Dagur - 25.01.1950, Síða 5
Miðvikudaginn 25. janúar 1950
D AGUR
5
Hvers vegna kýs eg Sista Fram-
sóknarf Sokksins ?
Af ]ni að stefna hans er í samræmi við lífs-
skoðun frjálshuga manna
Eg hitti kunningja minn á götu
hér um daginn, og hann spurði
mig, hvort eg ætlaði að kjósa lista
Framsóknarflokksins, og styðja
með því vald Kaupfélags Eyfirð-
inga í bænum.
Eg svaraði, að engan annan af
þeim listum, sem í boði væru,
gæti eg eða vildi kjósa.
— Hvers vegna? spurði hann.
— Vegna þess, að eg hef þá
lífsskoðun, að eðlileg þróun á
grundveili persónufrelsis sé far-
sælust fyrir þjóðina, svaraði eg.
Og svo skýrði eg fyrir honum
viðhorf mitt með nokkrum orð-
um, og álit mitt á framboðslistun-
um, og fer það hér á eftir.
Eg get ekki kosið lista Sjálf-
stæðisflokksins, af því að eg veit
að stefna hans, eins og allra
íhaldsflokka er að viðhalda sér-
réttindaklíku, kaupmöngurum
og bröskurum, sem vilja áuðga
sjálfa sig á kostnað almennings.
Endá kemur það glöggt fram í
kosningaræðunum í „íslendingi11,
að fulltrúar listans telja það hlut-
verk sitt að vinna gegn framfara-
málum í bænum, svo að útsvörin
verði ekki of há á verzlununum.
Það er ósvikin íhaldsstefna.
Flokki rússnesku Bolsevikk-
anna — Sósíalistaflokknum —
fylgja þeir einir, sem trúa á
starfsaðferðir kommúnismans
eins og þær birtast í Rússlandi
og öðxum löndum Austur-Ev-
rópu. Þar sem allt athafnalíf
þjóðfélagsins er lagt í hendur
einnar ílokksklíku, og allir þegn-
ar þjóðíélagsins verða að vera
þjónar þeirrar klíku. Þar er per-
sónufrelsi einstaklingsins afmáð,
og þeir, sem gagnrýna eitthvað
þessa sérréttindaklíku, eru um-
svifalaust hnepptir í þrældóm. —
Óskiljanlegt er að nokkur íslend-
ingur skuli ljá þessari stefnu
. fylgi. Enda mun nú talið, að þessi
flokkur tapi verulega í þessum
bæjarstjórnarkosningum og fái
nú aðeins 2 fulltrúa kjörna í stað
3. áður.
Lista Alþýðuflokksins get eg
ekki kosið, af því að eg eg er ekki
sósíalisti — trúi ekki á að taka
upp bæjar- og ríkisrekstur í stór-
um stíl eins og er stefna þeirra
um heim allan. Satt bezt að segja
hefur það ekki gefist vel hér á
landi. Þeir bæir, sem komist hafa
undir stjórn kommúnista og jafn-
aðarmanna eru allir illa staddir
fjárhagslega. Verður vart gert
upp á milli þeirra í því efni, enda
er þetta sami grautur í sömu
skál. Þar við bætist, að hér á
landi hefur Alþýðuflokkurinn
verið um skeið varalið íhaldsins,
sem alltaf er til sölu. Þarf ekki
annað en minna á atkvæðagreiðsl
ur flokksins á Alþingi síðan
íhaldið myndaði hreina flokks-
stjórn, hvað þá áður.
Af framangreindum ástæðum
get eg ekki kosið neinn af list-
um þessara flokka, . og nú skal
skýrt frá því hvers vegna eg kýs
lista Framsóknarflokksins.
Framsóknarflokkurinn byggir
á hafna- og persónufrelsi þegn-
anna. Og stefna hans er, að eðli-
leg þróun þjóðfélagsins eigi að
byggjast á frjálsum samtökum, en
ekki fyrirskipunum frá ríkis-
valdinu. Þess vegna er sam-
vinnustefnan ein af grundvallar-
atriðum flokksins. Þessi stefna er
í samræmi við lífsskoðun mína og
því hlýt eg að styðja hana. Annað
væru svik við sjálfan mig.
