Dagur - 19.02.1947, Síða 2
D AG U R
Miðvikudagur 19. febrúar 1947
Aðkoma nýju
stjórnárinnar
Síðan stjórnarskiptin urðip
hafa sum blöð Sjálfstæðisflokks-
ins og jafnvel kommúnistablöðin
líka látið í það skína, að það sé
hægur vandi fyrir nýju stjórnina
að taka við stýrinu á þjóðarskút-
unni, af því að fyrrverandi stjórn
Ólafs Thors hafi búið svo íyrii^-
taks vel í hendurnar á henni með
nýsköpunarstarfi sínu. Fyrrver-
andi forsætisráðherra gaf blöð-
um sínum þenna tón í stuttri
ræðu, er hann flutti á Alþingi
við stjórnarskiptin.
Ef nýsköpunarstarfið hefir
gengið eins vel og af er látið, er
það óskiljanlegt að Ólafur Thors
skyldi biðjast ‘lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt, hlaupast á brqjt
frá öllum nýsköpunarahekunum
með nægan þingmeirihluta að
ba’ki sér og traustsyfirlýsingu
meirihluta kjósenda frá síðustu
kosningum til Alþingis. Sjálf-
stæðisflokksforingjarnir höfðu á
undanförnu stjórnartímabili tal-
ið Framsóknarmenn „höfuð-
fjanda“ allrar nýsköpunar, en
enda svo með því að gera stjórn-
arsamband við Framsóknarflokk-
inn.
Allt þetta ber þess glögg merki,
að foringjar Sjálfstæðisflokksins
hafi iverið orðnir sér þess meðvit-
andi, að stjórnin í nýsköpunar-
'starfinu hafi verið stórmislukk-
uð í höndum fyrrverandi stjórn-
ar, og að lýsingar þeirra á bar-
áttu Framsóknarmanna gegn ný-
sköpuninni hafi aðeins verið
'kosningaáróður í augum þeirra
sjálfra.
*
En hvernig er þá gðkoman fyr-
ii nýju stjórnina? Hvernig hefir
stjórn Ólafs Thors búið henni í
hendur?
í fæstum orðum er ástandið m.
a. við stjórnarskiptin á þessa leið
í stórum dráttum:
Sá 1200-1300 milj. kr. gjald-
eyrir, sem fyrrv. stjórn hafði til
ráðstöfunar á rúmlega tveggja
ára valdatíð sinni, er allur til
þurrðar genginn eða honum ráð-
stafað. Aðeins 300 milj. kr. af
þessari feikna upphæð hefir ver-
ið varið til nýsköpunar, og enn
vantar ógrynni af nýjum vélum
og tækjum til framleiðslunnar.
Ekkert fé er því fyrir hendi til
framhaldandi jiýsköpunar at-
vinnuveganna, og er því eitt af
hinum erfiðu verkefnum nýju
stjórnarinnar að afla fjár í þessu
skyni.
Nýsköpunin, þetta aðaláhuga-
mál fyrrv. stjórnar, sem hún taldi
vera, var því raunverulega komið
í strand við stjórnarskiptin.
Stjórn Ólafs Thors varð ráðalaus
og gafst upp við að bjarga ný-
sköpuninni af skerinu, er hún
hafði siglt því upp á vegna ófor-
sjálni og áttavillu. Þess vegna
baðst hún lausnar.
Þó að nýju stjórninni takist
björgunarstarfið, sem allir nema
fyriiliðar kommúnista vona, þá
verður það afar örðugt eins og
allt er í pottinn* búið af fyrrv.
stjórn. Málefnasamningur henn-
ar sýnir, að hún vill bæta íyrir
syndir Ólafíu sálugu.
Bátaútvegurinn, sem er einn
af aðalatvinnuvegum þjóðarinn-
ar, er þannig á vegi staddur við
stjórnarskiptin, að hann verður
ekki rekinn nema með ríkis-
ábyrgð, og getur sú ábyrgð kost-
að ríkið tugi milj. kr. á þessu ári.
Alveg sérstaklega þóttist fyrrv.
stjórn ætla að nýskapa sjávarút-
veginn, en sú nýsköpun hefir tek-
izt hörmulega.
Fjárlög þau, sem ligg'ja fyrir
Alþingi frá hendi fyrrv. stjórnar,
eru með 50—60 milj. kr. rekstrar-
halla .Má fara nærri um að ekki
verður auðhlaupið að því fyrir
nýju stjórnina að afla tékna til að
mæta hallanum, en samkvæmt
málefnasamningnum setur
stjórnin sér það mark að afgreiða
rekstrarhallalaus fjárlög eins og
sjálfsagt er.
Hér við bætist að við stjórnar-
skiptin höfðu engir samningar
um fisksöluna á þessu ári verið
gerðir, að dýrtíðarvísitalan hefir
fárið síhækkandi undanfarna
mánuði og margs konar brask-
starfsemi og fjármálaspilling hef-
ir jrróast í skjóli stjórnarstefn-
unnar á sama tíma.
