Alþýðublaðið - 30.11.1968, Qupperneq 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ 30- nóvember 1963
Messur og sunnu-
dagaskóli saman
Óliáði söfnuðurinn hefur a-
kveðið aö reyna í vetur að sam
eina að nokkru messur og'
sunnudagaskóla og nefnir þæi'
messur fjölskylduguðsþjónust
ur. Hefst þessi tilraun til
sunnudaffaskólahalds, í tengsl
um við messurnar, n.k. sunnu
tlag, fyrsta desember. kl. 2
e.h. þann dag, að lokinni fjöl
.skylduguðsþjónustu, hefur
Kvenfélag Óháða safnaðarins
einnig bazar í Kirkjubæ til
ágóða fyrir kirkju sína.
Hugmyndin með fjölskyldu
4>uðsþjónustum er sú í Óháða
söfnuðinum að safnaðarfólk,
sem hefur hug á að börn þess
HRAFNISTA
Reykjavík. — St. S.
HRAFNISTA heitir eyja, sem
telst til Þrændalaga í Noregi.
- Árni Eylands ritaði grein um
-Landnám frá Þrændalögum á ís-
iandi i Landbrukstidende, sem
gefið er út í Þrændalögum, og
minntist á það, að dvalarheimili
sjómanna í Reykjavik héti Hrafn-
istá.
Það þótti íbúum eyjarinnar
Hrafnistu athyglisvert, létu taka
loftmynd af eyjunni o? hafa gef-
ið dvalarheimili aldraðra sjó-
manna — Hrafnistu — mynd-
ina. sem á er letrað:
TIL FRENDE - FRA FRENDE.
Árna Eylands, sem var á ferð
í Noregi, var afhent myndin og
!honum falið að koma hennj til
réttra aðila hér uppi.
fái notið uppfræðslu ög hand
leiðslu í sunnudagaskóla í vet
ur, komi með þau til kirkju
þegar messað er, eða sendi
þau, ;ef enginn fullorðinn get
ur komið með þeim. Sunnu-
dagskólinn starfar síðan j safn
aðarheimilinu Kirkjubæ á
meðan messað er í sjálfri kirkj
unni. Þó byrja börnin og enda
sunnudagaskólann með þátt
töku í messunni og geta orðið
fullorðna fólkinu samferða
heim aftur.
Séra Ingólfur Guðmunds-
son mun leiðbeina börnunum
í sunnudagaskóla Óháða safn
aðarins í vetur en honum til
aðstoðar verða organisti kirkj
-unna.r, Snorri Bjarnason, og
félagar úr Bræðrafélagi Óháða
safnaðarins. Formaður safnað
arins er Sigurður Ma.gnússon,
frkvstj.
Forvígismenn Óháða safnað
arins vona að þessar fjölskyldu
guðsþjónustur, eða messur
með sunnudagaskóla samtímis,
stuðli að því að öll fjölskyldan
verði samferða til kirkju, eins
og var löngum ílandi voru, að
fólk komi þannig fremur til
kirkju með börn sín en ella,
’sða jafnvel að börnin komi
með foreldra sína og annað
fullorðið fólk.
Um leið og ég vek opinber
lega athy.gli á þessu sulnnu
dagskólastarfi, sem hefst á
sunnudaginn, leyfi ég mér að
heita á safnaðarfólk, sem lát
ið hefur í ljósi áhuga á því,
að láta nú hvorki sjálf sig né
börn sín vanta. Emil Björnsson.
Listkynning og
fuliveldisfagnaður
Eins og áðar hefur verið
skýrt frá t'fna stúdentar til
margvíslegra hátíðahalda í
sambandi við 50 ára afmæli
fullveldislns á morgun. Er
þar bæði um að ræða sam-
komuhald af ýmsu tagi og út
gáf ustarfsemi.
Stúdentafélag Háskóla ís-
lands hefur nýlega gefið út
Stúdentablaðið og er það
helgað f ullveld safmælinu,
hið myndarlegasta rit og efnis
mikið. Þá gefur Stúdentafé-
lagið á Akranesi út sérsúikt
rit í tilefni fullveldisafmælis
ins, og nú er að korna út að til
hlutan Stúdentafélags' Háskóla
íslands bók er ber heitið
MENNT ER MÁTTUR, en í
þeirri bók b.rtast ritgerðir
eftir 17 menntamenn og er í
þeim fjallað um málefni Há-
skóla tslands, störf ýmissa
menntamanna í þjóðfélag nu,
■sókn menntamanna til annarra
landa, og einnig er þar ritað
um ýmsar vísindastofnanir.
í dag kJ. 15 fer fram Lst-*
kynning í Þjóðleikhúskjallar
'anum á vegum Stúdentafélags
Háskólans og verða þar flutt
bæði bókmenntaverk og tón-
-verk, en í kvöld kl. 19,30
hefst fullveldisfagnaður Stúd-
entafélags Reykjavíkur að
Hótel Sögu. Þar flytur Gísli
Jónsson menntaskólakennari
Basar í Langholtsskóla
Reykjavík. — St. S.
