Alþýðublaðið - 10.10.1968, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 10. október 1968
Skoda-umboðið eykur
Skáldðþing
A síðastliðnu ári var Skoda önnur mest selda bif-
: reiðategund hér á landi, en þá bættust alls 375 Skoda
bifi-eiðar við bílaflota Íslendinga. Nú hefur Tékk-
neska bifreiðaumboðið, nánar tiltekið Skodaumboðið,
aukið þjónustu sína til muna við eigendur Skoda-
bifreiða í þjónustuverkstæði sínu að Elliðaárvogi
117, þar sem Skodaeigendur geta fengið eftirtalda
þjónustu gegn ákveðnu gjaldi: motorstillingar, al-
mennt eftirlit, vélarþvott, smurningu, keðjuásetn-
ingu, frostlagarmælingu, þvott og bónun. Hér er
um nýmæli að ræða, að bifreiðaumboð veiti þjón-
ustu af þessu tagi.
Alþýðublaðið ræddi við Ragnar
Ragnarsson hjá Tékkneska bif-
reiðaumboðinu í gær, og sagði
Ragnar, að nú væru um 3.500
Skodabifreiðar hér á landi. í
fyrra hefðu selzt 375 Skodabif-
reiðar, og væru íslendingar tví-
mælalaust hlutfalislega stærstu
kaupendur Skodabifreiða í Vest-
ur-Evrópu. Aðalviðskiptalönd
Tékka í þessu efni væru Austur-
ríkismenn, Vestur-Þjóðverjar,
og NÖrðurlandaþjóðirnar.
Ragnar upplýsti, að' á þessu
ári, þ.e. frá áramótum til október,
hefðu fslendingar keypt um 250
Skodabifreiðar, og miin Skoda
þá vera söluhæsta bifreiðin hér
á landi í ár.
Ragnar sagði, að þar sem vin-
sældir Skodabifreiða hefðu far-
ið sívaxandi hérlendis, hyggðist
umboðið nú auka þjónustu sína
við eigendur Skodabifreiða. Þjón
ustuverkstæði Skodaumboðsins,
sem um skeið hefur annazt alla
almenna þjónustu við Skodabif-
reiðir, hefði nú aukið þjónustu
sína í enn ríkara mæli. Fram-
vegis gætu eigendur Skodabif-
reiða fengið eftirtalda þjónustu
á Skodaverkstæðinu að Elliða-
árvogi 117 gegn ákveðnu gjaldi:
motorstillingar, almennt eftirlit,
vélarþvott, smurningu, keðjuá-
setningu, frostlagarmælingu,
þvott og bónun.
Ragnar kvað umboðið vekja
sérstaka athygli á því, að smurn-
ingarþjónusta færi fram ,með
mjög nýstárlegu sniði, sem áður
væri óþekkt hér á landi. Smurn-
ingin yrði framkvæmd á mismun-
andi stigum, eftir því hve bif-
reiðinni hefði verið ekíð mikið,
og væru ákveðnir hlutir yfirfarn-
ir og smurðir hverju sinni. Þá
yrðu viðskiptavinum verkstæðis-
ins afhentur sérstakur bæklingur,
sem verkstæðið sæi um að færa
inn í allar viðgerðir og allt eftir-
lit. Þannig gæti verkstæðið hald-
ið skrá yfir allar þær bifreiðar,
sem kæmu þangað reglulega til
smurninga og yfirferðar, og haft
nákvæmt eftirlit með ástandi
þeirra.
T.leð hinni nýju þjónustu losar
Skodaumboðið bifreiðaeigendur
við áhyggjur af ýmsum atriðum,
svo sem olíum, olíusíum og
fjölmörgu öðru, sem nauðsyn-
legt er að athuga með ákveðnu
millibili. Hið nýja smurningar-
kerfi væri tilkomið samkvæmt
fyrirmynd frá' Skodaverksmiðjun-
um í Tékkóslóvakíu.
Skodaverksmiðjurnar telja
mjög æskilegt, að eigendur Skoda
bifreiða láti stilla og yfirfara
bifreiðarnar með um það bil
5000 km. millibili. Verkstæðið að
Elliðaárvogi 117 mun framvegis
framkvæma þetta gegn ákveðnu
gjaldi, og telur umboðið það
verða eigendum Skodabifreiða
mjög í hag, þar sem viðhalds-
kostnaður muni tvímælalaust
lækka mikið. við síikt reglulegt
eftirlit.
Tékkneska bifreiðaumboðið
telur mjög æskilegt, að eigendur
Skodabifreiða láti framkvæma
vélarþvott til að koma í veg fyrir
gangtruflanir, en vélarþvottur sé
óvíða jafn mikilvægur og hér á
landi. Þá vekur umboðið sér-
staka athygli á þeirri þjónustu,
sem felur í sér keðjuásetningu,
en hún sé bifreiðaeigendum oft^
Þrándur í Götu, þar sem margir
bifreiðaeigendur hafa ekki bíl-
skúra, og of seint sé að setja
keðjur undir bifreiðarnar, þegar
slys hefur átt sér stað.
Á hinu nýja þjónustuverkstæði
Tékkneska bifreiðaumboðsins
geta Skodaeigendur nú látið
framkvæma öll nauðsynleg verk
við bifreiðar sínar á einum og
sama staðnum í stað þess að
þurfa að fara frá einum stað
num á annan, t.d. frá verkstæði
á smurstöð og frá benzínstöð
á bónstöð.
