Alþýðublaðið - 28.01.1969, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 28. janúar 1969
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og 'Benedikt Gröndal. Símar:-
14900-14903. — Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson. — Aug->
lýsingasínii: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu 8—10,
Rvík. Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald.
kr, 150,00, í lausasöíu kr. 10,00 eintakið. — Útg.: Nýja útgáfufélagið h,f,
MiTrnfnBTrrti—Ba<MfiÉM———BwaMiMini • ■ i ■
SJÓNVARPIÐ HÆKKAR EKKI
í síðastliðinni viku tilkynnti
menntamálaráðuneytilð, að af-
motagjald sjónvarps mundi á
þessu ári verða óbreytt, 2400
krónur, en afnotagjaid 'hijóðvarps
Ihækka um 80 krónur.
Þa© eru vissulega ánægjuleg
tíðin'di fyrir almenning, að ein-
[hver opinber stofnun skuli reyna
að Halda óbreyttu verði á þjón-
ustu' sinni, enda hefur hitt verið
algengara, að jþær hafi riðið á
vað.lð með verhlegar hækkanir
eftir gengisbreytinguna. Þetta er
raunar ekki í fyrsta sinn, sem
Ríkisútvarpið 'hefur haldið gjöld
um sínum óbreyttum við sömu
aðstæður. Árið 1950 varð mikil
gengislækkun, og þá var afnota-
gjaldið látið (vieria óbreytt.
í samanburði við önnur ilönd,
sem hafa milljónilr notenda til
að standa undir kostnaði við hiljóð
varp og sjónvarp hafa afnota
gjöldin hér á landi verið mjög
lág. Hefur ekki borið á öðru en
að fólki fyndist það fá allmikið
fyrir það fé, sem það greiðir fyrir
hljóðvarp og sjónvarp.
Enda þótt æskilegt isé að geta
haldi'lð afnotagjöldum niðri fyrir
notendur, er það líka hagsmuna-
mál Íslendinga að Ríkisútvarp-
inu verði séð farborða sem stofn
un. Lág afnotagjöld hafa leitt
til þess, að enn hefur efuki verið
reist útvarpshús og stofnunin er
leigjandi í byggingu fiskirann-
sókna (nema hvað húsnæði var
keypt fyrir sjónvarpið). Ekki) má
missa sjónar af því, að húsnæðis-
mál útvarpsins og fleiri kostnað-
arsöm verkefni bíða úrlausnar,
sem ekki má lengi dragast.
Dýr eru vopnirt
Fréttastofan UPI skýrði nýlega
frá því, að heildarútgjöld mann-
kynsins til vopnabúnaðar séu nú
16.380 milljarðar króna á ári.
Þetta nemur 4.800 krónum á
hvert mannsbarn á jarðarkringl-
unni.
Þessi! upphæð hefur, sam-
kvæmt rannsöknum Sameinuðu
þjóðanna, áukizt um 50% síðan
1962. Og þó eiga þetta að heita
friðartímar.
UPI segir, að eytt sé tvöfalt
meira fé í vopnabúnað en í skóla-
og fræðslumál á jörðunni.
Og þ’að er eytt þrisvar sinnum
meira fé til vonpabúnaðar en til
heilbrigðismála og baráttu gegn
sjúkdómum.
Þetta er hörmulegt ástand, sem
sýnir hversu aumkunarvert á-
stand mannkynsilns er. Með öllu
sínu viti og allri sinni tækni hef-
ur maðurinn ekki fcomizt lengra
en þetta.
Augljóst er, að friður, sem
leitt geti til afvopnunar, er mark
mið, sem mannkynið verður að
ná. Þá fyrst verður hægt að beita
snilld mannsilns til baráttu gegn
fátækt, fáfræði og sjúkdómum.
I—aMBBMHIMMa—BMmriil'l ■MBHIi'Uiyffli 'iiw 55%i&-:gSS2ge«l«Eag
Enn um TK og útvarpsráð
Undnnfarin misseri hefur Tóm-
as Karlsson. ritstjórnarfulltrúi Tím-
ans, oft setið fundi útvarpsráðs, en
hann er varamaður Framsóknar-
fiokksins í ráðinu. Ekki verður
annað sagt, en farið hafi vel á með
Tómasi og öðrum ráðsmönnum,
■enda er hann hugmyndaríkur og
þrautreyndur hljóðvarps- og sjón-
varpsmaður.
Nú hefur brugðið svo við und-
anfarnar vikur, að Tómas hefur
haft allt á hornum sér viðkomandi
útvarpsráði og skrifað óspart í blað
sitt skammir og svívirðingar um
samstarfsmenn sína þar, alla nema
ílokksbra-ður sína. Sjá menn ekki
hvaða skýring geti verið á þessum
hvimieiðu umskiptum, nema luln
sé sú, að í fyrra sá Tómas um
spurningaþátt i sjónvarpinu, en nú
er nýbyrjaður annar spurninga-
þáttur með öðrum stjórnanda.
Það vita allir, sem fylgjast með
stjórnmálaskrifum dagblaðanna, að
Tómas er illskeyttur í skrifum. AI-
þýðublaðið svaraði síðustu greinum
hans um útvarpsráð í sama dúr og
hann skrifar sjálfur, gagnstætt venju
hlaðsins. Eins 'og við mátti búast
varð Tómás bæði særður og
hneykslaður, er hann var beittur
sínum eigin vopnurn.
