Dagur - 28.04.1948, Page 8
8
DAGUR
Miðvikudaginn 28. apríl 1948.
— Grein Ólafs Jónssonar
(Framhald a£ 5. síðu).
1111 ■ 11 ■ ■ 11111111 ■ 11 ■ 111 ■ 11 ii 111 ii 111111 ■ ii i ii 111
Uppboð
iiiiiiiiiiiin,
og þenjast út með ægilegum
hraða. Skriffinnska og skýrslu-
fargan er að gera þjóðina örvita.
Lögum, reglugerðum, tilskipun-
um og auglýsingum rignir niður,
þar til enginn veit sitt rjúkandi
ráð. Hver borgari, sem náð hefir
sextán ára aldri, verður að ganga
með heila tylft af skjölum og skil-
ríkjum upp á vasann, sem vitna
um hver hann er, hvað hann er
og hvort hann hefir uppfyllt
skyldur sínar sem góður þjóðfé-
lagsþegn. Og eitt af því, sem
dafnar og þennst út í því sótt-
hitaástandi, sem þjóðin lifir í, eru
skólar og skólaskylda. Með líku
áframhaldi verður þess ekki langt
að bíða, að skólarnir heimti börn-
in ómálga til meðferðar og halda
þeim síðan til fullorðinsaldurs, ef
þau ekki í millitíðinni lenda ann-
að tveggja á fávitahælum eða
letigörðum. Nú þegar skilzt mér
að skólaskylduna eigi að teygja
yfir níu uppvaxtarár ungling-
anna. Mikið hlýtur nú að verða
kennt á þessum tíma. Það skortir
sízt, að námsgreinarnar séu eigi
nógu margar, en árangurinn eða
námsefnið er þó furðu lítið, því
að mikið af tímanum gengur í
látlausar endurtekningar og upp-
lestrarstagl.
Nauðsynlegt þykir að sníða
kennslubækurnar og framsetn-
ingu efnisins við þroska hverrar
deildar. í fyrstu bekkjurjum, þar
sem yngstu nemendufnir sitja,
eru notuð ágrip af námsgreinun-
um, sem eru svo einföld og
barnaleg að nærri lætur, að þau
séu hlægileg. Svo eftir því sem
börnin þokast upp eftir bekkja-
stiganum fá þau ný ágrip, örlítið
fyllri, dálítið gáfulegri og svo koll
af kolli. Svo þegar þau um síðir
sleppa úr barnaskólunum og
setjast í einhvern framhaldsskól-
ann, má ganga út frá því gefnu,
að sama sagan endurtakist.
Það er naumast unnt að gera
unglingana hundleiða á öllu
námi ef það tekst ekki á þennan
hátt. Nemendurnir finna aldrei
neitt- nýtt eða ferskt í því, sem
þeir eru látnir stagla. Það er ailt
drafúldið og margtuggið eða að
minnsta kosti nægilega mikill
hluti, til þess, að það, sem nýtt
kann að vera, hverfur og verður
samdauna.
Viðhorf nemendanna til fram-
haldsskólanna yrði vafalaust allt
annað, ef þeir finndu þar fyrir
nýjar námsgreinar, er væru sem
ókönnuð ævintýri, girnileg til
fróðleiks. Þeir mundu tileinka sér
námsgreinarnar fljótar og betur
þannig ferskar og nýjar af nál-
inni, heldur' en er þeir fyrirfinna
eigi annað en margtuggið endur-
tekningarstagl.
Varla þarf að benda á hvílík
óþarfa eyðsla á tíma og kennslu-
kröftum það er, að vera ár eftir
ár að troða mismunandi ýtarleg-
um ágripum í unglingana, af
þeim námsgreinum, sem þeim svo
er ætlað að læra í framhaldsskól-
unum í nokkru fullkomnara
formi.
Niðurlag þessarar greinar birt-
ist. í næsta blaði.
Fimmtudaginn 13. mai n. k., kl. 11 f. h., verður upp-
boð haldið að Kolgrímastöðum í Saurbæjarhreppi, og
þar selt, ef viðunandi boð fæst: 13 kýr og kvígur, 150
hænsni (hvít ítölsk), útungunarvél (150 st.), heyvagn og
heyvinnuvélar, kerra, vagngrind og aktýgi, hefilbekkur,
eldavél, Alfa-skilvinda og strokkur, auk ýmissa venju-
legra, búsmuna.
Ennfremur 60—70 hestar af heyi.
Uppboðsskilmálar birtir á staðnum.
Kolgrímastöðum, 27. apríl 1948.
Garðar Jóhannesson.
Bréf as kólinn
hefur nú byrjað kennslu í
siglingaf ræð i
Aðrar námsgreinar eru:
íslenzk réttritun
Enska
Bókfærsla
Reikningur
Búreikningar
Skipulag og starfshættir
samvinnufélaga
Fundarstjórn og fundarreglur
Skólinn sfariár ailt árið. — Veitum fúslega
allar upplýsingar.
.1111111111111111111111111
iiiifiitttiiimiiniiiiiii
Bréfaskóli S. í. S.
Reykjavík
lllllljllillllllllIIlllII111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
IIIIIIIIIÍIII..