Skodaverkstæði er starfrækt að
Dalshrauni 5 í Hafnarfirði og
annast það allar almennar og
meiriháttar viðgerðir. Verkstæði
þetta býr að öllum fullkomnustu
tækjum og verkfærum, sem sér-
staklega eru gerð fyrir Skoda-
bifreiðar. Allt starfslið verk-
stæðisins er vel þjálfað og hefur
m.a. stundað nám við Skoda-
verksmiðjurnar í Tékkóslóvakíu
Aðalverksmiðjurnar, sem fram
Jeiða Skodabifreiðar eru í Mladá
Boleslav, sem er u.þ.b. 50 km.
fjarlægð frá Prag, og í Slóvakíu.
Þær gerðir Skodabifreiða, sem
mest eru keyptar Ihingað til
Jónas Ástráðsson verkstæðisformaður að yfirfara vél í Skoda-
blfreið.
lands, eru framleiddar í Mladá
Boleslav.
Ragnar Ragnarsson hjá Tékkn-
eska bifreiðaumboðinu sagði í
viðtali -við blaðið í gær, að öll
viðskipti Tékkneska bifreiðaum-
boðsins við Skodaverksmiðjurn-
ar hefðu verið komin í eðlilegt
horf viku síðar en innrás Rússa
og fylgifiska þeirra var gerð í
Tékkóslóvakíu.
í kvöld
F.mmtudaginn 10. október
kl. 9 verður upplestrarkvöld,
opið almenningi í Tjarnarbæ.
Kvöld þetta'er haldið til kynn
inga og eflingar nýju tíma
riti, NÝ KYNSLÓÐ, sem út
kemur næstu daga.
Á vöku þessari frumflytja
eftirtaldir menn úr verkum
sínum:
Ásger Ásgeirsson, Ernir
Snorrason, Giuðbergur Bergs
son, Hrafn Gunnlaugsson, Ólaf
ur H. Torfason, Ólafur Haukur
Símonarson, Sigurður Pálsson,
Sigurður Guðmundsson, Þórar
inn Eldjárn.
Ennfremur lesa Bryndís
Schram Kjartan Ragnarsson
og Þorsteinn Broddason
efni eftir Gunnlaug Sveinsson,
Megas og Þorstejn Antonsson.
Börkur Karlsson gítarleikari
aðstoðar flutning á e.nu verk
anna.
Sjgurður A. Magnússon er
kynnir.
Nýrsögu- l
prófessor ]
1 Magnús Már Lárusson hef- ([i
J ur verið skipaður prófess- Jj
i or í sögu íslands í heim- (
1 sepkideild Háskólans frá 1. ([,
1 þ.m. að telja og jafnframt ],
i veitt lausn frá prófessors- (j
i embætti í guðfræðideild d
frá sama tíma. j[
5
EN HELMINGIMERA
Heildarsíldaraflinn það sem af er árinu er nú 70.015 lestir, en
var á sama tíma í fyrra 259.174 lestir, eða tæplega 4 sinnum
meiri en nú. Saltað hefur verið í 106.241 tunnu il ár, en í fy'rra'
var búið að salta í 49.865 tunnur. í ár hafa farið í bræðslu 45.983
lestir. en í fyrra 244.653 lestir.
Ofangreindar tölur koma fram
í skýrslu Fiskifélags íslands um
síldveiðar norðanlands og austan
vikuna 29. september til 5.
október 1968. í skýrslunni segir
ennfremur:
Síðastliðna viku var lítið við
að vera á síldarmiðunum norð-
austur af landinu. Löngum voru
frátafir vegna veðurs, og þegar
lægði fannst lítil sem engin síld
þótt leitað væri á stóru svæði
— frá 65 gráðum til 67. gráðu
30’ n.br. á milli 4. gráðu 30’ og
7. gráðu 30’ v.I.
í vikunni var landað alls 2,686
lestum. Voru það 13.244 tunnur
saltsíldar, þar af 6.029 sjósaltað-
ar, 114 lestir í frystingu og 591
lest í bræðslu. Erlendis var land-
að 48 lestum. Fréttir bárust um
492 lestir sem landað var erlend-
is fyrr í haust þannig að heild-
araflinn er nú 70.016 lestir.
Síld hefur borizt á 23 hafnir
í' sumar, þar af 5 erlendar Helztu:
löndunarstaðir eru þessir: Siglu-
fjöður 24.362 Jestir, Reykjavík
11.068, Seyðisfjörður 8.317, Rauf-
arhöfn 4.817, Þýzkaland 4.312,
Eskifjörður 3.350 og Nes-
kaupstaður 2.339 lestir.
Harðir bardagar
SAIGON: Harður bardagi i*
varð um 48 kílómetra frá (J
Sajgon í fyrrakvöld. Ejnn ](
ig kom víða til átaka á (»
mánudag, en þá er talið, (*
að 147 norður vietnamskir 1 (
hermenn hafi verið felldjr. (i
Hjns vegar segja Banda (•
ríkjamenn aðeins 8 hafa (j
fall ð af sínum mönnum og .(
13 særzt. i»
y