Dagur - 13.12.1950, Qupperneq 1
16 síður
Næsta blaði, sem kemur út 20.
þ. m., fylgir jóla-lesbók. Aug-
lýsingar þurfa að berast afgr.
á mánudag næstk.
Athugið að fleiri bæjarmenn
sjá auglýsingar í Degi en
nokkru öðru blaði.
XXXIII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 13. desember 1950
53. tbl.
Forseti Allsherjarþingsins
Forseti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, er nú situr, er Naz-
roitah Entezam sendiherra íran í Washington, og sést hann hér á
myndinni t. v., en Tryggve Lie framkvæmdastjóri S. Þ. t. h. Mörg
örlagarík mál bíða nú afgreiðslu Allsherjarþingsins, m. a. Kóreu-
málið og afskiuti Kínverja af styrjöldinni bar.
Sfærsta vélbát Húsavíkinga rak
upp í fjöru í ofviðrinu
esta hnm sem komið heíur í Húsa-
vík í manna rnimram
Fárviðri af norðri með fannkomu
á sunnudaginn
Talsverðar skemmdir á mannvirkjum
hér í firðinum af völdum storms og
óveniulega mikils siógangs
Norðan stórviðrið, sem gekk
hér yfir á sunnudaginn, er eitt
versta veður, sem komið hefur í
Skipshöfn ,JIarðhaks“
fór utan með ,,Svalbak“
Skipshöfnin, sem á að sigla bv.
„Harðbak“ hingað heim, fór utan
með bv. Svalbak á föstudags-
morguninn, og mun skipið lík-
lega hafa komið til Bretlands í
gær, en mun selja afla sinn þar í
dag. Svalbakur hafði um 3000 kit.
Enn rýkur úr Heklu
Teitur Eyjólfsson bóndi í
Eyvindartungu hefur skýrt
Tímaiuun frá því, að þótt hvítt
sé allt niður á láglcndi í kring-
um Heklu, festi engan snjó á
öxl fjallsins, þar sem eldgosið
var 1947. Segir Iiarm og að enn
megi sjá allmikim reyk Icggja
upp af fjallinu. Viroist bví enu
volgt í iðrum gömhi 'TT~’ !u.
Húsavík um langan aldur, og
brimið var meira en elztu menn
muna.
Gekk sjórinn langt á land upp,
enda var stórstraumsflóð um það
bil er veður var verst. Ekki urðu
verulegar skemmdir á landi, en
þó braut sjórinn beitingaskúr á
planinu inni í höfninni. En veru-
legt tjón varð á bátum í höfninni
og það mest, að vébátinn Smára,
stærsta vélbátinn í Húsavík, rak
upp í fjöru syðst í víkinni og
mun báturinn eitthvað brotinn,
enda þótt talið væri fullvíst, að
takast mundi að ná honum út.
Þetta er tveggja ára gamall vél-
bátur, um 60 lestir, eign Útgerð-
arfélagsins Vísir.
Þrír trillubátar fórust í ofviðr-
inu, tveir sukku, en einn rak upp
í fjöru inni í höíninni. — Um
skemmdir í héraðinu hafði ekki
frétzt, er blaðið átti tal við Húsa-
vík í gær. Snjókoma var ekki
rnikil þar cystra og mun vera
hægt að komast á bílum um hér-
aðið.
Mjólkurflutningar
í gær þrátt fyrir
ófærð
í gær komu mjólkurbílar úr
öllum hreppum héraðsins, þaðan
sem von var á mjólk, nema
Höfðahverfi, og má því telja að
akfært sé um mest allt héraðið.
Mjólkurbílarnir úr Svarfaðardal,
sem koma áttu í fyrradag, komu
ekki fyrr en um nóttina og mun
þungt færi víða á leiðinni.
Það var ekki okkar
„Snæfell44
Sunnanblöðin hafa birt fregnir
af því að vélskipið „Snæfell“ hafi
strandað á Reykjanesi og sent út
neyðarskeyti. Skipið komst fljótt
á flot aftur, og mun ekki hafa
sakað. Þetta var ekki „Snæfell"
Útgerðarfélags KEA, heldur
mun þarna vera um að ræða vél-
bát af Snæfellsnesi, sem ber sama
nafn. Okkar Snæfell er nú að
lesta saltfisk sunnanlands, er það
flytur til Bretlands.
„Stjarnan‘; seldi fyrir
kr. 2.32 pr. kg.
Vélskipið Stjarnan héðan frá
Akureyri seldi 953 kit af báta-
fiski í Fleetwood 9. þ. m. fyrir
3059 sterlingspund,. og er það
ágæt sala og gerir kr. 2.32 fyrir
kílóið. Fiskinn tók skipið í Horna
firði.
Danir segja grænlenzk-
ar rækjur fyrsta flokks
dollaravörur
Dönsk blöð eru mjög stolt af
því nú eftir mánaðamótin, að
„danskt frumkvæði" hafi fundið
verðmæta dollaraútflutnings-
vöru. Segir „Social-Demokrat-
en“ svo frá 6. des. sl.: „Þessi vara
er sótt á Grænlandsmið, þar sem
fundizt hefur, eftir geysilegt erf-
iði, sú bi’agðbezta rækja, sem til
er. Rækjurnar eru hraðfrystar og
fluttar út, en fást líka í verzlun-
um hér heima, í hinum sömu,
smekklegu cellófan-umbúðum,
sem útflutningsvaran er pökkuð
í. Það er Grænlandsstjórn og
„Det Grönlandske Fiskerikomp-
agni“, sem áttu frumkvæðið að
þessu, og í gær (5. des.) var skýrt
frá árangrinum í móttökuathöfn,
þar sem mættur var fiskimála-
ráðherrann, Grænlandsnefndin
og ýmsir útgerðar- og kaup-
sýslumenn". Blaðið segir síðan
að skýrslur og myndir hafi gefið
góða hugmynd um hin gífurlegu
auðæfi, sem fólgin séu í hafinu
við Grænland.
