Alþýðublaðið - 01.08.1968, Síða 1
Fimmtudagur 1- ágúst 1968 — 49. árg. 146. tbl.
Samkvæmt síð'ustu fréttum frá
Prag- mun viðræðunum lialdið i
fram' í dag.
Breshnev ýeiktist en mætti aftur á fundi í gær.
uridarloka be
eftirvæntinsu
Er blaðamaður og ljós-
myndari Alþýðublaðsins
komu í Alþingisliúsið í gær
til að sjá og mynda þann við-
búnað, sem þar hefur verið
gerður vegna embættistöku
hins nýja forseta íslands í
dag, var þeim ekki tekið bet-
ur en svo, að blátt bann var
Iagt við því að þar væru
teknar nokkrar myndir. Var
það ráðuneytisstjórinn í
forsætis- og me'nntamálaráðu
nej’.tinu, Birgir Thorlacius,
sem að því banni stóð.
Það kemur alltaf fyrir
annað veifið a ð háttsettir
embættismenn finna hjá sér
hvöt til að gera sig
breiða gagnvart blöðunum,
að því er virðist og til þess
eins að sýna óbreyttu fólki,
hverjir það séu sem valdið
hafi. Hitt skiptir þessa menn
engu, þótt þe'ir með stirfni
sinni hindri blöðin í þeirri
skyldu þeirra að gefa al-
menningi sem gleggsta mynd
af því sem fram fer í þjóð-
félaginu.
Alþýðublaðið óskar einskis
fremur en að eiga gott sam-
starf við alla þá aðila sem
það hefur samskipti við, háa
jafnt sem lága. En samskipti
blaða og háttsettra embættis-
manna eiga he'lzt ekki að
vera á þann einhliða hátt, að
blöðin séu ætíð reiðubúin til
að birta allt sem þeir vilja
láta b!rta, en hins vegar sé
ekki öðru að mæta en stirfni
og merkilegheitum, þegar
blöðin eiga frumkvæðið.
í þessu tilviki er út af fyr
ir sig um litinn hlut að ræða,
en hann er langt frá því e'ins-
dæmi, og þess vegna vill AI-
þýðublaðið nota þetta tæki-
færi til að mótmæla svona
aðferðum.
í GÆRKVÖLDI lá ekki ljóst
fyrir hvenær fundi ráðamanna
Sovétríkjanna og Tékkósló-
vakíu myndi Ijúka. Það vakti
talsverða ringulreið mt'ðal
fréttamanna, er það fréttist í
gær að Breshnev væri veikur
og yrði að hætta fundahöld-
úm. Veikindi Breshntv reynd
ust ekki alvarlegri en svo, að
hann mætti til kvöldfundar.
Útvarpið í Prag skýrði frá
því í gærkvöldi, að nokkrir
fundarmanna hefðu ekki mætt
til kvöldfundiar og þótti það
benda til að þeir væru að
undirbúa drög að niðurstöðu
fundailns eftir þriggja daga
fundarhöld.
Niðurstöðu fundarins er beð
ið með mikilli eftirvæntingu
,af almenningi í Tékkóslóvakíu,'
sem gengur um göturnar með
férðaútvörp í hendfi til að
rnissa etkiki af nýjustu fréttum
af fundinum.
Óstaðfestar 'fréttir herma að
istjórnmálamenn geri sér von-
ir um að Sovétmenn slandi
ekki fast á kröfunni um að
sovézkir hermenn verðii stað-
settir á landamærum Tékkó-
slóvakíu og V-Þýzkaiands,
eða kröfunni um ritskoðun og
heftingu á lýðræðisleigrj stjórn
arháttum í Tékkósióvakíu.
NÝ STJÓRN
í gærkvöldi myndaði forsetl
íraks, Ahmed Ilassan nýja rjkis
stjórn með 26 meðlimum. Er
þetta önnur ríkisstjórnin sem.
mynduð er á tveimur vikum.
Merkur
forn-
leifa-
fundur
BLANC SABLON, Que-
bec, 31. júlí. Kanadískir
fornleifafræðingar hafa
fundið leifar af um 100 bý-
kúpulaga steinkofum, sem
þeir telja, að hafi veriö bú-
staðir norrænna víkinga
fyrjr um 1000 árum. Kcfa-
leifarnar fundust um 1600
km. fyrir norð-austan Que
becborg.
Leiðangursstjórinn, Rf'né
Levesque frá Sherbroeke-
háskóla í Quebee/sagði að
frá hans sjónarmiði væri
fundur þessi afar me>'ki-
legur frá sögulegu sjónar-
miði og gæti reynzt veiga-
mesti fornleifafundur í
Kanada á okkar dögum,
Fundarstaðurinnl liggur
um 120 km. frá L’Anse anx
Meadows á norðurodda Ný-
fundnalands, þar sem fund
ust tóftir árið 1963, sem
taldar hafa verið frá bú-
setu víkinga þar um árið
1000.
Síðustu fréttir.
í dag verður nýkjörinn forseti íslands, dr. Krist-
ján Eldjárn, settur í embætti við hátíðlega athöfn,
sem hefst í Dómkirkjunni klukkan 15.30. Þar flyt-
ur biskup Íslands ávarp, en að athöfninni í kirkj-
unni lokinni verður gengið í sal neðri deildar Al-
þingis, þar sem forsetinn tekur formlega við emh
ætti.
Eins og fyrr segir hefst athöfn
in í Dómkirkjunni. Biskupinn
flytur ávarp og les upp úr ritn
ingunni, en síðan verður sálma-
söngur. Um klukkan 16 verður
svo gengið i Alþingishúsið. Þar
les forseti Hæstaréttar kjörbréf
hins nýja forseta, en forseti und
irritar drengskaparheit um að
halda stjórnarskrána.
Síðan ganga forsetahjónin út
á svalir Alþingishússins og kasta
kveðju á mannfjöldann, en því
næst flytur forsetinn ávarp í
þingsal neðri deildar. Að ávarp
inu loknu syngja kórar Dómkirkj
unnar og Háteigskirkju þjóð-
sönginn.
Viðstaddir athöfnina í Alþing
ishúsinu verður ríkisstjórnin,
fulltrúar erlendra ríkja, hæsta
réttardómarar og fleiri.
Hátölurum verður komið fyrir
utan við Dómkirkjuna og Alþing
ishúsið, svo að allir, sem vilja
geti fylgzt með því sem fram
fer.
í gær var unnið að því af
kappi að undirbúa athöfnina í
Alþingishúsinu. Fréttamaður og
Ijósmyndari Alþýðublaðsins litu
þar inn til að kynna sér livernig
undirbúningi liðj og taka myndir
af því, sem þar fór fram. Mynd
ir fylgja því miður ekki þessari
frásögn, þar sem ráðuneytis-
stjóri forsætis- og menntamála-
Framhald á 14. síðu.