Alþýðublaðið - 29.01.1969, Side 5

Alþýðublaðið - 29.01.1969, Side 5
29. janúar 1969 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 ÞAÐ heyrist að fjöldi manns sé á biðlista hjá flug félögum heims'ns að komast til mánans sem bendir til að ýmsum frnnist orðið bröngt á okkar gömlu jörð. Samt fer því auðvitað fja.rri að allir ferðamöguleifear séu notaðir. Ef einhverjum þykir þröngt á kunnum ferðamannastöðum stafar það bara af því að menn flykkjast þangað í stór hópum og halda áfram að flækjast hver fyrir öðrum al veg eins og í borgunum sem þeir eru að flýja. En eft'r því sem ég kem víðar verður mér betúr ljóst hve þetta er skemmtileg jörð sem við byggjum, hve hún á marga forvitnilega afkima og fjölskrúðuga fegurð. Og svo skrýtið er það að þeim mun fleira sem ég sé þe'm mun meira finnst mér ég eiga eítir að skoða. Einhvern vegin.n glevm'st fólki oft að reikna með þeim heimshlutum sem það ekki hefur séð, gerir sér ekki grein fyrir hve hið þekkta ura hverfi er lítið brot af allri myndinml. Svo fer það alltaf sömu rútuna. og dettur aldrei neitt annað í hug — nema þá helzt tunglið. Og íslendingar fara bara til Mallorca, eins og heimur inn endi þar. En nú eru smátt og smátt að opnast leiðir sem ættu að beina athygli manna á aðrar slóðir. Hér eystra eru prýðileg lands svæði sem vestrænum ferða mönnum mundu falla vel í geð. Má ég t.d. nefna undir hlíðar Himalaja, Bláfjöll og Fílahæðir á Suður Indlandi, hálendið í Ceylon o fl., auk þess sem Himalajafjöllin sjálf eru þegar ofar dregur einhver stórkostlegasti furðuheimur jarðarinnar bæði að ljúfri feg urð og stórfengleik. Það er enginn vandi að fara til Asíu með flugvél, og þeir sem vilja skreppa hingað í bílum sínum geta meira að segja kom'zt alla leið til aust urlandamæra Indlands. Enn er þó landleiðin hingað aust ur ekki sérlega góð, en hún verður góð þegar nýju Asíu þjóðleiðirnar eru komnar x notkun. Nýju Asíu þjóðleiðirnar eru alþjóðlegir vegir sem eiga að ná frá Evrópu alla leið austur til Singapoor og Víetnam. Þær eru ætlaðar al mennum ferðamönnum, hver maður á að geta ekið þær í bíl, öruggur um allt sitt. Og þá er í rauninni búið að opna að nýju gömlu karavanaieið irnar sem fyrrum voru einu 'samgöngumöguleikarnir milli Asíu og Evrópu. Þessar þjóðleið'r sem búið er að mæla út og verið er að leggja eru merktar A—1, A—2 o.s. frv., og mér er sagt að þær eígi alls að vera yfir 70. Tvær þær fyrstu eru langt komnar. A—1 liggur vestan um Persíu yfir Afgan ista.n gegnum Kybher skarðið niður á sléttur Indus og Sutl ej, þaðan til Dehli og austúr Gangessléttuna til Kalkútta og Dacea, svo til Mandalay í Burma og áfram austur til Saigon í Víetnam. A—2 kem ur aftur á móti frá Persíu til Pak'stan fyrir sunnan landamæri Afganistan, hallar sér síðan norður á bóginn til Lahore og Delhi og fer þar yfir A—1 í Dacca, svo t'.l Rangoon og áfram til Singa pore. Meirihlutinn af þessum leið um er orð nn fær, aðeins eft ir að gera brýr á fljót þar sem ferjur hafa áður verið og leggja stutta vegarkafla til að tengja saman áður lagða vegi. En samt er auðvitað mikið ógert, því meðfram vegunum þurfa aðrísa hótel og veit ingahús á þénanlegum stöð um, og einnig benzínsölur og viðgerðarstöðvar, og þar ao auki þarf að koma upp góðri vegalögreglu á öllum leiðun um. Allt er þetta á góðri leið, en gengur þó seinna í löndun um austan Indlands. Austvtr Pakistan verður sett í sam band við þetta nýja vegakerfi árið 1970, og vonazt er til að Burma komi árlð 1971. Burma er það land hér um slóðir sem verst er við að fást í þessu tilliti, það er að kalla lokað land síðan sú stjórn tók við sem nú situr. Ferða mönnum gengur tregt að fá þar dvalarleyfi, er í flestum tilfellum bannað að staldra þar lengur við en einn einasta dag. En ef allt gengur eftir áætlun verður unnt að aka þessa. vegi alla leið austur til Saigon og Singapore eftir tvö— þrjú ár. Langferðir eru dýrar, Það er dýrt að fljúga heimsálía milli, og tiltölulega fáir hafa efni á að fara