Undir morgun sl. sunnudag
brast hér á fárviðri af norðri
með mikilli snjókomu og geysaði
stórhríðin allan sunnudaginn, svo
að ekki var fært bæja í milli hér-
áðinu og naumast hægt að kom-
ast leiðar sinnar hér um bæinn.
Er þetta ein mesta norðan stór-
hríð, scm komið hefur hér í mörg
ár. Var veðurhæðin hér á Akur-
eyri 8—10 vmdstig nær allan
daginn, en mun hafa verið meiri
hér út með firðinum.
Talsverðar skemmdir urðu í
veðrinu hér í bæ og í þorpunum
hér út með firðinum. Eru
skemmdirnar aðallega af völdum
sjógangs, því að stórstraumsflóð
var, er veðrið skal) á. Gerði brátt
meira brim en komið hefur hér
um slóðir í mörg ár og gekk sjór
víða allhátt upp á land.
Skenundir á Oddeyrarbryggjum.
Hér á Akureyri varð aðaltjón-
ið á frystihúsbryggju KEA og
svokallaðri Wathne-bryggju á
Oddeyrartanga. Sópaði sjórinn
„dekkinu" af bryggjunum, og
gekk upp í nærliggjandi hús, svo
sem skipasmíðastöð KEA og
frystihús. Ekki urðu samt veru-
legar skemmdir þar. Þá braut
brimið nokkuð af kambinum fyr-
ir framan hinn nýja olíugeymi
Olíufélagsins, en náði ekki að
skemma geyminn eða grafa und-
an honum. Flæddi sjór lengra
upp á Oddeyrina en ðftast áður
og segja kunnugir, að brimiö við
Oddeyrartangann sé eitt hið
mesta, sem hér hefur gert á seinni
árum. Inn við Höpfnersbryggju
losnaði línuveiðarinn Andey, sem
þar hefur lengi legið,-frá bryggj-
unni og rak um dokkina. A. m. k.
einn trillubátur sökk þar og mun
hafa laskast eitthvað.
Brimið skemmdi hafnargarðinn
í Dalvík.
Veðurofsinn í Dalvík mun hafa
verið enn meiri en hér og gekk
brimið hátt á land upp við kaup-
túnið. Braut það skarð í hafnar-
garðinn um það bil miðjan. Þess-
ar skemmdir munu þó ekki stór-
vægilegar, en ekki höfðu þær
verið rannsakaðar til hlítar er
blaðið átti síðast tal við Dalvík.
Þá braut sjórinn geymsluhús við
sjóinn er kaupíélagið átti og
eyðilagði það að mestu. í húsinu
var geymd olía frá Olíuíélaginu,
en henni tókst að bjarga.
Trillubátur týndur frá Hrísey.
í Hrísey var veðurofsinn gífur-
legur og mikið brim, svo að þar
hefur ekki sést annar eins sjó-
gangur um langan tíma. Trillu-
báturinn Kópur, eign Gísla
Tryggvasonar í Hrísey, týndist af
legunni, og mun annað tveggja
hafa sokkið þar eða slitnað upp
og rekið á land einhvers staðar
inn með firðinum. Sjór gekk upp
á eyjuna neðan við kauptúnið, en
ekki munu samt hafa orðið
skemmdir að neinu ráði á húsum
og mannvirkjum þar.
Trilla frá Grenivík týndist.
Trillubátur týndist og frá báta-
legunni í Grenivík og er ætlað að
hann hafi annað tveggja sokkið
þar eða slitnað upp og rekið á
land einhvers staðar inn með
firðinum. Eigandi hans er Stefán
Stefánsson í Sólgörðum.
Hauganes. — Trillubáturinn
Freyja annað tveggja sökk á
bátalegunni eða slitnaði upp. Var
hann horfinn, er upp birti.
Litli -Árskógssandur. Einhverj -
ar skemmdir urðu á bryggjunni
þar.
Símasambandslaust var við
Olafsfjörð og ekki unnt að fá
fregnir þaðan að sinni af veðrinu
þar og því, hvort þar hefur orðið
tjón. Vel má og vera að tjón hafi
víðar orðið, þótt fregnir um það
liggi ekki fyrir enn, en símasamb.
er víða slitið og samgöngúr eru
mjög erfiðar vegna snjóþunga á
vegum.
Þrír menn fórust við
Steingrímsfjörð
í ofviðrinu um miðja s. 1» viku,
týndist trillubátur frá Heydalsá
við Steingrímsfjörð. Þrír menn
voru á bátnum og eru þeir nú
taldir af. Eru það bræðurnir frá
Heydalsá, Björn og Guðmundur
Guðbrandssynir, og voru þeir
eigendur bátsins, og Aðalbjörn
Þórðarson frá Klúku. Bátsins
liefur verið leitað víða, en án
árangurs.