Dagur - 02.06.1948, Qupperneq 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 2. júní 1948
Cagnfræðaskóla Akureyrar
slitið í fyrradag
69 gagnfræðingar brottskráðir
Fjögur skip farin með Látafisk
á Bretlandsmarkað
Gagnfræðaskóla Akureyrar
var slitið í fyrrakvöld, að við-
stöddum nemandum skólans,
kennurum og mörgum gestum.
Skólastjórinn, Þorsteinn M. Jóns-
son, hóf ræðu sína á því að gefa
skýrslu um störf skólans á liðnu
starfsári. Innritaðir voru 304
nemendur alls, 96 í I. bekk, 132 í
II. bekk, en 76 í III. bekk. Var I.
og III. bekk skipt í 3 bekkjadeild-
ir hvorum, en II. bekk í 5 deildir,
svo að alls voru 11 bekkjardeild-
ir í skólanum. Þar af störfuðu 5
deildir, eða I. bekkur allur og 2
deildir II. bekkjar, bóknámsdeild
og verknámsdeild, samkvæmt
hinum nýju fræðslulögum, eða
150 nemendur alls. Kennslu og
prófkröfum annarra nemenda var
hagað eftir hinni eldri skólalög-
gjöf. Próf þreyttu 279 nemendur
alls, og stóðust 265 þeirra próf-
ið. Hæstu einkunn hlaut að þessu
sinni Jóhann Bjarmi Símonarson,
nemandi í I. bekk B.. I. einkunn
8,89, en næst hæsta einkunnir
hlutu Helga Jónsdóttir í I. bekk
B, I. eink. 8,60, og Jónas Oddsson
í II. bekk B., I. eink. 8,54.
69 gagnfræðingar luku brott-
fararprófi að þessu sinni. Hæstu
einkunnir hlutu: Kristján Tr. Jó-
hannesson í III. b. B, I. eink. 8,45,
og Sigurveig Jónsdóttir í III. b.
B, I. eink. 8,28. Verða einkunnir
hinna nýju gagnfræðinga allra
birtar síðar hér í blaðinu.
35 fræðsluerindi voru flutt í
skólanum í vetur, auk erinda
þeirra, er flutt voru á skemmti-
samkomum skólans, en þær voru
9 alls. Nemendur notuðu allmik-
ið skíðaskóla sinn, Ásgarð, í vest-
urhlíðum Glerárdals. Voru marg-
ar fjallaferðir farnar þaðan og
útiíþróttir stundaðar í sambandi
við þær. Heilsufar nemenda var
yfirleitt gott, nema hvað kvef-
pest allskæð gekk í bænum um
hríð í vetur, og sýktust ýmsir
nemendur af henni. Aðstaða
skólafólks til sundiðkana hér í
bænum er ærið stopui að vetrin-
um, meðan ekki er hér yfirbyggð
og upphituð sundlaug til sund-
iðkana í vondum veðrum. Þá er
og aðstaða við handavinnu-
kennslu pilta erfið í gagnfræða-
skólanum, einkum vegna skorts
ó hentugu geymsluplássi fyrir
efnivörur og smíðagripi. Að öðru
leyti má segja, að hin ytri skil-
Samið um kaup og kjör
við ríkisverksmiðj-
urnar
S. 1. laugardag var samið á
Siglufirði um kaup og kjör við
síldarverksmiðjur ríkisins á kom-
andi vertíð. Hækkar grunnkaup-
ið úr 2,70 kr. í 2,80 kr. eins og
greitt er í Rvík og hér, og mán-
aðarkaup hækkar til samiæmis
við þetta. Samningurinn gildir
við Síldárverksmiðjur ríkisins
hér norðanlands
yrði til náms og kennslu í hinu
nýja skólahúsi séu hin ákjósan-
legustu.