til Asíu í sum arfrí. Samt fara efnaðir menn unnvörpum í safari t'l Afríku og leggja hiklaust upp í margra vikna siglingar með skemmtiferðaskipum. Áreiðanlega eru til menn sem mundu fagna því að leggja í það ævintýri að aka á bílum sínum alla leið aust ur í fríhöfnina í Singapore ef þeir hefðu tíma þegar þokka leg hótel eru risin og unnt er að fá sæmilega þjónustu á allri leiðinni. Slík ferðalög mundu vissu lega stuðla að því að bæta heiminn. Mér skilst hér eystra að miklar vonir séu bundnar við þessar nýju leiðir þær muni ekki einasta auka hagræn skipti austrænna og vest rænna landa, heldur líka mermingarlegt samstarf, pers ónuleg kynni manna og gagn kvæman skilning á þörfum og lífsháttum. Góðar samgöngur og frjáls ferðalög eru eitt af því sem stuðlar mest að því að rífa niður girðingar milli þjóða. Og þjóðirnar sjálfar, einstakl ingarnjr, verða miklu meira varir við þær samgöngur sem faira fram á lar.di heldur en flugf. og skipa: bændur sjá bílana renna fram hjá ökrun um, ferðamenn nema kannski staðar að horfa á konur við vatnsból eða fiskimann við Hópur Indverja, brú og lítil börn horfa forvit in á og fara í huganum út í þennan stóra heim eftir veg inum sem l ggur framhjá þorp inu þeirra. Eins og ég gat um áðan er í rauninni verið að opna gömlu karavanaleiðirnar milli Asíu og Evrópu, en þær voru aflagðar fyrir rúmum 200 ár um er iðnaði tók að fleygja fram til muna í Evrópu og samgöngur á sjó og landi að batna. Kanarvanar eru þó síður en svo með öllu aflagðir í he'minum, þeir þekkjast enn í Mið Asíu og hinum vestlæg ari Asíulöndum, og í Hirnal aja eru þeir víða einustu sam göngumögulelkarnir. Mönnum hættir til að gleyma að Himalaja er ekki fjallgarður í venjulegum skilning':, heldur fjallaveröld, víða eins breið og ísland er langt frá austri til vesturs og þúsund'.r kílómetra á lengd. Þarna eru engir nútímavegir á stórum svæðum og engir flugvellir. En um gamalrudda sneiðinga fjallanna mjakast langar lest'r múldýra og jak uxa. Þar er litið á tíma og fjarlægðir eins og gert var í gamla daga: að allt sé hægfc að komast ef manni bara ligg ur ekkert á, sá get' ekki ferð azt sem þurfi að flýta sér. Um þennan hugsunarhátt vitn,ar saga sem ég nýlega heyrði og mun vera dag sönn: Einhverjir kaupmenn höfðu dólað sér með lestir sínar alla le'.ð niður til Katmandú í Nepal Það er svo sem ekki óvanalegt, því þessar lesti.r koma iðulega alla leið niður á láglendi. Nepal var opnað fyrlr eðlilegum samgöngum 1952, var áður algerlega lok að, og þar eru menn nú að byrja að hugsa eins og nú tímamenn. í Katmandú sáu þessir kaupmenn úr fjalla' byggðunum glervörur frá Tékkóslóvakíu sem þeim leizt vel á, enda ekki um að talaf að iðnaðarvörur úr því landi þykja allsstaðar hinar beztu. Þeir voru vanir að ferðast, komu oft ekki heim í marga mánuð', keyptu þá bara vör ur og seldu á ýmsum stöðum. — og verðið á glervörunum leit út fyrir að vera hagstætt. Þess vegna- óx þeim alls ekki í augum að fara álla leið til Tékkóslóvakíu að kaupa gler. Raunar vissu þeir ógerla hv2r í veröldinni það land lægi, þe!r höfðu fyrr kaixnað ókunnar slóðir án þess að viil ast, x'anir að spyrja sig áfram og reiða s'g á sannsögli anm arra ferðamanna er þeir hittu og spurðu til vegar. Þó vo”u þeir svo fróðir að þe'r héldu í vestur, en ekki í einhverja hinna höfuðáttanna þriggja. Afturámóti voru landamæri og vegabréf ekki til í þeirra geógrafíu. Hvaða leiðir þeir fóru ve't víst enginn, varla þeir sjálfir, býst ég við, en þeim var snúið við e'nhvers staðar í Sovétríkjunum og komið í skilning um að þessai ferð hefðu þe'r átt að fara fyrir 200 árum eða fyrr. En kannski voru þeir bara dálítið á undan tímanum? Kannski verður algengt inn an tíðar að menn fari alla leið frá Katmandú til Tékkó slóvakíu á eigin vegum að vísu ekki með múlasna, held ur á bíl :— í fullu trausti á þá he'msDeki að sá einn geti talizt ferðamaður sem ekki þurfi að flýta sér? — SIGVALDI

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.