Akureyri er mesti samvinnu-
bær á landinu. Má svo segja, að
bærin hafi vaxið upp í kringum
samvinnufyrirtækin og vegnað
vel. Það hljómar því einkenni-
lega í mínum eyrum, ef Kaupfé-
lag Eyfirðinga með allri sinni
starfsemi eigi nú allt í einu að
vera orðið hættulegt bæjarfélag-
inu. Hugsum okkur að Kaupfélag
Eyfirðinga og verksmiðjur S. í. S.
hyrfu einn góðan veðurdag burt
úr bænum. Skyldi bærinn verða
byggilegra við það? Skyldu þeir,
sem við það yrðu atvinnulaúsir,
fá nóg að gera við heildverzlun
Valgarðs Stefánssonar, eða gos-
drykkjagerðarsullið í bænum? —
Eg held tæplega. Nei, rógurinn
um KEA er fyrst og fremst
sprottinn af öfund yfir velgengni
þessa stóra fyrirtækis. — „Byrg-
ið hana, hún er of björt“ o. s. frv.
Jafnframt og Akureyri er mesti
samvinnubær á íslandi, þá er
hann einhver bezt stæði bær á
landinu. Er það ekki athyglis-
vert? Og ekki bendir það til þess
að samvinnufyrirtækin í bænum
séu honum til tjóns. Nei, rógur-
inn um KEA er aðeins kosninga-
grýla.
Finnar bjarga 160
ára gömlu herskipi
af siávarbotni
Finnar vinna um þessar mundir
að því að ná hluta af sögu sinni
upp úr hafinu. Verk þetta vekur
mikla athygli sagnfræðinga og
fomfræðinga.
Hinn 9 .júlí 1790 var háð önnur
sjóorrustan við Svensksund, í
milli rússnesks flota og herskipa
Gústafs III. Svíkonungs. Svíar
sigruðu í orrustunni og Rússar
Misstu 5 freigátur, 3 voru teknar,
en 2 var sökkt. Það eru þessar
tvær freigátur, sem Finnar eru
nú að lyfta af hafsbotni. Við sjó-
mælingar í fyrra, á svæðinu milli
Havvuri og Lehmássaari, utan
við Kotka, varð vart við óþekktar
mishæðir á botninum. Nánari
rannsókn sýndi að þarna voru
skipsskrokkar fyrir og að þetta
voru hinar gömlu, rússnesku
freigátur. Önnur freigátan,
Marie, hafði 34 fallbyssur og er
búið að ná 27 þeifra upp. Marg-
víslegir hlutir hafa komið upp úr
freigátunni, svo sem 160 ára
gömul siglingatæki, mynt, postU'
línshlutir og allmargar flöskur af
rauðvíni! Fallegur postulínsnátt
pottur er meðal gripa, sem bjarg-
að hefur verið. Og nú liggur næst
fyrir hendi að hefja sjálfan skips
skrokkinn upp á yfirborðið. Allt,
sem finnst í skipum þessum, verð
ur varðveitt á finnska þjóð-
minjasafninu. Talað er um að láta
endurbyggja freigátuna, ef tekst
að koma henni sæmilega heillegri
upp á yfirborðið, og hafa hana til
sýnis.
iðið gleymir Framsóknar-
í áróðri ssnum
Flokksforustan er blinduð af hatri sínu á K. E. A.
Vegaverkstjóri sem skattamálasérfræðingur!
X B. Framsóknarfólk!
Hefjið öfluga sókn og náið því
takmarki, að flokkurinn fái 4
fulltrúa kjöma í bæjarstjóm.
Flokkurinn hefur hafið sókn í
kaupstöðum landsins, sókn
sem endar með sigri írjáls-
lyndra umbótaafla, sem vilja
leysa þjóðfélagsvandamálin á
gr undvelli savinnustefnunn -
ar.
Af þeim ástæðum, sem nú hafa
verið greindar, kýs eg B-listann
á sunnudaginn kemur.
Akureyrignur.
Kosningahríðin stendur nú sem
hæst. Andstæðingar Framsókn-
arflokksins æpa nú einum kór og
egja, að Kaupfélag Eyfirðinga sé
að drepa Akureyri. Samtök sam-
vinnumanna séu skaðleg landi og
Iýð. Þetta er þeirra höfuð tromp!
Akureyringar vita það hins
vegar mæta vel, að hin marg-
þætta starfsemi samvinnufélag-
anna hér er bænum ómetanleg
menningarlega, atvinnu- og fjár-
hagslega.
