Dagur - 25.01.1950, Page 1
Forustugreinin:
Kyrrstaðan er stefna
Sjálfstæðisflokksins.
AGU
Fiinmta síðan:
Kynnið ykkur kosninga
leiðbeininguna á 3. bls.
XXXIII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 25. janúar 1950
6. tbl.
íhaldið vili kyrrstöðu í bænum
Húsaleigunefndin átti að fyrirbyggja vöxt bæjar-
ins og eflingu athafnalífsins, að sögn íslendings
f síðasta tbl. íslcndings cr svar-
að spurningu þeirri, sem borin
var fram hér í blaðinu í sl. viku:
Hvers vegna er Akurcyri vaxandi
bær? Dagur leiddi rök að því, að
vöxtur bæjarins og efling at-
vinnulífsins byggðist á hinum
mikiu framkvæmduin samvinnu-
fclaganna hér. Þær framkvæmdir
er sú „nýsköpun“, sem bezt hef-
ur dugað bæjarfélaginu á undan-
förnum árum og eru að verulegu
leyti undirstaða efnahags- og at-
vinnuöryggis bæjarmanna.
Málgagn Sjálfstæðisflokksins er
ekki á þessari skoðun, sem kunn-
ugt er. í þeim herbúðum er talið
að framkvaemdir samvinnufélag-
anna séu til tjóns og niðurdreps
fyrir bæinn. íhaldið vill þá skip-
an bæjarmálanna, að athafna-
menn á borð við Valgarð Stefáns-
son og Odd Thorarensen séu sem
mest einráðir í verzluninni til
þess að þeir geti borið nógu há
útsvör! Útsvarsgreiðslur „mátt-
arstólpanna" leysi allan vanda
bæjarmálanna! Þetta er megin-
stefna íhaldsins í bæjarmálunum.
Til þess að unnt sé að fram-
kvæma hana, verður að fyrirr
byggja, að bærinn geti vaxið, að
samvinnufélögin fái viðunandi
starfsskilyrði, að nýjum atvinnu-
fyrirtækjum sé komið upp. Og
síðasti íslendingur bendir á leið-
ina:
Hann ræðst á húsaleigunefnd
fyrir áð hafa ekki fyrirbyggt
vöxt bæjarins, kyrkt eflingu
atvinnulífsins í fæðingunni. —
Það er húsaleiguuefnd að
kenna, segir íslendingur, að
bærinn hefur vaxið!
Þarna hafa menn kyrrstöðu-
pólitík íhaldsins ómengaða. Bæj-
armenn spyrja, og. ekki að
ástæðulausu: Lifa. frambjóðend-
ur og rithöfundar íhaldsins hér
enn á öldinni sem leið? Hefur
flokkur þeirra ekkert lært í 50
ár? Eða er Sveinn Bjarnason al-
gerlega tekinn við stjórninni á
flokksheimilinu hér? Ymsum
finnst það líklegasta skýringin á
hinum fomeskjulegu skrifum ís-
lendings nú í seinni tíð.
Rifrildi um keisarans
skegg
Oll nýsköpunarhersijigin er kom-
in í háaril'rildi i'n af Jjví, hver flokk-
%
anna þriggja hafi staðið fyrir því
að togararnir'komu til bæjarins. Er
mest lagt upp úr tillögum og orða-
gjálfri á jjessum cða himun fund-
inum. Bæjarmenn vitá mæta vel, að
skvaldur Jjcssara pólitísku spekúl-
anta flutli ekki logarana í hæinn,
hehlur pað fjdrmiign, sem eitislak-
lingar í bcenum, Kaupfélag Eyfirð-
inga og bæjarsjóður lögðu til mdls-
ins. Það var undirstaða togarakaup-
anna, en ekki innblástur Helga
l’álssonar, Braga Sigurjt’mssonar og
Tryggva Helgasonar.
Sjáífsfæðisflokkurinn hér enn
ákveðinn ðð beifa sér íyrir
„úfburði" ufanbæjðrmanna
Á „málefnayfirlýsingu“ þeirri,
sem Sjálfstæðisflokkurinn gaf út
á dögunum í tilefni bæjarstjórn-
arkosninganna, var lögð áherzla
á, að framfylgja 3. grein húsa-
leigulaganna „með fullri festu“
hér eftir.
En eins og rakið hefur verið hér
í blaðinu, fjallar 3. greinin um
það, að heimilt er að láta bera
fólk út úr íbúðum, sé það ólög-
lega í þær komið. Hefur þessu
lagaákvæði livergi verið fram-
fylgt svo vitað sé og enginn
stjómmálaflokkanna hefur heitið
því að beita sér fyrir fram-
kvæmdinni, fyrr en Sjálfstæðis-
flokkurinn á Akureyri gerir það
nú.
