 08.06.1968, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 08.06.1968, Blaðsíða 11
Illllllllllll llllllllllllllll. KðnGURiðin FramfiaBdssaga eftir INCIBJÖRGU JONSDGTTIIR 13. KAFLI. Gvendur kemur heim Ófeigur svitnaði líka. Ég sá svitann perla á enni hans. Ég gat næstum séð hánn liugsa og klukkuna vantaði fimm mínútur í átta. Gvendur kæmi of seint heim núna sem eiidranær. Hann gat drepið mig núna. Þyí skyldi hann ekki gera það? Hann tapaði engu á því. Ef hann yrði tekinn fyrir morðið sæti hann ekki lengur inni fyr- ir tvö en eitt, svo gat hann hlífa þér. — Þú varst ein inni í íbúð- inni, sagði hann. — Ein góða stund. Hvar er yfirlýsingin? Ef Srcö BELTIog BELTAHLUTIR á BELTAVÉLAR KeSjur Spyrnur Framhjól Botnrúliur Topprúllur Drifhjól Boltar og Rær jafnan fyrirliggjandi BERCO er úrvals gæðavara ó hagsfæðu verði einkaumboð ALMENNA VERZLUNÁRFÉLAGIÐf 5KIPHOLT 15 — SÍMI 10199 þú lætur mig fá hana skal ég hlífa þér. En ég vissi það jafn vel og hann að slíkt gæti hann aldrei gert. Þegar hann hefði fengið yfirlýsinguna myndi hann drepa mig. — Ég hef hana ekki, sagði ég. — Jú, þú hefur hana. Hvar ler hún? Ég skal borga þér vel fyrir hana. Eitt hundrað þús- und, tivö hundruð þúsund, hvaða máli skiptír það? Ég fer til Suð- ur Afríku á morgun. Nei, ég hafði ekki yfirlýsing- una, en ég mundi allt í einu hvað það var, sem hafði komið mér svo á óvart hjá spákon- unni. Ég vissi hvar yfirlýsingin var geymd. Hann snéri baki við mér og leít út um gluggann. Ég held, að hann hafi verið að vona, að ég reyndi að stinga af svo að hann gæti myrt mig með góðri fimvisku. Það var erfitt að ráð- rst á sitjandi konu og kyrkja Jiana, en allt annað að ráðast á ’iana, þegar hún var að flýja til að kjafta frá öllu og eyði- leggja allar ráðagerðir hans. Átti ég að reyna? Kannski kæmist ég til dyranna og jafn- vel fram á ganginn áður en hann næði mér. Kannski gæti ég .... Vitanlega var Gvendur hækk- aður í tign eftir þetta. Hann var gerður að yfirvarðstjóra og það er það sama og fulltrúi. Nú fengi hann að sitja og taka skýrslur við skrifborðið sitt, eins og hann hafði alltaf dreymt um. Var það ekki dásamlegt. Og allt var þetta af því að ég bað Gvend, já', ég þurfti næstum því að grátbiðja hann, um að segja, að það hefði verið hann og enginn annar, sem hefði fund Tetkningar eftir RAGNAR LAR. En áður en ég þurfti að ákveða mig, heyrði ég lykli stungið í skrá. Húnninn snérist og Ófeigur leit skelfdur í kring- um sig. — Þú laugst! sagði hann ásakandi. — Hann er kominn. Ég held, að rödd mín hafi ekki titrað, þegar ég svaraði honum. — Nú skaltu kyrkja mig, ef þú vilt. Hann sér þig gera það. Gvendur heyrði þessi orð um leið og hann kom inn í íbúðina og ég sá á svip hans, að hann skildi, hvað hafði gengið á. Hann vissi hvort eð er, að ég hef gaman af leynilögreglu- reyfurum og þetta var ekki meira en við mátti búast af hálfvitlausri eiginkonu ofan úr sveit. Hvað gengur á? spurði Gvend- ur. En Ófeigur var fljótari en við höfðum gert ráð fyrir. Hann skauzt fram hjá Gvendi og út um dyrnar. Gvendur hljóp á eftir Ófeigi og ég hljóp á eftir Gvendi, Við náðum honum. Gvendur reyndi að halda hon- um, en Ófeigur var meistari svarta beltisins og hann lék sér að Gvendi. Rannsóknarlögreglu- menn hafi ekki jafnmikinn tíma og svindlarar til að æfa júdó. Ég gat ekki horft á þetta, svo ég greip bara um lappimar á Ófeigi og hann datt. Eftir það var leiknum lokið. Morðmálið mikla var Ieyst. ið, hver morðinginn var. Alls ekki ég. Ég hefði nefnilega