Það ber vott um raunalega
málefnafátækt Alþýðuflokksins,
að hann skuli raula með. Alþýðu-
maðurinn tönnlast sífellt á ,skatt-
fríðindum“ KEA. Eru það „skatt-
fríðindi", að ekki er lagt á arð af
vörusölu & félagsmanna KEA?
Hverjar aðrar reglur ætli gildi
um útgjöld Kaupfélags verka-
manna en KEA til bæjarins?
Alþýðufl. sér ekkert nema
KEA.
Samanburður leiðir hins vegar
í Ijós, að Kaupfélag Verkamanna
greiðir 7 þús. kr. í bæjarsjóð en
KEA um 300 þús.
Svo ákafur er flokkurinn eða
öllu heldur flokksblaðið í árás-
um sínum á KEA, að það gleym-
ir alveg Framsóknarflokknum!
Sennilega stæði Alþýðuflokknum
nær að fylgja fordæmi flokks-
bræðra sinna á Norðurlöndum og
í Bretlandi og styðja ærlega sam-
tök samvinnuhanna í stað þess
að dindlast aftan í íhaldinu og
hljóta við það nafngiftina litla-
íhaldið.
Skattavísindi vegaverkstjórans.
Ekki flíka Sjálfstæðismenn
fínu fötunum um mannaval, enda
er það haft eftir mætum flokks
mönnum, að þeim væri mátuleg
ast að skríða inn með 2 fulltrúa
kjörna. Karl verkstjóri, einn af
efstu mönnum listans ritar „stat
istik“ yfir útsvör á ýmsum tím-
um hér í bænum. Hann segir, að
útsvörin hér á Akureyri séu þau
hæstu á landinu öllu.
Sex bæir hærri útsvör.
Skýrslur um þessi efni segja,
að miðað við hvern íbúa sé upp
hæð útsvara sem hér segir, á
seinasta ári, í bæjunum:
Reykjavík kr. 1065
Hafnarfjörður — 996
Isafjörður — 868
Neskaupstaður — 851
Akranes — 760
Sauðárkrókur — 799
Akureyri — 757
Lægra meðalútsvar er hins
vegar í Keflavík, Siglufirði, Ól-
afsfirði, Vestmannaeyjum og
Seyðisfirði.
Ennfremur kveður hann útsvar
KEA 1/8% af útsvörum bæjar-
ins. En KEA greiðir auk útsvars-
ins til bæjarins 90 þús. kr. af
stríðsgróðaskatti, 30 þús. kr. sam-
vinnuskatt. Ennfremur bera sér-
fyrirtæki KEA 50 þús. kr. útsvar.
Svo að sennilega er hér reiknað
með 100 þús. kr. í stað nærri 300
þús. kr.
Þá er og ástæða til að rifja það
upp, að meðan samvinnufélögin
voru á bernskuskeiði reyndu
kaupmangarar að sliga þau með
álögum.
Ef að Karl leggur ekki betri
vegi en skrif hans um samtök
samvinnumanna eru, á hann
varla skilið verkstjóranafnið. —
Stefna kaupmangaranna er sú, að
telja kaupmenn og aðra milliliði
sjálfsagða til að dreifa neyzlu-
varningi almennings til þess að
græða sjálfir. Það er aðeins yfir-
skin, þegar þeir eru að telja al-
menningi trú um, að með' því
móti greiðist meira í bæjarkass-
m.
Hvernig verða sjóðir kaup-
mannanna til? Hverjir greiða í
þá sjóði? Engir aðrir en bæjar-
menn sjálfir. En munurinn er að-
eins sá að afgangs verður heil-
mikið fjármagn, sem er ekki al-
mennings eign, heldur einstakra
manna, sem e. t. v. flytja það á
braut einn góðan veðurdag.
Stefna samvinnumanna.
Hinsvegar er stefna samvinnu-
manna, sem segir: Við viljum
mynda félög meðal okkar til þess
að fá vöruna við sannvirði. Það
eru ekki skattfríðindi neinum til
handa, þegar bundizt er slíkum
samtökum. Það er einungis sam-
takamáttur almennings, sem
speglar lífsviðhorf og réttar-
meðvitund frjálshuga fólks.
Listi Framsóknarmanna er
B-LISTINN - Kjósið snemma!
999