Dagur - 04.05.1949, Qupperneq 12
12
Miðvikudaginn 4. maí 1949
Bagu
Vöruskortur háði starfsemi Kaup-
féiags Sigifirðinga á sL ári
Félagið hefur rétt við fjárhagslega eftir
óstjórn kommúnista
I nýkomnum „Einherja“ er
greint írá deildarfunduin í Kaup-
félagi Siglfirðinga og skýrslu
stjórnar og framkvæmdastjórá
um afkomu félagsins á sl. ári.
Samkvæmt frásögn blaðsins
minnkaði vörusala félagsins í
vefnaðarvöru- og matvörudeild-
um um á fjórða hundrað þús. kr.
Heildarsala félagsins var hins
vegar svipuð og næsta ár á und-
an ve'gna þess að sala nýs fyrir-
tækis —- brauðgerðar — vegur á
móti lækkuninni í öðrum vöru-
flokkum.
Blaðið segir svo:
Batnandi hagur félagsins.
Reikningar KFS, sem nú liggja
fyrir, bera það með sér, að efna-
hagur félagsins hefir enn batnað
á sl. ári, og er nú svo komið, að
félagið hefir að mestu náð sér
efnahagslega eftir óhöpp. þau, er
það varð fyrir og öllum félags-
mönnum eru minnisstæðari en
svo, að þörf sé að rifja þau frek-
ar upp. Rekstursútkoma ársins
1948 virðist hins vegar vera
nokkuð lakari en næsta árs á
undan, enda var fjárhagsafkoma
ársins 1947 mjög góð hjá félaginu.
Heildartekjur félagsins voru 626
þús. krónur 1947, en 591 þús. kr.
1948. Hins vegar varð félagið þá
að bera tap á síldarsöltun sinni,
sem hins vegar varð ekki á sl. ári.
Tekjuafgangurinn 1947 var kr.
170 þús., en nú tæplega 137 þús.
Opinber gjöld.
Það er athyglisvert, að KFS
greiðir liðlega 76 þús. kr. í opin-
ber gjöld til ríkis og bæjar. Af
þessu er veltuskatturinn yfir 38
þiisundir. Einatt heyrist sagt, að
kaupfélögin séu skattfrjáls, og
svo virðist sem margir leggi trún-
að á þann söguburð. Þessi stað-
reynd talar hins vegar öðru máli.
Vöruskorturinn.
Umsetning félagsins ber með
sér að vöruskorturinn hefir verið
mikill. Þessi staðreynd er al-
menningi kunn. Félagsmenn hafa
ekki getað fengið nema hlut þess
varnings hjá félagi sínu, sem þeir
hafa þurft og óskað. Vefnaðar-
vöruskorturinn hefir verið stór-
kostlega bagalegur. Ekki hefir
fengist vefnaðarvara út á nema
hluta þeirra miða sem í gildi hafa
verið fram til þéssa. Þar að auki
hefir svó langtímum saman verið
stórkostlegur skortur almennra
matfanga. — Hreinlætisvörur
voru ófáanlegar mánuðum saman
á sl.’ ári. Smjörlíkislaust var einn-
ig vikum saman. Almennar nið-
úrsuðúvörur, kartöflumjöl, hrís-
‘grjón, að ekki sé talað um „iux-
usvörur“ eins og þurrkaða ávexti
eða sultur hafa verið ófáanlegar
með öllu eða svo til allt sl. ár.
Enda. er það, svo,. að,umsetning
Matvörudeildíir KFS hefir lækk-
að samkv. ársskýrslu félagsins
um líúmar SÖÓ þúsund krónur
eða'30%.
Það. er ekki hægt að una við
það ástand, sem ríkir í verzlunar-
málunum. 'Almenningur gerir
þær kröfur til ríkisvaldsins, að
það sé tryggt, að almennar
neyzluvörur séu jafnan nægar til
í landinu, þar með talin vefnað-
arvara og skófatnaður. Þar að
auki eiga borgararnir að geta haft
frjálst val um hvar þeir verzla og
vörumagnið,'sem inn er flutt, á
að geta færzt frá kaupmanna-
verzlunum til kaupfélaga — eða
öfugt — eftir því sem almenn-
ingi finnst eðlilegt og hagfeldast.
Ráðstöfun ársarðsins.
