Dagur - 16.03.1949, Síða 12
12
Bagub
Miðvikudaginn 16. marz 1949
Fjárliagsáætlun bæjarins afgreidd:
Úfsvörin áætluð 560 þús. krónum
hærri en ári 194S
Alls jafnað niðnr kr. 5.123.460.00
Á fundi bæiarráðs 10. marz sl. var fjárhagsáætlun Akureyrar-
kaupstaðar fyrir yfirstandandi ár endanlega afgreidd af hálfu ráðs-
ins og á bæjarstjórnarfundi í gær var áætlunin til síðari umræðu
og afgreidd bar.
Leggur áherzlu á öruggar varnir milli sýktra
og ósýktra svæða
Samkvæmt áætluninni, eins og
hún lítur út eftir breytingar þær,
sem gerðar hafa verið á henni frá
því hún var til fyrri umræðu í
bæjarstjórninni, verður jafnað
niður á borgarana kr. 5.123.460.00.
Venja er að hækka þessa upphæð
um allt að 10% í meðförum niður-
jöfnunarnefndar, til jjess að mæta
afföllum, útsvarskærum o. s. frv.
Við síðari umræðu fjárliagsáætlun-
ar fyrra árs, voru útsvörin áætluð
kr. 4.683.000.00, eða 560 þúsund
krónum lægri en nú, en alls mun
hafa verið jafnað niður i fyrra
kr. 5.184.000.00, og verður væntan-
lega jafnað niður kr. 5.600.000.00
að þessu sinni, ef að venju lætur.
Verðut haumast hjá því komist,
að Jressi mikla hækkun útsvaranna,
miðað við fyrra ár, þyki heldur
óglæsileg, sérstaklega þegar Jtess er
gætt, að líklegast má telja, að tekj-
ur manna hafi yfirleitt verið minni
á árinu 1948 en var árið 1947.
Er Jrað orðið fullkomið áhyggju-
efni, hversu útgjöld bæjarins fara
síhækkandi. Munar Jrar að sjálf-
sögðu mest um ýms lögboðin út-
gjöld, svo sem til almannatrygg-
inga, en hins vegar verður naum-
ast sagt, að bæjarstjórnin hafi jafn-
aii gætt Jiess sem skyldi, að forða
bæjarbúum frá ónauðsynlegum út-
gjöldum.
Má í því sambandi benda á, að
á áætluninni er 215 Jnis. kr. fram-
lag tii togarakaupa. Knúðu bæjar-
rekstrarflokkarnr Jiað fram, að
bærinn hlypi fram lyrir skjöldu
með fjárframlög í Jiví skyni, áður
en reynt var, hvort einstaklingar
í bænum og félög, sem fjárráð.
hafa, vildu leggja fram það hluta-
fé, sem til þurfti, til Jress að tryggja
komu togarans hingað.
Allmiklar framkvæmdir.
Utgjaldahlið áætlunarinnar bcr
Jiað með sér, að bærinn leggur nú
mikið fé lil alls konar fraijikvæmda
í bænum, enda brýn nauðsyn fyr-
ir Jiær flestar. Af slíkum fjárfram-
lögum má telja þessi: Til verka-
mannabústaða 120 þús., til sjúkra-
hússbyggingariiinar 150 þús., til
íþróttavalla 50 þús., til bókhlöðu
50 þús., til nýrrar sundlaugar 100
þús.i til byggingasjóðs 200 þús., til
dagheimilis og viiggustofu 20 þús.,
til verkfærakaupa 100 Jn'is., til tog-
arakaupa 215 þús., til Krosseness-
verksmiðju 250 Jnis', til dráttar-
brautar 150 Jnis., til nýrra vcga og
viðhalds 502 Jnis. Hæsti liður áætl-
unarinnar eru tryggingamálin;
kosta Jiau, almannatryggingar og
sjúkratryggingar, 860 Jnis. kr.
Flestar breytingariillögur íelldar.
Flestar breytingatillögur ein-
stakra bæjarfultrúa voru lelldar. 1>.
