Dagur - 19.02.1947, Page 6
DAGUR
Miðvikudagur 19. febrúar 1947
6
CLAUDÍA 1
SAGA HJÓNABANDS
EFTIR
ROSE FRANKEN
^......... 1 1 —— 35. dagur .......~!~—
(Framhald).
og allt í einu Cleygði Friu skóflunni og hljóp sem fætur toguðu að
eldhúsdyrunum.
Claudía sneri aftur að skúffunum sínum. Hún heyrði að bílhurð
var skelit og ekið var á brott. Hvað skyldu þeir hafa viljað og hvers
vegna lá Fritz svo mikið á?
Hún heyrði fótatak hans í stiganum. Rétt á eftir birtist hann í
dyrunum og Berta gægðist yfir öxl hans.
„Frú Naughton---“
Nú þurfti hún ekki að líta á liann, til þess að skilja hvað á seyði
var. Hún heyrði það í rödd hans. Hún hljómaði eins og líkaböng
og hljómnum þeim mundi hún aldrei gleyma. Hann mundi endur-
óma í huga hennar á einmanalegum augnablikum og hún mundi
standast áhrif hans, eða láta bugast.
Varir hennar bærðust. „Hvað er það, Fritz?“
„Það hefur eitthvað komið fyrir bíl húsbóndans. Eg er að leggja
af stað í vörubflnum---“
Berta greip hana í fang sér og Berta var sterk. Fritz og Berta voru
ibæði strekbyggð, en þau vissu ekki sannleikann í málin'u. Claudíu
hafði fundist kveðjustundin í morgun svo erfið, eitthvað bjó í loft-
inu þá, sem gerði hana áhyggjufulla. En hún náði sér furðu fljótt.
„Eg kem með þér, Fritz,“ sagði hún ákveðið.
„Nei, nei,“ hrópaði Berta. „Það er miklu betra að þú verðir
kyrr hér hjá mér.“
„Það er ekkert að mér,“ sagði Glaudía.
„Þá förum ivið,“ sagði Fritz og sveipaði kápunni um axlir henn-
ar. *
Vörubíllinn var alveg nýr, en þó var mykjulykt inni í honum.
„Vörubílar í sveit eiga að anga af mykju,“ hafði Davíð sagt einu
sinni. Claudía hnipraði sig saman í framsætinu og hún saknaði
hans svo innilega. Hann hafði alltaf verið hjá henni, þegar mikið
lá við. Nú vissi hún naumast af því, er bíllinn rann af stað og hún
hafði ekki sinnu á því að litast um á veginum. Bíllinn hægði á sér
og stöðvaðist. 1
„Er þér illt,“ spurði Fritz, þegar hann leit á hana og sá að hún
var náhvít.
„Já,“ sagði hún og hallaði sér aftur á bak, eins og væri að líða
yfir hana. „Svona, svona," sagði Fritz og tók sterklegum hand-
leggnum utan um axlirnar á henni. Hún beit á jaxlinn. ,,Eg verð
að herða mig upp,“ sagði hún. „Hann mundi vilja það.“
„Eg er viss um að hann vill ekki að þú grátir. En þó er það ekki
nema von, að þú gerir það, því að það er skelfilegt, ef eitthvað hef-
ur komið fyrir húsbóndann."
Náungi nokkur úr þorpinu ók fram hjá. „Árekstur þarna,“ kall-
aðf hann um leið og hann ók fram hjá, og benti aftur fyrir sig.
„Ljót aðkoma,“ bætti hann við.
„Haltu þér saman,“ kallaði Fritz á eftir honum. Hann setti vél-
ina í ganga aftur og ók af stað.
„Þú hjálpar mér til þess að standa mig vel, Fritz,“ hvíslaði
Claudía. „Hann vill að eg beri mig vel.“
„Eg skil þetta ekki, Fritz,“ sagði hún eftir dálitla þögn. „Davíð
ók alltaf svo gætilega. Eg trúi því ekki að hann hafi farið óvarlega
í morgun.“ ,
Fritz var þungur á svipinn. „Það var ekki Davíð að kenna,“ sagði
hann. „Maðurinn í hinum bílnum var drukkinn, sögðu þeir.
Whisky-lyktina lagði langar leiðir, þegar þeir tóku hann upp úr
götunni.“
„Auðvitað hefur það ekki verið Davíð að kenna,“ sagði Claudía
hressari í bragði.
iÞau beygðu inn í þorpið. Nokkrir menn stóðu úti fyrir dyrum
læknisins.
Lögreglumenn voru á tröppunum. Þögn sló á hópinn þegar
Fritz og Claudía komu að hliðinu. Læknisfrúin opnaði dyrnar.
Claudía hafði kynnst henni á kirkjubazarnum. Þá hafði frúin
kynnt sig: „Eg er kona læknisins,“ hafði hún sagt.
„Kona læknisins er lifandi eftirmynd frú Roosevelt,“ hafði
Claudía sagt við Davíð nokkru seinna.
