Alþýðublaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 1
Sunnudagur 6. október 1968 — 49. árg. 202. tbl.
'
HERT EFTIRLIT
MEÐ BLÖÐUM B
TÉKKÓSLÓVAKÍU
PRAG (NTB-Réuter) — Samningaumleitanir leið
toganna í Kreml með leiðtogum Sovétríkjanna og
Tékkóslóvakíu voru „mjög rólegar, alvarlegar og
á engan hátt flóknar“ að því er Oldrich Cernik for-
sætisráðherra skýrir frá, en ekki reyndist unnt að
leysa allan vanda í einu. Forsætisráðherrann kom
heim í nótt ásamt öðrum fulltrúum Téka á Moskvu
fundinum.
Aðalritari Tékkneska Komm-
únistaflokksins, Alexander Dub-
cek, var fölur og þreytulegur að
sjá. Hann nam ekki staðar í mót-
tökusal flugvallarins heldur
gekk rakleitt fram hjá öllum
Systkini i
hitakössum
Ejns og skýrt hefur verjð
frá áður eignaðjst ensk kona
sexbura nú r vikunni, og
lifðu fimm barnanna. Mynd-
in hér til hliðar er af syst-
kjnunum fiinm, þar sem þau
Ijg’ff.ia í súrefniskössunum
sínum, én þau fæddust fyrir
tímann. Áf .þessum börnum
eru þrjár stúlkur, en tveir
drengir (UPI mynd).
blaðamönnum og sjónvarps
myndavélum og hvarf út í bifreið
sína.
Búizt er við að aðgerðir verði
hafnar gegn tékkneskum blaða-
mönnum eftir umræðurnar í
Moskvu. í fréttatilkynningu sem
út hefur verið send var svo kom-
izt að orði að Tékkóslóvakar
muni herða baráttu sína gegn
öflum sem eru fjandsamleg
sósíalismanum og gera ráðstaf-
anir til að tryggja að öll fjöl
miðlunartæki þjóni málstað hans.
Rikisstjórnin hefur áður vikið
frá yfirmönnum tékkneska út-
varpsins og sjónvarpsins. Og
upplýst er í Prag að í Sovétríkj-
unum hafi nýlega komið út bók
þar sem birtur sé listi yfir nöfn
margra tuga manna í landinu
sem ekki séu vinsælir meðal
Rússa. Þeir kváðu flestir vera
rithöfundar og blaðamenn.
Frá Vínarborg fréttist einnig
að fyrir dyrum ‘'standi herferð
gegn frjálslyndum mönnum í
Tékkóslóvakíu og muni henni
fyrst og fremst beint gegn rithöf
undum, blaðamönnum og þeim
starfsmönnum flokksins er áttu
þátt í umbótunum er gerðar
voru í landi fyrr á þessu ári.
Hjartavernd stendur
fyrir kvennarannsókn
Skcs^sdir verða 16 ár^asigar á tíma-
biiirey i. oktdber 1968 til 31. ágást
1969.
Rannsóknjn fer í aðalatrjð-
um fram á þann hátt. að þátt
takanda er sent boðsbréf, þar
sem tilgangur og framkvæmd
rannsóknarjnnar er skýrður.
Ef viðkomandj þiggur boðið,
er honum úthlutaður tími fyr
ir rannsóknina og síðan send
ur spurnjngalisti um heilsu-
far, sem útfylla skal heima. Út
fylling listans er áætluð taka
hálfa til eina klukkustund,
segjr í fréttatilkynningu frá
Hjartavernd.
Þegar þátttakandi kemur til
stöðvarinnar afhendir hann
spurnjngarlistann, en er síðan
vísað til búningsklefans. Þar
afklæðist þátttakandi og fær
hlífðarslopp og skó. Næst geng
ur hann (þátttakandi) í þvag-
sýnjsklefa og afhend r þvag-
sýni. Þátttakandi gengur nú
til næsta herbergis, þar sem
tekið verður hjartalínurit og
mældur blóðþrýstingur. Að
því loknu verða gerðar mæl-
ingar á húðfitu, beinum, hæð,
þyngd og teklð blóðsýni, Þeg
ar ástæða er, mun einnjg tekið
hjartalínurit með þrekprófi-
Loks gengur þátttakandi til
röntgenmynda af hjarta og
lungum, gerð öndunarpróf og
mældur augnþrýstingur.
Þessi rannsókn tekur IV2 til
2 klst. Fær nú þátttakandi
tíma fyr> næstu heimsókn,
sem verður 10 dögum síðar.
V;ð þá heimsókn fer fram
læknjsskoðun. Þessi heimsókn
tekur ca. 15-20 mín. Þess má
geta, að allar þessar rannsókn
Framhald á bls. 2.
Rúmlega S°Jo ung-
menna í Osló hafa
neyft eiturlyfja
OSLÓ 5. 10. (NTB) — Um 1600 ungra manna og kvenna í Osló,
eða meira en 5 af hundraðs hefur á síðast liðnu ári reykt marijuana
eða hasjisj. Samtímis mun 5000 unglingum hafa verið boðið að
neyta þessara nautnalyfja.
Börn embættismanna og háskólamanna virðast fremur neyta
marijuana en börn starfsmanna af lægri launaflokkum, en börn
þeirra er hafa með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur og verka
mannaböm gera minnst að þessum óvana. Hlutfallslega helmingi
flelri böm háskólamanna er þar með heldur en verkamannabörn.
Þessar upplýsingar hafa komið fram eftir að lokið er gagngerðri
rannsókn á marijuana neyzlu meðal ungra í Osló.
SPILAKVÖLDIN HEFJASTI
Spilakvöld Alþýðuflokks Reykjavíkur eru nú að hefjast og
verður fyrsta spilakvöldið n.k. fimmtudag 10 október. Spila-
kvöldunum verður hagað á líkan liátf og áður og verða veitt
spilaverðlaun bæði fyrir þriggja kvölda keppnir og Venju-
leg kvöldverðlaun. Hins vegar verður sú breyting á að
spilakvöldin fara nú fram í Hótel Borg, og leikur hljóm-
sveit Ólafs Gauks þar fyrir dansi að loknum spiluin á
fimmtudaginn.