á m. tillögur þær, sem Svafar Guð-
mundsson og Jón G. Sólnes fluttu,
til lækkunar á útgjöldum, en í
Jiessum tillögum var m. a. gert
ráð fyrir að spara með Jn í að fella
niður framlag til rottueyðingar og
lækka um helming framlag til að
kaupa sómasamleg yegavinnuáhiild
til bæjarins! Þessar breytingar frá
fyrri umræðu voru samjiykktar:
Aætlun um tekjur af sæíagjaldi
kvikmyndahúsa var hækkuð um
3000 kr. Kostnaður við stjórii bæj-
arins hækkaður við liina nýju
launasamþýlckt bæjarins. Framlag
til Skógræktarfélags Eyfirðinga
hækkað úr 6000 kr. í 10.000 kr.
Oviss útgjöld lækkuð úr 150 Jn'is
í íOí) Jjús. niður telldur liður um
100 Jnús. kr. framlag til nýrrar
Glerárbrúar, en í staðinn kom
50 [nis. kr. framiág til stofnunar
sameignarfélags tun sand og malar-
nám. Niðurstöðutölur áætlunar-
llinai" eru kr. 6.366.250.00
Samviiimiskólmn
39 ára
Sl. föstudag varð Samvinnu-
skólinn 30 ára og var þessara
tímamóta í sögu skólans minnzt
með hófi að Hótel Boi'g. Þar
fluttu eldri og yngri nemendur
skólans ræður. Var skólastjórans,
J ónasar Jónssonar, sérstaklega
minnzt. Nemendur tilkynntu
sjóðstofnun, sem á að verða til
sfyi'ktar efnilegum Samvinnu-
skólanemendum og nefnast
Menningarsjóður Jónasar Jóns-
soriar. í undirbúningi er veglegt
áfmælisrit skólans.
„Kaldbákur“ kom með
kolaflutningaskipið
til bafnar
Síðastl. föstudag fór kolaflutn-
ingaskipið ,,Herma“ héðan áleiðis
til Narvik í Noregi. Skipið er um
3000 lestir og hafði losað hér kol
til KEA. Er skipið var statt und-
an Tjörnesi bilaði vél “þess. Var
sent skeyti hingað um aðstoð. —
Umboðsmenn skipsins hér fengu
togarann Kaldbak til þess að fara
á vettvang. Kom togarinn með
skipið hingað á laugardagsmorg-
un og liggur skipið hér enn. Er
óráðið hvort reynt verður að
framkvæma viðgerð hér.
Gulur
perlu-eyrnalokkur
lapaðist sl. föstudag á leið-
inni Bjarmastígur—Odda-
gata—Riiðhústorg. — Finn-
andi v insaml. gcri aðvart á
afgreiðslu Da'gs.
Reynt að halda uppi
bílferðum yfir
Öxnadalslieiði
Um kl. 1 í gaei' lagði póstbíll úr
Reykjavík upp héðan áleiðis suð-
ur. Bíll þessi kom á laugardaginn
var hingað. Hafði þá verið rutt
snjó af Oxnadalsheiði og reynd-
ist það auðvelt. Aðaltorfæran á
leiðinni var á Holtavörðuheiði, en
snjóþyngsli eru þar mikil. í gær
snjóaði talsvert hér um slóðir.
Var ekki vitað í gær, hvort póst-
bílarnir úr Reykjavík, sem fóru
þaðan í gærmorgun, mundu halda
áfram alla leið hingað, eða aka
aðeins til Sauðárkróks. Búast má
við því að akfæri hafi spillzt
mjög í gær og í nótt.
Ráðlierrar flognir í
vesturveg
Síðastl. laugardagskvöld fóru
áleiðis til Bandaríkjanna þrír
ráðherrar íslenzku ríkisstjórnar-
innar, þeir Bjarni Benediktsson,
Emil Jónsson og' Eysteinn Jóns-
son. Erindi þeirra er að kynna sér
efni Atlantshafssáttmálans fyrir-
hugaða með viðræðum við em-
bættismenn bandaríska utanrík-
isráðuneytisins. í viðtali við am-
erísk blöð hefir utanríkisráðherr-
ann látið svo ummælt, að Alþingi
muni skýrt frá árangri fararinn-
ar og þá muni verða tekin
ákvörðun um það, hvort ísland
gerist aðili að sáttmálanum eða
ekki.
Fiskveiðar Dana
við Græsiland
geEgii illa
Social-Demokraten segir að
litkoman á fiskveiðum Dana við
Grænland á sl. ári hafi orðið
mjög léleg og tap á útgerðinni.