RAFGIRÐmGIN
Er öruggasta og ódýrasta varzlan
fyrir stórgripi
Allir, sem reynt hafa, lofa kosti
rafgirðinga
50 poslulinseinángrarar, 1 hliðgormur og
1 hándfajig fylgja tækinu
Þaðj sem er íramylir, skal panta
sérstaklega.
BÆNDUR!
Pantið STÖD hjá kaupfélögunum strax.
Vér þurfum nokkurn fyrirvara til þess
að geta tryggt ykkur tækin fyrir sumarið.
Samband ísl. samvinnufélaga
tiiitiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiii11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111(1111ntiiii
AUGLÝSIÐ í DEGI
| VEIÐÍBANN |
1 Þar sem við undirritaðir höfum tekið á leigu §
i veiðiréttinn í Eyjafjarðará fyrir landi Saurbæjar, jj
i sumarið 1948, bönnurn við hérmeð alla veiði á |
i umgetnu svæði. i
i Óli P. Kristjánsson. f
i Jóhann Guðmundsson. í
Rafmagnsþvottapottur
til sölu.
A. v. á.
Herbergi
til leigu frá 14. maí.
Þórir Guðjónsson,
Bókaverzl. Edda h.f.
Verð fjarverandi fyrri
part maí.
Hallgr. Jónsson,
járnsmiður.
Silfurarmband
fannst við þinghús Glæsi-
bæjarhrepps 23. þ. m. Rétt-
ur eigandi getur vitjað þess
að Garðshorni í Kræklinga-
hlíð.
Húsnæði óskast
Mig vantar 2—3 herbergi og
eldhús 1. eða 14. maí. Fyrir-
fram greiðsla, ef óskað er.
Upplýsingar í síma 390, kl.
5—7 e. h. daglega.
Baldvin Ringsted,
tannlæknir.
2 stúlkur
geta fengið atvinnu nú jreg-
ar, önnur við strauningu,
hin við afgreiðslu.
H.f. Þvottur.
Blandað. hænsnafóður
Smá-ungafóður
Ungamjöl
Kn. maís
Maísmjöl
Hestahafrar
Verzl. Eyjafjörður hi.
Saltskóflur
Oddskóflur
Kartöflukvíslar
Stunguspaðar
Verzl. Eyjafjörður h.f.
SAUMUR
1”■ 2’’ — 2þg” — 3” — 3i/2”
- 4” _ 41/9” _ 5” - 6”. -
Blásaumur 5/8”. — Bylgju-
saumur 3/4” — 7/8”.
Tréskrúfur, ílestar stærðir.
Franskar skrúfur 1” — U/2”.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Frú Þórdís Egilsdóttir
á ísafirði
gestur Tóvinnuskólans
á Svalbarði við Eyja-
fjörð
/
Frú Þórdís Egilsdóttir á ísa-
firði er landskunn fyrir saumuðu
myndirnar, sem gerðar eru með
hinum mesta hagleik úr íslenzku
efni. Myndir þessar: íslenzk bað-
stofa og íslenzkur sveitabær hafa
verið á sýningum vísvegar inn-
anlands og á alheimssýningunni
i New York. Þær eru nú í eigu
íslenzka ríkisins og eru geymdar
í forsetabústaðnum á Bessastöð-
um.
Á nýafstaðinni sýningu Tó-
vinnuskólans á Svalbarði, sunnu-
daginn fyrstan í sumri, sýndi frú
Þórdís sýningargestum tog- og
þelvinnu sína, og luku allir upp
einum múnni um það, að þau
vinnubrögð væru framúrskar-
andi.
Menn fyllast undrunar og að-
dáunar, er þeir sjá hvað gera má
úr íslenzku ullinni, þegar leikni
og listhæfni fylgjast að.
Hafi frú Þórdís beztu þakkir
fyrir komuna hingað norðui' og
þá fyrirmynd, sem hún lætur eft-
ir hjá okkui' og sem við eigum að
keppa að.
Halldóra Bjarnadóttir.
— Fokdreifar
átti að verða í þessum efnum með
lýðveldisstofnuninni og upphafi
Landgræðslus j óðs, hefir ekki
orðið. Er það af því, að menn hafi
átt svo annríkt við að hugsa um
sjálfa sig, að þeir hafi ekki mátt
vera að því að hugsa um landið
og framtíðina?
Út um hvippinn
og hvappinn
Kommúnistamálgögnin hér
birtu með feitum stöfum þá frétt
fyrir nokkru, að vísindakonan
heimsfræga, Irene Joliot-Curie,
— dóttir Curiehjónanna — hefði
ekki fengið landgonguleyfi í
New York og hefði hún verið
flutt til Elliseyju. Ástæðan hefði
verið sú, að frúin væri bendluð
við kommúnisma. Þessi frét.ta-
málgögn gátu hins vegar ekki um
það, að frúin var látin laus sama
daginn eftir að skilríki hennar
höfðu verið athuguð. Þannig er
fréttamennska k'ommúnistablað-
anna hér, þegar lýðræðisþjóðirn-
ar eiga í hlut. Allt tínt til, sem
miður fer, en þagað, þegar mis-
fellur eru lagfærðar.