Alþýðublaðið - 29.08.1968, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 29.08.1968, Qupperneq 9
A^/\^AA/\A/\^VWWVWNA/V/^^VSA/\^AAAA^^)VN^A/N^>^AA)WW>^A/S/ Sigurðnr Guðmundsson formaSur Sam bands ungra fafnaðarmanna taiaði sem gestur á nýafstöðnu þingi Sambands ungra framsóknarmanna. Ræða hans hefur vakiö nekkra athygli, og birtir AlþýðublaÖið hana því í heild hér í þessu blaöi. eru þá hinir ungu Islending- ar nútímans í stakk búnir til síns mikla œtlunarverks? Unga fólkið er í heild miklu betur menntað en nokkur önn ur kynslóð í íslandssögunni. Menntun 'þess er eins og bezt gerist með öðrum þjóðuxn, önnur hæfni er eftir Því °S xað er víðsýnna og víðföruila n nokkur önnur kynslóð ís- landssögunnar. Það skipar inn sess í þjóðlífinu með sóma og margt af því skipar nú þegar ábyrgðarstöður á Clestum sviðum þess. Þó er skarð fyrir skildi á einum stað. Ungt fólk velst ekki til forystu í stjórnmálabarátt- unni, það á þess engan kost að taka þar þátt í hinni al- mennu þjóðmálabaráttu, sem ráð eru ráðin og ákvarðanir teknar. í þessu efni hefur sig ið því meir á ógæfuhlið, sem árinhafa liðið. Sé Alþingi tek- ið sem dæmi hefur fjöldi þeirra þingmanna, sem eru fertugir eða yngri, aldrei verið minni en nú eða 6,6% þingmanna. Enginn þeirra er 35 ára eða yngri. Árið 1960 voru 15% þingmanna fertugir eða yngri, árið 1955 voru 17,3% þing- manna fertugir eða yngri, ár- ið 1950 19,2%, árið 1945 17,3% og árið 1940 14,3%. Á þessum tíma hafa ætíð setið á þingi menn, sem hafa verið 35 ára eða yngri þótt það sé ekki nú. Frá því lýðveldið var stofnað hefur hlutfallstala þeirra þingmanna, sem verið hafa fertugir eða yngri, ver- ið frá 15% til 19,2 % þar til nú, að hún er 6,6%. Þá hafa þær upplýsingar einnig nýver ið komið fram, að meðaiald- ur þingmanna var í árslok 1967 51,8 ár. Hann er lægstur hjá Alþýðuflokknum eða 49,3 ár en hæstur hjá Framsóknar flokknum eða 55,2 ár. Á sama tíma eru 43% landsmanna inn an við tvítugt og um það bil 75% þjóðarinnar innan við fertugt. — Ég hef tekið Al- þingi sem dæmi en líta má víðar í þessu skyni. Einn stjórn málaflokkanna hefur 24 bæj- arfulltrúa í landinu. Aðeins tveir þeirra eru 35 ára eða yngri. Sami flokk.ur hefur ekki látið kjósa neinn mann á þessu aldursskeiði í neina þing kjörna trúnaðarstöðu né held ur hafa ráðherrar hans skip- að neinn mann á þessum aídriiá í trúnaðarstöðu. Þannig er ‘ - sama hvert litið er, flokkarn- ir gefa ungum mönnum engan kost á að starfa á þeirra veg- , um að þjóðmálastörfúm. Um það hljóta allir sann- gjarnir menn að vera sam- mála, að við þetta verður ekki unað og finna verður ráð til úrbóta. Unga fólkið í landinu getur ekki sætt sig við að vera svo sniðgengið þegar teknar eru mikilvægar ákvarð anir um hág þess og framtíð. Unga fólkið ber eðlileg þátt- taka í töku ákvarðana og með ferð stjórnmála, er snerta samtímann. En auk þess hlýt ur unga fólkið að krefjast þess, að það fái að taka þátt í mótun þeirrar framtíðar, sem það og börn þess ganga mót. En hver á þá sú framtíð að vera? Veit unga fólkið nokkuð um það hvað það vill? Lætur það sér ekki nægja að vera óánægt og mótmæla því, sem miður fer? Það er vinsæl staðhæfing eldri stjórnmála- xrjanna nú iupp á síðkastiö, ekki sízt þeirra sem miðaldra eru og voru sízt af öllu þekkt ir fyrir frumlegar hugsanir eða nýjar hugmyndir er þeir voru sjálfir ungir menn. Forsætis ráðherrann hélt einnig sömu skoðun fram í ræðu sinni hinn 17. júní síðastliðinn. Samt sem áður er þessu nú öðru vísi farið, unga fólkið veit mæta vel hvað það vill og hvað það vill ekki. Það vill ekki una því sem miður fer í þjóðfél. og það hefur verið alið upp við. Það sættir sig ekki við ranglæti og spillingu á fjöl- mörgum sviðum þjóðlífsins, ó- nógt frelsi og ónógt lýðræði. Það vill ekkí una stórkostleg um skattsvikum ár eftir ár, ranglæti í lánamálum, skipu- lagsleysi í atvinnumálum rang læti í launamálum og reiði- leysi í fjármálum. Það vill ekki una þe'm siðferðisskorii og þeirri spillingu, sem allt of víða sér stað. Unga fólkið v:ll að mínu áliti skipulega heildarstjórn atvinnulífsins, atvimnuv|egunum og öllum landsmönnum til góða. Það vill að byggt sé upp fjölþætt atvinnulíf, er njóti stuðnings öflugs kerfis varasjóða og f.iár fest''ngarsjóðs. Unga fólkið vill nýtízkulegt og árangurs- ríkt menntunarkerfi, sem mennti sérhvern þjóðfélags- þegn e:ns vel og kostur eC; á. Við viljum búa í góðu hús- næði og við viljum búa þjóð- inni öflugt tryggingarkerfi. Loks viljum við síðast en ekki sízt utanríkisstefnu, er trygg ir öryggí landsins og friðsam lega sambúð við aðrar þjóðir, en sé þó óháð vilja stórvelda og annarra ríkja. Mikjll meirihluti unga fólksins er á- reiðanlega hlynntur lýðræðis sinnaðri vinstristefnu í stjórn- Framhald bls. 10. /WWVWVWWWWMV^^^^^^^^^W^^^MAAAAAAAAAAAAÁAKAAAAAAAA) n BARUM hjólbarðar Frábær ending — sannreynd við við íslenzkar aðstæður AHar Skoda-bifreiðar koma með Barum. — Og þúsundir Skoda-eig- enda hafa þrautreynt ágæti þeirra Eftirtaldar viðurkenndar stærðir fyrirliggj andi: 590—15/4 590—15/4 155—14/4 600—16/6 Athugið: Verðið er líka hið hagstæðasta á markaðinum. Sími 32881 91 N Aðstoðarstúlka ósfcalst til rannsóknarstarfa nú þegar. Stúdentspróf eða starfsreynsla 4 rannsóknarstofu nauðsyn. . ._ i __■ 'Á' Rannsóknarstofnun íiskiðnaðarins Gerladeild ! 1 1 Skúlagötu 4. Laugardals völlur: Úrslitaleikur oim réttinn til að leika í I. deild 1969 fer fram í kvöld kl. 7.15 á Laugardalsvelli milli Akraness - Keflavík Mótanefnd. Blaðburðarbörn óskast i Keflavík ALÞÝÐUBLAÐIÐ IfMirömimm frOBBJÖHNS BENEDIKTSSONAB Xngóltsstræli 7 Athugið opið frá kl. I — 8 e.h. 29. ágúst 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.