Deila þessi snerist um aronskuna
og fundarsköp útvarpsráðs, og lrefur
Tómas nú gleypt ofan í sig allar
fullyrðingar sínar um formann út-
varpsráðs og afstöðu hans í þessum
málurn. Er rétt að þakka Tórnasi
og virða hann fyrir að játa þau mis-
tök, cins og hann gerir í Tíman-
um 25. janúar.
Hins vegar er Tómas nógu hygg-
inn til að gera þegar árás á nýjum
vígstöðvum til að bcina athyglinni
frá ósigri sínum. Hann hefur nú
skrif unt tillögu, sem hann ‘ og
Gunnar Schram flut'tu í útvarpsráði
og var felld með 4:2 atkvæðum.
Þessi tillaga var almenns eðlis um
niðurroðun dagskrár, vinsælt efni
og óvinsælt og hlustendakönnun.
Oll einstök atriði hennar hafa ver-
ið margrædd í útvarpsráði ár eftir
ás, og eru ekkert nýmeti. Hins veg-
ar var tillagan sem heilcl þannig,
að óhjákvæmilegt var að líta á hana
sem vantraust á útvarpsráð, út-
varnsstjóra og aðra dagskrármenn
hljóðvarpsins. Var hún því kolfelld
af útvarpsráðsmönnum úr öllum
flokkum.
Sem dæmi um, hve vanhugsuð
tillaga þessi var, má nefna, að sam-
kvæmt henni yrði líklega ckki hægt
að útvarpa 'messutn á sunnudögum,
heldur ættu þar að köma bítlalög
í staðinn, og vafasamt er, að hin
fræðilcgu sunnudags'erindi fengju
að vera þar áfram.
Hitt er annað mál, að dagskrá
hljóðvarpsins verður endurskoðuð
í nánustu framtíð. Útvarpsráð tók
þá ákvörðun, þegar sjónvarpið
hófst, að ekki-mætli láta það hafa
áhrif á hljóðvarpsdagskrána, með-
an verulegur hluti þjóðarinnar
hefði ekki fengið sjónvarp. Enn
eiga norðaustan- og austanvert
landið og ýmsir staðir á Vestfjörð-
um eftir að fá sjónvarpið og hafa
því ekki verið gerðar verulegar
bteytingar á hljóðvarpinu.
Þegar þessar breytingar verða
gerðar, mun fyrst og fremst reynt
að skapa samræmi á milli dag-
skránna í sjónvarpi og hjjóðvarpi.
Er þegar byrjað að íhuga þetta mál
vandlega, eins og útvarpsstjóri hef-
ur gert útvarpsráði grein fyrir. En
tillaga Tómasar og Gunnars gerir
ekkert gagn í þeim efnum.
Af síðustu grein Tómasar má
ráða, að hann telji sig nú óvelkom-
inn í útvarpsráði. Þetta er misskiln-
ingur. Hann hefur — eins og allir,
sem þangað eru kjörnir, verið boðinn
velkominn til samstarfs af öðrum
ráðsmönnum, og svo verður án efa
áfram. Allir útvarosráðsmenn hafa
upplifað það, að tillögur væru felld-
ar fyrir þeim eða þeirra vilji næði
ekki fram að ganga, án þcss að
borið hafi á langrækni af þeim
sökum.
ATHUGIÐ
Geri gamlar hurbir sem nýjar, skef upp, olíuber og lakka.
Olíuber einnig nýjar huröir og viðarklæðningar utanhúss- Fjar
lægi málningu af útihurðum og harðviðarlita þær.
GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON-
Sími 36857.
mwwwmwMWMWWWMi
Erlendar
frétfir í
stuttu máli
WASHINGTON 27. 1.
(ntb—reuter): Æðsti vfir
maður Kyrrahafsflota
Bandaríkjanna, John S,
Mccain flotaforingi, hclt
því fram í dag, að Viet
cong-menn og Norður-
Vietnamar liefðu misst
um 420.000 hermenn á
síðustu sex árum og væru
því gersigraðir hernaðar-
lega séð. Kom þetta fram
í viðtali við fréttamann
tímaritsins „Reader‘s Dig
est“.
EIONGKONG 27. 1.
(ntb-reauter): Ríkisstjórn
Alþýðulýðvetdisins Kína
gekk að því með oddi og
egg í dag að kveða niður
sögusagnir, sem að undan
för.nu hafa gengið um
það, aið Mao Tse Tung
væri annaðhvort veikur
eða látinn. Þykir þetta
benda til þess, að almenn
ingur í Kína hafi verið
farinn að leggja á þær
trúnað.
LUNDÚNUM 27. 1.
(ntb-reuter): ítalska far-
þegaskipið „Fairsea“,
sem að undanförnu hefur
rekið stjórnlaust á Kyrra
hafi, liefur nú verið tck
ið í tog af dráttarbátnum
„R.Pace“. „Fairsea“ var
á leið frá Ástralíu til
Southamton með 980 far
þega, þegar það varð fyr-
ir vélarbilun.
ARMAGH, Norður-ír-
la.ndi 27. 1. (ntb-reuter):
írski mótmælendaprestur
inn Ian Paisley var í dag
dæmdur í þriggja mánað
ar fangelsi af rétti í Ram
agh í Norður-írlandi fvr
ir að hafa staðið fyrir ó-
löglegum fundahöldum í
sambandi við óeirðirnar
í landinu nýlega.
SAIGON 27. 1. (ntb-
reuter): Sjö bandarískir
sjóliðar létust og tvcir
særðust, er sprengiefni
sem ætlað var gegn óvin
unum sprakk fyrir mis-
tök í nágrenni Quang Ng
ai á norðurströnd Suður-
Vietnam í dag.
wwwwwwwwwww