Dagur - 19.02.1947, Side 1
Vígslubiskup á batavegi
Aðstoðarprestur settur hér
bráðlega.
Síra Friðrik J. Rafnar vígslu-
biskup, veiktist skyndilega í byrj-
un sl. viku og hefir legið rúmfast-
ur síðan. Hann er nú á batavegi,
en mun samt ekki geta sinnt
prestverkunr fyrst um sinn. Ná-
grannaprestarfiir síra Sigurður
Stefánsson og síra Benjamín
Kristjánsson, liafa tekið að sér að
þjóna hér, þar til aðstoðarprest-
ur verður settur, sem búizt er við
að verði alveg á nasstunni.
Heyrzt hefir að aðstoðarprest-
urinn verði Pétur Sigurgeirsson,
Sigurðssonar biskups.
Flugmálaráðherra í heim-
sókn hér í boði Flug-
félagsins
Síðastliðinn sunnudag kom
Eysteinn Jónsson, flugmálaráð-
lierra í stutta heimsókn hingað, í
boði Flugfélags íslands h.f. í för-
inni voru einnig nokkrir úr
stjórn félagsins og framkvæmda-
stjóri þess. Gestirnir höfðu
stutta viðdvöl hér i bænum. —
Þenna dag var veður fagurt og
fjöldi Reykvíkinga í „háfjalla-
flugi“ yfár landinu, með hinum
nýju Douglas Dakotaflugvélum
Flugfélagsins.
Sendinefndir til Bret-
lands og Russlands
Um miðjan mánuðinn lögðu
tvær sendinefndir héðan af stað
til Bretlands og Sovét-Rússlands,
í erindum ríkisstjórnarinnar, til
þess að leita fyrir sér um verzlun-
arsamninga, einkum þó fisksölu,
til þessara ríkja. Sex rnenn eru í
förinni til hvors ríkisins um sig.
Nýja stjórnin hefir sýnt rögg-
semi í því, að leita samninga við
þessi lönd strax eftir valdatöku
sína, en vafasamt virðist að halda
jteirri stefnu gömlu stjórnarinn-
ar, að gera út fjölmenna og dýra
leiðangra í hvert sinn sem ríkið
þarf að reka erindi erlendis.
Árangurinn af svona sendiferð-
um fer alls ekki eftir því hversu
mannmargar og dýrar nefndirn-
ar eru.
Kosið í nefndir
í bæjarstjórn
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
fór fram kosning í nefndir, sem
kosið er í árlega. Þá var og kosið
bæjarráð og forseti bæjarstjórn-
ar. Engar verulegar mannabreyt-
ingar urðu að þessu sinni í
meiriháttar nefndum. Forseti var
kjörinn Þorsteinn M. Jónsson, en
varaforseti Indriði Helgason. í
bæjarráði eiga þessir menn sæti:
Jakob Frímannsson, Friðjón
Skarphéðinsson, Indriði Helga-
son og Tryggvi Helgason. Varra-
menn eru Þorsteinn M. Jónsson,
Steindór Steindórsson, Jón G.
Sólnes og Steingrímur Aðal-
steinsson.
LL
AGIJR
XXX. árg.
\kureyri, miðvikudaginn 19. febrúar 1947
7. tbl.
Búnaðarfélagið elnir lil landbúnaðarsýningar nú í sumar
Hin fyrirhugaða fljótandi síldarverk-
smiðja Norðmanna hér við land boðar
aukna áhættu fyrir ísL síldarútveg
Engri þjóð má leyfa afnot af íslenzkri
landhelgi fyrir slíkt fyrirtæki
Ríkisútvarpið og sunnanblöð-
in hafa birt athugasemdalaust
norska fxegn þess efnis, að út-
gerðarmenn í Álasundi hafi j
áhuga fyrir því, að senda fljót-.
andi síldarverksmiðju á síldar-
miðin hér við land á sumri kom-1
anda. Undirbúningur er sagður 1
halfinn, en útgerðarmennirnir
telja, að mikið sé undir því kom-
ið, að góðir samningar takist við
íslenzk stjómarvöld um mál
þetta. í
Ef fregn þessi er ekki grípin úr
lausu lofti, má ætla, að umleitan-
ir norskra stjómarvalda í þessa
átt muni hefjastbráðlega.Hvern-
ig hyggjast íslendingar að taka
málinu? Engar opinberar yfirlýs-
ingar liggja fyrir um það, en ætla 1
má, að þau svör verði í samræmi
við hag útgerðarinnar hér og
skoðun útgerðarmanna. Dagur
hefir rætt þetta mál við nokkra
síldarútgerðarmenn hér og beðið
þá að láta uppi álit sitt á þessari
málaleitun norslcra síldarútvegs-
manna. Þeim mönnum, er mesta
reynslu hafa í síldarútgerð hér,
ber Saman um, að fljótandi norsk
síldarverksmiðja hér á miðun-
um, er hefði samninga um að
geta leitað landvars, er þurfa
þætti, væri hinn versti vágestur
fyrir íslenzku síldarútgerðina.
