Alþýðublaðið - 28.01.1969, Page 7
28. janúar 1969 ALÞYÐUBLAÐIÐ 7
MINNING:
*
HALLVARÐUR ARNASON
F.F nokkuð er náttúrlegra en 1!£-
ið, þá er það dauðinn. Þegar liann
ber að garði, slær þögn á okkur
lifendur. Við stöndum ráðvillt eitt
andartak áður cn við áttum okkur
á því, sem gerzt hefur. Finnst okk-
ur þá ekki ástæða til að efast urn
raunveruleika lífsins sjálfs? Hvern-
ig má það vera, að sá, sem fyrir
örstuttri stund var á meðal okkar,
er nú horfinn'og kemur aldrei aft-
ur? Jáii dofinn af losti dánarfregn-
arinnar varir stutt og raunveru-
leikinn sevtlar brátt inn í sálir
okkar með sorgina og söknuðinn.
Sjálf sorgin er óræð eins og dauð-
inn, í eðli sínu neikvæð en samt
eina svar Jífsins við dauðanum og
kannski það bezta, því að sorgin
felur i sér huggunina.
Fregnin um skvndileg veikindi
og skömmu síðar lát Hallvarðar
frænda míns kom mér á óvænt, —
enda þótt ég vissi', að hann hefði
ekki gengið héill til skógar lengi.
En þannig er það oft, að dauðinn
kemur ðkkur ! opna • skjöldu, nema
ef til vill þeirn, sem hann er að
sa’kja. F.g álti þess kost að eiga
nokkrum sinnum tal við Hallvarð
síðustu mánuðina. A stuttum fund-
um okkar varð ég ekki anfiars var
en hins gamalkunna jafnaðargeðs
og góðviljaðrar gamansemi hans.
Hjá honum var að finna sama
styrkinn og áður. F-n einmitt í
þessu er ef til vill að leita skýring-
ar á svo snöggum umskiptum. Hin
sterka eik hngnar ekki í síðasta
storminum stóra, heldur brotnar.
Hallvarður Arnason vat fæddur á
Þorláksmessú. 1<S95 á Kollabúðum í
Revkhólasveit. Hann var sjöunda
barnið af níu börnum Kristínar
Hallvarðsdóttur og Arna Gunnlaugs
sonnr. Þau hjón bjuggu við ör-
birgð svo sem t!tt var um alþýðu-
fólk á þeim árum. Þau áttu ekk-
ert nema eigin mnnnkosti og létu
ekkert eftir sig nerna níu börn,
sem uxu unp og lögðu fram sinn
skerf til beirrar veÞældar, sem fólk
hér á landi býr t ið í dag. Ungur
að árnm missti Hallvarður föður
sinn 'n<r við fráfall hans tvístraðist
barnahónurinn og knm aldrei að
fulhi saman aftur. Hallvarður fór
í fósí.ur að Berufirði ! Reykhóla-
sveit til beirra hjóna. Lilju Jóns-
dótttir, liósmóður, og Stefáns Jóns-
snnar. Mun hann þá hafa verið um
það hil 8 ára gamall. Dvaldi hann
hiá bf’im í Berurirði, og síðan á
Kambi. í sömu sveit, fram að ferm-
, ingaraldri. Þá var Finnboga svstir
hans gift Oddi lækni Jónssvni á
'Miðhúsum í Revkhólasveit. I þeirra
Jnisum sameinaðist nokkur hluti
fjölskvldunnar á nv og þar var Flall-
varður a.ftur .samvístum við móður'
sína, en 'hún léz.t 1911. Það hlýtur
að hafa 4ai.Fl æði mikið til í l!fi
Jressarar fjölskvldu við þessi um-
skinii. Æ síðan hefur einhver af
niðium Kristínar og Arna setið á
Miðhúsum. A bessari kostadrjúgu
jörð, ]>ar sem öllum, scm ég þckki
til, hcfur liðið vel, dvaldist Hall-
varður sín unglings og mótunarár
meðal náinna skyldmnma. Og þarna
inni í botni hins vorglaða Breiða-
fjarðar kynntist hann sjónum fyrst;
þau kynni áttu cftir að verða meiri
og óblíðari.
