Alþýðublaðið - 26.01.1969, Page 3
26. janúar 1969 ALÞYÐUBLAÐip 3
Einn morgun í síðustu
viku, áður en fulbjart var
orðið, hitti ég greindan mann
á Austurvelli. 'Hann ræddi
um efnahag þjóðar'nnar, en
sagði svo: „Ég lá einu sinni
á spítala í Engla'ndi. Þá las
ég grein í fjármálablaði um
Norðurlönd, meðal annars
skuldir þe'rra. Þar var full
yrt, að Danir mundu aldrei
(
BEHEWKI GKÖNDAL
UM HELGINA
geta greitt allar sínar skuld
ir, heldur aðeins haldið þeim
v.ið En sagt var, að íslend-
ingar skulduðu að vísu mikið,
en þeir mundu geta greitt
upp — ef þeir fengju góoa
aflahrotu um tíma, því þeir
lifðu á happdrætti“.
Þetta var rétt athugað hjá
hinu brezka blaði. Þegar vel
aflast og verð á fiski er hátt,
komast íslendirgTr í röð
tekjuhæstu þjóða á mann og
geta leyft sér sitt af hverju.
Þannig hefur ástandið verið
undanfarin ár.
En okkur hættir til að gleyma
því, þegar vel gemgur, hvað
gerist þegar tekjumar skyndi
lega bregðast. Og við gleym-
um einnig því, að hér úti á
hjara veralda.r eru aðstæður
okkar í lífsbaráttunni engan
veg nn góðar.
Auðlindir landsins okkar
og hafsiins umhverfis það eru
einhæfar. Þess vegna verðum
við að hafa rnikl verzlunar
viðskipti við umheiminn, ef
við viljum halda uppi svip
aðri neyzlu og gerist hjá ná
grönnum okkar í Vestur
Evrópu.
En hafa menn hugsað um,
hvað það kostar íslendinga
að flytja allar útflutningsvör
ur sínar yfir haf.ð til næstu
landa, eða að flytja allan inn
flutning sömu leið heim?
Jóhannes Nordal, banka-
stjóri Seðlabankans, benti á
þetta í einnf af þeim skýrsl-
um, sem hann skr.faði fvrir
ríkisstjórnina síðastliðið
haust. Þar sagði hamn, að ail
ar þjóðir þyrftu að vísu að
standa undir nokkrum flutn
ingskostnaði milli landa, en
yfirleitt væri það brot af
því, sem íslendingar þurfa að
gera. Taldi Jóhannes, að
flutningskostnaður á vörum
milli íslands og annarra landa
kostaði þjóðina rúmlega 5%
af þjóðarframleiðslunni.
Þetta er gífurlega m kið.
Og það þýðir, að íslendingav
verða að vinna og framleiða
5% meira en þjóðir í Vest-
ur-Evrópu til þess að öðlast
ReykvíkSngar öHs 80,918
\ SAMKVÆMT bráðabirgðatölurii
manntalsskrifstofumrar í Reykja-
vík voru Réykvíkingar samtals 80.-
918 .1. desentber. síðastliðinn, 39.-
463 karlar og 41.455 konur. Auk
þess voru 1620 skráðir með aðsetur
í Reykjavík, en lögheimili annars
Staðar. 1. desember 1967 voru .80.-
090 með lögheimili í Reykjavík og
hefur höfuðborgarbiium þannig
fjölgáð' um 828 á síðastliðnu ári.
Þá voru 1460 skráðir búsettir í
Reykjavík, en með lögheimili ann-
ars staðar, en vera rná að fjölgun-
in í þessum hópi stafi að nokkru
ieyti af þv! að tilkynningaskyld-
unni sé nú betur fullnaigt en áð-
ur, þótt enn séu nokkur vanhöld
á því að . fólk tilkynni aðseturs-
skiptí ti! réttra aðilja. Tekið skal
fram að tölurnar frá 1. des. sl. eru
bráðabirgðatölur og getur verið að
þa-r cigi eftir að lircytast eitthvað
til eða frá, en varla svo að neinu
verulegu nen)i.