Slík verksmiðja mundi að sumu
leyti hafa betri aðstöðu en verk-
smiðjurnar í landi og hún mundi
auðvelda og bæta mjög aðstöðu
norsku síldveiðiskipanna frá því
■em verið hefir og þar með gera
norska samkeppni á síldarmark-
'aðnum hættulegri fyrir okkur en
nú er. I annan stað benda sumir
útgerðarmenn á, að vinnsla síftl-
ar í slíkri verksmiðju á sjálfum
miðunum, geti halft áhrif á veið-
ina, vegna úrgangs, er frá henni
fellur, og olíu- og lýsisbrákar, er
mundi leggja yfir stóra hluta
veiðisvæðisins.
Það virðist liggja í augum
uppi, að beiðni Norðmanna um
sérstök réttindi til handa fljót-
andi síldarverksmiðju af þessu
tagi, fylgir mikil áliætta fyrir ís-
lenzkan síldarútveg, fíklega meiri
en svo, að forsvaranlegt sé að
verða við henni. Þá er þess og að
gæta, að ef einni erlendri þjóð
yrðu veitt slík forréttindi, er
hætt við að fleiri vildu koma í
kjölfarið og yrði þá erfitt að
standa á móti. Yfirleitt mun það
skoðun útvegsmanna, að vinna
beri að því, að bægja erlendri
ásælni frá fiskimiðum okkar,
vinna að stækkun landhelginnar
og friðun einstakra uppeldis-
svæða við strendur landsins, en
ekki að veita nokkurri þjóð til-
slökun á þeim ákvæðum, er nú
gild'a, einkum þar sem viður-
kennt er, að nauðungarsamning-
ar þeir um landhelgina, er nú
gilda, veiti erlendum Ifiskimönn-
um meiri réttindi hér við land,
en unnt er að una tiil lengdar,
séistaklega þar sem augljóst er,
að efnahagsleg og pólitísk fram-
tíð landsins er nátengd hagsæld
sjávarútvegsins og . þeirri upp-
byggingu, er þar þarf að fara
fram
Að öllu þessu athuguðu, er
þess að vænta, að öllum málaleit-
unum erlendra þjóða um aukin
fríðindi á fiskimiðum landsins,
verði skilyrðislaust hafnað af ís-
lenzkri hálfu.
Aðalfundur Framsóknar-
félagsins næstkomandi
mánudagskvöld
Fyrsti Nýbyggingar-
togarinn kominn
Fyrsti Nýbyggingartogarinn,
Ingólfur Arnarson, kom til
Reykjavíkur sl. mánudag. Er
hann eign Reykjavíkurbæjar. —
Togaranum var fagnað með há-
tíðlegri athöfn.
Eins og auglýst er annars stað-
ar í blaðinu, verður aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
haldinn í Gildaskála KEA n.k.
mánudagskvöld. Dagskrá samkv.
félagslögum, en auk þess mun
dr. Kristinn Guðmundsson hafa
framsögu í umræðum um hag-
fræðinganefndarálitið, ef tími
vinnst til. Félagsmenn eru
áminntir um að mæta stundvísl.
Forsetaefni 1948?
Nýlega hafa forystumenn Demo-
krataflokksins í Bandaríkjunum til-
kynnt, að Harry S. Truman núv.
forseti, muni gefa kost á sér sem
forsetaefni flokksins í kosningun-
um, sem íram eiga að fara í nóv-
ember 1948. Repúblikanar hafa
ekkert tilkynnt um forsetaefni enn-
þá, en mestar líkur eru til þess að
fyrir valinu verði Thomas E. De-
wey, fylkisstjóri í New York. —
Mytidin hér að ofan er af honum.