í ársskýrslu KFS er birt til-
laga um ráðstöfun tekjuafgangs-
ins, sem stjórn félagsins og end-
urskoðendur munu leggja fyrir
aðalfund þess. Þar er lagt til, að
um 10 þús. kr. verði varið til af-
skrifta, um 60 þúsundum til sam-
eignar sjóða og félagsmönnum
verði endurgreitt í hlutfalli við
viðskipti 3% til Stofnsjóðs og
önnur 3% á Innlánsdeild hvers
félagsmanns, sem gera liðlega 66
þúsund krónur....
Fisksökisamlag
Eyfirðmga liefur
starf
a
ny
Ákveðið er að Fisksölusamlag
Eyfirðinga hefji fiskútflutning á
ný frá verstöðvunum hér við
Eyjafjörð. Hefir samlagið tekið
vélskipið Ingvar Guðjónsson á
leigu og byrjaði skipið að taka
fisk hér í Eyjafirði sl. mánudag.
Fiskurinn verður seldur á Bret-
landsmarkaði.
neituðii að gauga
að kauphækkunar-
kröfum tréssniða
Ilinn nýji taxti Trésmiðafélags
Akureyrar átti að ganga í gildi 1.
þ. m., samkv. fundarsamþykkt í
fyrri viku, sem skýrt var frá í
síðasta blaði. Var þar samþykkt
með 13 atkv. gegn 10 að hækka
kaupið um rösklega 20%, að
dæmi trésmiða í Reykjavík.
Áður en kauphækkun þessi
kom til framkvæmda tilkynntu
trésmíðaverkstæði þau, sem
sveina hafa í þjónustu sinni, og
aðrir atvinnurekendur, að ekki
yrði gengið að þessum nýja kaup-
taxta og mundi vinna falla niður
frá 1. maí, ef taxtanum yrði hald-
ið til streitu. Fór svo á mánudag-
inn, að sveinar mættu ekki til
vinnu. Engar viðræður munu enn
hafa farið fram milli Trésmiðafé-
lagsins og atvinnurekenda.
Trésmiðir í Reykjavík hækk-
uðu kaup sitt fyrir nokkru með
fundarsamþykkt, en atvinnurek-
endur þar hafa heldur ekki sam-
þykkt hinn nýja taxta og mun
ríkja svipað ástand á trésmíða-
verkstæðum þar og hér.
„Pólstjarnan“ seldi
á Bretlandsmarkaði
Síðastliðinn mánudag seldi m.s.
Pólstjarnan frá Dalvík 3893 kits
af fiski, sem skipið hafði keypt af
bátum hér við Eyjafjörð, í Fleet-
wood, fyrir 9944 sterlingspund.
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
ÁTTI FRUMKVÆÐIÐ AÐ
„VIÐTÖLUNUM ÚR SVEIT-
INNI.
(Framhald af 1. síðu).
honum áfram. Sú hefir nú samt
ekki orðið raunin á. Þættir þessir
féllu niður er fræðsluviku Bún-
aðarfélags íslands lauk. Blaðinu
hefir verið bent á í þessu sam-
bandi, að það sé ranghermt að
útvarpsráð hafi átt frumkvæði að
dagskrárlið þessum. Búnaðarfé-
lag íslands og Gísli Kristjánsson
ritstjóri beittu sér fyrir þessu ný-
mæli. Leiðréttir blaðið þetta hér
með. Munu landsmenn kunni fé-
laginu og Gísla — svo og þeim
bændum, er létu til sínu heyra —
beztu þakkir fyrir frammistöðuna
og eindregið vænta þess að út-
varpið láti þennan dagskrárlið
ekki niður falla. Því er mikil þörf
á að þar heyrist að jafnaði fleiri
„raddir" en nú er venja.
rænlands
I
Ðanir leggja kapp á að koma atviimuvegum
Grænlands í nýtízkulegra liorf
Dönsk blöð skýra frá því, að í
sumar verði nieira um að vera á
Grænlandi en nokkru sinni fyrr
í sögu nýlendunnar. 500—000
manns fara til Grænlands sjóleió-
is og íoftleiðis til þess að taka
þátt í uppbyggingu landsins og
80-100 menn verða að auki send-
ir til þess að vinna að hagnýtingu
hinna miklu blýnáma í Græn-
landi.
Formaður Grænlandsstjórnar,
Eske Brun, segir í viðtali við
Berlingske Tidende nú nýlega, að
í sumar verði byggt stórt, nýtízku
sláturhús í Grænlandi og niður-
suðuverksmiðja í nágrenni Juli-
anehaab. Reiknað er með því'að
tala sláturfjár muni verða a. m. k.