FFallvarður Árnason
F.n þegar þroskaskeiði unglings-
áranna lýkur og viðhorf fullorð-
insáranna fara að blasa við, fer á-
vallt á sömu leið: u.ngi maðurinn
fer burt ! leit að verðugum viðpangs
efnum. Arið 1913 hélt Hallvarður
til- Revkjavíkur, upphaflega með
trésmíðanám ! huga, cn vcgna fjár-
skorts hvarf hann fljótlega frá því
or réðst á sjóinn, fvrst á skútu en
síðan á togara, en á þeim sfarfaði
hann samflevtt næstu þrjá áratug-
ina. Arið 1919 markaði að vissu
levti tímamót í lífi hans. Hann lauk
þá skipstjórnarprófi úr Stýri-
mannaskólanum og var það að von-
um ! samræmi við dugnað lians og
vilja að komast áfram í lífinu. En
hann varð einnig fyr.ir þeirri óham-
ingiu að missa unnustu sína, Krist-
ínu Arnadóttur, liina vænstu stúlku,
úr spönsku veikinni.
Næstu 25 ár var Hallvarður stvri-
maður á togurum, ýmist fvrsti eða
annar stýrimaður. Það er ekki kinn-
roðalaust, að ég nevðist ti! að gera
langa sögu stutta, en ég get ekki
lýst þrotlausu striti íslenzkra tog-
arasíómanna hér á árum áður. Su
barátta er liðin og kemur vonandi
aldrei aftnr. F.n við vitum öll, að
á fiskimiðunum ! kringum landið
voru unnin þau störf, sem mestu
máli skiptu í lífsbaráttu þjóðar, er
var að beriast við að halda ný-
fengnu sjálfstæði sínu. Harðneskja
siómannsstarfsins var ekki eingöngu
fólgin í fangbrögðum við Ægi. —
Vinnuharka um bnrð ! togurum
. var nánast ómannúðleg. F.kki veit
ég hversu rnikinn hlui Hallvarður
áili ! kjarabaráttu sjómanna, en
hann yar alla tíð tráústur félagi !
snmtökum þcifra og I stjórnmála-
samtökum þcim, sem mcst beittu
sér fvrir -bættiim hag þeirra, þ. e.
Alþýðuflokknum. Og ég hef ætíð
heyrt það haft eftir sjómönnum,
sem til hans þekktu og störfuðu
með honum, að hann hafi verið
bæði vel virtur og vel liðinn, eink-
um af undirmönnum sínum. Dreg
ég ekki í efa, að hann muni ætíð
hafa dregið taum þess, sem á var
hallað, enda hafði hann I ríkum
mæli þá eiginleika, sem svo mjög
skortir á almennt nú á dögum, sem
sé umburð.irlvndi og virðingu fyrir
öðrum.
Árið 1929 kvæntist Hallvarður
eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu
Kristjánsdóttur, frá Skerðingsstöð-
um í Reyk'hólasveit, hinni beztu
og vönduðustu konu. Þau biuggu
alla búskapartíð sína ! Reykjavík
og það er dómur allra, sem bezt
þekkja, að heimili þeirra hafi verið
til fvrirmyndar. Mikið jafnræði var
með þeim hjónum, þau voru sam-
sveitungar og breiðfirzk upp á
bezta máta, bæði búin áþekkum eig-
inleikum, vönduð, heiðvirð og hátt-
vís. Þau eignuðust ó börn, mann-
vænleg börn, en þau eru:
Haukur, stýrimaður, Reykjavík,
Kristín, gift. ! Bandaríkjunum,
Agnes, gift á Isafirði,
Ragna. gift í Reykjavík,
Arnfríður og Arný, báðar giftar
á Selfossi. — Að mínu viti eru öll
þessi börn búin sömu ^óðu kost-
unum og foreldrarnir.