Brezkt blað, sem skýrir frá
þessu, bætir við, að Danir hafi
ekki getað kennt Eskimóunum
neitt nýtt um fiskveiðatækni, hafi
þeir auk heldur reynst Dönum
slyngari í verkun aflans. Hlutur
fiskimanna þeii’ra, sem til
Grænlands fóru, varð minni en
hlptur þeirra, sem veiðar stund-
uðu á venjulegum fiskimiðum
Dana. Dönsku fiskimennirnir láta
illa af vistinni á Grænlandi, var
óyndi í þeim og vonleysi um
miklar og fljótfengnar tekjur. —
Eftir þessa reynslu er óvíst talið
að Danir muni hyggja á mjög
auknar fiskveiðar fíá Grænlandi.
Norðmenn láta þetta hins vegar
ekki á sig fá og ráðgera stóran
leiðángur - til Grænlands í maí.
Er nánar greint frá Jieim fyrir-
ætlunum annars staðar í blaðinu
í dag.
Á búnaðarþingi því er nú situr
hefir verið rætt um fjárpestirnar
sem nú herja í landinu, svo og
varnir gegn þeim og fjárskipti. —
Eftirfarandi álylctun var nýlega
samþykkt á þinginu.
„Þar sem nú þegar er búið að
verja stórum fjárfúlgum til út-
rýmingar fjárpesta í landinu, tel-
ur búnaðarþing óumflýjanlega
nauðsyn að ekkert sé sparað til
öryggis hinum heilbrigðu svæð-
um og ekki sé látið viðgangast að
sýkt svæði fái að halda fjárstofni
sínum' inn á milli nýrra fjár-
skiptasvæða, sem flutt hafa heil-
brigða fjárstofna.
Skorar búnaðarþing, að gefnu
tilefni, á Sauðfjársjúkdóma-
nefnd og ríkisstjórn, að gera
ráðstafanir til þess að þessari
hættu verði afstýrt, þar sem
hún er fyrir hendi og að fjár-
skipti fari fram á svæðinu, milli
Eyjafjarðargirðingar og Hér-
aðsvatna á næsta hausti.
Ennfremur bendir búnaðar-
Jjing eftirfarandi áskorun til
Sauðf j árveikivarnanna:
1. Að ekki sé leyfður flutning-
ui' fjár af sýktum svæðum yfir
heilbrigð svæði, nema brýn nauð-
syn beri til, vegna fjárskipta,
enda séu flutningarnir fram-
kvæmdir undir opinbei-u eftirliti.
2. Að ekki sé leyfður flutning-
ur á sauðfé milli fjárskipta og þá
ekki fyrr en á þriðja ári eftir að
fjárskipti hafa farið fram á því
svæði, sem féð er tekið frá. Þetta
skal Jjó aðeins leyft að innflutt fé
af fjárskiptasvæðum sé haldið að-
greindu frá fé frá ósýktum svæð-
um með öruggum girðingum eins
og lagðar eru milli fjárskipta-
sva?ða.
3. Að aldrei sé flutt fé af þeim
svæðum, er áður hafa verið sýkt
af garnaveiki, inn á svæði, þar
sem hún hefir ekki komið fram.
4. Að ekki sé leyfður flutningur
fullorðins fjár inn á fjárskipta-
svæði.
5. Að ríkissjóður annist viðhald
girðinga milli fjárskiptahólfa
fyrstu árin eftir að fjárskipti hafa
farið fram, en síðan séu girðing-
arnar afhentar viðkomandi hér-
uðum, með þeirri kvöð að þau
annist viðhaldið“.
2000 kr. hafa safnast á 5-krónu
veltu „Þórs“.
Alls hafa nú safnast rösklega
2000 krónur í skíðaskálasjóð Þórs
á 5-króna veltunni, sem stofnað
var til hér fyrir nokkru. Veltunni
er nú senn lokið.
Jóhann Svarfdælingur á Florida
Þessi inyn d af Jóhanni Svarfdæling birtist fyrir skemmstu í blaðinu
„Tampa Morning Tribune“ í Sarasota á Florida í Bandaríkjunum.
Segir blaðið Jóhann síarfa við fjölleikahús þar vestra, en hafa dvalið
í Sarasota í leyfi sínu, m. a. til náms í myndlist. Myndin er tckin á
útihátíð í Sarasota, mcð Jólianni cru á myndinni tveir nemendur í
Iistaskóla þeim, er hann sækir. Sérstakir búningar cru viðhafðir
á útihátíðum hessum.