Ekkert grín.
Dagur benti á þessa staðreynd
á dögunum, og minnti jafnframt
á ,að það nálgaðist fullkomna
ósvífni af Sjálfstæðisflokknum að
gera einmitt þetta mál að stefnu-
skráratriði, þar sem vitað væri
að ýmsir þeir menn, sem prýða
lista flokksins við þessar kosn-
ingar, eru einmitt fluttir í bæinn
án samþykkis húsaleigunefndar.
En Sjálfstæðisflokknum er alvara
í þessu máli. Þetta baráttumál
hans er ekkert grín. íslendingur
síoasti tekur ómildilega undir
gagnrýni Dags og heldur fast við
þann þátt málefnayfirlýsingarinn
ar. Það er því augljóst, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hér hyggst beita
sér . fyrir útburði utanbæjar-
manna, ef hann fær aðstöðu til
þess eftir kosningarnar. Kannske
flokkurinn hyggist stofna sérstakt
„útburðarstjóraembætti“ ef fá-
tækraf.tr.starfið yrði lagt niður?
iróifaleikvangurinn er eitt af þeim verkefnum,
Sjálfstæðisflokkur-
imi liefur engan
áhuga fyrir bættri
aðstöðu togaranna
Langt er nú umliðið síðan
Dagur bar fram tillöguna um
togarabryggjuna á Oddeyri og
að afgangsefni hafnarinnar
verði notað til þess að koma
upp framtíðaraðstöðu fyrir
togaraútgerðina við Glerár-
ósa. í þeim íslendingsblöðum,
sem síðan hafa komið út, hef-
ur mál þetta ekki verið nefnt.
Og spurningum, sem Dagur
lagði fyrir blaðið ekki svarað.
Ilins vegar lýsti efsti maður
Sjálfstæðisfl.listans, Helgi
Pálsson, andstöðu við þessar
fyrirætlanir á umræðufúndi
Stúdcntafélagsins fyrir nokkru
og talaði fyrir milljóna-ból-
verkinu við Strandgötu. Er
því augljóst, að Sjálfstæðis-
flokkurinn er því andvígur, að
leysa vandamál togaranna
með þessum hætti, en hefur
hins vegar ekki upp á neinar,
aðrar tillögur að bjóða. Vill
þegar festa mikið fé í bólverk-
inu, sem ekki kæmi bænum að
ncinum notum í náinni frain-
tíð. Þannig er útgerðaráhugi
Sjálfstæðisflokksins í fram-
kvæmd.
Stuðlum að því, að kjör-
sókn verði ekki lökust
á Akureyri!
f bæjarstjórnarkosningunum
1942 var kjörsókn hér á Akur-
eyri lökust í kaupstöðunum,
cða 82%. Það er mikilsvcrt
atriði fyrir hvern borgara,
Hverjir fara með stjórn bæjar-
málefnanna hvcrju sinni. —
Framsqknarflokkurinn hvetur
stuðningsmenn B-Iistans til
þess að sækja kosninguna vel
og kjósa snemina. Mikil og góð
kosningaþátttgka sýnir lifandi
áhuga borgaranna fyrir mál-
cfnum bæjarfélagsins og lýð-
ræðisstjórn. Sækið því kosn-
inguna vel og kjósið snemma!
Leikfélagið Iiefur sýnt
„Pilt og stúlku"
11 sinnum
Leikfélag Akureyrar hefur nú
haft 11 sýningar á sjónleiknum
Piltur og stúlka og hefur oftast
verið húsfyllir. Vegna bæjar-
stjórnarkosninganna yerða engar
sýningar í þessari viku, en hefj-
ast aftur eftir helgina.
sem Ijúka þarf á næsfa
kjörfímabili
Næst liggur fyrir að fullgera knattspyrnuvöll
og hlaupabraut
Haustið 1948 hófust framkvæmdir á nýja íþróttasvæðinu, sem
verið cr að gera á Oddeyri. Hafði bæjarstjórnin og skipulagsnefnd
þó samþykkt uppdrátt að öllum leikvanginum, cr Gísli Halldórsson
arkítekt hafði gert í samráði við íþróttafulltrúa ríkisins. Síðan hcfur
vcrið varið 130 þúsund krónum til vallarins. Ætlað er að fyrir 100
þús. kr. framlag til viðbótar megi koma knattspyrnuvellinum og
hlaupabrautinni í notkun. En langt cr samt í land, að allt hið glæsi-
lcga svæði verði fullbúið.