Hallvarður heitinn sigldi á tog-
urum öll stríðsárin. Eg geri ráð fyr-
ir, að heilsa hans muni hafa verið
farin að bila nokkuð eftir meira
en 25 ára þrotlaust strit á sjónum,
en siglingarnar. á stríðsárunum voru
annars eðlis: mennirnir, sem stund-
uðu bær, voru ! stöðugri lífshættu
og þeir vissu það. Enginn er svo
sterkur, að hann þoli spennu á-
liættunnar til lengdar án þess að
láta á.sjá. F.nda fór svo, að Hall-
varður ha-tti að mestu sjómennsku
hatistið 1944, tæplega fimmtugur
nð aldri. Nokkrum árum síðar
réðst hann til stnrfa hjá Landsím-
anum og ]wr starfaði hann til s!ð-
asta dans. Fg held, að fyrstu árin
éffir að Hallvarður kom í land,
hafi verið erfiður tími fyrir hann
og konu hans. Börnin voru enn í
ómegð og heimilið tekið að þvngj-
ast en vinnnbrekið ekki hið sama
nv áður. Ff lil vill hefur þá'reynt
hvað mest á andlegan styrk þeirra
h’óna, sainheldni þeirra og festu í
heimilishaldi.
Hallvarður hafði til að bcra góð-
látlega kímnigáfu en jafnframt var
hann gæddur mikilli og innilegri
trúarlegri eða jafnvel heimspeki-
legri íhygli, svo sem ckki er ótítt
um sjómenn. Hanii var maður vel
upplvstúr af eigin rammleik og
viðræðugóður ! vinahóþ. F.n þrátt
fyrir alvöruna, fannst mér hógværa
kínlnin honum eiginlegust. Eg
minnisf hans fvrst og fremst sem
góða frændans, sein átti allfaf hlý-
leg orð, bros og jafnvel gjafir handa
litlum snáða. Hygg ég, að þau
munu mörg systkinabörn lians, sem
hafa sömu sögu að segja, því að
Hallvarður var með afbrigðum
barngóður maður. Hann er og verð-
ur í okkar hugum Halli frændi. Og
nú þegar hin óhjákvæmilega sorg
sezt að ! hjörtum hans nánustu, veit
ég, að eftirlifandi systkini hans og
svstkinabörnin, sjálf með söknuð í
huga, votta Guðrúnu og börnum
hennar innilegustu hluttekningu, cn
senda Hallvarði sjálfum hinztu
kveðjur á eftir honum yfir. landa-
mærin.
Þórhallur B. Ólajsson.
Takiö eftir - Takið eftir
Nú er fátt til bjargar, því góður tími til að taka til á háa
loftinu- Við kaupum allskonar eldri gerð húsgagna og hús-
muna svo sem buffetskápa, borð stóla, blómasúlur, klukkur,
rokka. prjóna- og snældustokka, spegla og margt fl.
Fornverzlunin Laugavegi 33 (bakhúsið)
Sími 10059 — Sími heima 22926.
Sveinafélag
pípulagningamanna
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðar-
ráðs.
Listum sé skilað á skrifstofu félagsins Freyju-
götu 27, fyrir kl. 7 e.h. fimmtudaginn 30.
jan. 1969.
STJÓRNIN.
Þú lærir málið í Mími
Fjölbreytt og skemmtilegt nám.
Tímar við allra hæfi.
Sími 1 0004 og 111 09 (kl. 1—7).
gVfáFaskólinn IV3BM1R
Brautarhoiti 4.
EIRRÖR
Kranar,
fittings,
einangrun o. fl. til
hita- og vatnslagna.
Burstafell
byggingavöruverzlna
Béttarholtsvegi S
Simi 38840.
AUGLÝSINGASÍMI
ALÞÝÐUBLAÐSINS
14906
ÞOBBJÖBNS BENEDIKTSSONAB
lagól/sstræti 7