Dagur - 08.04.1927, Qupperneq 7
14.-15. tbl.
DiOCE
57
CHEVROLET
Ef þið viljið fá sterka, fallega og ódýra farþega eða flutningabifreið, þá kaupið
Chevrolet. — Chevrolet bifreiðarnar hafa verið endurbættar á þessu ári meira
en nokkru sinni fyr. Svo nú fáið þið betri Chevrolet fyrir minna en áður, þrátt
fyrir endurbæturnar.
Verð á Chevrolet hér á staðnum:
5 farþega opin bifreið (Standard)...........................kr. 3400.00
5 — — - (Sport)................................- 3900.00
5 — lokuð — (2ja dyra)..............................— 4500.00
5 — — — (4ra dyra)..............................— 4900.00
Vöruflutningsbifreið (Truck)..............................— 3200.00
—»- ('/2 tons) .........................- 2650.00
Vöruflutninga og farþegabifreið sem hægt er að skifta um
yfirbyggingu á, á nokkrum mínútum..........................— 3600.00
Aðalumboðsmenn á Islandi
JÓH. ÓLAFSSON CO.,
RBKJAVÍK.
Allar upplýsingar og bækur með myndum um Chevrolet, fá þeir, sem óska,
hjá umboðsmanni okkar á Akureyri, Vilhjálmi Þór, kaupfélagsstjóra.
neyta hins góða færis og sýna
fram á kosti tillögunnar, hafa þeir
fylst hinni mestu gremju og jafn-
vel ofsóknarhug yfir því, að orðið
var við tilmælum þeirra og tillag-
an athuguð. — Þó bregður afstaða
1 il minningarritsins skoplegustu
Ijósi yfir málið, með því að hún
vekur grunsemdir um að á bak við
lillöguna og fleiri tillögur þeirra
iélaga standi að einhverju leyti
sjúkleiki sá er kallast metorða-
sýki. Þó er ekki líklegt að Bjarni
þjáist sjálfur að öðru en því, að
horfa upp á veikindi Stefáns.
Heyrt hefi eg því fleygt, að
liöggvið væri nærri sóma Kaupfé-
lags Eyfirðinga með því að kast-
að væri í slíkum umræðum rýrð á
ndurskoðendur félagsins. Eg fæ
ekki séð neitt vit í því, að þeir
eigi, vegna þeirrar aðstöðu, að
vera friðhelgir og óáreittir með
hverskonar vitleysu, sem þeim
kann áð þóknast að halda fram.
Tillög'um frá þeim mönnum ber
ekki að skapa aðra aðstöðu
en öðrum tillögum, sem fram
koma. Og er þeir ganga til varnar,
eins og þeir hafa nú leitast við að
gera, koma þeir fraan fyrir hönd
sjálfra sín, en ekki félagsins.
ileiður félagsins er óskertur, þó
e.ð þeim verði það á, að bera fram
vanhugsaða tillögu. Slíkt gæti
ltent fleiri félagsmenn. Og ekki
\'erður heiðri eða hamingju fé-
lagsins fremur borgið, þó faldir
eéu misbrestir á þekkingu og hæfi-
leikum þeirra félagsmanna, sem
lelja sig öðrum fremur til þess
kjörna, að bera fram tillögur um
starfsháttabreytingar í félaginu.
Að lokum skal það tekið fram,
að skrif þeirra Stefáns og Bjarna
liafa sannfært mig um þörf á auk-
inni samvinnufræðslu.
Jónas Þorbergsson.
------o-----
Símskeyti.
Rvík. 4. apríl.
Símað er frá London að hætt sé við að
Lng-land legg'i hafnbann á Suður-Kína
\egna Nanking-ofsóknanna á dögunum.
Frá ísafirði. Verkfall hefir verið gert
í Hnífsdal og þess krafist að dagkaup
hækki upp í 90 aura í almennri vinnu,
kr. 1.20 í eftirvinnu, kr. 1.50 í helgi-
daga- og næturvinnu. 60 tonn fiskjar
áttu að fara með Goðafossi og ætluðu
eigendur að skipa sjálfir út fiskinum.