Frá Bridgefél. Akureyrar
Sýningarnefnd hyggst að
skipuleggja hópferðir til
Reykjavíkur í samvinnu
við kaupfélögin og bún-
aðarfélögin
Hinn 16. þ. m. hófst bridge-
keppni í meistaraflokki B. A. á
Gildaskála KEA. Sex sveitir
keppa. Sveitirnar eru: Sveit no. 1
Þórður Sveinsson, Vernharður
Sveinsson, Sigtr. Júlíusson, Tóm-
as Steingrímsson. Sveit no. 2
Halldór Asgeirsson, Snorri Guð-
mundsson, Árni Sigurðsson, Ein-
ar Sigurðsson. Sveit no. 3 Jóhann
Snorrason, Ármann Helgason,
Indriði Pálmason, Jónas Stefáns-
son. Sveit no. 4 Þorsteinn Stef-
ánsson, Þorlákur Jónsson, Jón
G. Sólnes, Friðrik Hjaltalín.
Sveit no. 5 Svafar Zophóníasson,
Jón Steingrímsson, Björn Einars-
son, Axel Jóhannsson. Sveit no.
G Vilhjálmur Aðalsteinsson,
Ágúst Berg, Ragnar Skjóldal,
Þórir Guðjónsson .Hver sveit er
kennd við fyrsttalda mann. Sveit
Þorsteins Stefánssonar vann síð-
astliðinn vetur Morgunblaðs-
skjöldinn, er þá var keppt um í
fyrsta sinn.
Sveitir þeirra Svafars Zophóní-
'sonar og Vilhjálms Aðalsteins-
sonar urðu efstar í 1. flokks-
keppni, er fram fór fyrri hluta
þessa vetrar, og fengu þar með
rétt til þess að keppa í meistara-
flokki. Þær 4 sveitir, er flesta fá
vinninga, skipa áfram meistara-
flokk en 2 fara niður í fyrsta
flokk. í fyrstu umferð unnu þess-
ar sveitir: Sveit Þorsteins Stefáns-
onar, sveit Þórðar Sveinssonar
og sveit Svafars Zophóníassonar.
Búnaðarfélag íslands hefir
ákveðið að hallda landbúnaðar-
sýningu í Reykjavík í sumar.
Er ætlunin, að sýningin verði
opnuð í lok júnímánaðar og
standi yfir í 10—15 daga. Sýning-
unni verður skipt í 10—12 deildir
og í sambandi við hana verða
flutt erindi og sýndar kvikmynd-
ir um búnaðarhætti landsmúnna.
Reynt verður, í samvinnu við
kaupfélög og búnaðarfélög, að
skipuleggja hópferðir fólks utan
af landi til Reykjavíkur, meðan
á sýningunni stendur.
U ndirbúningur.
Oft hefur verið rætt um land-
búnaðarsýningu bg var undir-
búningur slíkrar sýningar, þótt í
minni mæli væri, hafinn sumar-
ið 1940, er hernámið gerði þær
fyrirætlanir að engu. Sú sýning
átti að verða hér á Akureyri.
Málinu var næst hreyft haustið
1945 og ákvað Búnaðarfélag ís-
lands þá að gangast fyrir sýningu
árið 1947. Félagið ritaði 20 fé-
lögum og stofnunum, er annast
mál landbúnaðarins, og æskti
þátttöku þeirra í sýningarundir-
búningnum og urðu allir við
þeim tilmælum og var stofnsett
24 manna sýningarráð. Fyrsti
fundur þessa ráðs var haldinn í
Reykjavík um miðjan október
sl. og var þá kjörin fimm manna
sýningarnefnd og skipa hana
þessir menn: Steingrímur Stein-
þórsson, búnaðarmálastj., Árni
G. Eyiands, stjórnarráðsfulltrúi,
Einar Ólafsson, bóndi, Guðm.
Jónsson, sandgræðslustjóri og
Ragna Sigurðard., kaupkona.
Framkvæmdastjóri var ráðinn
Kristjón Kristjónsson, fulltrúi
hjá SlS.
Sýningarsvæðið.
Sýningunni hefur verið valinn
staður í nánd við flugvöllinn í
Reykjavík. Er l^ndrými þar nóg
og sýningin fær auk þess afnot
af stórri flugvélaskemmu.
Deild'askipting.
10—12 deildir eru fyrirhugaf
ar á sýningunni og á hver þeirr
að fjalla um sérstakan þátt 1
lenzks landbúnaðar. — Helzt
deildir verða: Búfé, garðyrkj:
heimilisiðnaður, bygginga:
mjólkuriðnaður, kjötafurði
jarðrækt, skógrækt og sam
(Framhald á 8. síðu).