Og nú stóð hún þarna í dyrunum og tók á móti henni opnum
örmum. „Komdu inn, vesalings barn,“ sagði hún. „Þetta er voða-
legt.“
Frúin vildi endilega færa henni heitan tesopa, en Claudía af-
þakkaði. „Það er allt í lagi með mig,“ sagði hún. Biðstofan var und-
arlega auð og hljóð, fannst Glaudíu, en þarna inni, á bak við lokað-
ar dyr, var Davíð. Hún mátti taka á öllu, sem hún átti til, svo að
hún henti ekki hurðinni up'p á gátt og hlypi inn til hans.
Rétt í þessu klingdi dyrabjallan. Frúin hljóp til dyranna og kven-
(Framhald).
ÞAKKIR
Hugheiiar þakkir votta ég öllum þeim, sem héldu mér
samsœti, mér til ógleymanlegrar ánœgju á sjötugsajmali minu
7. þ. m. og með heillaóskum og á annan hátt sýndu mér
vinarhug.
Sérstaklega þakka ég einnig Alþýðufiokksfélagi Akur-
eyrar, stjórn Kaupfélags Verkamanna Ákureyrar og fleirum,
sem gáfu mér rausnarlegar gjafir á þessum afmœlisdegi
mmum.
Akueyri, 10. febrúar 1947.
ERLINGUR FRIÐJÓNSSON.
CHKHOHOHOKKHCHOHOHOHQHKHSOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOfl
Hjartans þakkir lil ykkar, sem glödduð mig á 60 ára af- §
mceli minu þann 8. febrúar siðastliðinn, með heimsóknum
skeytum og stórgjöfum. *
Guð blessi ykkur öll.
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Miklagarði.
ooóooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn að Hótel KEA (Gildaskálanum) mánudaginn
24. þ. m. og hefst kl. 8,30 e. h.
DAGSKRÁ:
Venj u leg aðal fundarstörf.
i
Ef tími vinnst til verður rætt um nefndarálit hagfræðinganna.
Dr. Kristinn Guðmundsson hefur fra,msögu.
Stjómin.
Nokkra vana menn
vantar til togveiða á m.s. Snæfelli.
Útgerðaríélag K.E.A.
HKHOH9HKHCHKHCHKHKHKHOKKHJOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Tilboð óskast
í imjólkurflutninga úr suðurhluta Öngulsstaðahrepps
frá 1. maí n. k. til 30. apríl 1948. Tilboðum sé skilað
til undirritaðs fyrir 15. marz n. k., er gefur allar nánari
upplýsingar.
Laugalandi, 18. febrúar 1947.
BJÖRN JÓHANNESSON.
lAoAddWdddfVVWWMVWVVxdddddfWVWWWWVVVVVWyvVvvvVVVWi
Jörðin HlaÖir
í Gkesibæjanhreppi er laus til ábúðar í næstu far-
dögum. Semja iber við undirritaðan, er gefur nán-
ari upplýsingar.
Steindór Steindórsson,
Munkaþverárstræti 40. — Sími 27.
Takið eftir!
Hestamannafélagið ,,LÉTTIR“ ihefur ákveðið að slá
„köttinn úr tunnunni“, sunnudaginn 2. marz n. k.
Þátttakednr gefí sig fram, eigi síðar en 28. þ. m., við
Magnús Jónasson eða Þorleif Þorleifsson.
Nánar síðar í götuauglýsingum og blöðum.
Skemmtinefndin.
Auahsið l „DEGI"
Móðir, kona, meyja.
(Framhald af 4. síðu).
Forstjóri blómabúðar KEA,
sagði mér nú á dögunum, er eg
gekk við í verzluninni, að 60%
af öllum blómum, sem hann
seldi, væri til jarðarfara.
Gefið ástvinum ykkar blóm!
Prýðið heimili ykkar og gleðjið
vini ykkar meðan þeir lifa.
Bilómin gleðja og fegra.
Puella.
Stúlka
getur fengið atvinnu á
myndastofu okkar nú þegar
eða um mánaðarmót.
Jón & Vigfús.
Kolaofn
til sölu.
Afgr. vísar á.
Býlið Byrgi
í Glerárþorpi við Akureyri
er til sölu.og laust til ábúðar
á komandi vori. Miðstöð,
rafmagn, vatnsleiðsla og frá-
rennsli er í thúsinu. Allar
upplýsingar varðandi söluna
gefur undirritaður. Réttur
áskilinn til að taka hvaða
tilboði sem er, eða hafna
öllum.
Árni Jónsson, Byrgi.
3 einstakings fierbergi
í sænsku húsi til leigu innan
skamms.
Bragi Eiríksson,
Brekkugötu 7.
Karlmannsarmbandsúr
(Eterna), með svörtu „plas-
tic“-armbandi tapaðist 9. þ.
m. á Strandgötu, Glerárgötu
eða Gránufélagsgötu. Fund-
arlaun.
Afgr. vísar á.
Fundist hefir merktur .
LINDARPENNI.
Vitjist á Eyrarveg 9.
UPPBOÐ
Opinbert uppboð fer frarn
við Slökkvistöðina á Akur-
eyri miðvikudaginn 19. þ.m.
og ihefst kl. 1.15 síðdegis.'
Seldir verða ýmsir innan-
stokksmunir, eldhúsáhöld o.
fl. Greiðsla við hamarshögg.
Brejarfógetinn á Akureyri,
13. febrúar 1947.
F. Skarphéðinsson.