Komu þá 300 manna á vettvang og
hindruðu útskipun.
Á Alþingi hafa verið samþykt lög um
rétt erlendra manna til þess að leita sér
atvinnu hér á landi og lög um varnir
gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma.
Rvík. 6. apríl.
Símað er frá London að Canton-her-
ii n sé kominn 200 mílur norður fyrir
1 ang'tze fljót.
Alþingi hefir afgreitt lög um afstöðu
fereldra til óskilgetinna barna.
Atkvæðagreiðslu við aðra umr. fjár-
lrga er lokið. Flestar breytingartillögur
nefndarinnar voru samþyktar en flestar
tillögur einstakra þingmanna feldar.
Niðurfelling fjárveitingar til sendiherra
í Khöfn var vísað frá af forseta sem
komandi í bág við önnur lög. Feldur var
styrkur til útgáfufyrirtækisins »Lýð-
mentunar«.
Afli yfirleitt tregari.
Helgi Zoega byrjar að senda, fyrir
enskan útgerðarmann, mánaðarsending-
ar af nýjum fiski til Englands. Fyrir-
komulag kolaveiða verður þannig, að
kolinn verður veiddur í dragnætur og'
geymdur lifandi í þar til gerðum köss-
um- þangað til hann verður fluttur út.
-------o------
F r é 11 i r.
— Það sorglega slys varð í Grímsey
nýlega, að sonur prestsins þar Matthí-
asar Eggertssonar, Willard Fiske að
nafni, varð fyrir grjóthruni úr bjarginu
og' beið þegar bana. Var hann á fugla-
veiðum austan við eyjuna, undir bjarg'-
inu og var að bera fuglakippu upp svo-
nefnda gjá, sem er einskonar klauf í
bjargið. í g'jánni er berghaft, sem nefn-
ist »Kast« og þurfa þeir er fara um
gjána að handstyrkja sig þar upp og
ofan. Þegar Fiske var í þessu svonefnda
Kasti, hljóp grjót úr bjarginu eins og
fyr var sagt. Williard Fiske var 22 ára
að aldri og hinn mesi efnismaður. Faðir
hans var staddur hér á Akureyri er
slysið varð en fór heimleiðis i gærmorg-
im.
— Esja kom á mánudaginn. Flutti
hún hingað lík frú Thoru Havsteen frá
Húsavík og fór jarðarföi'in hér fram á
miðvikudaginn að viðstöddu fjölmenni.
— Þeir tveir taugaveikissjúklingar,
sem um var getið í síðasta blaði, eru,
samkv. upplýsingum héraðslæknis, nú á
g'óðum batavegi. Voru tilfellin bæði
mjög væg. Telur hérðaslæknir miklar
líkur til, að ekki verði meiri brögð að
veikinni.
— Sveinbjörn Högnason prestur í
Laufási sté í stólinn í Akureyrarkirkju
á sunnudaginn var. Aðsókn að kirkjunni
var hin mesta. Þótti ræða prestsins á-
gæt. Fer og mikið orð af þessum presti
fyrir sakir gáfna, lærdóms og val-
mensku. Hann hefir nýlega verið kosinn
prestur til Breiðabólsstaðar í Fljótshlíð
og' flytur þangað búferlum nú í vor.
Þykir sóknarbörnum hans að honum
mikil eftirsjá. Talið er að húsakynni í
Laufási séu svo bágborin að verða, að
þar muni enginn prestur haldast við.
Virðist sálarheill fólks í Laufáspresta-
kalli vera með því stefnt í voða, ef ekki
er að gert.
— Esja fór vestur um á mánudaginn.
Meðal farþega var Sigurður Jónsson
bóndi á Arnarvatni. Var för hans heit-
ið til Borgai-fjarðar, til þess að flytja
þar fyrirlestra um samvinnumál.
