Alþýðublaðið - 28.01.1969, Blaðsíða 3
28. janúar 1969 ALÞÝÐUBLAÐIÐ f
yrsmr i
ií lái éáa
PRAG 27. 1. (ntb-afp-dpah
Lögreglan í Prag yfirhevrði
í dag 199 aðilja, sem teknir
voru höndum í sambandi við
mótmælaaðgerðir í tilefni út
farar hins látna háskólastúd
ents, Jan Palach, á laugardag.
Meira en 60 hinna handteknu
voru undir 18 ára aldri. Þá
tilkynnti innanríkisráðuneyti
Tékkóslóvakíu í dag, að sex
blaðamenn, þar af flestir
bandarískir, hefðu verið beðn
ir að hverfa úr landi.
Allt bendir nú til þess, að
tékkósióvakiska lögreglan
hyggist láta hart mæta hörðu
og brjóta hvers konar óeirðir
á bak aftur með valdi. Greip
lögreglan hvað eftir annað'
til táragass á almannafæri í
gær og telja margir, að „Nov
otny-sinnar“ innan ríkisstjórn
arinnar muni nú nota tæki
færið til að á sér niðri á
„gagnbyltingarsinnuðum öfli
um“ í landinu.
W {■
Fyrsti blaþamanna
fundur Nixons
Washington 27. 1. (ntb.reuter): Richard M. Nixon, hinn nýi forseti
Bandaríkjanna. hélt fyrsta blaðamannafund sinn í dag, eftir að
hann tók við embætti.
Á fundinum sagði Nixon meðal
annnars, að Vietnam-viðræðurnar í
París yrðu fyrst og fremst undir
því komnar, hversu samningsfúsir
kommúnistar reyndust og lrve frið-
arvilji þeirra risti djúpt. Kvað hanri
Henry Cabot Lodge, formann samn-
Framhald á 8. siðu.
I
Töluverðar breytingar voru
gerðar á fyrirhugaðri efnisskrá
sinfóníuhljómsveitarinnar, á tón-
'leikunum sl. ifimmtudagskvöld.
Þannig var forleikurinn að óper-
unni Cosi fan tutte eítir \fozart
leikinn í stað ‘tónaljóðsins Moldau
eftir Smetana, og fyrsta sinfónía
Beethovens í stað annarar sinfóníu
Sibeliusar. Stöfuðu þessar breyt-
J»gar, að sögn Gunnars Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
hljómsveitarinnar, af inflúensunni,
sem nú herjar á nokkra meðlimi
hljómsveitarinnar. Það er ef til
vill stuttum æfingatíma að kenna,
sð Mozart-forleikurinn, sem fyrst-
ur var á efnisskránni, var ekki
leikinn af þeim léttle'ka, sem
Mozart hæfir svo vel, og var hér
fremur flausturslega fluttur, eða
„keyrður í gegn,“ eins og stund-
um er sagt. Bandarrski píanistinn
Lee Luvisi lék einleikshlutverkið
í píanókonserti Mozarts K. V. 467,
og er hér tvímælalaust um mjög
hæfan listamann að ræða. Leikur
hans allur var frábærlega skír og
hnitmiðaður, og þó einleikari og
hljómsveit virtust ekki alltaf vera
of sammála, var þetta, þegar á
heijdina er lirið, ágæt uppfærsla.
Sumum mun kannske hafa fund-
ist píanistinn taka full hraustlega
til hendinni á stundum, en þegar
höfð er í huga nærfærnisleg túlk-
un hans á Andante þættinum, og
einnig Rondóinu, er hann lék sem
aukalag, blandast engum hugur
urn, að Lee Luvisi er góður
Mozart-túlkandi.
I fyrstu sinfóníu Beethovens
kveður strax við nokkuð persónu-
legur tónn, einkum þó í þriðja
þætti, sem er langt frá því að
vera venjulegur menúett-þáttur, ef
þeir Mozart og Haydn eru hafðir
í huga, en sinfónía þessi var síð-
asta viðfangsefni hljómsveitarinn-
ar á tónleikunum. Ekki tókst
heildarflutningur verksins neitt
sérlega vel að þessu sinni, stund-
um nokkuð deyfðarlegur og jafn-
vel ónákvæmur, þó var ýmislegt
laglega gert, t.d. hinn viðkvæmi
annar þáttur, með sinu fínlega
kontrapúnktíska ívafi. Það hlýtur
líka að vera erfitt að skipta um
verkefni á síðustu stundu, eins og
hér átti sér stað. Stjórnanda, serp
að þessu sinni var Ragnar Björns-
son, einleikara og hljómsveit var
ve! fagnað af tónleikagestum.
Egill R. Friðleifsson.
iM4WWM»WWMW»WWWWWWWWW>W WtWWWMtMWWWWWMMWMMWIIMMMMil
Borgarstjóri í
Árbæjarhverii
Myndin hér til hliðar var
tekin á sunnudaginn á fundi
sem Framfarafélag Seláss- og
Árbæjarhvcrfis hélt með borg
arstjóranum í Reykjavík,
Geir Hallgrímssyui. Eins og
sjá má á myndinni var fund-
urinn fjölsóttur, en mýndina
tók ljósmyndari Alþýðublaðs-
ins Gunnar Heiðdal.
Kvenfélag Alþýöufbkksins
í Hafnarfirði heldur fund þriðjudaginn 28. janúar síðdcgis í Al-
þýðuhúsinu. Fundarefni: Vigfús Sigurðsson bæjarfulltrúi ræðjr
bæjarmál. Upplestur — Bingó — Kaffidrykkja.
AlþýBuflokkskonur
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík heldur fund n.k. fimmíu
dagskvöld kl. 8,30 í Ingólfscafé. Á fundinum flytur Björgvin Guð
mundsson viðskiptafræðingur erindi um atvinnuástandið og frú
Katrín Smári les uþp smásögu. Félagskonur eru hvattar til að
fjölincnna. — STJÓRNIN.
BRIDGE - BRIDGE
Bridgestarfsemi Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur er nú að hefjast
að nýju og verður spilað £ fyrsta sinn á árinu í Ingólfscafé n.k.
laugardag, 1. febrúar, kl. 14. Stjórnandi verður að vanda Guð
mundur Kr. Sigurðsson, og í húsið er sem áður gengið frá Ingólfs
stræti. t
ÓTBÉLEST, sa sait
Þeir koma ekki lengur til mín, til
þess að Iáta pressa, þessir sem hafa
keypt sér ICoratron buxur. Það er
sama hvemig viðrar buxumar eru
alltaf eins og nýjar.
(Samúel gamli pressari).
KORATRON
þorf oldrei nð pressa
DÚKUR H/F.
wmtammaumivmmmíwma iiiiimimct
!
t
í