*
Það er því sannarlega ekki til
fagnaðar að flasa fyrir nýju
stjórnina að finna úrlausnir til
bóta á hinum stórfelldu vanda-
málum, sem hún tekur við af
gömlu stjóminni. Það er ólík að-
staða hinnar nýju stjórnar nú
eða íiinnar gömlu haustið 1944.
Þá voru mörg hundruð miljónir
króna fyrir hendi til ráðstöfunar.
Nú ekkert sambærilegt. Þá var
dýrtíðin viðráðanleg í saman-
burði við það, sem nú er. Aldrei
hafa glæsileg tækifæri verið not-
uð eins illa sem á undaníörnu
stjórnartímabili Ólafs Thors og
kommúnista. Þar hefir aldrei
verið unnig markvisst að ákveðn-
um stefnumiðum, heldur hefir
funr og handahóf ráði, kryddað
gleiðgosalegum skrumauglýsing-
um.
Það er nauðsynlegt að þjóðin
átti sig sem bezt á þeim erfiðleik-
um, sem nýja stjórnin hlýtur að
eiga við að stríða, og sem er að
mestu arfur frá óstjórn fyrirfar-
andi ára. Enginn má gera sér í
hugarlund, að uppbyggingar-
sfarfið, sem bíður hennar, verði
leikur einn. Standi stjórnin vel í
stöðu sinni, sem sjálfsagt er að
gera kröfur til, verður uppbygg-
ingarstarfið þrotlaust erfiði og
áhyggjur fyrir hana og flokka þá,
sem að henni standa. Þá reynir
ekki hvað sízt á þegnskap al-
mennings um að skorast ekki
undan að taka á sig skyldur og
kvaðir, sem samfara verða til-
raunum til endurreisnar, á með-
an verið er að koma fjármálun-
um o. fl. á réttan kjöl.
*
Það má nokkurn veginn sjá
fyrir þær leikreglur, sem klíka
Ólafs Thors innan Sjálfstæðisfl.
og stjórnarandstæðingar (komm-
únistar) munu temja sér fyrst um
sinn. Verði stjórninni sæmilega
ágegnt í endurreisnarstarfinu og
hljóti almennar vinsældir fyrir,
verður það þakkað nýsköpunar-
afrekum fyrrverandi stjórnar.
Vaxi liins vegar erfiðleikarnir
stjórninni að einhverju leyti yfir
Iröfuð, svo að viðreisnarstarfið
gangi seinna en ætlað var, verða
hafin óp um ónytjungshátt henn-
ar, þar eð hún reynist þess ekki
megnuð að halda áfram nýsköp-
unarstarfi fyrrv. stjórnar, sem
hún hafi þó verið búin að hrinda
svo fallega af stað og leggja svo
fjárhagslega traustan grundvöll
undir!
Á þenna hátt verður reynt að
gylla Ólafíu sálugu.
En í sambandi við þá lofgjörð
er gott að minnast orða Snorra
Sturlusonar, er standa í Prologus
hans fyrir Heimskringu.
Snorra farast svo orð:
„Heð Haraldi váru skáld, ok
kunna menn enn kvæði þeirra ok
allra konunga kvæði, jreirra er
síðan hafa verit at Noregi, ok töl-
um vér þar mest dæmi af því, er
sagt er í þeim kvæðum, er kveðin
váru fyrir sjálfum höfðingjunum
eða sonum þeirra. Tökum vér
þat allt fyrir satt, er í þeim kvæð-
um linnsk um ferðir þeirra eða
orrustur. En þat er háttr skálda
at lofa þann mest, e) þá eru þeir
fyrir, en engi myndi þat þora at
segja sjálfum honum þau verk
hans, er allir þeir, er heyrði,
vissi, at hégómi væri ok skrök, ok
svo sjálfr hann. Þat væri þá háð
en eigi lof.“
'Það væri hollt fyrir dýrkendur
og hirðskáld Ólafs Thors og
stjórnar hans að athuga grand-
gæfilega þessi yiturlegu ummæli
Snorra. Það gæti varnað því, að
þeir færi með hégóma og skrök,
er þeir segja frá verkurn hans.
Það gæti ef til vill firrt þá þeirri
smán að bera lof á stjórn Ólafs
Thors, sem sjálfur hann og allir
aðrir vita að er háð en ekki lof.
Ölafi Thors er ekki treystandi
til að biðja hirðskáld sín að hlífa
sér við hégómanum og skrökun-
um um stjórnmálaafrek hans. Til
þess rpun hann of hégómlegur
sjálfur.
UM VIÐA VERÖLD
Nýlega var hleypt at stokkunum í
Hull nýjum togara, er Færeyingar eru
að láta smíða, og verður það fyrsti
nýji togarinn, sem til eyjanna þemur.