Dagur hefur átt tal við Ármann
Dalmannsson, formann íþrótta-
vallarnefndarinnar, um fram-
kvæmdirnar og horfumar. Taldi
blaðið rétt að gera bæjarmönnum
grein fyrir þeim og benda á, hver
mundu verða verkefni nýju bæj-
arstjómarinnar í sambandi við
þetta mál.
Skipulag svæðisins.
Fyrst var hafizt handa um
framræslu svæðisins, haustið
1948, og er því verki að mestu
lokið. Einnig að jafna svæðið og
undirbúa knattspyrnuvöllinn. Á
sl. sumri var byrjað að vinna við
hlaupabrautina, sem er 400 metra
löng, og lykur um knattspyrnu-
völlinn. Hefur því verki miðað
vel áleiðis. Þetta tvennt, knatt-
spyrnuvöllurinn, sem á að vera
grasvöllur, og hlaupabrautin, er
hjarta leikvangsins. Til beggja
enda verða frjálsíþróttasvæði og
vestan við hlaupabrautina að-
staða fyrir stökk. Fyrir austan
aðalsvæðið er gert ráð fyrir knatt
spyrnuæfingavelli, sem verður
malarvöllur, en austan við hann
bílastæði. Norðan við frjáls-
íþróttasvæðið á að verða hand-
knattleiksvöllur og sérstakt
áhorfendasvæði fyrir hann í
klöppunum þar. Aðaláhorfenda-
svæðið verður í klöppunum og
brekkunni austan Brekkugötu.
Er þar gert ráð fyrir sætum og
stæðum og hagar mjög vel til að
koma þeim vel og smekklega fyr-
ir. Aðalinngangur á leikvanginn
verður frá Brekkugötu, og ann-
ar inngangur frá Hólabraut. —
Vestan við Hólabraut á að koma
bygging, sem hýsir búningsklefa,
böð og áhaldageymslur o. s. frv.
Sunnan við þá byggingu kemur
tennisvöllur.
Glæsilegur leikvangur.
Ollu þessu verður ekki komið
upp á skömum tíma, en er leik-
vangurinn verður fullgerður,
verður hann mjög glæsilegur 'og
hin mesta bæjarprýði. Aðstaða til
hvers konar íþróttaiðkana verður
þar ágæt. Lega staðarins er mjögdansað.
hentug. Þar er skjól fyrir öllum
áttum, aðstaða áhorfenda verður
ágæt, og svæðið inni í sjálfum
bænum, sem ætti að verða til
þess að beina athygli æskumanna
og annarra að íþróttaiðkunum
frekar en ef völlurinn væri utan
við bæ og ekki í daglegri augsýn
bæjarmanna. Er augljóst, að leik-
vangurinn hefur mikla menning-
arlega þýðingu fyrir bæjarfélagið
í heild.
Fjárniálin.
Bæjarsjóður hefur þegar lagt
fram 100 þúsund krónur til þessa
máls, fyrir utan kostnað við land-
kaupin. Á fjárhagsáætlun þessa
árs er gert ráð fyrir 50 þús. kr.
framlagi. íþróttasjóður ríkisins á
að greiða allt að 2/5 kostnaðar og
hefur þegar lagt fram 30 þús. kr.
íþróttavallarn. hefur sótt um
70 þús. kr. framlag úr íþrótta-
sjóði á þessu ári, en óvíst hvernig
þeirri umsókn reiðir af. Ekki
hefur verið gerð áætlun um
heildarkostnaðinn við að koma
leikvanginum upp, en lauslega
hefur verið áætlað, að það kosti
100 þús. kr. í viðbót að gera
knattspyrnuvöllinn og hlaupa-
brautina nothæfa. Ætti því marki
að verða náð innan skamms.
Verkefni nýju bæjarstjóraar-
innar.
Bygging íþróttaleikvangsins á
Oddeyri er nú komin á þann
rekspöl, að henni verður fyrir-
sjáanlega lokið i náinni framtíð.
En hraðinn í framkvæmdinni fer
(Framhald á 7. síðul.
Fjölmei
enm a
Framsóknar'vistinni
Framsóknarfélögin höfðu
skemmtikvöld að Hótel KEA sl.
sunnudagskvöld. Var þar sam-
ankomið fjölmenni, sem á fleiri
skemmtisamkomum félaganna.
Fyrst var spiluð Framsóknarvist,
þá flutti Þorst. M. Jónsson skóla-
stjóri snjalla ræðu og .síðan var