Alþýðublaðið - 28.02.1969, Side 1

Alþýðublaðið - 28.02.1969, Side 1
iFöstudaffur 28. febrúar 1969 50. árff. 48. tbl, Sc IU lau i 111 i ■; i I fréttatilkynningu frá Fjármála- ráðuneytinu segir að það hafi orðið að grípa til einhliða aðgerða í vísi- töjumálinu svonefnda og hafi „ráðuneytið vísáð ágreiningi þeim, sem upp er risinn milli ráðunevtisins og Bandaiagsins til sáttasemjara ríkisins í því skyni að málið verði sem fyrst útkljáð þar eða fyrir Kjaradómi ef svo ber undir. Með því að ágreiningurinn fjallar um greiðslu verðlagsupphótar, frá og með 1. marz n.k. telur tóðuneyt- ið sér ekki fært að greiða aðra verð- lagsuppbót á þau laun starfsmanna ríkisins, sem gjaldkræf eru í byrjun marzmánaðar, en þá, sem greídd var á laun í febrúar." I fréttatilkynningunni segir enn- fremur: • „Það er grundvallarstefna í lög- um um kjarasamninga opinberra starfsmanna, að kjör . þeirra skuli vera, sambærileg við .kjör -annarra stétta þjóðfélagsins Frainkvæmd ákvæða dóms Kjaradóms um greiðslu verðlagsuppbótar. á laun skv. orðanna hljóðan mundi veita opinberum starfsmönnum kjarabæt- ur,' sem engir aðrir launþegar í lándinu hljóta að svo stöddu án nýrrg samninga. Framkvæmd þess- ara ákvæða bryti þannig gegn grund vallarstefnu laganna að þessu leyti. Samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga nr. 55/1962 um kjarasamninga opin berra starfsmanna má krefjast end- urskoðnar kjarasamnings án upp- sagnar hans, verði almennar og verulegar kaupbreytingar á samn- ingstímabili. Þegar ljóst varð, að breytingar. var að vænta á kjörum á almenna vinnumarkaðnum krafðist fjármálaráðuneytið endurskoðunar Framhald á 11. síðu. Þannig leií glugginn út eftir að smíðað liafði verið fyrir gatið. Reykjavík — ÞG. - SJ. Bíræfið innbrot var framið í fyrri nótt hjá Sigurði Tómassyni og Jóni Dalmann á Skólavörðustígnum. — Þjófurinn braut stærstu rúðuna í verzluninni og tók 9 úr, svissnesk og rússnesk, úr glugganum. Rúðan var 2x4 m og 12 mm þykk. Aætlað verðmæti rúðunnar er um 30 þús. krónur og verðmæti úranna álíka. Verzlunin hefur hvorki úrin né rúðuna tryggða. Galli var í rúðunni og hefur verzlunin tvívegis fengið senda nýja rúðu, en þær verið Jirotn ar hingað komnar. Rúðan sem nú var brotin hefur verið í glugganum Framhald á 9. síðu. fjolgar um 1700 á hverju ári Starfandi fólki fjölgar þcssi árin um 1700 mannfs á ári, cn á áratugnum 1950—60 var meðalf jölgunin um 1000 manns á ári. Er hér því um mikla auknlingu að ræða á árlegri við- hót við f jölda starfandi fólks, sagði Gylfi Þ. - Gíslason, við skiptamálaróðherra á aðalfundi Kaupmannasamtakanna í gær. H.ann hélt áfram: Þegar jafnmiklir erfiðleikar steðja’ að og átt hefur sér stað undanfarin ár og mikill samdráttur verður í útflutningsframleiðslunni vegna aflabrestsins og verðfallsins, hlýtur þessi mikla aukning á fjölda starf- andi fólks að valda sérstaklega mikl- um erfiðleikum. Um síðastliðin áramót voru atvinnuleysingjar tald- ir um 2200, en sjómannaverkfallið jók að sjálfsögðu mjög á tölu at- vinnulausra og komst hún upp í 5500 í lok janúar. A Vestfjörðum, þar sem engin töf varð á útgerð vegna verkfallsins, var atvinnuleysi hins vegar nær ekkert eða aðeins 124 menn. Eftir að sjómannavcrkfallið leyst- Hinn árlcgi bókamaikaður er að hefjast og er frétt um hann á 3. síðu. ist, hefur dregið mjög úr atvinnu- leysinu. Margt bendir þó til þess, að jafnvel góð vertíð leysi atvinnu- vandamálið ekki að fullu. Fyrst og fremst af þeim sökum hefur átvinnu rnálanefndunum verið komið á fót og ákveðið, að þær fái 300 millj. króna til ráðstöfunar í atvinnuaukn- ingar skyni, auk þess sem tryggt hefur verið aukið lánsfé til hús- hygginga til þess að örva atvinnu í hyggingariðnaðinum. Annars er erfitt að segja til um það fyrr en lengra líður á vertíðina, til hvaða ráðstafana þarf að grípa til þess að eyða atvinnuleysinu, en það hlýt- ur að vera eitt af meginverkefnum iíðandi stundar að uppræta það. Um útlit og horfur sagði Gylfi: „Með hliðsjon af þeim stórfelldu Breytingum, sem orðið hafa á af- komu þjóðarbúsins sem heildar og á einstökum sviðum þess á undan- förnurn tveim árum, er að sjálf- sögðu ógerningur að fullyrða nokk- uð um horfurnar á því ári, sem nú er nýbyrjað. Það eitt er víst, að árið verður erfitt. Ahrif áfallanna undanfarin ár, eru ekki enn kömin fram að fullu, en þeim mun ljúka á fyrri hluta þessa árs. Og sá rekstr- argrundvöllur, sem gengislækkun- in hefur fært, ekki aðeins útflutn- ingsatvinnuvegunum, heldur einnig íslenzkum iðnaði, á að geta orðið nýtt upphaf afturbata og nýrra frairu fara. En það ætti að vera öllum'luigs- andi mönnum Ijóst, að undir þess- um kringumstæðum geta lífskjör þjóðarinnar almennt því aðeins batnað að þjóðarframleiðslan aukist og útflutningur vaxi, en slíkt getur nú fyrst og fremst orðið með þeim hætti, að öll framleiðsluskilyrði séu hagnýtt og atvinna aukist. Góð afla- brögð og gott tíðarfar mundu að sjálfsögðu stuðla mjög að þessari þróun, en aflabrestur og erfið náttúruskilyrði rnundu tofvelda hana. En mergur málsins er sá, að lífskjör þjóðarinnar geta því aðeins farið að batna aftur, að framleiðslan aukist samfara því, að verðlagið haldist a.m.k. óbreytt. Raunveruleg Framhald á 9. siSu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ HEFUR lúeraS AÐ Listasafni íslands hafi verið boðið húsnæði í vöruskemmu í Skeifunni, en stjórn safnsins telji það ekki vera hentugt, og þar að auki muni þurfa að gera við það fyrir mikið fé.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.