Alþýðublaðið - 06.10.1968, Blaðsíða 15
6. október 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 15
"MH iFl'l
LE7NDM-
**
grenninu viti, að hann var for-
smáður svona.
— Það skil ég líka vel. Hún
var hérna svo stuttan tíma og
fór aldrei í þorpið eða bæinn.
Svo að þér vitið þá þetta-allt. ..
— Allt um það, hvernig hún
stökkst á brott kvöldið fyrir brúð-
kaupið. Ég veit, að hann varð
bitur og ég veit líka, að honum
þótti ekki jafnvænt um hana og
hann hélt, að sér þætti. En
nú er hann allur annar maður,
Clem, og hann er hamingjusam-
ur og ég er hamingjusöm og
það er það eina sem nokkru
máli skiptir.
— Það er aiveg satt, ungfrú
Kay. Þér hafið létt af mér þungri
byrði, því að hann skipaði okkur
ákveðið að segja yður ekkert
um þetta.
— Hann hefði ekki Iheldur
getað þagað til lengdar yfir
þessu við mig, ég veit, að honum
Iétti mikið, þegar hann vissi,
að ég vissi þetta allt.
— Það hlýtur að hafa verið
léttir bæði fyrir hann að segja
yður allt og að hætta að hugsa
um hana. Ég var ekki hérna,
þegar hún fór. Það sá enginn,
þegar hún fór. En ég var inni í
eldhúsinu kvöldið sem hún fór
og ég heyrði, hvernig hún talaði
til hans. Það var ekki vegna
þess að hún hefði svo hátt eða
öskraði á hann. Það hefði senni-
lega verið auðveldara fyrir hann,
ef hún h'efði gert það. Nei, hún
var blíð á manninn eins og bráðið
smjör og eins og sleikjamji
slanga, ef þér skiljið við hvað
ég á.
Það er ekki vegna þess að ég
sé að segja að slöngur gangi um
sleikjandi en samt minnti hún
mig á slöngu. Kannski vitið þér
við hvað ég á.
Hún var mjúk og eitruð og
Fletcher þoldi það ekki. Það er
þó öllu skárra að fá einu sinni
á baúkinn eins og þér gerðuð
heldur en láta einhverja kvensu
mjálma utan í sér og...
— Þú ert svei mér tölugur í
dag, Clem!
Clem og Kay litu bæði við.
Martin stóð í gættinni. Hann
hafði kipráð augun saman og
það voru hörkudrættir umhverfis
munninn.
Allt í einu fannst Kay kald-
ur hrollur fara sér milli skinns
og hörunds ná'kvæmlega eins
og henni hafði fundizt, þegar
þau Allan Dyson stóðu fyrir ut-
an búðina kvöldið, sem allt gerð-
ist. Þetta var að vísu aðeins til-
finning, sem átti enga rót sína
að rekja til neins, en samt ótt-
aðist hún eitthvað, sem ekki
átti að vera fyrir hendi. Um
stund sá hún þann mann, sem
Heílsuvernd
Námskeið mín í tauga- og
vöðvaslökun, öndunaræfing
um og léttum þjálfunarief
ingum, fyrir konur og karla
hefjast mánudaginn 7. októ
ber.
Upplýsjngar í síma 12240.
Vignir Andrésson.
Martin hafði verið, áður en ást
þeirra hafði gjörbreytt honum.
— Ég var bara að tala við
frúna .. stamaði Clem. —> Það
vildi svo til að við — —
— Ég heyrði það. Út með þig
og reyndu að koma þér að“jvinn-
unni.
:j
— Þetta var mer að kfenna,
Martin, sagði Kay, þegar plem
var farinn úr dyrunum. |
Hann minntist á það, að ung-
frú Forsythe væri mjög ánægð
með það, hvað ég væri ham-
ingjusöm hérna og svo minntist
hann á það, hvað þú værir
breyttur og ég minntist á það,
sem .... gerðist hérna einu
sinni. Það var ég, sem byrjaði,
en ég get ekki skilið, hvaða máli
það skiptir, þó að við höfum rætt
um þett'a, þar sem við vitum það
öll.
Martin kom inn í eldhúsið,
hann strauk höndinni gegnum
hárið og virtist eilítið rólegri.
— Við skulum ekkert ræða
meira um þetta, Clem. Eg hefði
ekki átt að tala svona til þin.