Eftir að skólastjórinn liafði af-
hent gagnfræðingunum nýju
prófskírteini þeirra, ávarpaði
hann þá með snjallri og athyglis-
verðri ræðu. Lagði hann út af
þessari ljóðlínu í kvæði Stephans
G. Stephanssonar um Hergils-
eyjar-bóndann:
„Eg aldrei við svívirðu sæmd
mína gef!“
Ræddi hann í því sambandi um
drengskapar-hugsjón íslendinga
að fornu og nýju ,eins og hún
birtist í sögu og bókmenntum
þjóðarinnar og lífi einstakling-
anna, og hættu þá, sem menningu
og þjóðlífi er búin, ef þessi hug-
sjón nær að fyrnast og slævast
fyrir hraðfleyg stundaráhrif stór-
breyttra þjóðhátta og aldarfars.
Skólastjórinn minnti gagnfræð-
ingana ungu á hina ruddu vegi og
brúuðu ár, sem þeir liefðu ferð-
ast yfir á för sinni til Suðurlands,
að loknu prófi. Hann talaði í því
sambandi um tvær ólíkar mann-
tegundir, ferjumennina og flæk-
ingana, er um eitt skeið hefðu
sett svip sinn á íslenzkt þjóðlíf,
en væru nú að mestu horfnir af
sviðinu sökum breyttra aldar-
hátta og lauk máli sínu á þessa
leið:
„Flækingarnir og ferjumenn-
irnir gömlu sýnast tvær ólíkar
manntegundir. En þó svo virðist,
þá er eitthvað af eðli þessara
tveggja stétta í flestum mönnum.
Og munar þá stundum mjóu,
hvort ræ'ður meira. Lífsvenjur
og misjafnlega mikill sjálfsagi
ræður þar úrslitum. Sannast það
þar, sem höfundur hinnar mérki-
legu speki- og mannvitsbókar
Orðskviða Salómós segir: „Iðki
einhver réttlæti, þá leiðir það
hann til lífs, en ef hann eltir hið
illa, þá leiðir það hann til dauða.“
En réttlæti er allt það, er leiðir
til þróunar heilbrigðs lífs, en
ranglætið er meðal annars van-
rækt við sjálfan sig. Drengskap-
ur er réttlæti. Þessi hugtök minna
hvort á annað. Sá iðkar réttlæti,
sem getur sagt með sanni: „Eg
aldrei við svívirðu sæmd mína
gef!“ Eg bið ykkur, ungu vinir,
að hafa þessa ljóðlínu jafnan í
huga. Eg vildi geta fest hana i
huga ykkar. Eg vildi óska ykkur
þess, að þið gætuð gert hana að
einkunnarorðum lífs ykkar —
einkunnarorðum, sem mörkuðu
lífsstefnu ykkar, og þið brygðust
aldrei. Því að hver sá maður, sem
aldrei lætur neinn hluta af sæmd
sinni, hvað sem er í boði, hann
er góður drengur. Hann er rétt-
látur. Hann mun öruggur ferju-
maður í straumkasti lífsins Hann
vrerður aldrei flækingur né rek-
ald.“ *
Að svo mæltu kvaddi skóla-
stjórinn nemendur sína og aðra
viðstadda með hlýjum árnaðar-
■ óskum og sagði skólanum slitið.
Hefur emiþá forustuna
Thomas Dewey fylkisstjóri í
Nevv York hefur ennþá forust-
una í kosningabaráttunni innan
Repúblikanaflokksins um það,
hver skuli verða frambjóðandi
flokksins við forsetakjörið í haust.
Harold Stassen, sem vumn í fyrstu
verulega á í miðríkjunum sum-
um, hefur nú dregist aftur úr
Dewey, að því talið er í amerísk-
um blöðum. Miklar líkur eru fyr-
ir því, að sá maður, sem sigrar á
flokksþingi Repúblikana nú inn-
an skamms, verði næsti forseti
Bandaríkjanna.