10.000 í haust. Kjötið verður fyrst
og fremst selt á innanlandsmark-
aði, og til að byrja með er ekki
reiknað með útflutningi á niður-
soðnu kjöti. Hins vegar verður nú
hafizt handa um útflutning græn-
lenzki-a rækja og niðursoðins lax.
Tilraunir verða gerðar með nið-
ursuðu á hval.
í sumar verða fjórar græn-
lenzkar byggðir raflýstar: Juli-
anehaab, Godthaab, Holsteins-
borg og Egedesminde. Byggðii’
verða nýjir skólar og ný sjúkra-
hús.
Lauge Koch rannsakar
blýnámurnar.
Framhaldsiannsóknir á hinum
miklu blýnámum í Grænl. munu
fara fram í sumar og hefjast með
Grænlandsleiðangri dr. Lauge
Koch, og verður þetta stærsti
leiðangur, sem hinn kunni Græn-
landskönnuður hefir stofnað til.
Ekki er reiknað með því að
vinnsla í námunum geti hafizt í
ár, heldur fari fram rannsóknir á
magni námanna og vinnslumögu-
leikum til trygg'ingar þeim miklu
fjármunum, sem ætlað er að
verja til blýnáms í Grænlandi í
framtíðinni.
Forsætisráðherrann til
Grænlands í sumar.
Dönsk blöð skýra og frá því,
að danski forsætisráðherrann og
fulltrúar þingsins muni fara til
Grænlands í sumar á skipinu „A.
P. Bernstorff11. í förinni verða
auk danskra stjórnmálamanna og
fulltrúa Grænlendinga, blaða-
menn og kvikmyndatökumenn.
75 Norðmenn í þjónustu íslendinga
við hvalveiðar
Norska blaðið „Sandefjords
Blad“ birti nýlega viðtal við hinn
norska hvalveiðistjórá í Hval-
firði, L. H. Skarre, í tilefni af því
að hann er þá að leggja af stað til
íslands til starfa við aðra hval-
veiðivertíðina frá Hvalfirði. Hann
segir þar, að veiðin eigi að hefj-
ast hinn 21. apríl og sömu bátar
og í fyrra muni veiða, fjórir sam-
tals. Þeir hafa verið til viðgerðar
og eftirlits í Arendal og Sarps-
borg í vetur. Skarre segir síðan
frá veiðinni í fyrra, og greinir frá
því, að í ár verði framleitt fóður-
mjöl jöfnum höndum og lýsi og
kjöt, og Hvalfjarðarstöðin hafi
nýlega fengið nýjar vélar til
þeirrar vinnslu.
Ennfremur segir svo í blaðinu:
í landi vinna norskir fagmenn
ásamt íslenzkum verkamönnum.
Norðmenn þeir, sem á íslandi
eru, eru flestir frá Vestfold og
eru hvalveiðimenn að atvinnu. —
Launin á íslandi eru svipuð og
greidd eru í Suður-íshafinu, þótt
ekki séu þau eins há og þeir
veiðimenn fá, sem eru á móður-
skipum, sem koma með 200.000
tunnur lýsis í vertíðarlok. Til
næstu vertíðar eru ráðnir 75
Norðmenn. Blaðið skýrir enn-
fremur frá því að forstjóri ís-
lenzka hvalveiðafélagsins, Arn-
ljótur Guðmundsson hafi nýlega
vei'ið á ferð í Sandefjord.
1. inaí-hátíðahöld
í Húsavík
Frá fréttaritara blaðsins:
1. maí-hátíðahöldin hér hófust
með guðsþjónustu í kirkjunni. —
Samkoma var um kvöldið í sam-
komuhúsinu og setti Jónas Egils-
son hana með ræðu. Frú Hallfríð-
ur Sigtryggsdóttir flutti snjallt
erindi í tilefni dagsins, Njáll
Bjarnason og Egill Jónasson lásu
upp, Karlakórinn Þrymur
skemmti með söng. Merki dagsins
voru seld á götunum allan dag-
inn.
ur út lán vegna
V estmannaey jabær
býð
skulda hæjarút-
gerðarinnar
í nýkomnum Vestmannaeyja-
blöðum er auglýst lánsútboð að
uppiiæð 1/4 millj. króna til þess
að greiða skuld bæjarútgerðar
kaupstaðarins við Stofnlánadeild
sjávarútvegsins. Samkvæmt frá-
sögn blaðanna hefir lán bæjarút-
gerðarinnar hjá Stofnlánadeild-
irini vegna kaupa togaranna Ell-
iðaey og Bjarnarey, verið í van-
skilum og málefni bæjarútgerð-
arinnar í óreiðu.