Alþýðublaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 10.10.1968, Blaðsíða 16
Listamannaskálinn ÁJjessum stað spratt fyrrum kartöflukál, sem kveikti bjargræðisfögnuö í hjarta ag sát, og undirvöxtinn með velþóknun eigandinn las, en virðuleg jurt er íslenzkt kartöflugras. Og hérna reis síðar á legg okkar æðsta list í litum og formum, máluð, höggvin og rist, en meistarinn gekk um gólf með sinn listamannshatt og gamburmosinn óx þar sem kartaflan spratt. . I Ij En nú er allt þetta horfið á bak og burt, hin blómlega list, sú göfuga kartöflujurt, á lóðinni blasir við lítil og ósjáleg þúst: Listamannaskálinn er orðinn að rúst. AUtaf reynir mar nú að spæla kennaralufsuna sem mest mar. í gær spurði hann mig hvenær Jón Arason hefði dáið. „Kvaer i etta mar, svaraði ég, auðvitað þerann var hálfshöggvinn mar”. Það geta margir orðið hing- menn þessa dagana. Það er ekki nóg með að Alþingi hefjist í dag heldur stendur nú yfir iðnþing og fjöldi flokksþinga eru á næsta leiti. .. .og fylgt Alþýðubandalaginu í von um að HÁRIF kommúnista væri þar í rénun.. . Alþýðublaðið. í BÆNUM Welton í Englandi hugðist náungi einn sína hæfni sína í bjórdrykkju, en varð að gefast upp eftjr 14 krúsir. Barþjóninum fannst lítið til um þetta afrek mannsins, svo hann svelgdi í sjg 25 krúsir, og eru þá ekki meðtaldar þær átta krúsir, sem hann drakk, í byrjun rétt til að ,,komast í drykkjustuð“ eins og hann orðaði það. VELJUM ÍSLENZKT- ÍSLENZKAN IÐNAÐ Þetta unga fólk er svo upptek ið við að mótmæla að það má jafnvel búast við því að það fari að mótmæla þvi að mót- mælum þeirra hafi ekki verið mótmælt. Sagt er að lífið sé enginn dans á rósum. Þetta &et ég að sjálf sögðu fallizt á, en vil þó bæta við: Alltént ekki fyrir þá sem kunna að dansa. fK. flúS: Gluggasmiðjan Síðumúla 12 Sími 38220 - Reykjavík SpifakvöldiS er / KVÖLD Spilakvöld Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur er í kvöld kl. 8.30 að HÓTEL BORG. Síjórnandi Gunnar Vagnsson. Hljómsveit Ólafs Gauks leikur fyrir dansinum. Aðgöngumiðar við innganginn. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Skemmtinefnd.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.