Sendilierrar
í heimsókn
Nú um helgina voril hér á ferð
sendiherra Bandaríkjanna hér á
landi, Mr. Buttrick, og sendiráðs-
fulltrúinn, Mr. Trimble. Sömu-
leiðis hr. C. A. Bruun, sendiherra
Dana. Ameríski sendiherrann
hafði síðdegisboð að Gildaskála
KEA fyrir ýmsa bæjarmenn sl.
mánudag. Sendiherrann er ný-
lega kominn hingað til lands og
var erindi hans hingað einkum
að sjá landið Lét hann hið bezta
yfir förinni hingað. í för með
sendiherranum var Ragnar Stef-
ánsson, fyrrum majór í hernum.
í boði þessu, sem var hið ánægju-
legasta, hafði Bernharð Stefáns-
son alþm. orð fyrir -gestunum. en
sendiherrann ávarpaði gesti sína
nokkrum orðum. Amerísku gest-
irnir fóru héðan áleiðis til
Reykjavíkur í gærmorgun.
KlliIieimiliS
í Skjaldarvík
verður stækkað
Stefán Jónsson, stofnandi og
forstöðumaður elliheimilisins í
Skjaldarvík, hefir í hyggju að
stækka heimilið svo að það geti
tekið 30 vistmenn til viðbótar. —
Hefir hann farið þess á leit við
bæjarstjórnina að hún ábyrgist,
ásamt Eyjafjarðarsýslu, 250 þús.
kr. lán vegna þessarar vúðbótar-
byggingar. Eyjafjarðarsýsla hefir
þegar tjáð sig fúsa til þess að tak-
ast þessa ábyrgð á hendur, og á
síðasta bæjarstjórnarfundi fékkst
saraþykki bæjarstjórnarinnar
fyrir ábyrgðinni. — Þá hefir
bæjarstjórnin einnig samþykkt að
mæla með því, að fjárfestingar-
leyfi fáist fyrir þessum fram-
kvæmdum.
í gær seldi m.s. Pólstjarnan 266’
smálestir af bátafiski í Hull, á
vegum Fisksölusamlagsins hér,
en fregnir um söluupphæðina
höfðu ekki borizt, er blaðið fór í
pressuna.. Á leiðinni út eru
Straumey með um 236 smálestir
og Snæfell með um 140 smálestir.
Eldborg hleður nú fisk hér í firð-
inum. Afli togbátanna hefir verið
heldur tregur, en ágætur afli er
á línu frá verstöðvum víða hér
norðanlands.
Söegmót „Heklu64
hefst 12. júní
Sjö norðlenzkir kórar
þátttakendur
Söngmót hins norðlenzka karla-
kórasambands, „Heklu“, hefst hér
á Akureyri laugardaginn 12. júní
næstk. og heldur áfram á Húsa-
vík og að Laugum sunnudaginn
13. júní.
Að loknum söng þar verður
haldið aftur til Akureyrar til
samæfingar og hljóðritunar fyrir
Ríkisútvarpið.
Söngmót þetta er haldið í til-
efni af 100 ára afmæli Magnúsar
Einarssonar organista og eru
þátttakendur 7 norðlenzkir
karlakórar: Karlakórinn Geysir
og Karlakór Akureyrar, Karla-
kórinn Þrymur, Húsavík, Karla-
kór Reykdæla, Karlakór Mý-
vatnssveitar, Karlakór Bólstaðar-
hlíðar og „Heimir“ úr Skagafirði.
Samsöngvar værða kl. 2, 5 og 9
e. h., en á sunnudaginn á Laugum
kl. 2 e. h. og í Húsavík kl. 7 e. h.
Sérstök móttkökunefnd annast
móttöku gestanna hér mótsdag-
ana og hefir hún skrifstofu í Lóni
þá daga. Nánari upplýsingar um
móttöku í bæjarfréttum á bls. 7.