I FL0RK8STARFIP
sömu lífskjör. Er þetta
glöggt dæmi um, að vlð meg
um ekki telja það sjálfsagð-
an hlut, að hér séu sömu lífs-
kjör og í næstu Evrópuríkj-
um, heldur verður ávallt að
muna eftir sveiflunum í tekj
um íslendinga og þeim að-
stöðumun, sem við búum við.
Tækn.þróun í sjóflutnmg-
um og lækkandi flutnings-
kostnaður hafa smám saman
létt byrði íslendinga af fjar-
lægðinni Á móti hefur kom-
ið sívaxandi flutningsþörf
vegna batnandi lífskjara og
sérhæfingar í framleiðslunni.
Allt minnir þetta okkur á þá
meginstaðreynd, sem Gamli
sáttmáli bar ljósan vott á sín
um tíma, að íslendingar eru
háð.r sigli’ngum til og <tá
landinu. Skiptir því miklu
máli, að þjóðin eigi jafnan
góðan og vel rek.nn kaup-
skipaflota (og nú á dögum
flugflota).
Þess hugleiðing er engan
veginn ætluð til að draga kjark.
úr þjóði'nni. Hins vegar er
hollt að gera sér ljósa grein
fyrir þeim aðstæðum, sem'við
búum við. Eftir mati á þeirn
aðstæðum hlýtur viðhorf
manna t.l þjóðmála að fara
hverju sinni.
Kvenfélag Alhýðuflokksins
í Hafnarfirði lieldur fund þriðjudaginn 28. janúar síðdegis í Al-
þýðuhúsinu. Fundarcfni: Vigíús Sigurðsson bæjarfulltrúi ræöjr
bæjarmál. Upplestur — Bingó — Kaffidrykkja.
Alþýðuflokkskonur
' Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík heldur fund n.k. fimmtu
dagskvöld kl. 8.30 í Ingólfscafé, Fundarefni auglýst síðar.
■‘fmK.
Nýtt húsnæði!
Aukinn vélakostur!
mm-
WR
' :
Um leið og við tilkynnum, að við höfum flutt í n.ý húsa-
kynni í Sætúni 8 (O, Johnson & Kaaber h, f.), þá viljum við
geía þess, að við höfum aukið vélakost og fjölbreytni
í letrum, og getum enn bætt þjónustu okkar við viðskipta-
Tmi.
Ný bókhaldslög!
Hagkvæmt bókhald!
Um s. 1. áramót gengu í gildi ný bókhaldslög. M. a. gera þau
ráð íyrir tölusetningu á nótum í bókum og' reikningum, auk
annarra breytinga á bókhaldseyðublöðum. — Við bjóðum að-
stoð við að gera bókhaldið aðgengilegt. Við útbúum nótubæk-
ur, reikninga og Öll önnur' eyðublöð sem nauðsynlegt er að
hafa 1 aðgengilegu bókhaldi.
Við eigum ávallt á lager flestar tegundir pappírs, m. a.
sjálfkalkerandi pappír, karton og ílestar íegundir umslaga.
Við eigum sýnishorn af allskonar formum á: —- Nótum í bók-
um og blokkum — Reikningum — Bréfsefnum — Kaupseðlum
Kaupumslögum •— Vinnunótum — Vinnukortum —• Stað-
greiðslunótum — Umslögum, stórum og smáum, venjulegum
og sjálflímdum — Gluggaumslögum o. 11. o. fl.
Við reiknum út fyrir yður endaníegt verð allrar prenívinnu
áður en verkið er hafið.
Allskbnar prentun í einum og fleiri litum.
Þér eruð velkomin í okkar nýju húsakynni í Sætúni 8 eða
hringja í síma 21650 og við sendum fagmann fil að ræða við
yður um forim og verð.
9
s;
0
1
gHAGPRENT H.F.
Sími 21650 — Sætúni 8 — Heykjavík