Alþýðublaðið - 12.10.1968, Page 12
>
Aö borða prentvillurnar
Prentvillurnar í blöðunum
geta verið skemmtilegar, all-
tént er það skoðun prentvillu-
púkans, er hefur þær að aðal-
næringu sinni og bústnar allur
og færist í aukana er þær láta
á sér kræla á síðunum.
Fráleitt er að álykta að þetta
sé skoðun allra. Að minnsta
kosti fara prentvillurnar ekki
eins vel í maga sumra, eins og
í maga prentvillupúkans. Venju-
legir menn þjást ef þeir éta
prentvillurnar og verða jafnvei
að liggja í rúminu í marga daga
á eftir.
Þar sem mig grunar að marga
gruni ekki hvað ég er að fara,
skal ég skýra mál mitt örlítið
betur. Þegar ég tala um menn
sem éti prentvillur blaðanna á
ég við vesalings eiginmennina,
sem verða að leggja sér til munns
rétti eiginkvennanna, búna til
beint eftir uppskriftum blaðanna.
Það liggur í augum uppi hve
mikili skaðræðisgripur prent-
villan getur verið, ef um er að
ræða mataruppskrift.
Ég tel menn geta gert sér
lauðveldlega í hugarlund, með
lítilli fyrirhöfn, hverjar afleiðing-
YELJUM ÍSLENZKT
ÍSLENZKURIÐNAÐUR
ar það getur haft ef að pipar-
skammtur í mataruppskrift í
blaði misritast og verður t.d.
100 gr. í stað 10 gr., að ekki sé
talað um ef eitthvað óviðkom-
andi orð slæddist inn í upp-
skriftina; orð eins og benzín,
steinolía, ammoníak, smurolía,
koppafeiti, rottueitur, góifbón,
sígljáandi eða asfalt svo fáein
séu nefnd.
Maður einn varð að liggja allt
sumarfríið sitt í rúminu eitt ár-
ið, vegna þess að konan hans
bjó til mat eftir uppskrift úr
blaði. Þetta átti að vera fínasta
grænmetissúpa og höfundur
greinarinnar í blaðinu fullvissaði
lesendur, með mörgum fögrum
orðum, að aðra eins súpu hefðu
þeir aldrei bragðað á ævinni fyr.
Gott og vel, konan fór í góð-
mennsku sinni að búa til súpuna
samkvæmt uppskriftinni og fór
í einu og öllu eftir ráðlegging-
um greinarliöfundar. Svo illa
vildi til að á síðunni á móti var
grein um innréttingar í meðal-
einbýlishús og þar var m.a.
minnst á hurðahúna. Það sem
gerðist var það, að hurðahúnn-
inn slæddíst' inn í súpuuppskrift-
ina, en gulræturnar úr súpunni
dengdu sér yfir í greinina um
innréttingarnar.
Það var ekk; að sökum að
spyrja að konan setti náttúrlega
1 hurðahún í súpupottinn og
svo þegar eiginmaðurinn ætlaði
að fara að gæða sér á súpunni
hrökk húnninn ofan í hann. Hann
reyndi svo mikið á sig við að
hósta húninum upp að læknir-
inn fyrirskipaði honum að liggja
í rúminu í þrjár vikur.
Sagan er ekki fullsögð með
þessu, því að nokkru seinna tók
að bera á því í nýbyggingum að
menn hefðu gulrætur í hurðum
sínum í stað hurðahúna.
Hákarl.
Gluggasmiðjan
Síðumúla 12
Sími 38220 - Reykjavík
Það er nokkuð til í þessum um
mælum mannsins í opnunni í
gær að gott sé að vera góður
í íþróttum í hjónabandinu.. Alla
vega væri gott að vera fljót
að hlaupa og forða sér ef svo
ólíklega vildi til að maður fest
ist i hjónabandi.
Hvernig væri að slá til einu
sinni og éta lireinlega sjálfir
skreiðina og saltfisklnn, fyrst
það gengur ekki að selja hann
úr landi.
&. I
Þú værir eina sigurvon íslend
inga ef þú hefðir verið send til
Mexicó, sagði kallinn við kell
inguna í gær. Og bætti svo við:
Það er að segja ef það væri
keppt í kjaftæði.
m
VOLKSWAGEN - /969 - LAND-ROVER
BÍLASÝNING
LAHO^
-ROVER
/ dag laugardag og á morgun sunnudag
frá kl.2-7 e.h. oð Laugavegi 170-172
Komið - skoðið - reynsiuakið
— Upplýsingasími 11276 —■
Heildverzlunin Hekla hf.