— Nýlega andaðist á Vífilsstaðahæli
Axel Wilhelmsson bókhaldari hjá Höepf-
ners verzlun hér í bænum. Hann var
kvæntur Margrétu Karlsdóttur frá
Bjargi í Miðfirði og er látinn frá konu
og fjórum börnum.
1
A víðavangi.
B. Á.
kemst að þeirri niðurstöðu að
sjálstæðisbarátta íslendinga hafi
að nokkru verið orsök þess, að
Georg Brandes var í andstöðu við
hægrimannastjórnina í Dan-
mörku! Þannig hafi hann verið
»hlyntur íslendingum í allri sjálf-
stæðisbaráttu þeirra, alt fram að
árinu 1908«. Höfuðsönnunin eru
þó nokkur skjallyrði um íslend-
inga tekin úr ræðu eftir G. B. Hitt
finst B. Á. ekki tiltökumál, að G.
B. snerist gegn fánakröfu okkar
og sjálfstæðismáli, þegar mest á
reyndi, með fjandskap og napr-
asta háði, sem nokkur Stórdani
hefir nokkru sinni beitt gegn Is-
lendingum. Slíkar söguskýringar
munu vera fágætar.
þingsaga Jónasar Kristjánssonar,
þó stutt sé sýnir, að tilgáta rit-
stj. Dags um hæfileikaskort hans,
til þess að sitja á þingi, hefir ekki
verið fjarri réttu lagi. Hann hefir
nú vakið á sér eftirtekt um land
alt fyrir framkomu í tveimur mál-
um á þingi. Þykir framkoman svo
afleit og óheyrileg að æstustu fylg-
ismenn íhaldsins reyna ekki að
mæla honum bót að því er snertir
síðara málið. í fáum orðum sagt
hefir J. Kr. drepið með atkvæði
sínu í Ed. það mál, er ætla mætti
að væri hið mesta áhugamál Stór-
stúkunnar, þar sem reynt var að
reisa skorður gegn skaðsamlegum
afleiðingum af ofnautn áfengis. í
öðru lagi hefir hann drepið með
atkvæði sínu í Sþ. mál, sem hann
bar sjálfur fram. Atkvæðasigur
íhaldsins á síðastl. hausti virðist
Veggfóður
nýkomið til
Hallgríms Kristjdnssonar.
hafa orðið því fremur til stundar-
gleði en að hann verði því til lang-
varandi frægðar.
1943.
Það hefir verið fært í umtal oft-
ar en einusinni, að árið 1943 þurfi
ísland að verða skuldlaust út á við.
Einkurn hefir Jón Þorláksson látið
á því bera að slíkt væri markmið
sitt í fjármálastjórninni og mun
jafnvel ekki örgrant um að hann
telji slíkt köllun sína sem fjár-
málamanns. Því miður virðist
hahn, við gengishækkunarstefnu
sína, hafa fremur fjarlægst þetta
stóra markmið. Atvinnuvegir
landsins eru nú komnir í slíkt öng-
þveiti, að lán verður að taka á lán
ofan án þess að nein merki sjáist
viðreisnar.
,,Luxus'‘-bifreiðarnar.
ólafur Thors ber fram í þinginu
frumv. um að bifreiðaskatturinn
skuli hér eftir lagður á benzinið,
sem notað er en ekki á hestorku
bifreiðanna. Þetta er hið ógeðsleg-
asta sérdrægnismál. Þeir sem eiga
stóra og sterka »luxus«-bíla
myndu sleppa við gjöld, en þeir
sem beita bifreiðum til samgöngu-
bóta yrðu að greiða margfalt
hærri skatt. Sanngimi mælir með,
að þeir sem eru svo efnum búnir
að þeir geta átt »luxus«-bíla,
greiði skatt til móts við.hina sem
leggja bifreiðar sínar í flutninga
á íslenzkum vegum.