Dagur - 19.02.1947, Síða 3
Miðvikudagur 19. febrúar 1947
D A G U R
3
Hagfræðingarnir lýsa undirstöðum n/sköpunarinnar:
Gkkert skipulag á fjárfestingunni -
engar hömlur á neyzlu
Stefna fráfarandi stjórnar hafði stöðvað
alla raunhæfa nýsköpun
Hér í blaðinu var fyrir nokkru
rakinn sá hluti greinargerðar
hagfræðinganelndarinnar, er
fjallar um gjaldeyrismálin og
hina hóflausu gjaldeyriseyðslu,
er tíðkaðist í tíð fyrrv. stjórnar.
Þegar hagfræðingdrnjr hafa rætt
um gjaldeyrismálin, víkja þeir
að fjárfestingunni. Einnig þar
héfir handahófið og ráðleysið
eiríkennt feril stjórnarinnar og
bendir nefndin á, að hinar svo-
kölluðu nýsköpunarframkvæmd-
ir í þágu atvinnuveganna hafi
verið um það bil að stöðvast „og
því lengur, sem núverandi
ástand ríkir, því meiri brögð
munu þó verða á þessu, og er al-
ger stöðvun yfirvöfandi í þessum
£ramkvæmdum.“
í framhaldi álitsins segir síðan
um þessi mál:
„Orsakir þessa ástands, sem
þannig hefir skapazt, má í stuttu
máli segja, að séu þær helztar, að
ekkert skipulag hefir verið á fjár-
festingu og engar hömlur á
neyzlu. A sama tíma og hrinda
hefir átt í framkvæmd nýsköpun-
inni, hafa ríki, sveitaafélög og
ýmsar opinberar stofnanir etfnt
til gífurlegra framkvæmda, sem
sumar hafa staðið í nánu sam-
bandi við hina eigilegu nýsköp-
un en aðrar ekki. .... Eingstakl-
ingar hafa einnig stofnað til fjár-
festingar í miklu stórkostlegri
mæli erí nokkm sinni fyrr, og er
þar fyrst og fremst um að ræða
íbúðarbyggingar og þá langmest
í Reykjavík...... Allar þessar
framkvæmdir hafa dregið fjár-
magnið' til sín, og hinar eigiri-
legu nýsköpunarframkvæmdir
orðið afskiptar. Alfleiðingar þess-
arar gífurlegu fjárfestingar hafa
orðið hariislaust kapphlaup um
vinnuafl og efni, stöðugar kaup-
gjaldshækkanir upp fyrir lág-
markstaxta verklýðsfélaganna,
sérstaMega í vissum greinum,
keðjuverzlun með byggingarvör-
ur og hröð eyðsla hinna erlendu
innstæðna. Samfara þessari
geysilégu þennslu má telja, að all
mikil afkastarýrnun hafi átt sér
stað, einmitt vegna ofþennslunn-
ar.
Þessi mikla þennsla, sem fyrst
og ■ fremst
Reykjavík,
hækkanir, sem af henni haifa
leitt, hafa sogað fólk og fjár-
magn til Reykjavíkur í stórum
stíl. Þetta fólk hefir um leið horf-
ið frá sjávarútvegi og landbún-
aði, flest fyrir fullt og allt. Þessir
atvinnuvegir geta ekki tekið þátt
í kapphlaupinu um vinnuaflið,
nema að takmörkuðu leyti, og
geta þár að auki ekki boðið þau
þægindi, sem til eru annars stað-
ar. Á sama tíma og átt hefir að
framkvæma stórfellda uppbygg-
hefir átt sér stað í
og þær kaupgjaflds-
íngu sjávarútvegsins, hefir fólk
dregizt Ifrá þessum atvinnuvegi
með meiri hraða en nokkru sinni
fyrr.“
Þessar handahófs framkvæmd-
ir, sem fæstar eru í sambandi við
nýbyggingu atvinnulífsins, hafa
m. a. leitt til þess, að ríkisskulda-
bréf seljast e'kki. Hagfræðingarn-
ir telja telja „að svo að segja sé
loku skotið fyrir söfu ríkis-
skuld'abréfa og skuldabréfa með
ííkisábyrgð, þar eð bankarnir
hafa ekki getað tekið við þeim og
þau hafi ekki getað keppt við
eftirspurn einstaklinga og stofn-
ana vegna vaxtahækkuríar.“ Fjár
til nýsköpunar er því ekki hægt
að afla með þessum hætti.
