Alþýðublaðið - 21.01.1969, Blaðsíða 2
2 ALÞVÐUBLAÐIÐ 21- janúar 1969
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og 'Benedikt Gröndal. Símari
14900-14903. — Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson. — Augi
lýsingasími: 14906. — Aðsctur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu 8—10,
Rvík. •— Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald.
•kr. 150,00, í lausasölu kr. 10,00' 'eintakið. — Útg.: Nýja útgáfufélagið h,f,
HVERNIG FORSETI VAR JOHNSON?
Um hádegi í gær isór Richard
Nixon embættiseið sinn sem for
seti Bandaríkjannia á palli á
tröppum 'þinghússins í Washing-
ton. Hófust þá margra daga hátíða
höld, sem fylgisme'nn Nixons að
sjálfsögðu taka mestan þátt í.
Eftir embættistökuna lögðu
Lyndon B. Johnson og fjölskylda
(hans af stað [til Texas, þar sem
fiinn fyrrverandi forseti mun búa
é sveitasetri sínu.
Forsetaskipti eru yfirleitt tíma
mót íisögu Bandaríkjanna. Enda
þótt forsetarnir séu úr sama
flokki, eru persónuleg völd þeirra
svo mikil, að stjórnarhættir,
tmenn og viðhorf geta breytzt veru
lega. Nú skiptir bæði um forseta
og flokk, og má telja víst, að
(niasgt verði) með öðru móti á
límabili Nixons en það hefur ver
i<5 í tíð Johnsons.
Bandaríski sagnfræðingurinn
Arthus Schlesinger, sem hefur
verið nákunnugur í Hvíta hús-
inu undanfarin ár, var nýlega að
því spurður, hverskonar forseti
Lyndon Johnson hefði verið.
Schlesinger sváraði: „Hann hef-
ur verið góður — ef ekki fram-
úrskarandil — forseti innanríkis-
mála, en hann hefur verið lak-
ari forseti utanríkismála. TJm
heildarmat vil ég ekkert segja —
það er of snemmt“.
Þetta mat sagnfræðingsins er
án efa rétt. Johnson ivar alla tíð
maður innanríkisstjórnmála.
Hann var valdamikill í öldunga-
deildinni á forsetadögum Eisen-
howers og þrautþekkti völundar-
hús bandarískra stjórnmála. Fyrr
á árum hafði hann verilð stuðn-
ingsmaður New Deal istefnu
Roosevelts, sem var ekkert ann
að en lýðræðislegur sósíalismi.
Sjálfur setti Johnson, er hann
varð forseti, fram stefnu um „Hið
mikla þjóðfélag”. Þar var barátta
fyrir réttindum blökkumanna og
gegn fátæktinni efst á blaði, en
annars fjallað um vandamál borg
anna, sjúkratryggingar og fleiri
slík velferðarmál. Hér var á ferð
ilnni frjálslynd stefna, sem krafð
ist stóraukins hlutar ríkisins í
baráttunni fyrir betra lífi fyrir
þegnana. Á þessu sviði náði
Johnson miklum árangri, enda
þótt sum vandamálin hafi aiikizt
hröðum skrefum á ístjórnarárum
hans.
Johnson var ekki farsæll á
sviði utanríkismála. Hann taldi
sig geta leyst Vietnamdeiluna
með því að senda öflugan her-
styrk, en þar misreiknaði hann
sig. Honum tókst engan veginn
að nýta nógu vel þá bættu sam-
búð mil'li austurs og vesturs, sem
varð um silnn.
Það er hyggilegt hjá Schles-
inger að láta heildarmat á ferli
Johnsons bíða betri tíma. Hann
var einn umdeildasti forseti, sem
Bandaríkin hafa haft, sérstaklega
síðustu árin. En þetta skildi
hann sjálíur og því kaus hann að
sækjast ekki eftir einu kjörtíma-
bili enn.
j GABOON
16—19 — 22 mm.
jj ibeyki spónaplötur 15 — 18 — 21 mm.
Ibeykí krossviður 3 —■ 4 — 5 •mm.
teak 2” fyrirliggjandi.
HJÁLMAR ÞORSTEINSSON & Co. h.f.
'Klapparstíg 28, sfmi 11956.
HAFNARBÚÐIR
Oþið :illa daga frá kl. 6—11,30.
Heitur matur á matmálstímum, kaffi, kökum,
smurt brauð alla daga.
HAFNARBÚÐIR.
HÖFUM OPNAÐ ÚTIBÚ AÐ
GRENSÁSVEGI 12
Sími 38650.
KÚLULEGUSALAN H.F.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í smíði á 1000 sorpílátum fyrir
ryklausa sorphreinsun.
Útboðsgögn eru afhent 1 skrifstofu vorri.
Tilboðsfrestur er til 13. febrúar n.k.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
/:
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ys&ntar fólk til blaðburðar við:
Höfðahverfi,
Álfheima,
Talið við afgreiðsluna.
Sími 1-49-00.
Innrömmiin
X»OBBJÖBNS BENED XKTSSONAB
XagóUsstræti 7
IMWtMVMMVWMMMMMHIMV
Erlendar
fréttir í
stuttu máli
MOSKVU: Stjórn Sovéí
ríkjanna lýsti því yfir í
gær, að hún væri reiðu
búin til að hefja viðræð
ur við hina nýju ríkis
stjórn Bandaríkjanna und
ir forsæti Nixons um ráð
stafanir til að takmarka
vígbúnaðarkapphlaupið í
heiminum, ekki sízt í sam
bandi við eldflaugavopn
til sóknar og varnar.
LEBACH, Vestur- Þýzka-
laudi: Fjórir vestur þýzk
ir fallhlífahermenn voru
skotnir til bana og tveir
særðir, er óþekktir of
beld'smenn réðust á
vopnabirgðastöð í Le
bach seint á sunnudags
kvöld. Hermennirnir
voru á verði, er árásin
var gerð.
RÓMABORG: Kristilegi
demókrataflokkurinn á
Ítalíu hefur kjörið Flam
inio Piccoli aðalritara
flokksins eftir Mariano
Rumor, forsætisráðherra.
Piccoli var kjörinn með
85 atkvæðum; 87 skihiðu
auðu og 5 ógildu.
BERN: Svissneska dóms
málaráðuneytið skýrði frá
því í dag, að ónefnt fyr-
irtæki í Sviss hefði með
ólöglegum hætti selt úr
landi vopn fyrjr 88,7
milljónir franka. Hefðu
vopnin verið scnd til
Egyptalands, ísraels, Tú
banons, Saudi-Arabíu,
Suður-Afríku og Nígeríu.
NURNBERG, Vestur-
Þýzkalandi: Fyrstu her-
mennirnir af 5000 Banda
ríkjamönnum, sem taka
eiga þátt í stórfelldum
heræfingum ásamt vestur
þýzkum hermönnum á
landamærum TékkósJóva
kíu á næstunni, komu til
Niirnberg í gær.
KALKUTTA: Talið er nú,
að um 400 manns hafi
drukkmað, þegar ferju og
sjö minni bátum hvolfdi
við mynni Ganges fljóts í
Bengal flóa í síðustu viku,
en þá fór um hálf milljón
manna út í svonefndar
Sagar eyjar til trúarhátíð-
ar Hindúa, sem þar var
efnt til.
MMMMMMMMMMMMMMW1