Skipinu var geíið nafnið „Nolsoyar
Páll“. Færeyingar eiga annan togara í
smíðum í Hull. Samkvæmt frásögn
brezka blaðsins, The Fishing News,
er hér um að ræða stór og mjög vönd-
uð skip, búin öllum nýjustu tækjum.
Fyrirtæki í Kritianssand í Noregi
er byrjað að smiða lifbáta fyrir skip
úr alúm'míum, í allstórum stil. Vekur
þessi nýjung athygli meðal norskra
fiskimanna og farmanna:
'—,
Norska ríkið áætlar 364,000 kr.
fjárveitingu á þessu ári til vísinda-
rannsókna í norðurvegum.
Svíar hafa skuldbundið sig til þess
að selja Rússum á þessu ári ekki
minna magn en 20 millj. kg. af þorski
og síld.
Arnulf Överland er kommúnistum þungur
í skauti
Ræðir um ástandið í Finnlandi í viðtali við sænskt blað.
Noiska skaldið Arnulf Över-
land var eitt sinn í miklu uppá-
lialdi hjá kommúnistum. Hann
\ar eitt af þeim fínu nöfnum,
sem kommúnistablöðunum á
N orðurlöndum þótti gott að
ílagga með. Nú er orðin nokkur
breyting á þessur Kommúnista-
blöðin eru hætt að vitna í Över-
land. Fyrir stríðið ságði liann
sannleikann um Þýzkaland og
nazismann. Þá voru orð hans í
hávegum. Nú er hann tekinn
upp á því að segja sannleikann
um liina rússnesku yfirráða-
stefnu og kommúnisma Stalins
og þá hentar það ekki lengur, að
birta ummaéli hans í trúboðsrit-
um kommúni.stanna.
Nýlega átti Överland langt
viðtal við sænska blaðið Göte-
borgs Handels- og Sjöfartstidn-
ing. í því sagði hann m. a.:
„Mér virtist rússnesku skýring-
arnar á árásinni á Finnland árið
1939 í hæsta máta skamm^rlegar.
Samkvæmt þeim á það að vera
leyfilegt, að leggja sjálfstæði ann-
arrar þjóðar í rústir til þess að
tryggja sjálfstæði sinnar eigin
þjóðar. Hvers konar siðfræði er
^lað? Sá, sem ver slíkar aðfarir ér
ineðsekur í glæpnum. Stalin
hafði alls ekki hugsað sér að
heyja stríð við Þýzkaland árið
1939. Hann hafði þá gert griða-
samning við Hitlfer og átti í
samningum við hann um þátt-
töku í bandalagi Öxulríkjanna,
'sem þá hefðu orðið Þýzkaland,
Japan, Ítalía og Sovét-Rússland."
Teljið þér friðarsamningana
við Finnland óvæga?
„Já, mér finnst ekkert undar
legt við það þótt Finnar hyggðu
á liefndir eftir að búið var að
kuga þá til þess að láta af hendi
mikil lönd."
Överland tekur það fram, að
hann hafi ekki trú á því, að nýr
„skandinavismi" geti orðið Finn-
um að neinu liði í leit að réttar-
bótum, en hann hyggur að Finn-
ar þori ekki að fara fram á væg-
arrskilmála, af ótta við hefmjar-
ráðstafanir.
„Eg lít því svo á, að myrkt sé
yfir framtíð Finnlands, því að
kúgunaraðferðirnar í dag eru
fullkomnari en á dögum zarsins.“
í lok viðtal'sins tekur Överland
það fram, að hann sé sósíalisti,
en ekki byltingamaður.
„Það er lara slúður,“ svarar
hann, þegar blaðamaðurinn spyr
hann að því hvort satt sé, að
liann hafi orðið kristinn á því
tímabili er hann sat í fangabúð-
um nazista.
;*HKW«HKHKHK««K««H>Oaa«aaaOOaaaaaaaaaoaaa«aaaaí«Krt««KW
Strigaskór
með gúmmíbotnum,
fyrirliggjandi
SK0BUÐ KEA
úíHKHKrtHKiaaa^KHKHKWWHKKWrtrtrtHKrtHKKHKrtHKrtHKHKHKWHKKHaíÆ
oaaaaaaaaiKKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKKrtía
Búnaðarsambönd Búnaðarfélög
ATHUGIÐ!
Höfum fyrirliggjandi allar tegundir af matjurta-
fræi. Einnig blómafræ. Gerið pantanir yðar í tíma.
Sendum gegn eftirkröfu hvert á land sem er.
Blómabúð KEA
i ^
000000000000000000000000000000000000000000000000000«
KKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKHKHKHKHK
Segldúkur
90 cm. breiður
Kaupfélag Eyfirðinga
V ef naðarvörudeild
íhKhKhkhKhKhKhKhKhKhKhKHKhKkKhKhKhKHKhKhKhKhkHKhKKHWH
/