Nýsköpunin hefir orðið að
„rýma sess“.
Þegar hagfræðingarnir þafa
þannig lýst ástandinu í fjárfest-
ingarmálunum, verður niður-
staða þeirra á þessa feið:
„Ef íhugað er, hver sé líkleg-
ust þróun þessara máfa á næst-
unni, ef engar sérstakar ráðstaf-
anir verða gerðar, þá er það fyrst
og fremst fyrirsjáanlegt, að marg-
ar éða flestar hinna eiginlegu ný-
sköpunarframkvæmda og sömu-
leiðis flestar hinna opinberu eða
hálfopinberu fríamkvæmda,
sem þarfnast lánsfjár, munu
stöðvast eða ekki verða hafnar.
Sama máli gegnir um byggingu
verkamannabústaða og sam-
vinnufélag'abústaða. Að því leyti,
sem éinhverjar af þessum fram-
kvæmdum komast af stað með
lánsfé frá bönkunum, mun það
verða að meira eða minna leyti
handahófskennt, hverjar
verða fyrir valinu, eins og reynsl-
an hefir verið fram að þessu. Á
þessu sviði er því fyrirsjáanlegur
mikill samdráttur."
Hagfræðingarnir telja þö’, að
samdráttur þessi rtiuni ekk'i f-yrst
um sinn ná til byggingafram-
kvæmda í Reylkjavík, og, muni
leita þangað rnikið af lausu fjár-
magni. Hagfræðingarnir telja
því líklegt, að þar verði næg at-
vinna fyrst um sinn, en „hins
vegar má tdlja það fullvíst,“ segja
þeir, „að stöðvun nýsköpunar-
framkvæmda og byggingar verka-
mannabústaða myndi skapa at-
vinnulleysi úti á landiogviðhalda
meir eða minná stöðugu atvinnu-
leysi, sem er einkennandi fyrir ís-
lenzk sjávarþorp.“ Svo gæti Hka
farið, að röðin kæmi að Reykja-
vík fyrr en varði og atvinnuleysið
héldi þar einnig innreið sína.
Þá gera hagfræðingarnir nokk-
urt yfirlit um fjárfestinguna á
undanförnum árum og fyrirætl-
anir í þessum efnum. Síðan segja
þeir:
„Þær aðalniðurstoður, sem fást
úr þessum upplýsingum,. eru
annars vegar þær, hve geysilega
mikil og vaxandi fjárfestingin
héfir verið á árunum 1945 og
1946, þótt fjárfestingaráíormin
fyrir árið 1947 séu þó enn meiri,
en hins vegar, hve mjög hinar
eiginlegu nýsköpunarfram-
kvæmdir innanlands hafa orðið
að rýma sess fyrir ýmsum opin-
berum framkvæmdum og bygg-
ingarframkvæmdum einstakl-
inga, en mestur hluti fjárfesting-
arinnar er fólginn í þeim.“
Álit og niðurstöður hagfræð-
ganna um fjárfestingarmálin
staðfestir þa-nnig í öllum aðal-
atriðum gagnrýni þá á stjórnar-
stefnu undanfarinna ára, sem.
Framsóknarmenn hafa haldið
uppi. í stað þess, að liér hafi ver-
ið unnið markvisst og skipulega
að nýsköpun atvinnulífsins, hefir
braskið og iskipuilagsleysið setið í
öndvegi, og niðurstaðan orðið
sú, að nýsköpuríarframkvæmd-
irnar hafa orðið að rýma sess fyr-
ir öðrum ónauðsynlegri og mega
í heita svo til stöðvaðar og
munu alveg stöðvast, ef slíku
heldur áfram. Ekkert er því
fjarri lagi en 'að slík stjómar-
stefna kénni sig við nýsköpun.