Danskur ræðismaður
á Akurevri
j
Nýlega hefur Balduin Ryel
kaupmaður verið útnefndur
danskur V'araræðismaður á Ak-
ureyri. Er hann fyrsti ræðismað-
ur Dana hér í bænum.
Langt komið að reisa
2500 smálesta lýsistank
í Krossanesi
Um þessar mundir er vrerið að
framkvæma margháttaðar endur-
bætur á Krossanesverksmiðjunni.
Vinna 22 menn frá Vélsmiðjunni
Héðni í Reykjavík að þessum
framkvæmdum og að þv'í að reisa
2500 smálesta lj’sistank, sem
verksmiðjan fékk erlendis frá
fyrir nokkru. Er langt komið að
reisa tankinn. Þá pr unnið að því
að setja upp nýjar skilvindur og
koma upp olíukyndingartækjum
og fleiri endurbótum. Nú um
helgina fékk verksmiðjan rösk-
lega 900 smálestir af brennsluolíu
með tankskipinu Þyrli.
Hafnarnefnd fékk
f
góða íyrirgreiðslu
í Reykjavík
Hafnarnefnd bæjarins, er flaug
til Rvíkur í s. 1. viku til þess að
starfa þar að leyfisútvegunum
vegna nýbyggingar Torfunefs-
bryggju, kom heim á sunnudag-
inn. Ekki hefur verið gengið til
fulls frá málum hafnarinnar, en
nefndarmenn segjast hafa fengið
góða fyrirgreiðslu í Reykjavík og
muni verða gengið endanlega frá
fyrirkomulagi viðgerðarinnar á
bi'yggjunni og leyfisveitingum í
því sambandi á næst'unni. Ovíst
er þó talið að úr því verði að
brezku steinkerin verði keypt,
heldur verði horfið að því ráði
að leggja járn í bryggjuna og
breikka hana úr 14 m. í 22 metra.
Ymsir nýjir erfiðleikar hafa kom-
ið í ljós í sambandi við steinker-
in. Þó er ekki til fulls frá þessu
gengið. Verður væntanlega hægt
að skýra nánar frá framgangi
málsins á næstunni.
Hátíðahöld sjómanna
urií helgina
Sjómannadagurinn er á sunnu-
daginn kemur og gangast sjó-
menn fyrir fjölbreyttum hátíða-
höldum að venju. Á laugardags-
kvöldið fer fram kappróður á
Pollinum og keppa þar ýmsar
skipshafnir, auk þess deildir úr
slysavarnasveit kvenna. Á sunnu-
dagsmorguninn ganga sjómenn
skrúðgöngu um bæinn, til kirkju,
og hlýða á messu. Eftir hádegið
hefjast hátíðahöld við sundlaug-
ina, fara þar fram ýmiskonar í-
þróttakeppnir og sennilega
keppni í knattspyrnu síðar um
daginn. Um kvöldið verða dans-
leikir og skemmtanir að Hótel
NorðuNandi og Samkomuhúsi
bæjarins.
r
Flugfélag Islauds
festir kaup á
Skymasterflugvél
Blaðið Vísir í Reykjavík birti
viðtal við Orn Johnson. fram-
kvæmdastj. Flugfélags íslands í
sl. viku og skýrir Örn þar frá því
að Flugfélag íslands hafi ákveðið
að festa kaup á stórri milli-
landaflugvél og verði gengið end-
anlega frá kaupunum nú á næst-
unni. Ekki hefði enn verið
ákveðið á hvaða leiðum flugvélin
yrði notuð, né heldur hver vrði
áhöfn vélarinnar. Vegna þess að
ekki væri til fulls frá málunum
gengið , óskaði framkv.stjórinn
ekki að gefa frekari upplýsingar
að svo stöddu. Hins vegar bætir
Vísir því við frá eigin brjósti. að
Elögfélagið muni hafa fest kaup
á Skymaster-flugvél.