Alþýðublaðið - 01.08.1968, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 01.08.1968, Qupperneq 10
i Nýr þáttur *byrjar Síða sú, sem þér eruð nú að hefja lestur á, er öldungis ný af nálinni, og er henni ætlað það merkishlutverk að vera vettvangur æskunnar. Munum vér því taka hér til birtingar alls kyns efni, sem síðunni berst, en áskilinn verð- ur þó sá réttur að velja og hafna slíku efni. Að sjálfsögðu mega allir senda síðunni efni, en það verður þó að tak- markast við áhuga ungs fólks, eða því sem næst, og skorum vér hér með á unga sem aldna að senda oss efni til hirt- ingar, því ætlun vor er að reyna að hafa síðuna eins efnismikla og unnt er, en hafa her þó í huga ofanritað, að efni verður að takmarkast við áhuga ungs fólks. I. S. Fróbleiksmolar um Sonny og Cher Sonny, sem með réttu heitir Salvatore Bono, er yfirleitt klæddur eins konar Alla Rúts vesiti og eskimóaskóm, en hin fagra eiginkona hans, Cher La Piére, er hins vegar klædd dáta-buxum, indv erskum mokkasíum og kvenlegri blússu. Þessi sérkennilegu Umsjónarmaður: Ingimundur Stgurpáissan amerísku hjón byrjuðu ekki að syngja fyrr en eftir að þau giftu sig fyrir rúmum fjórum árum. Þetta byrjaði með því, að þau voru að leita sér að húsgögnum í nýju, litlu íbúð- ina sína. Þá fundu þau meðal arrnars gamalt píanó í skran- verzlun nokkurri. Og þau (keypitiu lhjal|inn, slem silðar varð upphafið að hinum gæfu- sama ferli þeirra. Sonny keypti verkfærið aðallega til þess að get’a spilað undir, meðan Cher raulaði frammi í eldhúsi — og með tímanum urðu til heima- tílbúin lög og heimaiilbúnir textar. „Öll okkar velgengni byrjaði ieftir að við keyptum þetta gamla drasl," sagði Sonny eitt sinn og átti þá auðvitað við píanóið. ,,Ég og Cher tnáum því statt og stöðugt, að það hljótið að vera góður andi í því, enda dytfi okkur aldrei í hug að láta það frá okkur, hvað sem við yrðum rík. Við höfum það meira að segja enn á bezta staðnum í íbúð okkar, og við höfum ekki hugsað okk- ur að flytja það þaðan. Tón- list okkar köllum við Folk-n- Rolt. Nokkurs konar þjóðleg tónlist með roek-takti. Öll lög okkar eru full af hamingju og ánægju með ailt og all-a — Framhald á 13. síðu. Ný hljómplðtð me5 ( sextett Ólafs Gauks og Svanhildi og Rúnari Fyrir skömmu kom á markaðinn. enn ein hljómplata á vegf- um S.G.-hljómplatna, að þessu sinni með hljómsveit Ólafs Gauks og söngvurunum Svanhildi og Rúnari. Hljómplata þessi, sem prýdd er fjórum faUegum lögum, er sú þriðja, sem sextett Ólafs Gauks sendir frá sér. Á hljómplötu þessari fær hið gamla og fjöruga lag, „Bjössi á Hól“, viðeigandi og smekklega meðferð. Svanhildur sýnir með því sína beztu hliff, en lög í þessum stíl falla einna bezt við hennar fremur einhliða söng. máta. Undirraddir eru mjög góðar og einnig undirspil, þó svo að heldur mikið beri á því. Næst ber að nefna liið gull- fallega Iag, „If I Were A Rich Man“, úr söngleiknum fræga, Fiddler on the roof. Lag þetta er forkunnarvel sungið af þeim Rúnari og Ólafi Gauk. Látlaust undirspil er einnig ágætt, þó svo að áherzlur vanti víða. „Ef bara ég væri orðin átján“ er mun nýstárlegra lag og krefst að sjálfsögðu frábrugðins flutnings. Hér er það Svanliildur aftur og syngur áfram í sínum hefðhundna stíl. Að lokum ber að nefna vinsælasta lag plötunnar, þó ekki sé það hið bezta að sama skapi, lag Rúnars Gunnarssonar, „Undarlegt með unga menn“. Með því sannar Rúnar ágæti sitt sem lagasmiður. Þrátt fyrir ofnotkun saxa- fóns, gerir flutningur það að frambærilegasta lagi plötunnar. FRÁ BITLUNUM HUÓMAR MEÐ MÖRG JÁRN í ELDINUM Bítlarnir brezku hafa nú gefið út yfirlýsingu, þar sem gerð er grein fyrir væntanlegum hljómplötum á árinu 1968. Segir þar, að innan nokkurra vikna megi búast við tveggja-laga hljómplötu, en „LP“-hIjómplata er væntanleg í septemberlok. Af töku þriðju Bítlamyndarinnar, sem oftsinnis hefur verið seinkað, mun verða, er önnur „LP“plata hefur komið út. Má því ætla að myndataka hef jist í júní næsta ár, þó enn sé það ekki fullákveðið. John Lennon hefur nú selt hina skrautlegu Rolls-Royce bifreið sína. Kaupandinn vill ekki láta nafn síns getið, en vitað er, að hann stundar bílasöfnun. Rollsinn var meðal margra annarra bifreiða á sýningu, sem haldin var í New York-fylki í Bandaríkjunum fyrir skömmu, og vakti þar gífur- lega athygli. Ekki Ieið á löngu, þar til tilboðin tóku að streyma til Jóns, og eftir mikil þankabrot ákvað hann að selja gripinn. Þó svo að Illjómar frá Keflavík hafi margt verið með í pokahorninu gegnum árin, hefur ekkert vakið eins gífurlega athygli og sú stað reynd, að liðsmönnum hljóm sveitarinnar fjölgi um tvo á hausti komanda. Mun hér vera um að ræða þau Gunm ar Jökul, trymbil í Flowers', og Shady Owens, söngkonu Óðmanna. Af þessum sökum mun hljómsveitarskipan’ breytast nokkuð, eða þannig, að Engilbert snýr sér að söngnum mcð Shady, en Gunnar tekur sæti hans við trommurnar. Af ofanrituðu má glögg- lega sjá, að Hljómar eru ekkj þagnaðir enn sem komið er, hverjar sem afleiðingar uppá tækis þeirra verða síðar. í september næstkomandi halda Hljómar til Bandaríkj- anna, en þangað eru þeir náðnir til tveggja mánaða' fyrst um sinn. í Bandaríkj- unum munu Hljómar leika á ýmsum stöðum og þá- einna helzt í skólum —* menntaskólum öðrum frem ur — og næturklúbbum. En áður en til þesaarar farar kemur, halda Hljcmar til Lundúna þeirra erinda að ieika inn á 12 laga hljcm- plötu á vegum S.G.-hljcm- platna, og er áællaður brott farardagu.r 19. ágúst. Strax að upptöku lokinni koma Hljómar aftur til íslands, og munu síðustu dagarnir fyrir Bandaríkjaförina notaðir til hins ýtrasta við að Ijúka því, sem eftir verður. Hljóma-dansleikur verður enginn eftir 17. ágúst, þar eð þá koma þeir fram í síðasta sinn fyrir utanl’andsförina í Saltvík. 10 1. ágúst 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.