Ásprestakall er einn þeirra
safnaða, sem segja má, að séu
„stofnaðir á götunni,” því að
liann hafði til skamms.tíma ekk-
ert húsnæði til umráða fyrir
safnaðarstörf.
En kvenfélag safnaðarins hef-
ur undið bráðan bug að því að
bæta úr húsnæðisleysipu og fest*
kaup á Hólsvegi 17. Starfið þar
hófst með „opnu húsi” fyrir aldr-
að fólk, iþar sem það getur spil-
að, tei'lt, drukkið kaffi og því
gefinn kostur á fótsnyrtingu. Að
Hólsvegi 17 hefur prestur Ás-
prestakalls, séra Grímur Gríms-
son, einnig afdrep fyrir ferm-
ingarbörn, svo eitthvað sé nefnt.
Næstkomandi sunnudag kl. 2
.e. h. hefur kvenfélagið bazar og
happdrætti í anddyri Langholts-
skóla. Allur ágóði rennur ó-
skiptur til kaupanna á Hólsvegi
17.
ræðu meðan set.ð er að borð
haldi, en á miðnætti flytur dr.
Bjarni Benediktsson forsætis
ráðherra ræðu fyr r minni ís-
lands og fullveldistns. Enn
fremur verður ýmislegt ann.
að til skemmtunar. Jakob Haf
stein framkvæmdastjóri verð
ur veizlustjóri í þessu hófi.
Hjartavernd
Nýlega er komið út fimmta
hefti þessa árs af riti Náttúru-
lækningafélags íslands, Heilsu-
vernd. Meðal annars efnis í rit
inu er grein eftir Jónas Krist-
jánsson um hreinsunartækni
líkamans; Námsdvöl erlendis eft-
ir Björn L. Jónsson.
Enn fremur eru í ritinu grein-
ar um liðagigt, sánaböð, sjón-
varpssýki o.fl.
Vinningsnúrner 1
Dregið hefur verið í merkja-
söluhappdrætti Flugbjörgunar-
sveitarinnar. Upp komu þessi
nr. 10737: Ferð til New York
19579: Ferð til Kaupmarmahafnar
Vinninga só vitjað til Sigurðar
M. Þorsteinssonar, Goðheimuru
22, símj 32060.
GUNNAP. M, MAGNÚSS
ÍSLENZKIR
AFREKSMENN
A LEIKVANGI
OQ I þrekraunum daglegs lífs Irá landnám»old til 1911,
ÍSLENZKIR AFREKSMENN
á leikvangi og í þrekraunum daglegs lífs
frá landnámsöld til 1911.
Fyrsta bindi.
GUNNAR M. MAGNÚSS tók saman
HRINGUR JÓHANNESSON, listm. myndskreytti
BÓK UM HREYSTI - HUGREKKl - HUGPRÝÐI
ÍSLENZKIR AFREKSMENN er einstæð bók. Hún nær yfir
tímabilið frá upphafi íslandsbyggðar og fram tii upphafs
þessarar aldar. Efni bókarinnar er skipað niður á einfaldan
og aðgengilegan hátt. Þar er að finna fróðleik um kappa
fornaldarinnar allt til afreksmanna þessarar aldar.
ÍSLENZKIR AFREKSMENN er hvorttveggja í senn; fróðlegt
heimildarrit og skemmtilegt lestrarefni, sem mun gleðja
jafnt unga sem aldna.
BÓKAÚTGÁFAN ÖRN OGr ÖRLYGUR H.F.
Borgartúni 21,sími 18660.
(hús SendibílastöSvarinnar)
Þegar amma var ung
í síöasta sinn í kvöld
Gífurleg aðsókn hefur verið á
skemmtanir Leikfélags Reykja-
víkur í Austurbæjarbíói að und-
anförnu. Sýnd eru atriði úr
gömlum i*evíum, sum allt frá ár-
inu 1926. Nú eru sýningar orðn-
'ar átta og hefur verið uppselt á
allar nema eina. Ákveðið hefur
verig vegna mikillar eftirspurn-
ar að hafa eina sýningu enn og
verður það í allra síðasta sinn.
Sú sýning verður laugardaginn
30. nóv. og hefst sýningin kl.
23,30. Um 40—50 landskunnir
skemmtikraftar taka þátt í þess
arj revíu-sýningu. Af þejm má t.d.
nefna Lárus Ingólfsson, Brynj-
ólf Jóhannesson. Árnj Trj'ggva
son, Nínu Sveinsdóttur, Emilíu
Jónasdóttur og fleiri. Allur ágóði
af sýningunni rennur í Hús-
byggingarsjóð Leikfélags Reykja-
víkur. Myndin er af Árna
Tryggvasyni í einu atriði reví-
unnar.