Stórhríðarmótið
Stórhríðarmót 1947, Sunnudaginn
9. febr. fór fram svigkeppni Stórhríð-
armóts 1947. Var keppnin haldin í
Snæhólum. Urslit urðu sem hér segir:
A- og B-fl. kvenna:
1. Helga R. Júníusdóttir K. A. 53.6
2. Björg Friðbjarnard. K. A. . . 58.6
3. Erla Jónsdóttir M. A....... 61.5
C-fl. kvenna:
1. Ólöf Stefánsdóttir M. A. . . 62.7
2. Hólmfríður Gestsdóttir M. A. 82.9
A-fl. karla:
1. Mikael Jóhannessón M. A. 107.1
þær'2. Sigurður Þórðarson K. A. .. 114.7
3. Júlíus B. Jóhannesson Þór 121.9
B-fl. karla:
1. Jón Vilhjálmsson Þór .... 109.0
2. Sigurður Samúelsson Þór . . 110.7
3. Hreinn Óskarsson Þór .... 114.7
C-fl. karla:
1. Magnús Ágústsson M. A. . . 72.5
2. Pálmi Pálmason Þór........ 74.2
3. Björn Halldórsson Þór .... 77.6
Fall brautanna 100;—145 metrar.
Veður og færi ákjósanlegt. Áhorfend-
ur margir. — Sunnudaginn 16. þ. m.
fór svo stökkkeppnin fram, við Mið-
húsaklappir, x dásamlegu veðri. Kepp-
éndur voru frá sömu félögum og í
sviginu, en auk þess tveir frá Samein-
íngunni í Ólafsfirði. — Keppendur í
A- og B-fl. — aldur 20—32 ára —
voru alls 7.
1. Gunnl. Magnússon, Samein.,
stökk 29 og 27 m. — hlaut 139,1 stig.
2. Stefán Ólafsson, Samein., stökk,
28 og 27,5 m. — hlaut 138,2 stig.
3. Sig. Þórðarson, K^. A„ stökk 30
og 30 m. (fall') — hlaut 111,5 stig.
Keppendur í II. fl. — 17—20 ára
— alls 6.
1. Magnús Ágústsson, M. A., stökk
24 og 28,5 m. — hlaut 141,4 stig.
2. BaldV. Haraldsson, Þór, stökk 26
og 26,5 m. — hlaut 139,3 stig.
3. Jón Vilhjálmsson, Þór, stökk 23
og 25,5 m. — hlaut 128,2 stig.
Færi var ágætt, áhorf endur á annað
hundrað.
SKIÐABUXUR, kvenna og karla
STAKKAR, með og án liettu
SKINNHÚFUR
ULLARVETTLINGAR
Kaupfélag Eyfirðinga
V ef naðarvörudeild.
*ríríBKBKBKHKBKHKHKHKHKBKHKHKHKHKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKH>
Húseiqendur!
Látið ekki storma og regn eyðileggja
þök húsa ykkar.
Gerið við skemmdirnar jafnharðan og
þeirra verður vart.
Við höfum fyrirliggjandi ÞAKPAPPA,
fleiri tegundir.
Kaupfélag Eyfirðinga
Byggingavörudeild.
^KHKHKHKHKHKBKHKBKHKHKHKKHKHKHKKBKBKHKHKHKHKHKHKHKH^
3***<HKBKBKHKHKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHK
Fnndarboð.
Aðalfundur Iðnaðamrannafélags Akureyrar verður hald-
inn í Gagnfræðaskólailiúsinu, sunnudaginn 23. n. k.
Fundurinn hefst kl. 4 e. h.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
1 JKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHWHKHKHKHKHKHKHKíÚtttKHKH: