Alþýðublaðið - 29.08.1968, Qupperneq 10
i* t: » t « I t f > <
! Glæpamyndir
Framhald af 4. síðu.
•blaði eða þá þegar menn verða
sjónarvottar að ofbeldisverk-
um.
Þetta efni ofbeldisins ef svo
má segja, hefur vakið áhuga
félagsfræðinga og sálfræðinga,
sem lengi hafa fylgzt af áhuga
með litla sjónvarpsáhorfand-
anum, sem daglega verður
vitni að ofbeldl á skerminum.
Því að hvernig bregzt áhorf
andinn við þessum daglegu of-
beldisverkum, sem hann hefur
fyrir augum sér?
Leonard Berkowitz prófess-
or við háskólann í Wisconsin
hefur lengi rannsakað við-
brögð áhorfandans. Hann seg-
ir, að maður sem verður vitni
að ofbeldisverki í kvikmynd
fái löngun til að beita ofbeldi
sjálfur. Því meiri löngun sem
skemmra er liðið frá atburð-
um myndarinnar.
— Ofbeldisverk í kvikmynd
eru sérstaklega hættuleg, seg
ir Berkowitz, og hin vaxandi
löngun til að sýna ódæðis-
verk á skerminum hefur auk-
ið á líkurnar fyrir því, að mað
ur, sem er í uppnámi veitist
að samborgara sínum að á-
stæðulausu.
Ræða Sigurðar
Framhald úr opnu.
málum og vill að stjórnað sé
af festu, skynsemi og víðsýni
með hag hins vinnandi fólks
og þjóðarinnar allrar fyrir aug
um. Og því vill það að þjóðin
eigi sér ferskar og öflugar
hreyfingar verkalýðs og sam
vinnumanna. Að öllu þessu og
mörgu fleiru vill unga fólk
ið vinna, í þessum dúr er
stjórnmálastefna þess. Og að
þessu á það að vinna því að
það ber ábyrgð á farsæld lands
og þjóðar næsta mannsaldur.
sagði áðan, að ungu menn
irnir hlytu að leitast við að \
móta þá framtíð, sem þeir j
ganga mót. Og sú framtíð |
ætti að verða undir merkjum
lýðræðislegrar vinstristefnu.
Séum við sammála um þetta
þurfum við að staldra við og
íhuga það, sem við færumst
í fang. Ekki er ráð nema í
tíma sé tekið. Hvernig ætlurn
við í dag að leggja grundvöll
inn að því þjóðfélagi, sem við
viljum búa við á komandi ár-
um? Á hver ráð viljum við
leggja í því efni, hvaða leiðir
ætlum við að fara í því skyni?
Þetta eru viðfangsefni æsku-
lýðssamtaka stjórnmálaflokk-
,anna, einkum þeirra, sem
vinstrisinnuð eru og trú hafa
á því, að þau eigi og þeim beri
að hafa veruleg áhrif á þró
unina. Frá þeirra sjónarmiði
séð hlýtur meginstefnan að
vera sú, að pólitísk samvmna
vinnandi fólks til sjávar og
•sveita móti stefnuna og ráði
ÖMISMUNANDI MERKIMIÐAR MED
SAMA LETURTÆKINU:
— hvar sem er
yffur DYMO.
Nú getur hver sem er
búiff til sin eigin merhl
hvenær sem er — og fyrir lítinn pening. Dragiff ekki aff kynna
ÞÓR H.F. Skólavörðustíg 25.
DYIVIO
10 29. - ágúst 1968 « ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ferðinni. Ríkjandi stjórnmála-
stefna komandi ára og ára-
tuga verður að vera borin upp
af stjórnmálasamtökum vinn-
andi manna, hvar sem þeir
starfa og, hvar sem þeir eru
búsettir í landinu. Við, sem
fylgjum vinstri sinnuðum
stjórnmálasamtökum unga
f ólksins getum ekki hugsað okk
ur eða sætt okkur við að þró
unjn verði önnur og sízt af
öllu að framhald verði á þeirri
þróun sem nú hefur staðið um
árátuga skeið. Við getum
ekki sætt okkur við, að í'lokk
ur Tauðmanna og atvinnurek-
enda verði áfram áhrifamesta
stjórnmálaaflið í landinu.
Stjórnmálasamtök vinnandi
fólks til sjávar og sveita verða
að taka við forystunni í stjórn
málunum og stjórna síðan land
inu með haig þess og þjóðar
innár fyrir augum. Sú þróun
er hafin var og komið nokkuð
á legg fyrir frumkvæði verka
lýðs og samvinnumanna undir
forystu Jónasar Jónssonar,
ætti nú langa sögu að baki,
hefði hún ekki verið að velli
lögð, fyrst með tilkomu Komm
únistaflokksins og síðar Sósí
alistaflokksins með dyggilegri
aðstoð og fyrirgreiðslu Sjálf-
stæðisflokksins. Vel getur þó
svo farið að hið gamla valda-
kerfi komi á ný til sögunnar
og það hljótum við að vona,
sem viljum vinna að því, að
forystuafl stjórnmálanna verði
samtök vinnandi fólks. Auð-
vitað varð tilkoma Sósíalista-
flokksins til þess, ,að nýtt
valdakerfi ruddi isér til rúms.
Annað mál er það hve langætt
það verður. Enda geta ungir
lýðræðissinnaðir vinstrimenn
ekki hugsað sér að framhald
verði enn á núverandi valda-
kerfi, sem einkennist einkum
af því, að Sjálístæðisflokkur-
inn hefur forystuna og velur
sér þann flokk til samstarfs,
sem hohum sýnjst má næstum
segja. Vissulega viljum við
ekk.j að þetta valdakerfi verði
e'nnig við lýði um okkar daga.
En hvaða breytingar á því
koma þá til greina? í svipinn
virðist mér þær einkum vera
tvær. Önnur er sú, að tveggja
flokka kerfi Framsóknarflokks
ins og Sjálfstæðisflokksins
komist ' á í landinu. í því
skyni eru einmenningskjör-
dæmi um land allt stefna
Framsóknarflokksins. Ólíklegt
þykir mér þó :að það myndi
sjálfkrafa fæða af sér tveggja
flokka kerfi — og þar með
nýtt valdakerfi. Miklu líklegra
þykir mér, að slík skipan
leiddi á nýjan leik af sér
myndun þriggja flokka kerfis
og værum við þá aftúr þar
staddir, sem lagt var frá 1916
og síðar. Hinn möguleikinn er
sá, að lýðræðissinnaðir vinstrj
menn sameinist á ný í einum
flokki, þar sem Alþýðuflokk
urinn væri þungamiðjan, jafn-
framt því sem kommúnistar
væru gerðir áhrifalausir. Auð-
vitað sýnist mér þessi leið
miklu vænlegri. En sama er
hvor þessara tveggja leiða
yrði farin, niðurstaðan yrði
endurreisn, valdakerfis þess,
sem kennt er við Jónas frá
Hriflu. Því skyldu menn tala
varlega um endanlegan ósigur
þess. En endurreisn þess er
sennilega É>að takmark, sem
stjórnmálasamtök hins vinn-
andi fólks verða að stefna að
á komandi árum. Og um leið
það mark, sem samtök ungra
vinstrisinnaðra stjórnmála-
manna ættu að stefna að.
IJóðir fundarmenn.
Ég hef þessi orð mín ekki
fleiri. Eg færi sambandi ungra
framsóknarmanna heillaóskir
í tilefni þrítugsafmælisins og
vona að það eigi eftir að hafa
heillarík áhrif á stjórnmála-
þróun komandi ára þjóð okk
ar til heilla. Þökk fyrir.
Sýnlngar
Framhald af bls. 3.
um íslendings. Hún mun verða
opin fram yfir helgi á verzlunar-
tíma.
Tvær sýningar verða opnaðar
í dag. Sýning SVEINS BJÖRNS-
SONAR í nýja sýnjngarsalnum
Hliðskjálf að Laugavegi 31. Sýn-
ingin verður opin daglega frá
kl. 2-10 í hálfan mánuð.
Sýning HAFSTEINS AUST-
MANN verður opnuð í dag. Hún
er í Unuhúsi við Veghúsastíg og
verður opin til 8. sept. á degi
hverjum frá kl. 2-10.
Leiðrétting
Meinleg villa komst' inn í á-
lyktun stjórnar Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur, sem birt var
hér í blaðinu j gær, en leið-
réttingarhnu var stungið niður
á rangan stað í niðurlagi hennar.
Rétt er niðurlag ályktunarinnar
á þessa leið:
— Þegna er mejri nauðsyn á'
því en áður að efla samstarf
vestræruia þjóða í Norður-Atl-
antshafsbandalaginu. Alþýðu
flokksfélag Reykjavíkur lýsir
einlægri samúð sinni með bar-
áttu tékknesku þjóðarinnar fyr-
ir aukmi frelsi.
Kennarar
Framhald af bls. 3.
öðru sinni til að leiðbeina ís-
lenzkum stærðfræðikennurum,
en frú Bundgárd kenndi á nám-
skejðinu, sem haldið var í fyrra.
Aðrir kennarar á þessu námskeiði
verða þeir Guðmundur Arnlaugs
son lektor, og Björn Bjarnason,
menntaskólakennari.
Ná’mskeiðið stendur til 9.
september.
Þess má geta í leiðinni, að um
þessar mundir eru haldin j
Rdykjfavik fjölmörg nám)ike|ið
fyrir kennara. Miða þau öll að
því, að kynna kennurum ný við-
horf í kennslugreinum þeirra og
búa þá betur undjr vetrarslarfið.
Námskeið það, sem hófst í
gær, er ætlað kennurum 7 ára
barna.
Utbreiðið Alþýðu-
blaðið