ekki grætt neitt á því, að vita, hver morð- inginn var og því sannfærði ég Gvend um, að rétt væri, að hann segði, að honum hefði þótt rétt, að líta undir dúkinn sem lá á skattholinu á ganginum hjá henni Magdalenu. Og þar fann hann yfirlýsing- una og á stundinni kom honum til hugar, hver morðinginn væri. Á meðan var ég skilin eftir ein 14. KAFLI. Gvendur verður fulltrúi til að tala við Ófeig og reyna að fá' hann til að játa sekt sína. Og vitanlega gerði ég það, ég er góð og elskuleg eiginkona, sem allir vinir hans Gvendar öf- unda hann af. Ég er svo dugleg. Því að ég vil alls ekki, að hann Gvendur viti, að það var ég, sem leysti morðgátuna. Það væri voðalegt. Það gæti meira að segja eyðilagt hjónaband okkar. Ef hann Gvendur skildi við mig, fengi ég kannski aldrei tæki færi til að vinna að rannsókn máls eins og þessa máls og nú fæ ég það. Mig langar ekki neitt til að vinna til verðlauna, því að hann Gvendur sér vel fyrir okkur báðum. Mér og sér og kannski verð- um við þrjú eftir nokkra mán- uði. Ég er ekki alveg viss, en ég veit, að það verður gaman fyrir mig að fá að vinna að öllum þeim málum, sem hann kemur til með að sjá' um núna, eftir að hann er orðinn fulltrúi. Og ég ætla að segja honum allt af létta og aldrei að leyna hann neinu eins og ég gerði þarna með bréfmiðann undir dúknum. Hann ætlar líka að segja mér allt hér eftir. Og ég þarf aldrei að játa það fyrir honum, að ég las alls ekki nafnið sem stóð á blaðinu und- ir dúknum. Ég vissi ekki, að Ófeigur hafði drepið hana Magdalenu. Ég bara fann það út. Maður les nú ekki það, sem aðrir fela undir dúknum og það ekki þó að þeir séu dauðir, sem það gerðu. ■liUlii11111111111111■1111111liiiiiii 24 Itlllllllllllll III llll■■lllllllll■ll■*tllHII 1111111111141111111111 Hvernig átti ég að vita, að þetta væri ekki eldgamalt ástar- bréf eða álíka? En í kvöld ætlum við Gvend- ur út, því að nú er hann orð- inn fulltrúi og Ófeigur hefur viðurkennt, að hann hafði drep- ið Magdalenu. Ég er búinn að fara í Iagningu og ég er reglulega fín og sæt. En á meðan ég man, verð ég að segja ykkur frá sígarettunni, sem hann Gvendur fann í ösku- bakkanum hennar Magdalenu. Hún var af tegundinni VIK- ING, en alls ekki neitt merkilegt sönnunargagn. Bjössi hafði slökkt í henni, þegar hann kom til að rífast við spá'konuna. Fólk kemur kannski i heim- sókn til annars og meira en til að drepa einhvern, þó svo að það reyki sjaldgæfa sígarettu- tegund. Ég hugsa, að ég verði að hjálpa honum Gvendi áfram við að leggja saman tvo og tvo og fá út fjóra, en ekki þrjá eða fimm. Og nú ætla ég að fara út meff honum Gvendi í kvöld og gleðj- ast — ekki bara yfir því, aff hann er orðinn fulltrúi eins og hann hefur alltaf dreymt urn — 'heldur einnig yfir því, aff Bjössi er kominn heim og Friff- rikka hefur Bjössa sinn og öll börnin. Ég ætla líka að gleðjast yfir því, að köngurlóin er ekki leng- ur til og vefur hennar liggur ekki frá íbúð til íbúðar. Það er ekki nein spákona lengur heima mér, sem segir fólki, að voðinn bíði þeirra. Ég er að fara út f kvöld og kannski ég segi honum Gvendi seinna, að við verðum bráðum þrjú, ef guð lofar. — Endir. — VOR og SUMARKAPUR Vendikápur og Terylenekápur í úrvali. Kápu og dömubúðin Laugavegi 46. Læknir óskast að Slysavarðstofu Reykjavíkur til sumarafleysinga 2—3 mánuði. Upplýsingar gefur yfirlæknir í síma 81200. » Reykjavík, 7. 6. 1968, v * Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur. 8. júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.