En mér fannst þú vera að skipta
þér af mínum einkamálum. Við
skulum samt sleppa þessu nú —
—reyna að -gleyma - þessurannars
ferð þú «ð nöldra í mér.
Hún skellililó. Auðvitað var
hún ekkert reið. Henni fannst
aðeins erfitt að slappa af. Clem
og Silas vissu ekkert um föMu
dyrnar og skápinn, .. hugsaði
hún .... Martin vildi ekki að
þeir fengju neitt um hann að
vita.
gættu þín betur næst.
— Já, hr. Fletcher, Clem fór
og það varð skömm þögn, sem
Kay fannst erfitt að rjúfa.
— Ég átti auðvitað ekkert að
vera að tala um þetta við hann,
Martin. Fyrirgefðu, ég kem engu
orði upp og mig langaði til að
vita meira um Valeríu, en þú
hefur sagt mér.
— Til hvers?
— Ég veit það eiginlega ekki.
Kannski það sé vegna þess, að
það kom þér við og þeim erf-
iða tíma, sem þú hefur orðið að
þola og þunglyndinu, sem ég
hef læknað þig, því ég hef
læknað þig, er það ekki, Martin?
Hún gekk til hans og leit í
augu hans.
— Ég hélt, að við hefðum
bæði tvö gleymt þessu.
Svo kem ég hingað inn og
heyri Clem vera að tala um þetta
við þig, sagði hann. — Eg hélt
ekki, að það yrði nauðsynlegt að
biðja þig um að tala ekki við
vinnumennina um þetta.
— Ég hefði aldrei átt að
hlusta á hann þvaðra þetta, við-
urkenndi Kay. — En var það
ekki betra, en að láta hann
halda, að þú værir að reyna að
halda þessu leyndu fyrir mér?
Hann hélt nefnilega, að ég vissi
ekki neitt fyrr en ég sagði hon-
um, að þú hefðir sagt mér allt'
af létta.
— Minntist þú á skápinn og
það, að öll fötin hennar eru
hérna ennþá?
— Nei, ég bjóst við því, að
hann vissi ekkert um það og ég
kærði mig alls ekki um að tala
um það. Eg sagði bara, að þú
hefðir sagt mér allt af létta og
á þann hátt sýndi ég honum, að
við liöldum engu leyndu hvort
fyrir öðru.
Martin tók um hönd hennar.
Þú gerðir rétt. Clem er góður
maður. Reyndar eru þeir það
báðir bræðurnir. Ég borga þeim
vel og þeir eru mér trúir og
tryggir, en þeir gætu hugsað
sitt fyrir því. Nú skulum við
ekki ræða meira um þetta mál.
Hann skilur það og þú vonandi
líka? Hann leit í augun á henni.
— Auðvitað skil ég það, Mar-
tin. Hann tók hana í faðm sér
og néri kinninni við hárið á
henni.
—Og hérna stend ég og rífst
að ástæðulausu! Ég verð að
BLÓM
Komið og sjáið blómaúrvalið, eða hringið.
Við sendum.
GRÓÐRARSTÖÐIN
v/MIKLATORG
SÍMAR 22-8-22 og 1-97-75,
HÚSGÖGN
Sófasett, stakir stólar og svefnbekkir.
gögn- — Úrval af góðum áklæðum-
Kögur og leggingar.
BÓLSTRUN ÁSGRÍMS.
Bergstaðarstræti 2. — Sími 16807.
— Klæði gömul hús-
BIFREIÐAEIGENDUR
Látið stilla hreyfilinn fyrir veturinn.
Fullkomin tæki — vanir menn-
Bílaverkstæði Jón og Páll, Síðumúla 19.
— Sími 83980 —•
ATHUGIÐ
Geri gamlar hurðir sem nýjar, skef upp, olíuber og lakka.
Olíuber einnig nýjar hurðir og viðarkiæðningar utanhúss.
Fjarlægi málningu af útihurðum og harðviðarlita þær-
GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON.
SÍMI 36857-
Bifreiðaeigendur athugið
Ljósastillljngar og allar aknenn/ar bifreflða-
viðgerðilr.
BIFREIÐAVERKSTÆÐI N. K. SVANE
Sfeeifan 2 — Sími 34362.
Innröministi
MBBJðBMS BENEDIKTSSOMB
Jhaffúlísslræti 7
Athugið opið frá kl. I — 8 e.h.